DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11264.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Glazed Orange

Prjónuð peysa úr DROPS Karisma og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með v-hálsmáli og tvöföldum kanti að framan. Stærð XS - XXL.

DROPS 236-37
DROPS Design: Mynstur u-940
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-700 g litur 11, appelsínugulur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tiheyrir garnflokki A)
100-125-125-150-150-175 g litur 33, ryð

DROPS TALA NR 630: 3 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 19 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11264.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir v-hálsmáli og handvegi):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, prjónið A.1 yfir næstu 3 lykkjur.
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1 yfir næstu 3 lykkjur, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, prjónið A.2 yfir næstu 3 lykkjur.
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG.
Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.3 yfir næstu 3 lykkjur, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið 1 lykkju slétt fram hjá prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt.

HNAPPAGAT:
Hnappagöt eru prjónuð með byrjun frá réttu þannig:
Prjónið yfir fyrstu 8 lykkjur eins og áður, snúið og prjónið til baka yfir 8 lykkjur eins og áður, prjónið alls 3 umferðir yfir 8 lykkjurnar (síðasta umferðin er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn.
Prjónið alls 4 umferðir eins og áður yfir þær 8 kantlykkjur að framan sem eftir eru (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu) og prjónið síðustu lykkju frá réttu saman með næstu lykkju meðfram kanti á peysu eins og áður. Í síðustu umferð frá röngu er prjónað yfir allar kantlykkjur að framan og haldið er áfram eins og áður yfir allar kantlykkjur að framan.
Prjónið hnappagöt þegar kantur að framan mælist:
XS: 8, 18 og 28 cm.
S: 8, 18 og 28 cm.
M: 8, 19 og 30 cm.
L: 8, 19 og 30 cm.
XL: 8, 19 og 30 cm.
XXL: 8, 19 og 30 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið, bakstykki og framstykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón upp þar til ermakúpan byrjar, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Að lokum eru lykkjur prjónaðar upp meðfram framstykkjum og prjónaður er tvöfaldur kantur að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 192-204-224-240-260-280 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Karisma og 1 þræði DROPS Kid-Silk.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Í næstu umferð (frá réttu) er prjónað stroff þannig:
1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff.
Þegar stroffið mælist 10 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 38-42-46-50-50-54 lykkjur jafnt yfir = 154-162-178-190-210-226 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6.
Setjið 1 prjónamerki 39-41-45-48-53-57 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 76-80-88-94-104-112 lykkjur fyrir bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau merkja hliðar á fram- og bakstykki og eru notuð þegar fækka á lykkjum fyrir handveg. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Þegar stykkið mælist 28-28-30-30-30-30 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli eru lykkjur felldar af fyrir handveg og hvort stykki er síðan prjónað áfram hvert fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. Lestu V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram.

V-HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 28-28-30-30-30-30 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið í næstu umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA.
Fækkið um 2 lykkjur hvoru megin í 4. hverri umferð alls 6 sinnum.
Fækkið síðan um 1 lykkju hvoru megin við 4. hverja umferð alls 3-3-4-5-5-6 sinnum.

HANDVEGUR:
JAFNFRAMT því sem stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fellið af fyrir handveg þannig: Prjónið eins og áður þar til 1-2-2-3-4-7 lykkjur eru eftir á undan fyrra prjónamerkinu í hlið, fellið af 2-4-4-6-8-14 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til 1-2-2-3-4-7 lykkjur eru eftir á undan seinna prjónamerki, fellið af 2-4-4-6-8-14 lykkjur fyrir handveg og prjónið eins og áður út umferðina.
Framstykkin og bakstykkið er síðan prjónað hvert fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón og haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli. Að auki er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig:

HANDVEGUR:
Í byrjun á næstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkjur, fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 1-1-1-1-2-2 sinnum, síðan er fækkað um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 1-1-2-3-3-3 sinnum – munið eftir ÚRTAKA.

Eftir alla úrtöku fyrir v-hálsmáli og handvegi eru 20-21-23-23-25-25 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið sléttprjón. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón og haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli. Að auki er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig:

HANDVEGUR:
Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón og haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli. Að auki er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig:

HANDVEGUR:
Í lok næstu umferðar frá réttu er fækkað um 2 lykkjur, fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 1-1-1-1-2-2 sinnum, síðan er fækkað um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 1-1-2-3-3-3 sinnum – munið eftir ÚRTAKA.

Eftir alla úrtöku fyrir v-hálsmáli og handvegi eru 20-21-23-23-25-25 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið sléttprjón. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm.

BAKSTYKKI:
= 74-76-84-88-96-98 lykkjur. Prjónið sléttprjón.
Að auki er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig:
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki fyrir handvegi, fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 1-1-1-1-2-2 sinnum, síðan er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 1-1-2-3-3-3 sinnum – munið eftir ÚRTAKA = 68-70-76-78-82-84 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 26-26-28-30-30-32 lykkjur fyrir hálsmáli (21-22-24-24-26-26 lykkjur eftir á hvorri öxl).
Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja fyrir hálsmáli = 20-21-23-23-25-25 lykkjur.
Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 52-52-56-56-56-60 lykkjur á sokkaprjóna 5 með 1 þræði í hvorri tegund.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-10-12-12-10-12 lykkjur jafnt yfir = 42-42-44-44-46-48 lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi).
Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út mitt undir ermi.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 6 og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 12-12-12-13-13-13 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 9-10-11-12-13-14 sinnum = 60-62-66-68-72-76 lykkjur.
Þegar ermin mælist 41-41-39-39-38-34 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki alveg eins og áður, nema nú er aukið út í annarri hverri umferð alls 3 sinnum = 66-68-72-74-78-84 lykkjur.
Þegar ermin mælist 44-44-42-42-41-39 cm og útaukning hefur verið gerð til loka, prjónið næstu umferð þannig:
Byrjið 1-2-2-3-4-7 lykkjur á undan prjónamerki, fellið af 2-4-4-6-8-14 lykkjur, prjónið sléttprjón út umferðina = 64-64-68-68-70-70 lykkjur.
Prjónið síðan ermakúpu þannig:
Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón fram og til baka og fellið af lykkjur í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig:
Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þar til stykkið mælist 50-50-49-49-49-49 cm.
Fellið síðan af 3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 51-51-50-50-50-50 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju meðfram handvegi.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Kantur að framan er prjónaður neðan frá og upp að hálsmáli. Prjónið upp lykkjur meðfram hægra framstykki, hoppið 1½ til 2 metra inn á þráðinn og notið þráðar endann til að prjóna upp lykkjur með (með þessu er hægt að prjóna áfram með dokkunni án þess að klippa þráðinn í lokin) þannig:
Byrjið að taka upp lykkjur neðst á framstykki og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð meðfram öllu framstykkinu innan við 1 kantlykkju, notið hringprjón 5 og 1 þráð í hvorri tegund.
Nú heldur stykkið áfram í þeim enda á umferð sem dokkan er = neðst á framstykki.
Fitjið upp 16 lykkjur fyrir kant að framan í viðbót við þær lykkjur sem teknar voru upp neðst á framstykki (lykkju teknar upp eru frá röngu). Nú er kanturinn að framan prjónaður yfir 16 lykkjur jafnframt því sem kantur að framan er prjónaður saman með lykkjur sem prjónaðar voru upp meðfram framstykki þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Lyftið yfir fyrstu lykkju á hægri prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, * prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir af 16 kantlykkjum að framan, lyftið yfir síðustu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, með þráðinn aftan við stykkið, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð slétt, snúið.
UMFERÐ 2 (ranga): * Lyftið yfir fyrstu/næstu lykkju á hægri prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* yfir allar 16 kantlykkjur að framan, snúið.
Endurtakið umferð 1 og 2.
Prjónið HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Þegar allar lykkjur af framstykki hafa verið prjónaðar saman með kanti að framan, prjónið kant í hálsmáli að aftan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI AÐ AFTAN:
Nú eru prjónaðar 16 kantlykkjur að framan þannig:
UMFERÐ 1: * Lyftið yfir fyrstu/næstu lykkju á hægri prjóni eins og prjóna eigi brugðið, með þráðinn framan við stykkið, prjónið slétta lykkju *, prjónið frá *-* yfir 16 lykkjur.
Endurtakið umferð 1 bæði frá réttu og frá röngu í 11-11-12-12-12-13 cm.
Í síðustu umferð frá réttu eru allar lykkjur prjónaðar 2 og 2 slétt saman og síðan er fellt af.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Kantur að framan er prjónaður neðan frá og upp. Lykkjur eru teknar upp í byrjun efst á öxl á framstykki, prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð niður meðfram öllu framstykkinu innan við 1 kantlykkju, notið hringprjón 5 og 1 þráði í hvorri tegund.
Eftir að lykkjur hafa verið teknar upp eru fitjaðar upp 16 lykkjur jafnframt því sem kantur að framan er prjónaður saman með lykkjum sem prjónaðar voru upp meðfram framstykki þannig:

UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, * lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir af 16 kantlykkjum að framan, lyftið yfir 2 næstu lykkjum á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið saman með þráðinn framan við stykkið, snúið.
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, * lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, lyftið yfir síðustu lykkjunni á hægri prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, snúið.
Endurtakið umferð 1 og 2.
Þegar allar lykkjur frá framstykki hafa verið prjónaðar saman með kant að framan er prjónaður kantur aftan í hálsmáli að aftan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI AÐ AFTAN:
Nú eru prjónaðar 16 kantlykkjur að framan þannig:
UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkjur slétt, lyftið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið *, prjónið frá *-* yfir 16 lykkjur.
Endurtakið umferð 1 bæði frá réttu og frá röngu í 11-11-12-12-12-13 cm.
Í síðustu umferð frá réttu eru allar lykkjur prjónaðar saman þannig: Lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fellið síðan lykkjurnar af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman kant að framan mitt að aftan og saumið við hálsmáli á bakstykki.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = prjónið 3 lykkjur brugðið saman
symbols = prjónið frá röngu: sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Karin Schöppink wrote:

Bij patroon 236-37 begrijp ik de omschrijving voor de 'kopmouw' niet. Het 2 x 2 afkanten? is dat voor het rechter en linkerdeel van 1 mouw (omdat je de middelste 6 stk hebt afgekant)? of kant je aan de uiteinden van 1 mouw af? Ook het stukje over de bies aanbreien en dan 1/2 tot 1 mtr draad overhouden? Brei je de bies dan niet ineen keer over de hele voorkant?

27.12.2023 - 21:19

DROPS Design answered:

Dag Karin,

Je bent nu de mouwkop aan het heen en weer breien en je kant aan het begin van elke naald 2 steken af. Dus 2 steken afkanten, de naald uitbreien, keren, weer 2 steken afkanten. Dit doe je nog een keer, zodat je 2 keer 2 steken hebt afgekant aan beide kanten. Daarna kant je 2 keer 1 steek af, ook aan beide kanten. Vervolgens kant je steeds aan het begin van iedere naald 2 steken af, tot je op de juiste lengte bent.

01.01.2024 - 13:17

country flag SOPHIE CATTANEO wrote:

Bonjour, Je ne vois pas à quel endroit du tricot on utilise les points fantaisie.

04.11.2023 - 18:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cattaneo, les diagrammes A.1, A.2 et A.3 sont tricotés lors des diminutions de l'encolure et des emmanchures - cf descriptif sous DIMINUTIONS (encolure V et emmanchures):. Bon tricot!

06.11.2023 - 08:19

country flag Muriel wrote:

Bonjour pour les bordures des devant du gilet. On monte les 16 mailles en bas du gilet ? Je pensais que les 16 mailles rajoutées c était pour la bordure du dos donc pour moi ça serait plus logique de les monter en haut du devant du gilet?

03.06.2023 - 07:12

DROPS Design answered:

Bonjour Muriel, pas à ce stade, on fait pour l'instant la bordure des devants, ces vidéos vont probablement pouvoir vous aider à visualiser la technique: bordure devant droit (avec boutonnières), et bordure devant gauche (sans boutonnière). À la fin de chacune de ces boutonnières, on va continuer à tricoter ces 16 mailles (sans les tricoter avec des mailles relevées) jusqu'au milieu de l'encolure dos, les 2 bordures seront ensuite assemblées entre elles puis cousues le long de l'encolure dos. Bon tricot!

05.06.2023 - 09:52

country flag MURIEL COUSIN wrote:

Bonjour je suis en train de tricoter le glazed orange et je ne comprends pas comment on tricote les bordures des devant et d encolure. Pourriez vous m aider s il vous plaît Je ne comprends pas le système des mailles relevées et le point Merci bonne soirée

14.05.2023 - 22:42

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cousin, volontiers, voici 2 vidéos qui pourront vous aider: bordure avec boutonnière et bordure sans boutonnière. Bon tricot!

15.05.2023 - 08:55

country flag Agneta Hugosson wrote:

Hej i beskrivningen drops 236-37 finns det ett diagram med i beskrivningen, men inget står om när jag skall börja använda detta diagram? Koftan skall enligt beskrivningen stickas i slätstickning, men när som sagt kommer diagrammet in?

20.10.2022 - 14:41

DROPS Design answered:

Hej Agneta, jo du hittar diagrammen i FELLETIPSET øverst i beskrivningen :)

25.10.2022 - 11:50

country flag MJ Pepper wrote:

What I wanted to know is... what does yarn group a + b equal to, as a single yarn weight? I have beautiful yarn my daughter bought for me, but it is a worsted weight. I am concerned about about weight differences. Thank you for your time and attention to my question. Have a great day KNITTING!

13.10.2022 - 00:46

DROPS Design answered:

Dear Mrs Pepper, read more about our yarn groups here - click on each yarn name to read more. You will find the list of DROPS Stores shipping to US here. Happy knitting!

13.10.2022 - 09:24

country flag MJ Pepper wrote:

Are yarn weights of B and A equal to C weight? Thank you for your help. I sooo appreciate it. Have a great day... KNITTING!

11.10.2022 - 17:52

DROPS Design answered:

Dear Mrs Pepper, you might eventually use a yarn group C but make first a swatch to check if you like the texture - it might be more airy than the texture of this pattern worked with yarn weight A + B. Happy knitting!

12.10.2022 - 08:35