Rikke skrifaði:
Ny strikker, så forstår ikke helt det med udskiftning af garn. Hvis jeg vil lave denne i xxxl i babymerino er det så muligt ? 3
23.12.2024 - 14:21DROPS Design svaraði:
Hei Rikke. Det kan du, men du må strikke med 4 tråder DROPS Baby Merino, og du må få den oppgitte strikkefastheten. Husk også regne ut hvor mye garn du trenger, les mer under TIPS & HJÆLP - DROPS Lektioner - Garnalternativer. mvh DROPS Design
02.01.2025 - 14:02
Jana skrifaði:
Hallo, danke für die tolle Anleitung. ich würde die Jacke gerne in einem dünneren Garn stricken. Leider blicke ich bei dem Garnumrechner nicht so ganz durch. Könnt Ihr mir vielleicht ein geeignetes Garn empfehlen und mir helfen, wie ich die Menge entsprechend umrechne? Vielen Dank schon mal vorab! Viele Grüße Jana
25.09.2023 - 14:52DROPS Design svaraði:
Liebe Jana, mit einer dünneren Wolle würde die Maschenprobe dann nicht mehr stimmen, so sollten Sie die ganze Anleitung sowie die entsprechende Garnmenge je nach Ihrer eigenen Maschenprobe umrechnen. Hier finden Sie alle unsere Anleitungen für Jacken mit Rundpasse und von oben nach unten gestrickt, filtern mit Ihrer eigenen Maschenprobe kann Ihnen vielleicht helfen. Viel Spaß beim stricken!
25.09.2023 - 15:45
Snowman Time Cardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og marglitu mynstri með snjókörlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 235-37 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar berustykki mælist ca 1 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-4-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 9½-9½-10-10-10-10 cm millibili. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bak-stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 62-62-66-70-70-74 lykkjur á stuttan hringprjón 6 með 1 þræði í litnum grábeige í DROPS Wish eða 2 þráðum í litnum beige í DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur slétt. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 6 cm, fitjið upp 4 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 70-70-74-78-78-82 lykkjur. Haldið áfram með stroff, en 4 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantar að framan). Þegar stroffið mælist 13 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 7-1-5-3-3-1 lykkjur jafnt yfir (ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur að framan) = 63-69-69-75-75-81 lykkjur. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þannig – frá réttu: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja sléttprjón í litnum grábeige, prjónið A.1 alls 9-10-10-11-11-12 sinnum og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist stykkið ca 17-17-17-20-20-20 cm frá prjónamerki og það eru 153-169-169-185-185-201 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið áfram með litnum grábeige / beige, sléttprjóni og garðaprjóni í kanti að framan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu eftir A.1 er aukið út um 7-7-13-13-21-21 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 160-176-182-198-206-222 lykkjur. Útaukning hefur nú verið gerð til loka í stærð S og M. STÆRÐ L, XL, XXL og XXXL: Þegar stykkið mælist 20-22-23-24 cm, aukið út um 10-6-14-14 lykkjur jafnt yfir = 192-204-220-236 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 160-176-192-204-220-236 lykkjur. Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 27-30-32-34-37-40 lykkjur (framstykki), setjið næstu 30-32-36-38-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 46-52-56-60-66-72 lykkjur (bakstykki), setjið næstu 30-32-36-38-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 27-30-32-34-37-40 lykkjur (framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 112-124-132-144-156-168 lykkjur. Haldið áfram með litinn grábeige / beige, sléttprjón og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Prjónið þar til stykkið mælist 20-20-21-21-21-21 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 30-38-38-42-46-50 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 142-162-170-186-202-218 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 11 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 30-32-36-38-40-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 36-38-42-46-48-50 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið við prjónamerki, notið litinn grábeige / beige og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 12-10-7-5-4-4 cm millibili alls 3-3-4-5-5-5 sinnum = 30-32-34-36-38-40 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 30-29-28-26-25-23 cm frá skiptingu – eða að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 11 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-8-10-8-10-12 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 11 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 41-40-39-37-36-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur ÚTSAUMUR: Saumið nef á snjókallana með frönskum hnútum í litnum tabasco / appelsína – sjá mynsturteikningu A1. og A. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.