DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Autumn’s Essence

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 235-7
DROPS Design: Mynstur ai-408
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-350-400-450-500 g litur 35, leir

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp að handvegi, síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig að loka máli.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón neðan frá og upp þar til ermakúpan byrjar, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna að loka máli.
Stykkið er síðan saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið aðeins laust upp 204-220-236-256-280-302 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn yfir allar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 4 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 22-22-26-26-30-32 lykkjur jafnt yfir = 182-198-210-230-250-270 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 91-99-105-115-125-135 lykkjur (í hliðar á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 5-6-5-6-6-5 cm frá uppfitjunarkanti.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * 15-14-17-17-22-22 lykkjur sléttprjón, A.2A, prjónið A.2B yfir næstu 50-60-60-70-70-80 lykkjur, A.2C, 15-14-17-17-22-22 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar.
Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm (stillið af að næsta umferð sé oddatölu umferð í mynsturteikningu), fellið af fyrir handveg þannig: Byrjið 3-3-3-4-5-6 lykkjur á undan fyrsta prjónamerki, fellið af 6-6-6-8-10-12 lykkjur, prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-5-6 lykkjur á undan næsta prjónamerki, fellið af 6-6-6-8-10-12 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina. Bakstykkið og framstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 85-93-99-107-115-123 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið mynstur eins og áður (kaðlar eru fléttaðir í hverri umferð frá réttu).
JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-2-3-5-5 sinnum og 1 lykkja 4-4-5-4-3-3 sinnum = 69-77-81-87-89-97 lykkjur.
Haldið áfram með A.2 eins og áður með 4-3-5-3-4-3 lykkjur sléttprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 42-43-46-47-47-50 cm, endið eftir 2. eða 10. umferð í A.2.
Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 27-27-27-29-29-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Prjónið áfram og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 19-23-25-27-28-32 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 85-93-99-107-115-123 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið alveg eins og bakstykki þar til stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm. Setjið nú miðju 17-17-17-19-19-19 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Prjónið áfram og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 19-23-25-27-28-32 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 56-58-60-60-62-64 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn.
Þegar stykkið mælist 4 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10 lykkjur jafnt yfir = 46-48-50-50-52-54 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 30-29-27-28-25-27 cm frá uppfijtunarkanti, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-2½-2½-1½-1½-1 cm millibili alls 5-6-7-10-11-13 sinnum = 56-60-64-70-74-80 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 45-45-44-44-42-41 cm. Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, fellið af 6 lykkjur og prjónið sléttprjón út umferðina.
Prjónið síðan ermakúpuna fram og til baka á hringprjón 5 þannig: Prjónið sléttprjón og fellið lykkjur af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 3-3-3-3-3-3 sinnum og 1 lykkju 2-2-2-2-3-3 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þar til ermin mælist 53-53-52-52-52-51 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 54-54-53-53-53-52 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu við aðra öxlina og prjónið upp ca 78-78-80-82-84-84 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 3,5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út jafnt yfir til 98-98-100-102-106-106 lykkjur.
Prjónið A.1 hringinn þar til kanturinn í hálsmáli mælist 10-10-11-11-12-12 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5 og fellið af aðeins laust. Brjótið kantinn í hálsmáli niður að innanverðu á stykki. Saumið kantinn niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = snúin lykkja slétt frá réttu, snúin lykkja brugðið frá röngu
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, stingið hægri prjóni aftan við á milli 2 lykkja á kaðlaprjóni og prjonið vinstri lykkju slétt, ekki lyfta lykkjunni af prjóni, prjónið hægri lykkju slétt þannig að hún komi til með að liggja á ská yfir hinar 2 lykkjurnar og lyftið báðum lykkjum yfir á vinstri prjón
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Edith Nierop wrote:

Bij de halsrand wordt het deel dat naar binnen wordt gevouwen met de dikste naald gebreid. Moet het niet net andersom. Zodat het grofste breiwerk aan de buitenkant komt?

29.12.2022 - 12:51

country flag Liane Terleth wrote:

Hallo, ik ben met de mouw bezig. Deze is nu 45cm en ik heb net 6 steken afgekant. Nu heb ik 54 steken over. Ik begrijp alleen niet of ik nu de komende 3 naalden alleen aan het begin van de 2 steken moet afkanten (resterend 48 steken). Of aan het begin en eind van de komende 3 naalden (resterend 42 steken). Kunnen jullie dat uitleggen en aangeven hoeveel steken er überhaupt aan het einde moeten zijn? Dank je wel Liane

18.12.2022 - 22:43

DROPS Design answered:

Dag Liane,

Je kant steeds alleen aan aan het begin van iedere naald af en niet aan het begin en het einde. Voorbeeld: wanneer je 3 keer 2 steken afkant heb je dus 6 naalden gebreid, waarbij je telkens 2 steken aan het begin van iedere naald 2 steken hebt afgekant. Hoeveel steken er over blijven hangt af van je maat.

22.12.2022 - 08:36

country flag Claudia wrote:

Hallo So habe wirklich versucht diesen Zopf im A2b zu Stricken.Nicht möglich. Man muss ja mit den Fingern um die Ecke gehen um dies zu schaffen.Kann man das auch von hinten rechts stricken an statt zwischen die Maschen?

12.11.2022 - 13:53

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, dieser Zopf (4. Symbol) zeigen wir in diesem Video - vielleichte kann es Ihnen helfen? Viel Spaß beim stricken!

14.11.2022 - 09:29

country flag Mette wrote:

Hej Drops Jeg kan simpelthen ikke forstå hvordan jeg skal strikke den sorte trekant nederst i diagram A.2B. Er det muligt at det kan blive forklaret mere uddybede, for kan simpelthen ikke gribe hvad det er mønsteret vil have jeg skal gøre. Eller bliver der lavet en video med det? På forhånd tusind tak!

24.10.2022 - 16:30

DROPS Design answered:

Hej Mette, vi laver en video, det kan tage et par dage, men hold øje her i video-oversigten :)

26.10.2022 - 09:07

country flag Eija Silvennoinen wrote:

Miten neulotaan 235-7 ohjeessa: A.2B ensimmäisellä kierroksella musta kolmio?

09.10.2022 - 17:29

DROPS Design answered:

Kolmio neulotaan näin: Siirrä 2 silmukkaa apupuikolle työn eteen, neulo 1 silmukka oikein, vie oikean käden puikko takakautta apupuikon 2 silmukan väliin ja neulo vasen silmukka oikein, älä pudota silmukkaa puikolta, neulo oikea silmukka oikein siten, että tämä silmukka laskeutuu viistoon 2 muun silmukan päälle, pudota molemmat silmukat vasemmalta puikolta

10.10.2022 - 18:40

country flag Marloes wrote:

Wat is de bedoeling bij: = zet 2 steken op een kabelnaald en houd deze voor het werk, 1 recht, brei met de rechter naald vanaf achter tussen de 2 steken op de kabelnaald en brei de linker steek recht, laat de steek niet van de naald afglijden, brei de rechter steek zodat deze diagonaal over de 2 andere steken ligt en laat beide steken van de linker naald af glijden. Linkersteek lukt, maar daarna? De linker zit ook in de weg? Alvast bedankt!

09.10.2022 - 16:05

DROPS Design answered:

Dag Marloes,

Nadat je 2 steken op een kabelnaald hebt gezet en aan de voorkant van het werk houdt, brei je nog 1 steek van de linker naald. Daarna brei je de 2 steken die op de kabelnaald staan. Je steekt daarvoor de rechter naald vanaf de achterkant in en je breit eerst de tweede steek, dus de linker steek, zonder die steek van de naald af te laten glijden. Dan brei je de eerste steek van de kabelnaald en dan laat je beide steken van de (kabel)naald af glijden.

12.10.2022 - 19:58

country flag Purlyplatypus wrote:

Sunny meadow

05.08.2022 - 07:30