DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Moody Judy

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, sléttprjóni og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 236-18
DROPS Design: Mynstur z-966
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350 g litur 9026, blush

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LASKALÍNA:
Það er mismunandi aukið út á fram- og bakstykki og ermum eftir stærðum. Aukið er út fyrir fram- og bakstykki á undan 3. og 1. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki. Aukið er út fyrir ermar á eftir 3. og 1. prjónamerki og á undan 4. og 2. prjónamerki. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Þegar prjónað er fram og til baka er uppslátturinn prjónaður frá röngu á undan og á eftir prjónamerki þannig:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Lyftið uppslættinum af vinstra prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni inn aftan í lykkjuna þegar hún er sett til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.

Þegar prjónað er í hring er uppslátturinn prjónaður í næstu umferð á undan og á eftir prjónamerki þannig:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Lyftið uppslættinum af vinstra prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni inn aftan í lykkjuna þegar hún er sett til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftran, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, áður en stykkið skiptist og prjónað er fram og til baka að klauf. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 140-144-148-152-160-168 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 3 cm.
Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu.
Teljið 15-16-17-18-20-22 lykkjur (hálft bakstykki) og setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 38 lykkjur (ermi) og setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 30-32-34-36-40-44 lykkjur (framstykki) og setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 38 lykkjur (ermi) og setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru 15-16-17-18-20-22 lykkjur eftir í umferð (hálft bakstykki). Klippið þráðinn.

HÁLSMÁL:
Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. JAFNFRAMT er mismunandi aukið út á fram- og bakstykki og ermar í mismunandi stærðum þannig:

STÆRÐ S, M og L:
Aukið út í annarri hverri umferð á fram- og bakstykki og aukið út í 4. hverri umferð á ermum.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu, 2 lykkjur á undan 3. prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið í hálsmáli að framan, séð eins og þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki (hægri hlið í hálsmáli að framan – það hafa nú verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu).
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stutta umferðin byrjaði við 3. prjónamerki.
Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við 2. prjónamerki – mundu eftir útaukningu fyrir laskalínu. ATH! Einungis er aukið út á fram- og bakstykki, aukið er út á undan 3. og 1. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki (nú hafa verið auknar út 4 lykkjur fyrir laskalínu).
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við í síðasta skipti við 3. prjónamerki.
Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við í síðasta skipti við 2. prjónamerki – mundu eftir laskalínu, nú er aukið út bæði á fram- og bakstykki og ermum – þ.e.a.s. hvoru megin við öll 4 prjónamerkin (nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur fyrir laskalínu).
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við í síðasta skipti við 3. prjónamerki. Klippið þráðinn.
Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

STÆRÐ XL, XXL og XXXL:
Aukið út í annarri hverri umferð á fram- og bakstykki, á ermum er fyrst aukið út í annarri hverri umferð, síðan í 4. hverri umferð.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu, 2 lykkjur á undan 3. prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið í hálsmáli að framan, séð eins og þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki (hægri hlið í hálsmáli að framan – það hafa nú verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu).
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stutta umferðin byrjaði við 3. prjónamerki.
Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við 2. prjónamerki – mundu eftir útaukningu fyrir laskalínu (það hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu).
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við í síðasta skipti við 3. prjónamerki.
Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við í síðasta skipti við 2. prjónamerki – munið eftir útaukningu fyrir laskalínu (það hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu).
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu áður en prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við í síðasta skipti við 3. prjónamerki. Klippið þráðinn.
Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:

STÆRÐ S, M og L:
Byrjið mitt að aftan og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð fyrir fram- og bakstykki og í 4. hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 11-14-17 sinnum fyrir ermar á eftir kanti í hálsmáli (útaukning fyrir ermar hefur nú verið gerð til loka, en útaukning fyrir framstykki/bakstykki heldur áfram). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram með útaukningu á fram- og bakstykki þar til aukið hefur verið út alls 29-33-34 sinnum á fram- og bakstykki. Það eru 300-332-352 lykkjur í umferð (60-66-72 lykkjur fyrir hvorri ermi og 90-100-104 lykkjur fyrir framstykki / bakstykki ásamt lykkjum með prjónamerki í).

STÆRÐ XL, XXL og XXXL:
Byrjið mitt að aftan og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð fyrir fram- og bakstykki og ermar þar til aukið hefur verið út alls 6-5-8 sinnum á eftir kanti í hálsmáli. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Nú breytist útaukning á ermum, aukið er út þannig:
Haldið áfram með útaukningu á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út 33-38-39 sinnum til viðbótar (aukið hefur verið út alls 39-43-47 sinnum á fram- og bakstykki).
Jafnframt er aukið út fyrir ermar í 4. hverri umferð 15-17-16 sinnum (aukið hefur verið út alls 21-22-24 sinnum fyrir ermi). Nú eru 392-420-452 lykkjur í umferð (80-82-86 lykkjur fyrir hvorri ermi og 116-128-140 lykkjur fyrir framstykki/bakstykki).

ALLAR STÆRÐIR:
= 300-332-352-392-420-452 lykkjur.
Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 19-21-22-25-27-29 cm mælt mitt að framan (mælt á eftir kanti í hálsmáli). Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar frá byrjun á umferð þannig:
Prjónið fyrstu 45-50-52-58-64-70 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 60-66-72-80-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 16-16-20-20-24-24 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 90-100-104-116-128-140 lykkjur (framstykki), setjið næstu 60-66-72-80-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 16-16-20-20-24-24 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 45-50-52-58-64-70 lykkjur sem eftir eru eins og áður (hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 212-232-248-272-304-328 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 16-16-20-20-24-24 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkin eru notuð síðar þegar stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 18-18-19-18-18-18 cm frá skiptingu. Haldið eftir fyrstu 106-116-124-136-152-164 lykkjum á prjóni og setjið síðustu 106-118-124-136-152-164 lykkjur á þráð.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 20-18-22-26-30-30 lykkjur jafnt yfir = 126-134-146-162-182-194 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. Setjið lykkju af þræði á hringprjón 2,5 og prjónið á sama hátt.

ERMI:
Setjið 60-66-72-80-82-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 3,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 16-16-20-20-24-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-82-92-100-106-110 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4-4-3½-2½-3-3½ cm millibili alls 4-4-5-6-5-4 sinnum = 68-74-82-88-96-102 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 20-19-19-17-15-14 cm, nú eru eftir ca 3 cm að loka máli (mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff).
Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 12-14-14-16-16-18 lykkjur jafnt yfir = 80-88-96-104-112-120 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 23-22-22-20-18-17 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.11.2022
FRAM- OG BAKSTYKKI:..Næsta umferð er prjónuð frá röngu: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Veerle wrote:

Als ik de trui in het rond wil breien, moet ik dan ook verkorte toeren breien of niet ?

15.02.2024 - 16:45

DROPS Design answered:

Dag Veerle,

Dit patroon wordt in de rondte gebreid en er worden verkorte toeren gebreid voor de hals. Alleen bij de verkorte toeren brei je heen en weer om een verhoging te maken. Als de verkorte toeren klaar zijn, brei je weer verder in de rondte

25.02.2024 - 11:03

country flag Åsa wrote:

Hej! När jag delar upp för ärmar, framstycke och bakstycke, var ingår då de fyra maskorna som markörerna suttit i? Ska de följa med ärmarna eller fram- och bakstycke? Det framgår inte i mönstret.

22.07.2023 - 09:14

DROPS Design answered:

Hei Åsa. De 4 maskemarkørene har blitt brukt når du har økt til raglan. Når du er ferdig med bærestykket / raglan og skal dele opp arbeidet til forstykke, bakstykke og ermer, behøvs ikke maskemarkørene lengre. Når du har delt opp (følg maskeantallet i oppskriften til den størrelsen du strikker), skal du sette 2 nye maskemarkører / merketråder. Disse merketrådene skal brukes når arbeidet skal deles til splitt i hver side. mvh DROPS Design

27.07.2023 - 09:06

country flag Aleksandra wrote:

Hei, hva er grunnen til at man øker masker rett før vrangborden i slutten av ermene og bolen?

15.07.2023 - 22:50

DROPS Design answered:

Hei Aleksandra, Vi øker masker før vrangborden slik at den ikke blir for stram. God fornøyelse!

17.07.2023 - 07:39

country flag Josephine wrote:

Hallo, in der Anleitung des Rumpfteils ist ein Schreibfehler. Und zwar ab dem Teil, wo die Teilung beschrieben wird. "Die ersten 106-116- .... Maschen auf der Nadel lassen und die letzten 106-118-... Maschen stillegen." Die 118 muss auch eine 116 sein.

07.04.2023 - 12:33

country flag Lia Peters wrote:

Bei diesem Modell steht, dass ab einer bestimmten Höhen an der Raglanlinie auf der Ärmelseite nur alle 4 Reihen eine Masche zugenommen wird. Bei mir verändert sich dadurch die Raglanlinie, sie wird ab dieser Höhe dann dünner. Wie kann ich das vermeiden?

04.04.2023 - 14:41

DROPS Design answered:

Liebe Frau Peters, es wird für den Raglan zuerst in jeder 2. Runde (8 Maschen) zugenommen, dann wird es abwechslungsweise in jeder 2. Runde 4 Maschen (= nur Rumpfteil) und 8 Maschen (= wie zuvor) zugenommen. Die Zunahmen entstehen genauso wie zuvor. Viel Spaß beim stricken!

11.04.2023 - 11:13

country flag Lena Lindberg wrote:

Hur kommer det sig att det står i mönstret att ärmarna skall vara kortare ju större storlek?

15.03.2023 - 19:23

DROPS Design answered:

Hej Lena. I de större storlekarna kommer den totala vidden (från handled till handled) att vara större än i de mindre storlekarna, även om själva ärmen är kortare. De större storlekarna har längre ärmkupa samt bredare axelvidd. Detta resulterar i en bra passform i alla storlekar. Mvh DROPS Design

16.03.2023 - 10:45

country flag Agnet wrote:

Hur sätter jag en markör i en maska? Hur får jag den att följa med uppåti stickningen?

08.01.2023 - 14:48

DROPS Design answered:

Hej Agnet, du er nødt til at flytte den selv når du sætter den i en maske :)

10.01.2023 - 13:39

country flag Ev wrote:

There is a mistake in the number of stitches to cast on for size s. When placing the stitch markers i only count a total of 136 and you have to cast on 140....

29.10.2022 - 12:38

DROPS Design answered:

Dear Ev, please note that the markers should be added in a stitch and not between stitches, so that you should have: 15+1+38+1+30+1+38+1+15=140 stitches. Happy knitting!

31.10.2022 - 09:53

country flag Erika wrote:

Hej, Var betyder "... tills det återstår 3 maskor, sticka 2 avigmaskor och 2 maskor i rätstickning" i nederkant av fram och bakstycke? Tack för hjälpen!

26.10.2022 - 13:52

DROPS Design answered:

Hej Erika, tack för info. Vi skal få design til at se på den og så bliver der lagt en rettelse ud!

27.10.2022 - 09:58

country flag Carolina Hölmark wrote:

Stickar stl M (144 maskor i halskanten) När jag ska dela upp 4 markörer för raglan så får jag 4 maskor över. 1:a 16 maskor 2:a 38 maskor 3:e 32 maskor 4:e 38 maskor, sen är det 20 maskor kvar inte 16som det står beskrivet.

26.09.2022 - 15:08

DROPS Design answered:

Hej Carolina, det är de 4 maskorna du sätter markören i (du sätter markören i maskan inte mellan maskorna) :)

27.09.2022 - 10:29