Micebyliz skrifaði:
Love the sweater. Will have to figure out how to knit this left handed. The instructions look petty good. Wish I could click a translate button lol.
18.07.2023 - 00:29
Ciara skrifaði:
It would be really helpful if the model height and what general clothes size they are, and also what size the garment is they are modelling.
21.06.2023 - 11:18
Aurelia Gabrysiak skrifaði:
Dzień dobry. Nigdzie nie mogę znaleźć takiej informacji. Czy mam prawo zrobić sweter z darmowego wzoru i potem go sprzedać(sweter nie wzór)? Jeśli tak to są jakie specjalne warunki? Dziękuję za odpowiedź. Aurelia Gabrysiak
08.03.2023 - 22:55DROPS Design svaraði:
Witaj Aurelio, sprzedaż gotowej odzieży wykonanej na bazie wzorów DROPS jest dozwolona, o ile są one wytwarzane jednostkowo lub na zlecenie. Po więcej informacji patrz Copyright, który znajduje się na końcu każdego wzoru. Pozdrawiamy!
09.03.2023 - 08:21
Melissa Paulick skrifaði:
Kan man strikke denne opskrift i Brushed Alpaka Silk istedet for Kid Silk? Hvor mange tråde?
28.02.2023 - 07:58DROPS Design svaraði:
Hej Melissa, ja det kan du og da skal du strikke med 2 tråde DROPS Brushed Alpaca Silk. Prøv vores garn-omregner - vælg DROPS Kid-Silk, vælg antal gram i din størrelse og vælg 4 tråde, så får du resultatet i Brushed :)
28.02.2023 - 14:37
Marie skrifaði:
Hallo, sehr tollen Muster, kann man den Pulli mit dem gleichen Garn auch nur 3 fädig stricken statt 4? Dann ist es eher für den frühlixh gedacht? Danke
28.02.2023 - 00:10DROPS Design svaraði:
Liebe Marie, wenn Sie nur 3 Fädig stricken, haben Sie die selbe Textur/Maschenprobe wahrscheinlich nicht - und daann die Streifen würden auch verschieden. Sonnst können Sie auch unsere Modellen mit Kid-Silk smökern. Viel Spaß beim stricken!
28.02.2023 - 10:45
Susanne skrifaði:
Förstår inte mönstret Bakstycket ska stickas i storlek M 14 cm längs ärmhålan när jag börjar med ränder. Lägger därefter upp maskor för axel på framstycket -tolkar axel som de maskor som utgörs av ökningsmaskor som axel är det fel? Är axel de maskorna på bakstycket som inte är ökning axel? Vad är axel på bakstycket dvs var ska jag lägga upp de 22 m längs höger axel? Tacksam för svar snarast. Hälsningar Susanne
22.02.2023 - 20:01DROPS Design svaraði:
Hei Susanne. Ta en titt på de 3 (lyse blåe) hjelpevideoene til denne genseren. Selv om ikke maskeantallet er det du strikker / eller fra riktig side /retten / vrangen, kan videoene hjelpe deg å forstå hvordan Europeisk skulder strikkes. Du finner videoene nederst på siden. mvh DROPS Design
28.02.2023 - 19:46
Tracy skrifaði:
I would like to knit this in shades of blue then white. Could you recommend two shades of blue for me as hard to judge colour matches from photos alone . Love your website and beautiful patterns and yarns . Thank you
15.02.2023 - 08:10DROPS Design svaraði:
Dear Tracy, please contact your DROPS store, it will be easier for them to advice you the best matching shade of blues depending on what you'd like to - they can answer you even per mail or telephone. Happy knitting!
15.02.2023 - 10:10
Małgorzata skrifaði:
Co oznacza długość robótki wzdłuż podkroju rękawa? Która to jest długość ? czy to jest linia ramienia - długość od momentu zakończenia dodawania oczek ?
09.02.2023 - 13:50DROPS Design svaraði:
Witaj Małgosiu, linia ramienia to ta gdzie dodajemy oczka. Podkrój rękawa zaczyna się od momentu gdzie przestajesz dodawać oczka (na ramię) i zaczynasz przerabiać dżersejem w tę i z powrotem. Pozdrawiamy!
09.02.2023 - 14:51
Lara skrifaði:
Hi. Wenn ich das nicht mit 4 Fäden, sondern mit 1 oder maximal 2 stricken möchte - welche Garne wären bitte geeignet? Danke
06.02.2023 - 18:51DROPS Design svaraði:
Liebe Lara, gerne können Sie dann DROPS Wish (1 Faden) oder DROPS Brushed Alpaca Silk (2 Fäden) benutzen, unser Garnumrechner wird Ihnen die neue Garnmenge kalkulieren. Vergessen Sie aber nicht, die Maschenprobe zu stricken, sie muss stimmen, um richtige Maßen zu haben. Viel Spaß beim stricken!
08.02.2023 - 10:47
María Salud skrifaði:
Textura suave. Colores pastel. Me encanta
03.02.2023 - 14:39
Pink Infusion#pinkinfusionsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr 4 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl og röndum. Stærð XS - XXL.
DROPS 240-1 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. RENDUR: 2 umferðir með 1 þræði í litnum ljós bleikur + 3 þræðir í litnum kirsuber. 2 umferðir með 2 þráðum í litnum ljós bleikur + 2 þræðir í litnum kirsuber. Prjónið 14-15-16-17-18-19 cm með 1 þræði í litnum natur + 2 þræðir í litnum ljós bleikur + 1 þræði í litnum kirsuber. 2 umferðir með 3 þráðum í litnum ljós bleikur + 1 þræði í litnum natur. 2 umferðir með 3 þráðum í litnum natur + 1 þræði í litnum ljós bleikur. 4 þræðir í litnum natur til loka máls. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efsti hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar í kringum hvorn handveginn. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Í lokin er prjónaður kantur í kringum hálsmál, prjónað í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 26-26-28-30-30-30 lykkjur á hringprjón 7 með 4 þráðum í litnum kirsuber. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 3 lykkjurnar í hverri umferð. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun umferðar (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið svona áfram og aukið alveg eins út bæði frá réttu og frá röngu alls 18-20-22-22-24-28 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 62-66-72-74-78-86 lykkjur í umferð. Héðan er nú stykkið mælt! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Síðan er prjónað sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 12-13-13-14-15-15 cm meðfram handvegi. Nú er byrjað að prjóna RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til stykkið mælist 14-15-15-16-17-17 cm, mælt yst meðfram handvegi. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið upp 18-20-22-22-24-28 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónuð er upp 1 lykkja í hverri umferð frá kanti efst á bakstykki) með 4 þráðum í litnum kirsuber. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 7 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á eftir 3 lykkjum – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum 22-24-26-26-28-32 lykkjur. Geymið stykkið þegar síðasta umferð hefur verið prjónuð frá röngu. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. Prjónið upp 18-20-22-22-24-28 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 7 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á undan 3 lykkjum – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum 22-24-26-26-28-32 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 22-24-26-26-28-32 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 18-18-20-22-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið sléttprjón eins og áður yfir 22-24-26-26-28-32 lykkjur frá vinstra framstykki = 62-66-72-74-78-86 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-23-25-26-27-29 cm, er byrjað að prjóna RENDUR – munið eftir útskýringu að ofan. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 24-25-27-28-29-31 cm, mælt yst meðfram handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 62-66-72-74-78-86 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 4-4-4-8-12-12 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið sléttprjón yfir 62-66-72-74-78-86 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 4-4-4-8-12-12 nýjar lykkjur í lok umferðar = 132-140-152-164-180-196 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn og haldið áfram með rendur þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm – mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 24-24-24-28-32-36 lykkjur jafnt yfir = 156-164-176-192-212-232 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 7 og 4 þræði í litnum kirsuber, prjónið upp frá réttu 32-34-36-38-40-40 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 18-18-18-20-20-22 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 50-52-54-58-60-62 lykkjur meðfram handvegi. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 2-2-2-3-5-5 cm. Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 7 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 4-4-4-4-5-7 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 10-10-10-7-7-6 cm millibili alls 4-4-4-5-5-5 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11 cm, prjónið RENDUR eins og á fram- og bakstykki. Prjónið áfram þar til ermin mælist 40-40-40-39-38-36 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir ermi. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 48-48-48-47-46-44 cm. HÆGRI ERMI: Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, nema prjónið lykkjur upp á gagnstæða vegu, þ.e.a.s. það eru prjónaðar upp 18-18-18-20-20-22 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 32-34-36-38-40-40 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 64 til 76 lykkjur á stuttan hringprjón 6 með 4 þráðum í litnum kirsuber. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið laust af. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pinkinfusionsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.