Viviane Oeyen Aerts skrifaði:
Kunnen jullie ook de rug van het breiwerk laten zien?
14.10.2023 - 18:14
Viviane Aerts skrifaði:
Kunnen jullie ook de rug van het breiwerk laten zien?
14.10.2023 - 18:11DROPS Design svaraði:
Dag Viviane,
Helaas hebben we alleen foto's van de voorkant. De kabels zitten ook op het achterpand.
15.10.2023 - 17:23
Pelletier skrifaði:
Merci beaucoup pour ces précisions et pour votre réponse extrêmement rapide. Cordialement. Martine Pelletier
24.03.2023 - 13:47
Pelletier skrifaði:
Le diagramme de ce modèle est de 24 mailles sur 20 rangs endroits (donc 40 allers-retours). Lorsque je commence l\'empiècement, je tricote A1 pour les dessins. Lorsque je suis arrivée en haut du diagramme (20 rangs endroit), dois-je repartir au 1er rang de ce diagramme ?\r\nJ\'espère être assez précise dans ma question.\r\n Merci d\'avance de m\'éclairer sur ce problème.\r\nCordialement.\r\nMartine.
24.03.2023 - 12:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Pelletier, le diagramme A.1 se tricote bien sur 24 mailles mais sur 20 rangs: tous les rangs sont représentés dans le diagramme, ceux sur l'endroit (que l'on va lire de droite à gauche) et ceux sur l'envers (que l'on va lire de gauche à droite). Lorsque vous avez terminé les 20 rangs, on recommence effectivement au début, on répète ainsi les 20 rangs en hauteur. Bon tricot!
24.03.2023 - 13:28
Gabriella skrifaði:
Greche antiche
04.08.2022 - 14:24
Autumn in the Air Cardigan#autumnintheaircardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma eð DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 237-21 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan/eftir A.1 eins og útskýrt er í uppskrift (í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma). Uppslátturinn er prjónaður þannig – frá röngu: Á UNDAN A.1: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR A.1: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, endið með 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli hefur verið prjónað til loka. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 10-10½-9-9-9½-10 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 113-117-121-125-129-133 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Karisma eða DROPS Daisy. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 7 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 7 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 3 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 24 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 137-141-145-149-153-157 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni, 3-4-4-4-5-6 lykkjur sléttprjón, aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 7-7-9-11-11-11 lykkjur sléttprjón (ermi), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 7-9-9-9-11-13 lykkjur sléttprjón (bakstykki), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 7-7-9-11-11-11 lykkjur sléttprjón (ermi), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 3-4-4-4-5-6 lykkjur sléttprjón og 7 lykkjur í garðaprjóni, munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur fyrir laskalínu = 145-149-153-157-161-165 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með þetta mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 25-27-30-34-35-36 sinnum (meðtalin útaukning í fyrstu umferð) = 337-357-385-421-433-445 lykkjur. Útaukning hefur verið gerð til loka í stærð L. Í öðrum stærðum heldur útaukning áfram eins og útskýrt er að neðan. Farðu í ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ S og M: Útaukning á fram- og bakstykki hefur nú verið gerð til loka. Prjónið áfram eins og áður og haldið áfram með útaukningu í hvorri hlið á ermum alls 2-1 sinnum til viðbótar = 345-361 lykkjur. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Útaukning á ermum hefur nú verið gerð til loka. Prjónið áfram eins og áður og haldið áfram með útaukningu á framstykki/bakstykki alls 2-5-8 sinnum til viðbótar = 429-453-477 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 345-361-385-429-453-477 lykkjur. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 22-24-26-27-29-31 cm frá prjónamerki við hálsmál (útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka). Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 59-62-65-71-76-81 lykkjur eins og áður, setjið næstu 61-63-69-79-81-83 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 105-111-117-129-139-149 lykkjur eins og áður, setjið næstu 61-63-69-79-81-83 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 59-62-65-71-76-81 lykkjur eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar er nú síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 235-251-267-291-315-339 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 7 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Að auki heldur A.1 áfram alveg eins og áður. Þegar stykkið mælist 20 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 24-26-26-30-32-34 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 259-277-293-321-347-373 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff frá röngu þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 61-63-69-79-81-83 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-71-79-89-93-97 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-3-3-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-1½-1½-1 cm millibili alls 4-5-8-12-13-14 sinnum = 59-61-63-65-67-69 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 38-37-35-36-34-33 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 5 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 42-41-39-40-38-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnintheaircardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.