DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Promise of Spring

Prjónuð peysa úr DROPS Belle eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni, áferðamynstri, röndum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 241-7
DROPS Design: Mynstur vs-097
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-500-500-550 g litur 03, ljós beige
100-100-100-100-150-150 g litur 10, mosagrænn

Eða notið:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-500-550-600-600-650 g litur 08, ljós beige
150-150-150-150-200-200 g litur 18, ólífugrænn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki):
Sláið 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 lykkjur í hvorri hlið, uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um í hálsmáli þegar fækkað er um 1 og 1 lykkju):
Fækkið lykkjum í hálsmáli innan við 3 lykkjur í sléttprjóni.
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 3 LYKKJUR SLÉTTPRJÓN ÞANNIG:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 3 LYKKJUR SLÉTTPRJÓN ÞANNIG:
Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir mitt að framan, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 síðustu lykkjur í sléttprjóni (1 lykkja færri).

ÚTAUKNING-2 (á við um mitt undir ermum):
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju þannig: Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkjuna með prjónamerki, sláið 1 sinni um prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur A.1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón neðan frá og upp. Þegar stykkið hefur verið saumað saman er kantur í hálsmáli prjónaður í hring á stuttan hringprjón.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 120-132-144-156-172-188 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Belle í litnum ljós beige. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff fram og til baka með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroffið þar til stykkið mælist 10 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið sléttprjón jafnframt því sem fækkað er um 30-34-38-40-44-50 lykkjur jafnt yfir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 90-98-106-116-128-138 lykkjur.
Haldið áfram með sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Endurtakið útaukninguna með 2 cm millibili þar til aukið hefur verið út alls 5 sinnum í hvorri hlið = 100-108-116-126-138-148 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14-14-15-15-15-16 cm frá uppfitjunarkanti er prjónað áfram með A.1.
Prjónið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm. Í lok 2 næstu umferða er fitjuð upp 1 ný lykkja sem er notuð til að sauma ermarnar í = 102-110-118-128-140-150 lykkjur. Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist ca 38-38-39-43-43-44 cm. Nú er prjónað sléttprjón (í litnum ljós beige) yfir allar lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm. Í næstu umferð eru miðju 18-18-18-20-20-20 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli og setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram.

HÁLSMÁL:
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum, síðan er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli 4-5-5-5-5-6 sinnum – sjá ÚRTAKA.

SKÁHALLANDI ÖXL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl, en til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn. Setjið 6-7-8-9-10-11 lykkjur á þráð 4 sinnum, síðan eru síðustu 7-6-6-6-8-8 lykkjur settar á þráð. Nú hafa allar lykkjur verið felldar af eða settar á þráð.
Setjið til baka 31-34-38-42-48-52 lykkjur af þræði á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón, en til að sleppa við göt þegar snúið er mitt í stykki, sækið þráðinn á milli 2 lykkja og prjónið snúið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp jafnmargar lykkjur og prjónið alveg eins og framstykkið. Stillið A.1 af eftir framstykki þannig að rendurnar verði alveg eins.
Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Í næstu umferð eru miðju 36-38-38-40-40-42 lykkjur felldar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli og setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram.

HÁLSMÁL:
Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum – sjá ÚRTAKA.

SKÁHALLANDI ÖXL:
JAFNFRAMT eru ystu lykkjur við handveg settar á þráð fyrir skáhallandi öxl, en til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráð. Setjið 6-7-8-9-10-11 lykkjur á þráðinn 4 sinnum, síðan eru síðustu 7-6-6-6-8-8 lykkjur settar á þráðinn. Nú hafa allar lykkjur verið settar á þráð.
Setjið til baka 31-34-38-42-48-52 lykkjur af þræði á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón, en til að sleppa við göt þegar snúið er mitt í stykki, sækið þráðinn á milli 2 lykkja og prjónið snúið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 72-76-80-84-88-92 lykkjur á sokkaprjón 3 með DROPS Belle í litnum mosagrænn. Prjónið 3 umferðir stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Skiptið yfir í litinn ljós beige og haldið áfram með (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 14 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 18-20-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð. Prjónamerkið merkir mitt undir ermi og er notað þegar auka á út.
Prjónið A.1 hringinn og aukið jafnframt út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2.
Aukið svona út með 2½-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 11-12-13-14-15-16 sinnum = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. Haldið áfram með A.1 að loka máli. Fellið af þegar stykkið mælist 47-46-45-44-42-40 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma, byrjið á að sauma þar sem fitjuð var upp 1 ný lykkja í hvorri hlið og saumið innan við 1 lykkju niður þar sem stroffið byrjar (það á að vera klauf í hvorri hlið). Saumið ermar í innan við 1 lykkju í hvorri hlið á framstykki/bakstykki.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið stuttan hringprjón 3 og prjónið upp með litnum ljós beige ca 116-128 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan). Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til kanturinn í hálsmáli mælist 5 cm. Skiptið yfir í litinn mosagrænn og prjónið áfram þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 11 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.03.2023
Leiðrétting á efnismagni í öllum stærðum
Yfirfarið á vefsvæði: 11.04.2023
KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 3 og prjónið upp með litnum ljós beige ca 116-128 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan). Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til kanturinn í hálsmáli mælist 5 cm.
Yfirfarið á vefsvæði: 28.04.2023
FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Prjónað er sléttprjón í stað A.1.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu með litnum ljós beige
symbols = brugðin lykkja frá réttu með litnum ljós beige
symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu með litnum mosagrænn
symbols = brugðin lykkja frá réttu með litnum mosagrænn
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (49)

country flag Laura D wrote:

Attention, pour le modèle en taille M 1 seule pelote verte suffit largement. A l'inverse, il m'a manqué une pelote couleur naturel pour finir le pull....

26.04.2024 - 16:48

country flag Annet Van Loon wrote:

Helemaal enthousiast over het patroon van de damestrui. Promise of Spring met breigaren Drops Belle Helaas kan ik niet met een rondbreinld breien. Is het mogelijk dat ik dit patroon met twee nld kan breien en zo ja waar moet ik op letten en waar moet het aangepast worden. Graag hoor ik van u. Met vriendelijke groet Annet van Loon

09.04.2024 - 19:12

DROPS Design answered:

Dag Annet,

Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.

10.04.2024 - 08:39

country flag Maja wrote:

Der er en lille fejl i opskriften: Merino Extra Fine farve nr 08 er ikke Lys Beige, men Gråbeige. Lys beige er nr 50 :)

05.11.2023 - 18:47

country flag Stephanie wrote:

Hiya! When working on the first neck section where it says to 'Cast off for the neck 3 stitches 1 time, 2 stitches 2 times, then decrease 1 stitch 4-5-5-5-5-6 times - read DECREASE TIP. 2.', how is this different from casting off 7 stitches and then decreasing 4/5/6 times? This is my first time doing any neck shaping so any description of what it is supposed to look like and how many stitches we're to have left on the needles would be appreciated! Thank you!

25.10.2023 - 01:17

DROPS Design answered:

Hi Stephanie, If you cast off too many stitches in one go you will get a jagged neck rather than a smooth rounding off. On the front piece, you cast off on each side 3 stitches once, then 2 stitches 2 times = 14 stitches (7 on each side), then if, for example, you are working size S, you cast off 1 stitch 4 times on each side = 14 + 8 = 22 stitches in total. As you are placing stitches on a stitch holder for the diagonal shoulders the total number of stitches on the needle will be 0, before placing the shoulder stitches back on the needle. Hope this helps and happy knitting!

25.10.2023 - 07:27

country flag Christine wrote:

Bonjour, pour faire suite à ma question précédente pour l'épaule, encolure du dos: "BIAIS DES ÉPAULES: EN MÊME TEMPS, mettre les mailles de l'épaule en attente, en début de rang à partir de l'emmanchure, pour ne pas couper le fil, . Mettre en attente: 4 fois 7 mailles puis mettre les 6 dernières mailles en attente." Donc combien de rangs ai-je pour l'épaule ? 28 - 6 = 22 mailles? Merci!

28.09.2023 - 23:38

country flag Christine wrote:

Bonjour, concernant l'ENCOLURE et épaules dos:"Diminuer 2 fois 1 maille pour l'encolure tous les rangs sur l'endroit" Donc à chaque rang endroit de l'épaule, je diminue de 2 mailles? Merci!

28.09.2023 - 23:35

DROPS Design answered:

cf ci-dessous :)

02.10.2023 - 08:25

country flag Christine wrote:

Bonjour, suite de ma question précédente pour l'épaule, encolure du dos: "BIAIS DES ÉPAULES: EN MÊME TEMPS, mettre les mailles de l'épaule en attente, en début de rang à partir de l'emmanchure, pour ne pas couper le fil, . Mettre en attente: 4 fois 7 mailles puis mettre les 6 dernières mailles en attente." Donc combien de rangs ai-je pour l'épaule ? 28 ÷ 6 ?? Merci!

27.09.2023 - 03:47

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, il doit vous rester 34 mailles pour l'épaule: vous tricotez des rangs raccourcis en laissant 4 fois 7 mailles puis 1 x 6 mailles soit 34 mailles au total. Bon tricot!

29.09.2023 - 08:01

country flag Christine wrote:

Bonjour, concernant l'ENCOLURE et épaules dos:"Diminuer 2 fois 1 maille pour l\'encolure tous les rangs sur l'endroit" Donc à chaque rang endroit de l'épaule, je diminue de 2 mailles? Merci!

27.09.2023 - 03:43

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, tout à fait, pour le dos, épaule droite, vous diminuerez en fin de rang sur l'endroit et pour le dos, épaule gauche, vous diminuerez en début de rang sur l'endroit. Bon tricot!

29.09.2023 - 08:00

country flag Christine wrote:

Bonjour, je suis rendue à la 1ère augmentation du devant quand l'ouvrage mesure 12cm à partir du rang de montage. Il faut alors "augmenter 1 maille de chaque côté, à répéter 5 fois au total de chaque côté tous les 2 cm". "Quand l'ouvrage mesure 14 cm à partir du rang de montage, tricoter A.1." Donc on incorpore le motif A.1 à travers les augmentations? Merci!

17.09.2023 - 16:55

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, A.1 est tricoté sur toutes les mailles sur l'aiguille, autrement dit, y compris les augmentations. Bon tricot!

18.09.2023 - 15:45

country flag Medina Avdic wrote:

Hey, I don't understand the section "Bind off for the neck 3 stitches 1 time, 2 stitches 2 times, then decrease 1 stitch 4-5-5-5-5-6 times - read DECREASE TIP". It doesn't make any sense to me. I don't get when to decrease AND bind off. I'm not sure what it's supposed to look like. Is there another way to explain it? I'm about to follow a different neck-shaping pattern because the instructions are super unclear :(

16.09.2023 - 23:01

DROPS Design answered:

Dear Medina, first you cast off for the neck 3 stitches once (on a row from the neck). Then cast off 2 stitches 2 times. Finally, after casting off these stitches, decrease 1 stitch 4-5-5-5-5-6 times (depending on the size - you decrease on 4,5 or 6 rows from the right side). This decrease is worked after the 3 stitches in stocking stitch on the right side of the neck; and before the 3 stitches in stocking stitch on the left side of the neck. You can see in the DECREASE TIP how to work each type of decrease. Happy knitting!

17.09.2023 - 21:24