Jenny skrifaði:
I stickfastheten anges inte vilket sticknummer som avses utgå ifrån. Ska jag anta att det är garnets rekommenderade nummer 3 ?
08.04.2025 - 20:20DROPS Design svaraði:
Hej Jenny. Det är den större av de 2 (den som ska användas vid slätstickning) som du ska använda när du mäter stickfastheten. Mvh DROPS Design
09.04.2025 - 10:37
Tanja skrifaði:
Werden die Raglanzunahmen während der verkürzten Reihen in jeder Reihe oder lediglich in jeder Hinreihe gestrickt? In der Beschreibung der Raglan-Zunahme steht "in jeder Reihe", während in der Beschreibung des Passes "in jeder 2." steht
12.01.2025 - 10:57DROPS Design svaraði:
Liebe Tanja, hier wird "bei jeder Zunahmen für Raglan" gemeint, aber die Raglanzunahmen entstehen in jeder 2. Reihe/Runde wie beschrieben. Viel Spaß b beim Stricken!
13.01.2025 - 09:05
Tanja skrifaði:
Die Maschenzahl für die Einteilung für die Raglanzunahmen stimmt nich. 2x24+2x18+48=132 und nicht 136 (wie für den Anschlag für Grösse S angegeben). Wie soll ich nun weitermachen?
12.01.2025 - 10:28DROPS Design svaraði:
Liebe Tanja, beachten Sie, daß dier Markierer in je einer Masche (und nicht zwischen Maschen) eingesetzt werden, so haben Sie 132 M + 4 M mit je 1 Markierer = 136 M. Viel Spaß beim Stricken!
13.01.2025 - 11:13
Petra skrifaði:
Jak to děláte, že vzor na rukávech je stejný jako na těle? Pletu tento model s barvou 923 (pastelky) a barvy se střídají v takových intervalech, že na rukávech tvoří silnější pruhy. Což je logické a nevadí, jen mě to zajímá. Je to tím, že se u 920 střídají barvy v jiných intervalech? Děkuji.
11.01.2025 - 18:13DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Petro, ano, je, to dáno tím, že obě barevné varianty mají trochu jiný průběh a délku barevných sekvencí - 923 tvoří výraznější proužky a proto jsou při změně obvodu širší. Odstín 920 má drobnější barevné "kousky", které se neskládají do tak soustředěné plochy a působí stejnoměrněji, ačkoli i u této barvy je vzor na rukávech trochu jiný. Příjemné pletení! Hana
26.01.2025 - 08:57
Elisabeth Aarts skrifaði:
Ik begin nu aan de raglan. Ik heb de draad afgeknipt maar hoe kom ik nu bij Markeer draad 3? Pak je dan extra rondbreinaald? Of zet je de andere steken over? Ik begrijp niet goed hoe ik daar kom en moet beginnen.
06.10.2024 - 11:35DROPS Design svaraði:
Dag Elisabeth,
Je kunt de steken inderdaad overzetten totdat je bij het punt bent waar je de draad weer aan moet hechten.
17.10.2024 - 21:16
Monika skrifaði:
Hallo, könnten Sie mir bitte sagen, wie viele Maschen ich in Reihe 1, in Reihe 2, in Reihe 3 ... habe. Bitte sagen Sie mir auch, wie viele Maschen jeweils nicht gestrickt werden. Die Frage bezieht sich auf den Halsausschnitt Größe S. Vielen Dank für die Hilfe!
28.08.2024 - 14:35DROPS Design svaraði:
Liebe Monika, stricken Sie die verkürzten Reihen genauso wie beschrieben, dh mit einer Hin-Reihe 3 M vor der 3. Markierer (linke Seite vom Vorderteil) und glatt rechts stricken gleichzeitig bei jedem Markierer zunehmen, wenden Sie wenn Sie 3 Maschen nach dem 2. Markierer gestrickt haben (rechte Seite vom Vorderteil). In diesem Video zeigen wir, wie solche verkürzten Reihen gestrickt werden. Viel Spaß beim Stricken!
29.08.2024 - 09:45
Monika skrifaði:
Ich komme mit der Beschreibung für den Halsausschnitt nicht zurecht. Könntet ihr das bitte aufzeichnen. Wie viele Maschen habe ich bei Größe S pro Runde auf der Nadel? Vielen Dank für die Hilfe!
27.08.2024 - 10:05DROPS Design svaraði:
Liebe Monika, bei dem Halsausschnitt wird man 8 Maschen in jeder Hin-Reihe zunehmen, so werden insgesamt 4 Hin-Reihen gestrickt = 32 Maschen werden zugenommen wenn den Halsausschnitt fertig ist; dann stricken Sie in Runden wieder und nehmen noch 24 Mal 8 Maschen für den Raglan zu (insgesamt 28 Mal), so sind es: 136+ (4x8) + (24x8) = 360 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!
28.08.2024 - 07:56
Maja skrifaði:
Det var inget!! Fattar nu🤪👍😊
18.08.2024 - 00:28
Maja skrifaði:
När markörerna ska placeras blir det maskor över k storlek S. Markörerna placeras, utifrån vad jag förstår, som om jag har 130 maskor och inte 136. Har jag fattat fel?
17.08.2024 - 21:10DROPS Design svaraði:
Hej Maja, du har 136 m, 24+1+18+1+48+1+18+1+24=136 - Husk at du kan markere din størrelse, så bliver det tydeligere :)
21.08.2024 - 10:01
Hélène skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas ce qu'il faut faire "monter 7 mailles côté sous la manche" et/ou je ne sais pas le faire. Merci pour votre aide
28.05.2024 - 10:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Hélène, montez les mailles sous les manches comme dans cette leçon à partir de la photo 11, ou bien comme dans cette vidéo, cf time code 07:45 environ. Bon tricot!
28.05.2024 - 13:12
Candy Harvest#candyharvestsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni, laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 237-39 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu í hverri umferð þannig: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð til að koma í veg fyrir göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í sléttprjón. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Byrjið 2 lykkjum fyrir lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón og skipt er yfir á sokkaprjóna eftir þörf. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-136-140-152-164-168 lykkjur með DROPS Fabel yfir hringprjón 3 og hringprjón 3,5 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 3,5 og haldið lykkjunum eftir á hringprjóni 3 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 12 cm, er það brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð slétt frá réttu JAFNFRAMT er önnur hver lykkja prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð snúið. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna umferðina). Prjónamerkið er notað þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 20-24-24-27-30-31 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 18-18-20-20-20-20 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 40-48-48-54-60-62 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 18-18-20-20-20-20 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru 20-24-24-27-30-31 lykkjur eftir í umferð (hálft bakstykki). Klippið þráðinn. HÁLSMÁL: Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Byrjið frá réttu, 3 lykkjum fyrir 3. prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið á hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki (hægri hlið í hálsmáli að framan). Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 7 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki. Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 7 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki – munið eftir útaukningu fyrir laskalínu. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 11 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki. Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 11 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki – munið eftir útaukningu fyrir laskalínu. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki. Klippið þráðinn. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Byrjið mitt að aftan og haldið áfram með útaukningar fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 26-28-32-36-42-48 sinnum (meðtalin útaukning í stuttu umferðunum) = 328-360-396-440-500-552 lykkjur. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 21-23-25-26-28-30 cm mælt mitt að framan (mælt eftir kanti í hálsmáli). Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 47-53-57-64-73-80 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 70-74-84-92-104-116 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 7 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 94-106-114-128-146-160 lykkjur (framstykki), setjið næstu 70-74-84-92-104-116 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 7 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 47-53-57-64-73-80 lykkjur sem eftir eru eins og áður (hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. Takið prjónamerkin úr stykkinu. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 202-226-242-270-306-334 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT því sem aukið er út um 18-22-22-26-30-34 lykkjur jafnt yfir = 220-248-264-296-336-368 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 3 cm í öllum stærðum. Fellið af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 70-74-84-92-104-116 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 3,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 77-81-91-99-111-123 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 7 lykkjum sem prjónaðar voru upp undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4-4-2½-2-1½-1 cm millibili alls 9-9-13-16-21-24 sinnum = 59-63-65-67-69-75 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-36-35-34-33-31 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3, prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 5-5-7-5-7-9 lykkjur jafnt yfir = 64-68-72-72-76-84 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 6 cm í öllum stærðum. Fellið af. Ermin mælist ca 43-42-41-40-39-37 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #candyharvestsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.