Agnieszka skrifaði:
Co to znaczy wzdłuż podkroju rękawa? Robię tył. Zrobiłam dodawanie. Mam zrobić dzersejem, aż długość "wzdłuż podkroju rękawa" wynosi 15 cm. Skąd dokąd mam to mierzyć? Wzdłuż rzędów od początku na wysokość? Czy wzdłuż brzegu na boku - tak na ukos?
30.09.2023 - 09:11DROPS Design svaraði:
Witaj Agnieszko, "Po dodaniu wszystkich oczek jest 78-84-88-94-96-100 oczek". Tutaj włóż marker z boku robótki (nie przesuwaj go później). Od tego markera musisz jeszcze przerobić 15-15-16-17-18-19 cm (w zależności od rozmiaru). To będzie podkrój rękawa. Pozdrawiamy!
30.09.2023 - 15:10
Mimi skrifaði:
Hello again, the pattern in English is missing the instructions for the neck. I found them in the French version after the second sleeve blurb. Please fix the English version. Thanks!
05.09.2023 - 08:49DROPS Design svaraði:
Dear Mimi, could you indicate which part of the neck is missing? There is a section called NECK, right after the RIGHT SLEEVE in both the UK/ US versions of the pattern. Happy knitting!
10.09.2023 - 19:07
Mimi skrifaði:
Hello, I seem not to see the instructions for the neck. Could you please point me to those? Thank you ver much
05.09.2023 - 03:21DROPS Design svaraði:
Hi Mimi, The neck is worked to finish, so the instructions are at the bottom of the pattern. Happy knitting!
05.09.2023 - 06:43
Chantal skrifaði:
Bonjour J'ai réalisé ce très beau modèle en S. Quand j'avais épuisé les 6 pelotes de DROPS SOFT TWEED, le col ne mesurait que 15 cm. J'ai commandé une nouvelle pelote pour terminer. JE suggère de réviser les quantités indiquées.
07.08.2023 - 15:00
Cornelia Lezoch skrifaði:
Wäre Lima und brushed alpaca silk auch eine gute Kombination für den Pulli?
31.03.2023 - 23:07DROPS Design svaraði:
Liebe Cornelia. Ja, Sie können diese Garnkombination verwenden. Viel Spass beim stricken
09.04.2023 - 13:13
Sarah Løvaas Iversen skrifaði:
Hvilken størrelse har modellen på bildet?
19.02.2023 - 21:35DROPS Design svaraði:
Hej Sarah, det er nok en M, men du finder målene i måleskitsen nederst i opskriften. Vælg den størrelse som du vil have (mål gerne en bluse som har de mål du er ude efter) :)
23.02.2023 - 15:08
Anne-Sophie skrifaði:
Bonjour, Je souhaiterais tricoter ce modèle mais avec une seule laine au lieu de 3. Quelle laine me conseillez-vous et combien pour une taille S. Merci beaucoup
21.12.2022 - 09:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Anne-Sophie, il vous faudra complètement recalculer les explications car votre échantillon sera complètement différent - vous pouvez vous baser sur un modèle tricoté dans une laine du groupe A et un échantillon de 25-23 mailles. Bon tricot!
21.12.2022 - 10:10
Lesego skrifaði:
Hey! Hope the Drops Team is well. I'm a little confused about the sleeves... Do I knit up the amount of stitches along the arm holes of the body? Or do I cast them on and then attached the sleeves? In the video provided, the sleeves are not attached to the body. I'm just trying to understand why I have to knit back and forth before joining the round. May you please explain this to me like a baby (sorry, I'm really confused).
12.12.2022 - 09:46DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Lesego, you will pick up the stitches for sleeve along armholes, ie on the right sleeve, pick up from RS starting along back piece then down along front piece and on the left sleeve, pick up stitches along front piece first then down along back piece. Then work a few cm in rows than in the round (the first rows worked will be sewn along the sts cast of for armholes on front and back piece as shown on chart). Happy knitting!
12.12.2022 - 10:11
Sarah skrifaði:
Bonjour, le mannequin porte quelle taille ?
30.11.2022 - 17:06DROPS Design svaraði:
Bonjour Sarah, nos modèles portent en général soit une taille S soit une taille M. Pour trouver votre taille, il est recommandé de mesurer un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et de comparer ces mesures à celles du schéma. Retrouvez plus d'infos sur les tailles ici. Bon tricot!
01.12.2022 - 10:58
Toril skrifaði:
Hvilken størrelse bruker modellen på bilde?
18.11.2022 - 01:14DROPS Design svaraði:
Hei Toril, Du finner en målskisse på bunnen av oppskriften, med alle mål til de forskjellige størrelsene. God fornøyelse!
18.11.2022 - 07:18
Sweet Weekend#sweetweekendsweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Soft Tweed og 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni, með evrópskri öxl / skáhallandi öxl og háum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 237-2 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efri hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveg. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 26-28-28-30-32-32 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Soft Tweed og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki innanverðu við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 3 lykkjur í hverri umferð. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið svona áfram og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 26-28-30-32-32-34 sinnum. Eftir síðustu útaukningu eru 78-84-88-94-96-100 lykkjur í umferð. Héðan er nú stykkið mælt! Síðan er prjónað sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 15-15-16-17-18-19 cm, mælt yst meðfram handvegi. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið upp 26-28-30-32-32-34 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki). Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 5 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun á hverri umferð frá réttu, aukið út á eftir 3 lykkjum, munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 30-32-34-36-36-38 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða hjálparprjón. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. Prjónið upp 26-28-30-32-32-34 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 5 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu, aukið út á undan 3 lykkjum, munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 30-32-34-36-36-38 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 30-32-34-36-36-38 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 18-20-20-22-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið sléttprjón eins og áður yfir 30-32-34-36-36-38 lykkjur frá vinstra framstykki = 78-84-88-94-96-100 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 23-25-26-27-28-29 cm, mælt yst meðfram handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið sléttprjón yfir 78-84-88-94-96-100 lykkjum frá framstykki, fitjið upp 4-6-8-8-14-18 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið sléttprjón yfir 78-84-88-94-96-100 lykkjum frá bakstykki, fitjið upp 4-6-8-8-14-18 nýjar lykkjur í lok umferðar = 164-180-192-204-220-236 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. Skiptið yfir á hringprjón 6, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-16-16-20-20 lykkjur jafnt yfir = 180-196-208-220-240-256 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 10 cm. Fellið af. Peysan mælist alls 58-60-62-64-66-68 cm, mælt efst á öxl inn að hálsmáli. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 7 og 1 þráð DROPS Soft Tweed og 2 þræði DROPS Kid-Silk (3 þræðir), prjónið upp frá réttu 33-35-36-38-40-41 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 21-21-22-24-24-27 lykkjur frá öxl og niður að botni á handveg í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 54-56-58-62-64-68 lykkjur meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – ermin er nú mæld frá þessu prjónamerki. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 1-2-3-3-4-6 cm frá prjónamerki. Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 7 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 4-4-4-4-5-7 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-5-5-4-4-3 cm millibili alls 6-6-6-7-7-8 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 34-34-34-33-33-33 cm frá prjónamerki. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-4-2-4-2-4 lykkjur jafnt yfir = 44-48-48-52-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 44-44-44-43-43-43 cm frá prjónamerki. HÆGRI ERMI: Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, en prjónið upp lykkjur öfugt við vinstri ermi, þ.e.a.s. prjónaðar eru upp 21-21-22-24-24-27 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 33-35-36-38-40-41 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 68 til 84 lykkjur á stuttan hringprjón 6 með 3 þráðum. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 22-22-22-24-24-24 cm. Fellið af aðeins laust. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetweekendsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.