DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10890.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Edeltraut

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með klauf í hliðum, tvöföldum kanti í hálsmáli og köntum í stroffprjóni. Stærð XS - XXL.

DROPS 237-27
DROPS Design: Mynstur ab-135
Garnflokkur C + A eða D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-400-400 g litur 0100, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-125-150 g litur 44, tunglskin

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjóna-númeri.

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10890.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermi):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvert fyrir sig.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að ermakúpu, síðan er afgangur af ermi prjónaður fram og til baka. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir tvöfaldan kanti í hálsmáli sem er prjónaður í hring, brotinn saman tvöfaldur og festur niður að röngu á stykki.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 85-93-101-109-119-129 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að stroffið verði alveg eins í hvorri hlið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 10 cm.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 22-24-27-29-32-34 lykkjur jafnt yfir = 63-69-74-80-87-95 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið sléttprjón og fitjið upp 1 nýja lykkju í lokin á 2 næstu umferðum (= kantlykkjur fyrir saum) = 65-71-76-82-89-97 lykkjur.
Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fitjið upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið í lok 2 næstu umferða – þær eru notaðar við frágang á ermum = 67-73-78-84-91-99 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 49-51-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 21-21-22-22-23-23 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 1 lykkju 0-1-1-1-1-0 sinnum og 2 lykkjur 1-1-1-1-1-2 sinnum = 21-23-25-28-31-34 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið alveg eins og á bakstykki þar til stykk 46-47-49-50-52-53 cm = 67-73-78-84-91-99 lykkjur í umferð. Nú eru miðju 11-13-14-14-15-17 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 1 lykkju 3 sinnum og 2 lykkjur 2 sinnum = 21-23-25-28-31-34 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 38-40-42-44-44-46 lykkjur á sokkaprjóna 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff eftir A.1 í 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í umferð = 34-36-38-40-40-42 lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 8-8-7-11-7-8 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-2½-2½-2-2-2 cm millibili, alls 12-13-13-14-15-15 sinnum = 58-62-64-68-70-72 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 43-43-42-41-40-38 cm.
Í næstu umferð eru felldar af 7 miðjulykkjur mitt undir ermi. Síðan er stykkið prjónað til loka fram og til baka.
Nú er fellt af fyrir ermakúpu þannig: Fellið af 3 lykkjur í byrjun á hverri umferð þar til stykkið mælist ca 47-47-46-45-44-42 cm. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermum. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður að stroffi innan við 1 kantlykkju (= 10 cm klauf í hvorri hlið).

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp ca 74 til 92 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) á stuttan hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 10 cm, fellið af með sléttri lykkju yfir snúna slétta lykkju og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að kanturinn í hálsmáli dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = snúin lykkja slétt frá réttu, snúin lykkja brugðið frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Francesca wrote:

Buongiorno, vorrei seguire questo modello ma con la combo di filati DROPS Nepal + Drops Alpaca Boucle che ho trovato come consiglio negli abbinamenti dei filati. Posso chiedervi aiuto sullo sviluppo del modello o quale altro modello potrebbe andare bene con la coppia dei filati che ho scelto?

17.04.2024 - 19:27

DROPS Design answered:

Buonasera Francesca, deve seguire dei modelli per il Gruppo filati E (C + C). Buon lavoro!

21.04.2024 - 23:20

country flag Ingrid wrote:

Når jeg strikker med pinne 6 får jeg 13 masker i bredden og 24 masker i høyden. Dette er før jeg har vasket strikkelappen. Jeg ville egentlig strikke strl S, men betyr dette at jeg kan strikke XS i stedet? Eller må jeg gå ned en pinnestørrelse , altså pinne 4 til vrangbord og pinne 5 ellers?

17.04.2024 - 01:24

DROPS Design answered:

Hei Ingrid, Det er bedre å gå ned til pinnestørrelsen som gir riktig antall masker og rad på 10 x 10 cm. Da får du fasongen og størrelsen på genseren som passer dine mål. God fornøyelse!

17.04.2024 - 06:42

country flag Andrea wrote:

Aber muss man nicht eigentlich erst 2M abnehmen und dann eine? Sieht sonst so merkwürdig aus. Liebe Grüße

12.04.2024 - 16:18

country flag Andrea wrote:

"Jede Schulter einzeln wie zuvor stricken, dabei am Anfang jeder Reihe, die am Halsrand beginnt, wie folgt abketten: 1 Masche 0-1-1-1-1-0 x und dann 2 Maschen 1-1-1-1-1-2 x = 21-23-25-28-31-34 Maschen für die Schulter übrig." So steht es in der Anleitung. Also erst einmal 1M abnehmen, dann einmal 2M abnehmen. Ich kenn es eigentlich anders herum: erst die mittleren M abketten, dann 1x 2M, dann1x 1M. Liebe Grüße

12.04.2024 - 14:09

DROPS Design answered:

Liebe Andrea, oops Größe S ist die 2. Größe hier, ich habe leider die 1. Größe beschrieben, so in S haben Sie 73 Maschen, dann ketten Sie 21 Maschen für den Hals = 52 /2 Schulter = 26 Maschen, dann ketten Sie am Anfang der Reihe vom Hals ab (siehe unten): 1 Masche 1 Mal und 2 Maschen 1 Mal = 26-1-2= 23 Maschen übrig, Entschuldigung für die Verwirrung. Vile Spaß beim Stricken!

12.04.2024 - 15:54

country flag Andrea wrote:

Entschuldigung, ich meine den Halsausschnitt allgemein. Ich habe Größe S gestrickt. Liebe Grüße

12.04.2024 - 09:26

DROPS Design answered:

Liebe Andrea, beim Rückenteil werden die mittleren 21 M für den Hals abgekettet = so sind es 67-21=46/2 Schulter = 23 M für jede Schulter; und am Anfang der nächsten Reihe vom Hals (am Anfang einer Hin-Reihe beim linken Schulter / am Anfang einer Rück-Reihe beim rechten Schulter) werden 2 Maschen abgekettet = 21 M übrig. Hoffentlich habe ich jetzt richtig verstanden. Viel Spaß beim Stricken!

12.04.2024 - 12:48

country flag Andrea wrote:

Liebe Drops, Kann es sein, dass die Abnahmen für den Ausschnitt falsch herum angegeben sind? Müssten nicht erst 2M pro Teile abgenommen werden und dann jeweils nur eine? Sieht irgendwie merkwürdig aus. Liebe Grüße aus Dortmund

12.04.2024 - 07:52

DROPS Design answered:

Liebe Andrea, welchen Ausschnitt meinen Sie hier? Welche Größe stricken Sie? Können Sie uns bitte mehr sagen? So kann man gerne weiterhelfen. Danke für Ihr Verständnis.

12.04.2024 - 08:34

country flag Solange wrote:

Bonsoir je fais le modèle 237-27 mon nombre de mailles est celui de la taille xl. Je voudrais faire la torsade des manches du modèle 250-13 combien de pelotes dois je acheter en plus et combien de mailles dois je faire Merci pour aide précieuse

10.03.2024 - 22:34

DROPS Design answered:

Bonjour Solange, notez bien que les deux modèles ont des tensions, une construction et des textures différentes, dans le 250-13 on tricote des emmanchures raglans avec la torsade tout du long de la manche (du col au poignet), vous obtiendrez un effet différent sur ce modèle avec des manches montées. N'hésitez pas à demander conseil à votre magasin pour ce qui est des quantités, on pourra vous conseiller et vous assister si besoin. Bon tricot!

11.03.2024 - 09:12

country flag Romy wrote:

Beste, Bij materiaal staan de DROPS ALPACA BOUCLÉ (kleur 0100, naturel) en de DROPS KID-SILK (kleur 44, maneschijn) bij. Alleen ik zie nergens in het patroon (of ik kijk er overheen) waar dat je de kleuren moet wisselen etc. Zou iemand aan mij kunnen uitleggen hoe dat zit? Alvast bedankt! :) Met vriendelijke groet, Romy

28.11.2023 - 19:30

DROPS Design answered:

Dag Romy,

Je breit het hele werkstuk met 2 draden, dus met 1 draad van elke kwaliteit. Je hoeft dus nergens te wisselen.

29.11.2023 - 09:30

country flag Veerle wrote:

Beste, kan iemand mij antwoord geven op mijn eerder geposte vraag (23.2.2.23) ? bedankt !

25.03.2023 - 11:52

DROPS Design answered:

Dag Veerle,

Je begint direct met het minderen voor de mouwkop. Wat er bedoeld wordt is dat je vanaf nu heen en weer breit (in plaats van in de rondte) tot het einde.

28.03.2023 - 21:31

country flag Veerle wrote:

Een vraag bij het breien van de mouwen : na het afkanten van de 7 steken dient verder heen en weer gebreid te worden "tot de gewenste afmetingen" . Daarna moet gestart worden met de mindering voor de mouwkop. Mijn vraag is : wat wordt bedoeld met "tot de gewenste afmetingen" ? Of maw, vanaf welke hoogte dient gestart te worden met de mindering voor de mouwkop ? Dat is me niet duidelijk. Bedankt voor de toelichting.

23.02.2023 - 21:07