Kerstin Fält skrifaði:
Mikä ihme on kaksinkertainen pääntien reunus?Olen tekemässä L-kokoista villatakkia ja luonut puikoille 2,5 pääntien reunuksen.Siitähän tulee kamalan pitkä pötkö.Eivät osaneet lankaliikkeessäkään neuvoa miten se tehdään.Mitä tälle reunukselle pitää tehdä?Toivon pikaista vastausta että saan jatkaa työtäni.Ystävällisin terveisin Kerstin Fält
03.01.2023 - 17:23DROPS Design svaraði:
Hei, pääntien reunus neulotaan kaksinkertaisena neuloksena, eli puolet silmukoista neulotaan ja puolet silmukoista nostetaan neulomatta. Kun reunus on valmis, n. puolet silmukoista kavennetaan pois työstä, jolloin työhön jää 140 silmukkaa.
05.01.2023 - 18:16
Patrizia Speranza skrifaði:
Nella versione italiana c'è un errore di traduzione. il gettato in A1 deve essere lavorato nel giro successivo in modo da evitare il buco invece c'è scritto di creare il buco
05.10.2022 - 12:37DROPS Design svaraði:
Buonasera Patrizia, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
05.10.2022 - 23:15
Sofi skrifaði:
Hej Jag vill gärna sticka den här koftan men i Soft tweed. Skulle det funka om jag stickar en storlek mindre än den jag egentligen har? Eller behöver jag räkna om maskantal utifrån masktäthet? Hur gör man det isåfall? Hälsningar Sofi
26.09.2022 - 07:04DROPS Design svaraði:
Hei Sofi. Design avd har dessverre ikke anledning til å omskrive en en allerede skrevet oppskrift til en annen kvalitet. Kan ikke garantere at det vil stemme ved å strikke en størrelse mindre med et litt tykkere garn. Men ta en titt på genseren i DROPS 231-23, kanskje den kan være til hjelp om du ønsker å skrive/regne den om selv. mvh DROPS Design
26.09.2022 - 12:48
Morning Hush Cardigan#morninghushcardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og áferðamynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 235-12 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, endið með 3 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli hefur verið prjónað til loka, fellið síðan af fyrir 6 næstu hnappagötum með ca 7½-8-8-8½-8½-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 260-272-278-290-302-308 lykkjur aðeins stíft á stuttan hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca og prjónið þannig: UMFERÐ 1: 1 lykkja slétt * lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, með þráðinn fyrir framan, prjónið 1 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju slétt. Endurtakið umferð 1 bæði frá réttu og frá röngu þar til kantur í hálsmáli mælist 4 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja slétt, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju slétt = 131-137-140-146-152-155 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 8 lykkjur slétt, prjónið brugðnar lykkjur þar til 8 lykkjur eru eftir, endið með 8 lykkjur slétt. Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 8 lykkjurnar í byrjun á umferð mitt að framan. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 8 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, endið með 8 lykkjur í garðaprjóni – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 alveg eins. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 359-377-427-447-512-523 lykkjur í umferð. Prjónið áfram alveg eins án þess að auka út, þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið síðan sléttprjón með 8 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 14-24-6-38-1-26 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 373-401-433-485-513-549 lykkjur. Þegar stykkið mælist 19-21-22-24-26-28 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 60-65-69-76-82-89 lykkjur eins og áður, setjið næstu 74-78-86-98-100-104 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 105-115-123-137-149-163 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 74-78-86-98-100-104 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 60-65-69-76-82-89 lykkjur eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað til loka hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 245-265-285-313-341-373 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 8 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 26-26-27-27-27-27 cm frá skipting, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 64-68-74-80-88-96 lykkjur jafnt yfir = 309-333-359-393-429-469 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 8 lykkjur í garðaprjóni * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 8 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 74-78-86-98-100-104 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 84-88-98-110-114-120 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 7-8-11-16-17-18 sinnum = 70-72-76-78-80-84 lykkjur. Prjónið áfram án úrtöku þar til ermin mælist 38-36-36-34-33-31 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-18-18-18-18 lykkjur jafnt yfir = 86-88-94-96-98-102 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 42-40-40-38-37-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #morninghushcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.