Eva skrifaði:
Jag förstår inte var början på varvet är , ska börja med att sticka ärmar, framstycke och backstycket var gör sig stickar foggy autism
25.03.2026 - 16:15
Janed skrifaði:
Meine Enkelin möchte diesen Pullover (Foggy autumn) . Die ist 148 cm. Gibt es dafür auch eine Anleitung? Größe S ist ein bisschen zu groß.
08.03.2026 - 08:11DROPS Design svaraði:
Liebe Janed, hier finden Sie alle Basic Pullover für 11/12 Jahre (= 146-152 cm), vielleicht wird ihr ein von diesen Modelle gefallen? Viel Spaß beim Stricken!
09.03.2026 - 09:21
Hege skrifaði:
Kan dere rette opp mønstra? Det er feil ang. raglan/maskeantall i str. XXL (og i flere str. etter det jeg har lest her). Takk :-)
25.02.2026 - 14:11DROPS Design svaraði:
Hei Hege. Fint om du kan informere om hva du mener er feil. I str. XXL legger du opp 93 masker og etter halskanten øker du til 104 masker. Så settes det 4 merker i arbeidet (18+1+14+1+36+1+14+1+18 = 104 masker). Det økes 1 maske på hver side av maskene med merke pr øke omgang = 8 masker. Det økes 26 ganger = 8 x 26 = 208 økte masker + 104 masker man startet med = 208 + 104 = 312 masker, som det står i oppskriften. mvh DROPS Design
03.03.2026 - 09:02
Albert skrifaði:
Estimados DROPS DESIGN, He encontrado un error? al contar en el canesú (mitad de la espalda). Solo hay 5 tallas de las 6 y ninguno concuerda con la suma final de los puntos del canesú. Soy un admirador acérrimo de vuestros patrones. Muchas gracias.
22.02.2026 - 11:05DROPS Design svaraði:
Hola Albert, se trataba de una errata, para la talla más pequeña comenzamos contando 15 puntos, los puntos indicados son para el resto de tallas (M a XXXL). Ya está corregida.
22.02.2026 - 23:17
Nina Smed skrifaði:
Tror der er en fejl ente i udtagningen ved halsen eller også i opdelingen til raglan
21.02.2026 - 22:20
Jody skrifaði:
Easy knit but my sleeve holes are too big and it bugs me. Pattern easy to read
14.02.2026 - 17:57
Lianne Bos skrifaði:
Beste drops, Ik heb een vraag over een patroon van deze trui. Ik begrijp de volgende tekst niet: PAS: Brei 1 naald recht en meerder 15 steken verdeeld = 96 steken. Wat moet ik hier precies doen? Moet ik de eerste naald recht breien en dan meteen meerderen? En zo ja, hoe verdeel ik 15 steken om uit te komen op 96 steken? (Ik begin met 81 steken hier). Als ik 81 deel door 15 kom ik uit op 5,4 steek Ditzelfde zie ik ook nog een keer terugk
08.02.2026 - 21:44DROPS Design svaraði:
Dag Lianne,
Je meerdert tijdens het breien van die ene naald recht. Dus je meerdert tegelijkertijd gelijkmatig verdeeld over die naald 15 steken. Je meerdert dan ongeveer om de 5 a 6 steken. Je kunt ook gebruik maken van de meerder/minder calculator. Hiervoor vind je een button met een pictogram van een rekenmachine rechts onder in beeld bij elk patroon.
11.02.2026 - 09:42
Dominique Lamd skrifaði:
Je découvre votre site et ce beau modèle, malheureusement je n ai jamais tricoté en circulaire. N y a t il aucun modèle en aiguilles droites ?
29.01.2026 - 23:18DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Land, les aiguilles circulaires sont très couramment utilisées dans les pays scandinaves, aussi bien pour tricoter en rond (comme ici) ou pour tricoter en allers et retours; la plupart de nos modèles peuvent facilement être adaptées sur aiguilles droites (cf quelques astuces ici), nombreuses sont celles qui ont finalement adoptées les aiguilles circulaires après avoir osé essayé, consultez nos différentes vidéos et lancez-vous. Bon tricot!
30.01.2026 - 08:43
Magdalena Martin skrifaði:
Cuando se va a trabajar la labor con dos agujas, con cual hay que hacer la muestra?
17.01.2026 - 17:31DROPS Design svaraði:
Hola Magdalena, la muestra se trabaja con la aguja que vayas a usar principalmente, para la sección principal de la labor. En este caso, usamos la aguja de 4mm solo para los elásticos, por lo que nuestra aguja principal es la aguja de 5.5mm, y esta es la que usamos para la muestra.
18.03.2026 - 11:43
Charlotte Baltsen skrifaði:
Jeg glæder mig til at komme igang
16.01.2026 - 07:49
Foggy Autumn#foggyautumnsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 236-34 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki þannig: Prjónið að lykkju með merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með merki slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við öll merkin (8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig: Á UNDAN lykkju með merki: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, stingið vinstri prjóni í lykkjuna og setjið til baka yfir á vinstri prjón (þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn), prjónið uppsláttinn slétt (þ.e.a.s. uppslátturinn verður snúinn frá lykkju með merki). Á EFTIR lykkju með merki: Prjónið uppsláttinn snúinn slétt (þ.e.a.s. uppslátturinn frá lykkju með merki). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á viðum miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 78-81-87-90-93-96 lykkjur með DROPS Air yfir stuttan hringprjón 4 og hringprjón 5,5 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 5,5 og haldið lykkjunum eftir á stuttum hringprjón 4 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 9 cm er það brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í sléttprjóni jafnframt sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5,5. Setjið 1 merki í byrjun á umferð (mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu merki! BERUSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 14-15-17-10-11-14 lykkjur jafnt yfir = 92-96-104-100-104-100 lykkjur. Setjið nú 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar þannig: Teljið 15-16-18-17-18-19 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 30-32-36-34-36-39 lykkjur (framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, nú eru eftir 15-16-18-17-18-20 lykkjur í umferð (hálft bakstykki). Prjónið nú sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð alls 17-19-20-24-26-27 sinnum = 228-248-264-292-312-326 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 20-22-24-25-27-29 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig: Prjónið 34-37-39-43-47-49 lykkjur eins og áður, setjið næstu 46-50-54-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 68-74-78-86-94-99 lykkjur eins og áður, setjið næstu 46-50-54-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og prjónið síðustu 34-37-39-43-47-50 lykkjur eins og áður. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 152-164-176-192-212-222 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 24-24-24-25-25-25 cm frá skiptingu, aukið út um 13-13-16-18-19-21 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 165-177-192-210-231-243 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm, mælt frá öxl og niður. ERMI: Setjið 46-50-54-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-70-74-76 lykkjur. Setjið 1 merkþráð á milli 8-8-10-10-12-12 lykkja undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4½-4-3-2-2-1½ cm millibili alls 7-8-10-13-14-14 sinnum = 40-42-44-44-46-48 lykkjur. Þegar ermin mælist 34-33-31-31-29-28 cm frá skiptingu, aukið út um 5-6-7-7-5-6 lykkjur jafnt yfir = 45-48-51-51-51-54 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt) yfir allar lykkjur. Fellið af þegar stroffið mælist 8 cm. Ermin mælist ca 42-41-39-39-37-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #foggyautumnsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.