DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1210.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19470.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Caramel Macchiato

Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í klukkuprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 237-20
DROPS Design: Mynstur st-021
Garnflokkur A + B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SOFT TWEED frá Garnstudio (tilheyrir garfnlokki B)
450-500-550-600-650-750 g litur 03, sandur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-175-175-200-200-225 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 36 umferðir á hæð með klukkuprjóni (18 sýnilegar umferðir taldar í slétta lykkju) og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1210.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19470.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

KLUKKUPRJÓN prjónað fram og til baka (á við um framstykki og bakstykki):
UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar.
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Endurtakið umferð 3 og 4.

KLUKKUPRJÓN prjónað í hring (á við um fram- og bakstykki og ermar):
UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina.
Endurtakið umferð 1 og 2.

KLUKKUPRJÓNSLYKKJA:
Þegar lykkjur eru taldar, þá er uppslátturinn ekki talinn sem sér lykkja.

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu!
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN Á UMFERÐ ÞANNIG:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 klukkuprjónslykkju eins og áður, lyftið yfir næstu lykkju og uppslættinum sem tilheyrir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 lykkjur (uppslátturinn sem tilheyrir til sléttu lykkjunnar) slétt saman og steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman.
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið næstu 3 lykkjur (uppslátturinn sem tilheyrir þeim) slétt saman, prjónið 1 klukkuprjónslykkju eins og áður og 1 kantlykkju í garðaprjóni.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið 3 lykkjur í 1 lykkju slétt þannig:
Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstra prjóni = 3 lykkjur. Aukið er út til skiptis í fyrstu og síðustu sléttu lykkjuna í umferð. Fyrsta útaukningin er gerð í fyrstu sléttu lykkjuna, önnur útaukning er gerð í síðustu sléttu lykkjuna o.s.frv.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring, neðan frá og upp. Stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki heldur áfram fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 216-228-246-270-288-312 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt).
Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið næstu umferð þannig:
Prjónið * 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 144-152-164-180-192-208 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið KLUKKUPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Lesið KLUKKUPRJÓNSLYKKJA!
Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, stillið af að næsta umferð sé 1. umferð í klukkuprjóni, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki þannig:
Setjið 1 merki við byrjun umferðar, fellið af 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur + 1 uppslátt slétt saman, prjónið eins og áður yfir næstu 70-74-80-88-94-102 lykkjur, setjið 1 merki, fellið af 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur + 1 uppslátt slétt saman, prjónið eins og áður yfir síðustu 70-74-80-88-94-102 lykkjur og fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar. Það eru 71-75-81-89-95-103 lykkjur á milli merkja fyrir framstykki og bakstykki + 1 kantlykkja í lok umferðar. Hvort stykki er nú prjónað til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
Nú er prjónað KLUKKUPRJÓN prjónað fram og til baka – sjá útskýringu að ofan (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar frysta umferðin hefur verið prjónuð eru 73-77-83-91-97-105 lykkjur í umferð. Prjónið klukkuprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 23-23-25-25-27-27 lykkjur fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (25-27-29-33-35-39 lykkjur eftir á hvorri öxl). Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkjur fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA = 23-25-27-31-33-37 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (uppslátturinn er prjónaður saman með lykkjunni sem tilheyrir). Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Setjið lykkjur til baka á hringprjón 5,5, byrjið með að fitja upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (séð frá réttu), snúið stykkinu og prjónið KLUKKUPRJÓN fram og til baka á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 48-50-50-52-52-54 cm. Í næstu umferð frá réttu, setjið miðju 15-15-17-17-19-19 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (29-31-33-37-39-43 lykkjur eftir á hvorri öxl). Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkjur fyrir hálsmáli.
Fækkið lykkjum svona í 8.-8.-10.-10.-12.-12. hverri umferð alls 3 sinnum = 23-25-27-31-33-37 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (uppslátturinn er prjónaður saman með lykkjunni sem tilheyrir).
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 54-54-57-60-63-66 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt). Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið næstu umferð þannig: * 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 36-36-38-40-42-44 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Prjónið KLUKKUPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan.
Þegar ermin mælist 20-20-18-16-14-12 cm, aukið út um 2 lykkjur í næstu umferð – sjá ÚTAUKNING. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í klukkuprjóni. Í fyrstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar án uppsláttar.
Aukið svona út í 10. hverri umferð alls 7-8-9-9-9-9 sinnum = 50-52-56-58-60-62 lykkjur.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður saman með lykkjunni sem tilheyrir) þegar ermin mælist 47-46-45-43-42-40 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.
Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju meðfram handveg.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp ca 84 til 114 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Uppslátturinn sem tilheyrir klukkuprjónslykkjum frá þræði er prjónaður með lykkjunni sem tilheyrir. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 3. Prjónið stroff (2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 4 cm.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 23.02.2024
Uppskriftin hefur verið yfirfarin og uppfærð. Leiðrétting í fram- og bakstykki.
Yfirfarið á vefsvæði: 15.03.2024
Uppskriftin hefur verið yfirfarin og uppfærð. Leiðrétting í útskýringu á klukkuprjóni við skiptingu á stykki fyrir handveg.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Kristine Brodam wrote:

Hej - kan man strikke i andet drops garn en Soft Tweed? Der er ikke lige den farve jeg ønsker mig :-)

02.03.2024 - 13:47

DROPS Design answered:

Hej Kristine, ja du kan strikke den i alle vores garner fra garngruppe B: Garngruppe B Du kan også prøve vores garn-omregner som du finder til højre for billedet inde på opskriften :)

13.03.2024 - 15:01

country flag Mieke wrote:

Deze trui pluist enorm hard in de combinatie soft tweed en kid-silk. Is er een manier om dat pluizen tegen te gaan zodat de rest van je kleding niet steeds onder de draadjes zit?

19.01.2024 - 11:26

DROPS Design answered:

Dag Mieke,

Wellicht heb je wat aan de tips tegen pluizen. (Even een stukje naar beneden scrollen op de pagina.

21.01.2024 - 11:59

country flag Regina Jost wrote:

Hallo, was bedeutet : je 1 Randmasche kraus rechtsbeidseitig? Wenn ich die teile getrennt weiter stricke. Wird dann die 1. und letzte Masche immer gestrickt? Oder die 1.immer re. abgehoben und die letzte re gestrickt ? Wie bei Knötchenrand.\r\nDanke schon mal im voraus

15.10.2023 - 17:44

country flag Regina wrote:

Hallo, was bedeutet : je 1 Randmasche kraus rechtsbeidseitig? Wenn ich die teile getrennt weiter stricke. Wird dann die 1. Und letzte Masche immer gestrickt? Oder die 1.immer re. abgehoben und die letzte re gestrickt ? Wie bei Knötchenrand.\r\nDanke schon mal im voraus

15.10.2023 - 17:31

DROPS Design answered:

Liebe Regina, die Randmaschen (- die 1. und die letzte Masche) werden rechts bei jeder Reihe (Hin- sowie Rück-Reihe) gestrickt - in diesem Video zeigen wir, wie man ein Vollpatent mit 1 Randmasche kraus rechts strickt.. Viel Spaß beim stricken!

16.10.2023 - 10:04

country flag Emmanuelle wrote:

J'ai eu le même problème que Mme Bougant au moment de la séparation du dos et du devant et des mailles à rabattre. Le problème vient je pense d'une ambiguïté dans les explications (en français notamment) où l'on peut comprendre que la séparation doit intervenir au niveau d'un tour 2... alors que si on la fait au niveau d'un tour 1, il n'y a aucun souci, tout se passe parfaitement bien. Peut-être faudrait-il l'indiquer un peu plus clairement.

11.10.2023 - 18:43

DROPS Design answered:

Bonjour Emmanuelle, le tour de séparation du dos et du devant doit bien être un tour comme le 2ème tour des côtes anglaises, et pas comme le premier, ainsi la 1ère maille rabattue au début du tour est la maille que l'on doit tricoter ensemble à l'envers avec son jeté (- la 1ère maille du tour 2 quand on répète de `*-*). Bon tricot!

12.10.2023 - 09:17

country flag Pia Olofsson wrote:

Hej. Olika garnmängder i mönstret. KID silk liten mängd i förhållande till det andra? Första varvet helpatent går ej att göra fick se ett annat mönster Förstår inte ert första varv? Vänliga hälsningar Pia

28.09.2023 - 10:22

DROPS Design answered:

Hej Pia, jo da du har flere meter på Kid-Silk, så behøver du ikke lige så mange nøgler. Jo det går! Du starter med HELPATENT RUNT när du har stickat resåren och bytt till sticka 5,5

05.10.2023 - 10:19

country flag Marie-Laure Bougant wrote:

Bonsoir, Désolée de reposter mais personne sur Drops Facebook n’a de solution. Sur la photo que j’ai envoyé, on voit bien que sur le premier rang à tricoter sur l’envers les jetés sont obligatoirement croisés avec la maille glissée, ce qui rend impossible de ne pas avoir cette démarcation. Savez-vous qui tricote les modèles Drops ? Merci

14.06.2023 - 19:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bougant, vérifiez bien la façon de réaliser les côtes anglaises (les jetés par-dessus les mailles glissées), ces mailles doivent être tricotées ensemble, si votre jeté apparaît torse il est sûrement possible que vous le replaciez simplement comme il faut. J'ai personnellement souvent tricoté ce type de côtes anglaises et même fait un échantillon au moment de vous répondre la première fois, je suis toujours tombée juste. Consultez les différentes vidéos des côtes anglaises en rond et en allers et retours, cela devrait vous aider. Votre magasin peut également avoir l'expérience de ce type de souci ou bien un autre forum. Bonne chance!

15.06.2023 - 08:53

country flag Marie-Laure Bougant wrote:

En fait le problème se situe sur le rang où l’on doit rabattre les mailles

12.06.2023 - 12:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bougant, la 1ère m du tour doit être une m envers, et c'est cette m que l'on rabat, on tricote la moitié des mailles (cf votre taille) et on rabat la m suivante = une m envers, et on termine le tour. Ensuite, on doit tourner pour tricoter le rang suivant sur l'envers, les côtes anglaises se tricotent maintenant différemment de la 1ère partie. N'hésitez pas à demander directement conseil à votre magasin (même par mail ou téléphone) ou demandez conseil (en montrant une photo votre ouvrage) dans notre groupe DROPS Workshop, pour que d'autres tricoteuses puissent essayer de vous aider. Bon tricot!

12.06.2023 - 13:38

country flag Marie-Laure Bougant wrote:

Bonjour, Je reviens vers vous pour le même problème. Il faut rabattre ensembles le jeté et la maille envers quand on sépare? J’ai détricoté car en repartant sur l’envers, certaines mailles sont croisées et on voit clairement une ligne de démarcation. Je suis perdue. Merci de votre aide

10.06.2023 - 13:57

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bougant, je ne suis pas bien sûre de comprendre vos mailles croisées, lorsque vous avez tricoté le dernier tour en rabattant 1 m de chaque côté, vous devez tricoter le 1er rang sur l'envers comme indiqué sous les CÔTES ANGLAISES en allers et retours (devant et dos):, commencez par *1 jeté et glissez la m suivante à l'envers, tricotez ensemble à l'endroit la maille suivante et son jeté*, répétez de *à* et montez 1 maille. Tricotez ensuite le rang 2 avec 1 m lis au point mouse (la maille montée), et répétez de *-* du rang 2 en montant 1 m à la fin du rang. Répétez ensuite les rangs 3 et 4. Bon tricot!

12.06.2023 - 09:32

country flag Marie-Laure Bougant wrote:

Bonjour, J’ai un problème pour séparer le devant et le dos. La vidéo d’aide pour rabattre les mailles en côtes anglaises avec jeté montre un rabattage en aller retour qui ne correspond pas avec la première maille en rond qui commence au rang 2 par un jeté et une maille glissée puis une maille endroit. Comment faut-il faire donc pour rabattre le jeté et la maille glissée envers ? Merci

06.06.2023 - 15:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bougant, lorsque l'on sépare le dos et le devant pour les tricoter séparément en allers et retours on rabat simplement la 1ère maille du tour (1 maille envers), puis on tricote comme avant les mailles suivantes (cf nombre pour votre taille) et on rabat 1 maille envers et on tricote les dernières mailles. Vous avez maintenant 1 m endroit des côtes anglaises au début et à la fin du dos et du devant. Tricotez le rang 1 des CÔTES ANGLAISES en allers et retours (devant et dos):: vous montez 1 m à la fin du rang, au rang 2, vous montez 1 m à la fin du rang = vous avez 1 m lisière de chaque côté. Continuez en répétant les rangs 3 et 4. Bon tricot!

06.06.2023 - 17:19