Madeleine skrifaði:
When working the Shawl collar after the Right Front piece for Size Large - do I continue A8 after the garter stitches? There are 2 of A8 left, and knit over knit, purl over purl looks odd to me.
30.09.2022 - 01:32DROPS Design svaraði:
Dear Madeleine, just work K over K and P over P - without cables anymore and the 7 front band stitches in garter stitch. Happy knitting!
30.09.2022 - 08:20
Blom skrifaði:
Ik lees in het patroon dat ik moet beginnen met opzetten met 1 draad van elke kwaliteit (2 draden). Houdt dat in dat ik het hele vest met 2 draden dus met beide soorten wol tegelijk moet breien?
13.09.2022 - 20:19DROPS Design svaraði:
Dag Blom,
Ja dat klopt, het het hele werk wordt met 2 draden gebreid.
14.09.2022 - 11:38
Martina skrifaði:
The knitting tension given in this pattern is for the 4mm needles or the 5.5mm needles?
12.09.2022 - 13:51DROPS Design svaraði:
Dear Martina, knitting tension is with the larger needles, ie size 5,5 mm. Happy knitting!
12.09.2022 - 17:39
Nathalie Neuteboom skrifaði:
Komt dit model nog online met de korte mouwen. Heb op dat model namelijk gestemd en vind hem zo mooi.
31.08.2022 - 11:05DROPS Design svaraði:
Dag Nathalie,
Als het goed is komt die inderdaad online, maar ik kan niet zeggen wanneer precies. Vanaf nu tot en met november komen de patronen van de wintercollectie online.
31.08.2022 - 13:40
Birgit skrifaði:
Landlust
08.08.2022 - 09:23
Lana skrifaði:
Twisted caramel/candy
07.08.2022 - 09:09
Pia skrifaði:
Warm caramel
06.08.2022 - 13:28
Herbstknopf skrifaði:
Spannend!
05.08.2022 - 19:44
Cracked Walnuts Jacket#crackedwalnutsjacket |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Kid-Silk og DROPS Puna / DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri, garðaprjóni, köðlum og stroffprjóni. Stærð XS - XXL.
DROPS 235-2 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. PRJÓNAÐ SAMAN: FRÁ RÉTTU: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt. FRÁ RÖNGU: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman. SLÉTTPRJÓN: Þegar prjónað er frá röngu er prjónað brugðið og þegar prjónað er frá réttu er prjónað slétt. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið 1 lykkju fram hjá prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í lok umferðar, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 6, 14, 22 og 30 cm. S: 6, 14, 22 og 30 cm. M: 6, 14, 23 og 32 cm. L: 7, 16, 25 og 34 cm. XL: 6, 14, 22, 29 og 36 cm. XXL: 6, 14, 22, 29 og 36 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkin og bakstykkið er prjónað neðan frá og upp, fram og til baka í stykkjum. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 98-110-110-122-134-146 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 114-128-128-142-156-170 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið síðan mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið A.3 á hæðina þar til stykkið mælist 16-17-19-19-21-22 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 27-36-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 87-92-92-102-112-122 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.5 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. A.5 er endurtekið á hæðina. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 33-35-36-38-39-41 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.6 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 138-146-146-162-178-194 lykkjur í umferð. Prjónið síðan mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.7 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið A.7 alls 3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 45-47-48-50-51-53 cm. Prjónið síðan mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.8 þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 51-54-54-60-66-72 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 87-92-92-102-112-122 lykkjur. Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.8a áfram á hæðina að loknu máli. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 13-14-16-18-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl (37-39-38-42-46-51 lykkjur) eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja í byrjun á umferð = 36-38-37- 41-45-50 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, prjónið skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig: * Prjónið mynstur eins og áður þar til eftir eru 8-9-9-10-11-12 lykkjur, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónið yfir 8-9-9-10-11-12 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli. Í síðustu umferð við hálsmál eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 38-40- 39-43-47-52 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlalykkjur. Lykkjurnar sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: Prjónið * 1 lykkja SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu / næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka 2 lykkjum á prjóninn sem voru á þræði frá röngu á stykki, passið uppá að herða ekki of á þræðinum *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur af öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið af 2 lykkjur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp upp 61-67-67-73-79-85 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Í næstu umferð frá réttu er mynstrið prjónað þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9, prjónið 1-0-0-1-0-1 lykkja brugðið, 1-0-0-1-0-1 lykkja slétt, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9 eins og áður, prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 70-77-77-84-91-98 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið mynstur þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þetta er gert til að mynstrið verði alveg eins mitt að framan á báðum framstykkjum), prjónið A.3 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 71-78-78-85-92-99 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, síðan er prjónað brugðið frá réttu og slétt frá röngu. Endurtakið A.3 á hæðina þar til stykkið mælist 16-17-19-19-21-22 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a eins og áður, prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 15-17-17-19-21-23 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 56-61-61-66-71-76 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a eins og áður, prjónið A.5 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. A.5 er endurtekið á hæðina. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 33-35-36-38-39-41 cm. Prjónið mynstur nú með byrjun frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a eins og áður, prjónið A.6 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 77-85-85-93-101-109 lykkjur í umferð. Prjónið mynstur þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a eins og áður, prjónið A.7 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið A.7 alls 3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 45-47-48-50-51-53 cm. Prjónið mynstur þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a eins og áður, prjónið A.8 þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 21-24-24-27-30-33 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 56-61-61-66-71-76 lykkjur. Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.8a á hæðina að loka máli. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, prjónið skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig: * Prjónið mynstur eins og áður þar til eftir eru 8-9-9-10-11-12 lykkjur, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónið yfir 8-9-9-10-11-12 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsi. Í síðustu umferð við hálsmál er prjónað þar til 20-23-24-25-26-26 lykkjur eru eftir, setjið síðustu 20-23-24-25-26-26 lykkjur á þráð fyrir sjalkraga og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 38-40-39-43-47-52 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlalykkjurr. Lykkjurnar sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: Prjónið * 1 lykkja sléttprjón, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu / næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka 2 lykkjum á prjóninn sem voru á þræði frá röngu á stykki, passið uppá að herða ekki of á þræðinum *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur af öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið af 2 lykkjur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. SJALKRAGI: Setjið 20-23-24-25-26-26 lykkjur af þræði á hringprjón 5,5. Prjónið með byrjun frá röngu þannig: 0-2-3-3-5-5 lykkjur garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram (þ.e.a.s. kaðlar eru ekki lengur fléttaðir) og prjónið stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið yfir fyrstu 16-19-20-21-22-22 lykkjur, snúið og herðið þráðinn. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið yfir 16-19-20-21-22-22 lykkjur. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur. Prjónið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 7-8-8-9-9-9 cm þar sem hann er stystur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp upp 61-67-67-73-79-85 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og brugðnar lykkjur út umferðina. Í næstu umferð frá réttu er mynstrið prjónað þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 20-18-18-20-18-20 lykkjur eru eftir, prjónið 1-0-0-1-0-1 lykkju slétt, 1-0-0-1-0-1 lykkja brugðið, A.10, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 18 lykkjur eru eftir, A.10 eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 70-77-77-84-91-98 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 20 lykkjur eru eftir, A.10a, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Endurtakið A.3 á hæðina þar til stykkið mælist 16-17-19-19-21-22 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.4 þar til 20 lykkjur eru eftir og fækkið jafnframt um 14-16-16-18-20-22 lykkjur jafnt yfir, A.10a eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 56-61-61-66-71-76 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.5 þar til 20 lykkjur eru eftir, A.10a eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. A.5 er endurtekið á hæðina. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 33-35-36-38-39-41 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.6 þar til 20 lykkjur eru eftir, A.10a eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 77-85-85-93-101-109 lykkjur í umferð. Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.7 þar til 20 lykkjur eru eftir, A.10a eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið A.7 alls 3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 45-47-48-50-51-53 cm. Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.8 þar til 20 lykkjur eru eftir og fækkið jafnframt um 21-24-24-27-30-33 lykkjur jafnt yfir, A.10a eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 56-61-61-66-71-76 lykkjur. Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.8a á hæðina til loka máls. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, prjónið nú skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig: * Prjónið mynstur eins og áður þar til eftir eru 8-9-9-10-11-12 lykkjur, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónið yfir 8-9-9-10-11-12 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli. Í síðustu umferð við hálsmál er prjónað þar til 20-23-24-25-26-26 lykkjur eru eftir, setjið síðustu 20-23-24-25-26-26 lykkjur á þráð fyrir sjalkraga og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 38-40-39-43-47-52 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlalykkjur. Lykkjurnar sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: Prjónið * 1 lykkja sléttprjón, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu / næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka 2 lykkjum á prjóninn sem voru á þræði frá röngu á stykki, passið uppá að herða ekki of á þræðinum *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur af öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið af 2 lykkjur. SJALKRAGI: Setjið 20-23-24-25-26-26 lykkjur af þræði á hringprjón 5,5. Prjónið með byrjun frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 0-2-3-3-5-5 lykkjur eru eftir og prjónið síðustu lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram (þ.e.a.s. kaðlar eru ekki lengur fléttaðir) og prjónið stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið yfir fyrstu 16-19-20-21-22-22 lykkjur, snúið og herðið þráðinn. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið yfir 16-19-20-21-22-22 lykkjur. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur. Prjónið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 7-8-8-9-9-9 cm þar sem hann er stystur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. ERMI: Fitjið upp 60-60-60-72-72-72 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri gerð. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið A.1 hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.2 yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 70-70-70-84-84-84 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Prjónið A.3 yfir allar lykkjur. Prjónið A.3 alls 2 sinnum á hæðina. Prjónið A.8 yfir allar lykkjur, í fyrstu umferð er fækkað um 22-22-22-26-26-26 lykkjur jafnt yfir = 48-48-48-58-58-58 lykkjur. Endurtakið A.8a á hæðina að loka máli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 3½-3½-2½-3-3-2 cm millibili alls 6-6-8-6-6-8 sinnum = 60-60-64-70-70-74 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Fellið af þegar ermin mælist 40-40-41-39-37-35 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við 1 lykkju í icordkanti. Saumið sjalkragann mitt að aftan og saumið við hálsmál aftan í hnakka. Saumið ermar í. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #crackedwalnutsjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.