DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19228.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cracked Walnuts Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Kid-Silk og DROPS Puna / DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri, garðaprjóni, köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli og stroffprjóni. Stærð XS - XXL.

DROPS 235-1
DROPS Design: Mynstur pu-061
Garnflokkur A + B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
Litur/garn notað í peysu á mynd:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-650-700-750-800-900 g litur 17, nougat
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-175-175-200-225-250 g litur 42, mandla

Eða notið:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-650-700-750-850-900 g litur 07, ljós brúnn
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-175-175-200-225-225 g litur 12, beige

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri gerð = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19228.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

PRJÓNAÐ SAMAN:
FRÁ RÉTTU: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt.
FRÁ RÖNGU: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman.

SLÉTTPRJÓN:
Þegar prjónað er frá röngu er prjónað brugðið og þegar prjónað er frá réttu er prjónað slétt.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið 1 lykkju fram hjá prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í lok umferðar, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn. Þegar prjónað á A.2, prjónið útaukningu brugðið, þegar prjónað er A.7, prjónið útaukningu jafnóðum inn í mynstur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað neðan frá og upp, fram og til baka hvort fyrir sig.
Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður upp tvöfaldur kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 98-110-110-122-134-146 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 114-128-128-142-156-170 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið síðan mynstur þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Endurtakið A.3 á hæðina þar til stykkið mælist 16-17-19-19-21-22 cm.
Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 27-36-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 87-92-92-102-112-122 lykkjur.
Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.5 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. A.5 er endurtekið á hæðina. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 33-35-36-38-39-41 cm.
Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.6 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 138-146-146-162-178-194 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan mynstur þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.7 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Prjónið A.7 alls 3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 45-47-48-50-51-53 cm.
Prjónið síðan mynstur þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.8 þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 51-54-54-60-66-72 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 87-92-92-102-112-122 lykkjur.
Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.8a áfram á hæðina að loknu máli.
Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 27-30-30-32-32-34 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl (30-31-31-35-40-44 lykkjur) eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja í byrjun á umferð = 29-30-30-34-39-43 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, prjónið skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig:
* Prjónið mynstur eins og áður þar til eftir eru 7-7-7-8-9-10 lykkjur, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónið yfir 7-7-7-8-9-10 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli.
Í síðustu umferð við háls eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 31-32-32-36-41-45 lykkjur.
Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlalykkjur.
Lykkjurnar sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig:
Prjónið * 1 lykkja SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu / næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka 2 lykkjum á prjóninn sem voru á þræði frá röngu á stykki, passið uppá að herða ekki of á þræðinum *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur af öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið af 2 lykkjur.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm = 87-92-92-102-112-122 lykkjur. Nú eru miðju 15-18-18-20-20-22 lykkjur settar á þráð og hvor öxl (36-37-37-41-46-50 lykkjur) er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli þannig:
Fellið af 2 lykkjur alls 2 sinnum og 1 lykkju alls 3 sinnum = 29-30-30-34-39-43 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan hvora öxl áfram á sama hátt og á bakstykki:

ERMI:
Fitjið upp 60-60-60-72-72-72 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri gerð. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð.
Prjónið A.1 hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.2 yfir allar lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 70-70-70-84-84-84 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5.
Prjónið A.3 yfir allar lykkjur. Prjónið A.3 alls 2 sinnum á hæðina.
Prjónið A.8 yfir allar lykkjur, í fyrstu umferð er fækkað um 22-22-22-26-26-26 lykkjur jafnt yfir = 48-48-48-58-58-58 lykkjur. Endurtakið A.8a á hæðina að loka máli.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 3½-3½-2½-3-3-2 cm millibili alls 6-6-8-6-6-8 sinnum = 60-60-64-70-70-74 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Fellið af þegar ermin mælist 40-40-41-39-37-35 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við 1 lykkju í kanti. Saumið ermar í. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 76 til 104 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) frá réttu, á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund.
Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4.
Prjónið stroff (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir allar lykkjur.
Þegar kantur í hálsmáli mælist 14 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur með hringprjón 5,5 (þetta er gert til að affellingarkanturinn dragi ekki hálsmálið saman).
Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli.
Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjóninn framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjóninn aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (37)

country flag Joelle wrote:

Bonjour . Pour le modèle 235-1 , les diagrammes sont tous sur l endroit ? Si oui à l envers doit on tricoter e cela se présente ? Et pour le diagramme A2 , comment peut on avoir à la fin de celui ci 20 mailles de plus ( taille L) si je ne fais qu une seule fois un jeté ? Ça doit avoir un rapport avec le terme : tricoter 1 fois en hauteur mais ça veut dire quoi ? Désolée mais je suis dessus depuis 1 heure et je n arrive pas a comprendre... merci

15.02.2024 - 00:05

DROPS Design answered:

Bonjour Joëlle, tous les rangs figurent dans le diagramme, ceux sur l'endroit aussi bien que ceux sur l'envers; en taille L, on répète 20 fois les 6 mailles de A.2, en augmentant 1 maille dans chaque A.2, vous augmentez 20 mailles au total à l'avant-dernier rang de A2. Tricoter 1 fois en hauteur veut simplement dire que vous tricotez tous les rangs 1 seule fois, du 1er au dernier rang du diagramme. Bon tricot!

15.02.2024 - 07:35

country flag Gaetane wrote:

Bonjour! Suite à ma 1ère question, je comprends ce que vous expliquez dans votre réponse ! Merci 🙏, mais pourrais-je prendre tout simplement 1 couleur sans tricoter 2 fils en même temps ? Merci 🙏

16.01.2024 - 13:07

DROPS Design answered:

Bonjour Gaetane, vous pouvez alors utiliser 1 fil du groupe de fils C pour obtenir la même tension et remplacer ici 1 fil du groupe B + 1 fil du groupe A.Mais pensez bien, comme toujours à vérifier votre tension. Bon tricot!

17.01.2024 - 08:48

country flag Gaetane wrote:

Bonjour je lis votre patron au début vous parlez de 2 couleur , nougat et amande ! Serait-ce que ça prends 2 sorte de couleur pour réaliser ce pull ? Merci 🙏

13.01.2024 - 18:42

DROPS Design answered:

Bonjour Gaetane, tout à fait, on tricote ici avec 2 fils en même temps, soit 1 fil Puna + 1 fil Kid-Silk ou bien 1 fil Merino Extra Fine + 1 fil Kid-Silk, pensez à bien vérifier votre échantillon qui se tricote en jersey avec ces 2 fils (l'une ou l'autre version au choix), et adaptez la taille de vos aiguilles si besoin. Bon tricot!

15.01.2024 - 09:17

country flag Lotta wrote:

Have you changed size standards recently? I have always used size S. In this model (and in many others) even size XS is much too big for me. I've never had a problem like this before.

07.01.2024 - 16:11

DROPS Design answered:

Dear Lotta, our sizing hasn't changed too much from before. But the sizing is established depending on the garment. For example, the chest for this jumper is bigger because it has a looser fit compared to other jumpers. So, even though it's for the same size, there can be slight changes in measurements between patterns. Happy knitting!

07.01.2024 - 18:07

country flag Diane wrote:

Ik ben de mouw aan het breien maar moet bij dit model meerderen in gerstekorrel maar wat ik ook doe,ik ga op een gegeven moment of 2 rechte steken of 2 averechte steken naast elkaar krijgen hoe kan ik dit voorkomen?\r\nMooi is het niet.ik ben de mouw op een rond breinaald aan het breien.moet 1steek breien dan een omslag de naald tot 2 steken voor het einde breien dan een omslag dan de laatste 2 steken breien,maar krijg toch 2 dezelfde steken naast elkaar en dat is niet mooi

27.12.2023 - 21:43

DROPS Design answered:

Dag Diane,

Klopt, dit is helaas niet te voorkomen. De gerstekorrel wordt een tijdje verbroken totdat je weer meerdert. Gelukkig zit dit aan de onderkant van de mouw, waardoor het niet heel erg opvalt.

30.12.2023 - 18:07

country flag Susi wrote:

Kann ich bei diesem Schnitt die Ärmelmaschen auch einfach an den Rändern aufnehmen?. Dann müsste ich sie doch nicht extra einnähen . Was müsste ich dabei beachten?

18.12.2023 - 15:38

DROPS Design answered:

Liebe Susi, wenn Sie die Ärmel von oben nach unten stricken dann sind die Muster nicht genauso wie beim Rumfpteil, am besten stricken Sie die Ärmel von unten nach oben genauso wie bei der Anleitung. Viel Spaß beim stricken!

18.12.2023 - 16:26

country flag Abdou wrote:

Bonjour, Je ne suis pas une experte dans le tricot, mais j'aime beaucoup vos modèles. J'ai commencé à tricoté ce modèle et je beugue un peu sur le diagramme A2. Est ce que je tricote 1 maille envers puis 4 endroits et 1 maille envers, puis je recommence à chaque fois 1-4-1 ou pas?? Je ne sais pas si je suis assez claire. Merci d'avance pour votre réponse.

06.10.2023 - 21:26

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Abdou, tout à fait, sur l'endroit, vous tricotez (1 m env, 4 m end, 1 m env), autrement dit sur l'envers (1 m end, 4 m env, 1 m end) et vous répétez de (à) tout le rang. Bon tricot!

09.10.2023 - 08:17

country flag Broux wrote:

Bonjour, quand on a tricoté A8a on termine par un rang endroit.On commence alors l'encolure sur l'envers?

30.05.2023 - 18:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Broux, l'encolure ne se fait pas en fonction du rang de A.8a mais en fonction de la hauteur pour votre taille, adaptez si vous le souhaitez et si besoin pour former l'encolure sur l'endroit. Bon tricot!

31.05.2023 - 08:12

country flag ROSELYNE MOUTHON wrote:

Bonjour, Je souhaiterais savoir si il existe une méthode pour assembler les mailles des épaules rabattues Avec la technique du I-cord? Merci

19.01.2023 - 13:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mouthon, tout à fait, vous pouvez utiliser cette technique. Bon tricot!

19.01.2023 - 18:39

country flag Karine wrote:

Bonjour Pour l'échantillon il faut utiliser les aiguilles 4 ou 5,5 ? Merci

04.01.2023 - 17:21

DROPS Design answered:

Bonjour Karine, on utilise les aiguilles 5,5 pour l'échantillon. Bon tricot!

05.01.2023 - 10:46