Gallais skrifaði:
Bonjour, Je ne comprend pas, dans l'empiècement, en taille M, après les premières augmentations on a 132 mailles, puis on augmenta 3 X 4 mailles, ce qui devrait faire 144. Or vous dites que l'on a 156 mailles après toutes les augmentations. Merci
02.04.2023 - 22:32DROPS Design svaraði:
Bonjour Gallais, est-ce que vous avez donne de bons chiffres? Dites-moi ou vous etes exactement dane le modele.
04.04.2023 - 07:55
Susi skrifaði:
Dann nehme ich im Bereich des verkürzten Randes doppelt so schnell zu wie später bei den darauf folgenden Raglanzunahmen in jeder 2.Reihe?
13.03.2023 - 12:19DROPS Design svaraði:
Liebe Susi, es sind aber nur 7 Reihen und nur 5 mit 8 Zunahmen + 2 mit je 4 Zunahmen (für symmetrische Zunahmen ). Dann nimmt man 14 bis 24 Mal (siehe Größe) = 28 bis 48 Runden. Viel Spaß beim stricken!
13.03.2023 - 13:31
Susi skrifaði:
Verkürzte Reihen: Raglanzunahme beidseitig in jeder Reihe, also Hin- und Rückreihe? Nach der Erhöhung die weiteren Raglanzunahmen dann in jeder 2. Reihe, also nur in der Hinreihe durchführen?
13.03.2023 - 10:23DROPS Design svaraði:
Liebe Susi, ja genau, bei den verkürzten Reihen wird man in jeder Reihe (Hin- und Rückreihe) zunehmen, und bei der Passe zuerst in jeder 2. Runde, dann je nach der Größe in jeder 2. R nur beim Vorder- und Rückenteil zunehmen. Viel Spaß beim stricken!
13.03.2023 - 10:43
Susana Crespo skrifaði:
Brushstrokes of heaven
19.01.2023 - 20:15
Zia skrifaði:
Sandy beach
19.01.2023 - 03:18
HEIKE skrifaði:
Periwinkle
17.01.2023 - 19:17
Wanda skrifaði:
Sand and Sky
17.01.2023 - 18:03
Rising Blue Tide#risingbluetidesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-20 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan / á eftir 2 lykkjum í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma, prjónamerkin sitja á milli þessa 2 lykkja. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-88-88-104-104-104 lykkjur með 1 þræði DROPS Soft Tweed í litnum marsipan og 1 þræði í DROPS Kid-Silk í litnum natur yfir hringprjón 5,5 og hringprjón 4,5 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 5,5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 4,5 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkja slétt. Þegar stroffið mælist 12 cm, er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð slétt JAFNFRAMT því sem fjórða hver lykkja er prjónuð saman með fjórðu hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Stykkið er nú mælt héðan. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja. Teljið 12-12-12-16-16-16 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki, teljið 24-24-24-32-32-32 lykkjur (framstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki, það eru 12-12-12-16-16-16 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (hálft bakstykki): HÁLSMÁL: Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Byrjið mitt að aftan: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), snúið þegar 3 lykkjur hafa verið prjónaðar fram hjá öðru prjónamerki. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar 3 lykkjur hafa verið prjónaðar fram hjá síðasta prjónamerki. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 5 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), prjónið að miðju að aftan. Klippið þráðinn. Stuttar umferðir hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 6 sinnum fyrir laskalínu = 136-136-136-152-152-152 lykkjur í umferð. Síðan er prjónað í hring yfir allar lykkjur frá miðju að aftan. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu þannig: Aukið er út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki / bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð, aukið er út til skiptist um 4 og 8 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið svona út 14-16-20-22-24-24 sinnum á fram- og bakstykki (7-8-10-11-12-12 sinnum á ermum). Það eru nú 220-232-256-284-296-296 lykkjur í umferð. Stærð S, M, L, XXL og XXXL (útaukningu í stærð XL er lokið): Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en nú er einungis aukið út á fram- og bakstykki, útaukningu fyrir ermar er lokið. Aukið út í annarri hverri umferð alls 3-3-2-1-5 sinnum. ALLAR STÆRÐIR: Nú hefur verið aukið út alls 23-25-28-28-31-35 sinnum á fram- og bakstykki og 13-14-16-17-18-18 sinnum á ermum (ásamt útaukningu í stuttum umferðum í hálsmáli). Á eftir síðustu útaukningu eru 232-244-264-284-300-316 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist ca 21-24-26-26-30-34 cm, mælt mitt að framan á eftir stroffi í hálsmáli. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 35-37-40-44-47-51 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 46-48-52-54-56-56 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-12-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 70-74-80-88-94-102 lykkjur (framstykki), setjið næstu 46-48-52-54-56-56 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-12-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 35-37-40-44-47-51 lykkjur sem eftir eru (hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 160-172-184-204-220-240 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 17-16-16-18-16-14 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 40-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 200-212-228-252-272-296 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 46-48-52-54-56-56 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-12-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-60-64-68-72-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4-3-2½-1½-1½-1 cm millibili alls 6-8-9-11-10-10 sinnum = 44-44-46-46-52-54 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 28-26-25-23-20-17 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-6-6-4-6 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Rendur eru prjónaðar þannig: Prjónið stroff með 1 þræði í litnum marsipan í Soft Tweed + 1 þræði í litnum natur í Kid-Silk í 7 cm, prjónið með 1 þræði í litnum marsipan í Soft Tweed + 1 þræði í litnum ljós gallabuxnablár í Kid-Silk í 7 cm, prjónið með 1 þræði í litnum vatnslitablár í Soft Tweed + 1 þræði í litnum ljós gallabuxnablár í Kid-Silk í 4 cm. (Alls 18 cm með stroffi). Fellið af. Ermin mælist ca 46-44-43-41-38-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #risingbluetidesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.