DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15862.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cracked Walnuts Vest

Prjónað vesti úr DROPS Kid-Silk og DROPS Puna / DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri, garðaprjóni, köðlum og stroffprjóni. Stærð XS - XXL.

DROPS 237-10
DROPS Design: Mynstur pu-065
Garnflokkur A + B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
Liturinn / garnið sem notað er í vesti á mynd:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-700 g litur 17, nougat
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-150-150-175-200 g litur 42, mandla

Eða notið:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-700 g litur 07, ljós brúnn
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-150-150-175-200 g litur 12, beige

DROPS TALA NR 630: 4-4-4-4-5-5 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN 4: lengd 80 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15862.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

PRJÓNAÐ SAMAN:
FRÁ RÉTTU: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
FRÁ RÖNGU: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman.

SLÉTTPRJÓN:
Þegar prjónað er frá röngu er prjónað brugðið og þegar prjónað er frá réttu er prjónað slétt.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
XS: 6, 14, 22 og 30 cm.
S: 6, 14, 22 og 30 cm.
M: 6, 14, 23 og 32 cm.
L: 7, 16, 25 og 34 cm.
XL: 6, 14, 22, 29 og 36 cm.
XXL: 6, 14, 22, 29 og 36 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkin og bakstykkið er prjónað neðan frá og upp, fram og til baka hvort fyrir sig í stykkjum.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 98-110-110-122-134-146 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 114-128-128-142-156-170 lykkjur eftir í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið síðan mynstur þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Endurtakið A.3 á hæðina þar til stykkið mælist 16-17-19-19-21-22 cm.
Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 27-36-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 87-92-92-102-112-122 lykkjur.
Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.5 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. A.5 er endurtekið á hæðina. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 99-104-104-114-124-134 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni að réttu máli.
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 33-35-36-38-39-41 cm.
Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig:
7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.6 þar til 7 lykkjur eru eftir, 7 lykkjur í garðaprjóni.
Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 150-158-158-174-190-206 lykkjur í umferð.

Prjónið mynstur þannig:
7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.7 þar til 7 lykkjur eru eftir, 7 lykkjur í garðaprjóni.
Prjónið A.7 alls 3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 45-47-48-50-51-53 cm.
Prjónið mynstur þannig:
7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.8 þar til 7 lykkjur eru eftir og fækkið jafnframt um 51-54-54-60-66-72 lykkjur jafnt yfir, 7 lykkjur í garðaprjóni = 99-104-104-114-124-134 lykkjur.
Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.8a á hæðina að loka máli.

Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, fellið af miðju 13-14-16-18-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl (43-45-44-48-52-57 lykkjur) er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja í byrjun á umferð = 42-44-43-47-51-56 lykkjur. Í næstu umferð við hálsmál eru felldar af fyrstu = 35-37-36-40-44-49 lykkjur.
Prjónið síðan skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig:
* Prjónið mynstur eins og áður þar til 8-9-9-10-11-12 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónað er yfir 8-9-9-10-11-12 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli.
Í næstu umferð við hálsmál eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 37-39-38-42-46-51 lykkjur.
Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlalykkjur.
Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig:
Prjónið * 1 lykkju SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, næsta umferð er prjónuð saman við fyrstu / næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka 2 lykkjum á prjóni sem eru með þráðinn að röngu á stykki, passið uppá að þráðurinn herðist ekki of mikið *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið af 2 lykkjur.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 61-67-67-73-79-85 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Í næstu umferð frá réttu er prjónað mynstur þannig:
7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9, prjónið 1-0-0-1-0-1 lykkja brugðið, 1-0-0-1-0-1 lykkja slétt, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur frá réttu þannig:
7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9 eins og áður, prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 70-77-77-84-91-98 lykkjur í umferð.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið síðan mynstur þannig:
7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þetta er gert til að mynstrið verði alveg eins mitt að framan á báðum framstykkjum), prjónið A.3 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 71-78-78-85-92-99 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, síðan er prjónað brugðið frá réttu og slétt frá röngu.
Endurtakið A.3 á hæðina þar til stykkið mælist 16-17-19-19-21-22 cm.
Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig:
7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a eins og áður, prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 15-17-17-19-21-23 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 56-61-61-66-71-76 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig:
7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a eins og áður, prjónið A.5 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. A.5 er endurtekið á hæðina.
Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 62-67-67-72-77-82 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni að loka máli.
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 33-35-36-38-39-41 cm.
Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig:
7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a eins og áður, prjónið A.6 þar til 7 lykkjur eru eftir, 7 lykkjur í garðaprjóni.
Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 83-91-91-99-107-115 lykkjur í umferð.
Prjónið mynstur þannig:
7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a eins og áður, prjónið A.7 þar til 7 lykkjur eru eftir, 7 lykkjur í garðaprjóni.
Prjónið A.7 alls 3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 45-47-48-50-51-53 cm.
Prjónið mynstur þannig:
7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a eins og áður, prjónið A.8 þar til 7 lykkjur eru eftir og fækkið jafnframt um 21-24-24-27-30-33 lykkjur jafnt yfir, 7 lykkjur í garðaprjóni = 62-67-67-72-77-82 lykkjur.
Þegar A.8 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.8a á hæðina að loka máli.
Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af fyrstu 7 lykkjur í næstu umferð frá röngu = 55-60-60-65-70-75 lykkjur. Prjónið síðan skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig:
* Prjónið mynstur eins og áður þar til 8-9-9-10-11-12 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónað er yfir 8-9-9-10-11-12 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli.
Í síðustu umferð við hálsmál er prjónað þar til 20-23-24-25-26-26 lykkjur eru eftir, setjið síðustu 20-23-24-25-26-26 lykkjur á þráð fyrir sjalkraga og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 37-39-38-42-46-51 lykkjur.

Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlalykkjur.
Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig:
Prjónið * 1 lykkju sléttprjón, næsta lykkja er prjónuð saman við fyrstu / næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka 2 lykkjum á prjóni sem eru með þráðinn að röngu á stykki, passið uppá að þráðurinn herðist ekki of mikið *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið af 2 lykkjur.

SJALKRAGI:
Setjið 20-23-24-25-26-26 lykkjur af þræði á hringprjón 5,5. Prjónið með byrjun frá röngu þannig: 0-2-3-3-5-5 lykkjur garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir, prjóni 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram (þ.e.a.s. köðlum er ekki snúið lengur) og prjónið stuttar umferðir þannig:
Umferð 1 (rétta): Prjónið yfir fyrstu 16-19-20-21-22-22 lykkjur, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið yfir 16-19-20-21-22-22 lykkjur.
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur.
Prjónið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 7-8-8-9-9-9 cm þar sem hann er stystur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 61-67-67-73-79-85 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og brugðnar lykkjur út umferðina.
Í næstu umferð frá réttu er prjónað mynstur þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 20-18-18-20-18-20 lykkjur eru eftir, prjónið 1-0-0-1-0-1 lykkju slétt, 1-0-0-1-0-1 lykkja brugðið, A.10, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur frá réttu þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 18 lykkjur eru eftir, A.10 eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 70-77-77-84-91-98 lykkjur í umferð.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið mynstur þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 20 lykkjur eru eftir, A.10a, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Endurtakið A.3 á hæðina þar til stykkið mælist 16-17-19-19-21-22 cm.
Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.4 þar til 20 lykkjur eru eftir og fækkið jafnframt um 14-16-16-18-20-22 lykkjur jafnt yfir, A.10a eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 56-61-61-66-71-76 lykkjur.
Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.5 þar til 20 lykkjur eru eftir, A.10a eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. A.5 er endurtekið á hæðina.
Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í lok næstu umferðar frá röngu = 62-67-67-72-77-82 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni að réttu máli.
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 33-35-36-38-39-41 cm.
Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig:
7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.6 þar til 20 lykkjur eru eftir, A.10a eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 83-91-91-99-107-115 lykkjur eftir í umferð.
Prjónið mynstur þannig:
7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.7 þar til 20 lykkjur eru eftir, A.10a eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Prjónið A.7 alls 3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 45-47-48-50-51-53 cm.
Prjónið mynstur þannig:
7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.8 þar til 20 lykkjur eru eftir og fækkið jafnframt um 21-24-24-27-30-33 lykkjur jafnt yfir, A.10a eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 62-67-67-72-77-82 lykkjur.
Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.8a á hæðina að loknu máli.
Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af fyrstu 7 lykkjur í næstu umferð frá réttu = 55-60-60-65-70-75 lykkjur. Prjónið síðan skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig:
* Prjónið mynstur eins og áður þar til 8-9-9-10-11-12 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónað er yfir 8-9-9-10-11-12 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli.
Í síðustu umferð við hálsmál er prjónað þar til 20-23-24-25-26-26 lykkjur eru eftir, setjið síðustu 20-23-24-25-26-26 lykkjur á þráð fyrir sjalkraga og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 37-39-38-42-46-51 lykkjur.

Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlarlykkjur.
Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig:
Prjónið * 1 lykkju sléttprjón, næsta lykkja er prjónuð saman við fyrstu / næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka 2 lykkjum á prjóni sem eru með þráðinn að röngu á stykki, passið uppá að þráðurinn herðist ekki of mikið *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið af 2 lykkjur.

SJALKRAGI:
Setjið 20-23-24-25-26-26 lykkjur af þræði á hringprjón 5,5. Prjónið með byrjun frá réttu þannig: 0-2-3-3-5-5 lykkjur garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkkjur þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram (þ.e.a.s. köðlum er ekki snúið lengur) og prjónið stuttar umferðir þannig:
Umferð 1 (ranga): Prjónið yfir fyrstu 16-19-20-21-22-22 lykkjur, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið yfir 16-19-20-21-22-22 lykkjur.
UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur.
Prjónið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 7-8-8-9-9-9 cm þar sem hann er stystur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana innan við 1 lykkju í icord-kanti. Saumið lykkjur í garðaprjóni við hverja aðra. Saumið sjalkragann saman mitt að aftan og saumið við hálsmál aftan í hnakka. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.01.2023
VINSTRA FRAMSTYKKI / SJALKRAGI: Setjið 20-23-24-25-26-26 lykkjur af þræði á hringprjón 5,5. Prjónið með byrjun frá réttu þannig: 0-2-3-3-5-5 lykkjur garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkkjur þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur í garðaprjóni.
Yfirfarið á vefsvæði: 23.02.2024
Uppskriftin hefur verið yfirfarin og uppfærð. Leiðrétting við hálsmál á bakstykki.
Yfirfarið á vefsvæði: 05.04.2024
Leiðrétting á efnismagni í Kid-Silk hefur verið gerð í stærð XXXL.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (46)

country flag Innocenti wrote:

Bonjour dans les explications que vous m avez données, je dois laisser en attente les 7 mailles côté épaule alors que les explications du tricot demandent de les rabattre. Je m y perds un peu merci

10.04.2024 - 16:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Innocenti, vous rabattez en début de rang à partir de l'encolure 1 x 1 m et 1 x 7 m et vous mettez en attente en début de rang à partir de l'épaule 4 x 9 mailles, vous montez ensuite 2 mailles en fin de rang vers l'encolure et rabattez les mailles de l'épaule avec la technique du I-cord. Bon tricot!

11.04.2024 - 07:00

country flag Innocenti wrote:

Bonjour est ce que je peux avoir des éclaircissements pour tricoter le biais de l épaule pour le dos ? A quoi correspondent les * ? Il est noté de tricoter 9 mailles en moins pour la taille M puis de monter 2 mailles , il reste ensuite 38 mailles. Comment est ce possible puisqu avant de tricoter le biais de l encolure il reste 36 mailles ? Merci

08.04.2024 - 22:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Innocenti, pour former le biais de l'épaule, on va mettre en attente les mailles à la fin du rang côté emmanchure, autrement dit, en commençant par 1 rang à partir de l'encolure, tricotez jusqu'à ce qu'il reste 9 mailles et mettez ces mailles en attente, tournez et tricotez le rang retour, répétez ces 2 rangs encore 2 fois = vous avez 27 mailles en attente côté emmanchure. Lorsque vous avez tricoté le dernier de ces 6 rangs, montez 2 mailles à la fin de ce rang = côté encolure et rabattez les mailles maintenant façon I-cord comme ici. Bon tricot!

09.04.2024 - 08:57

country flag Annemarie Demir wrote:

Ich komme mit der Anleitung für den Schalkragen nicht zurecht. Wozu müssen 5 Maschen kraus rechts gestrickt werden, ich habe doch eine Blende von 7 Maschen kraus rechts. Ich stricke gerade das linke Vorderteil. Wie breit ist der Schalkragen. Ich hoffe, dass sie mein Problem verstehen und mir helfen können. Mit freundlichen Grüßen freundlichen Grüßen Annemarie Demir

23.03.2024 - 18:02

DROPS Design answered:

Liebe Frau Emir, beim linken Vorderteil ist die 1. Reihe eine Hin-Reihe, so beginnt man mit 0 bis 5 Maschen Krausrechts aber endet man mit den 7 Blenden-Maschen, die Blenden-Maschen werden so am Ende den Hin-Reihen und am Anfang den Rück-Reihen gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!

02.04.2024 - 09:00

country flag Aly De Boer wrote:

Het model op de foto, draagt die een sjaalkraag? Als ik het goed bekijk zit eralleen die 7 st ribbels langs de hals en voorpanden. Ik ben benieuwd, ik wil nl een dubbel gebreide boord/knoopsgatenboord er langs breien, ik ga er van uit datdat wel lukt

05.03.2024 - 07:40

DROPS Design answered:

Dag Aly,

Er wordt inderdaad een 'sjaalkraag' gemaakt over 20 tot 26 steken (afhankelijk van je maat) op de voorpanden en deze wordt op het einde midden achter tegen elkaar genaaid en dan aan de halslijn op het achterpand.

05.03.2024 - 22:38

country flag Jannicke Oset wrote:

Er det mulig å få hjelp til å regne ut hvor mange gram jeg trenger hvis jeg vil strikke med 1 tråd i Drops air? Str Xxl Takknemlig for hjelp!

29.02.2024 - 14:09

DROPS Design answered:

Hei Jannicke. Til oppskriften i str. XXL trenger du 700 gram DROPS Puna = 14 nøster. 1 nøste = 50 gram = 110 løpelengde / meter. 14 nøster x 110 meter = 1540 meter. Altså du trenger 1540 meter av DROPS Air (som kommer i 50 gram nøster og har en løpelengde på 150 meter). 1540 meter dele på 150 (Airs løpelengde) = 10,2 nøster = 11 nøster av DROPS Air. mvh DROPS Design

04.03.2024 - 13:25

country flag Denise wrote:

Pouvez vous me dire combien de rangs dans le shéma A-1 et m'envoyer une photo du dos du modèle svp, merci de votre aide

31.01.2024 - 01:21

country flag Dini Venhuizen wrote:

Hallo, Ik ben nu bij het rechter voorpand en ik begrijp het niet. Er staat: 7 voorbiessteken in ribbelsteek, brei A9, (..)brei A1 tot er 1 steek over is. Moet je dan 4x A9 breien en 1x A1 voor maat M? Zo ja, dan betekent het dat er 4x 1 steek recht is aan het eind van telpatroon A9. Klopt dat?

27.01.2024 - 22:46

DROPS Design answered:

Dag Dini,

Je breit de voorbiessteken dan brei je 1 x A.9 in de breedte, dan herhaal je A.1 steeds in de breedte tot er 1 steek over is. (In A.9 brei je op een gegeven moment de kabel die vlak naast de biessteken komt.)

28.01.2024 - 18:35

country flag Michelle wrote:

Je reviens sur la quantité de fil, il me reste également 42 gr de kid silk, j'ai l'habitude d'avoir du fil en plus avec vos modèles, jusqu'à 100 gr ça ne me choque pas, mais 300 gr c'est énorme. Le fait que baby merino soit très élastique est peut-être une explication.....

25.01.2024 - 15:46

country flag Michelle wrote:

Merci pour vos réponses, Pour la quantité de fil, oui tout est correct et correspond, tension et dimensions. Pour les mailles à rabattre, ce n'est pas aussi clair que pour les devants.... Précisez peut-être que ce sont les mailles au point mousse côté manche.

25.01.2024 - 09:57

DROPS Design answered:

Bonjour Michelle, après vérification, les 650 g Merino Extra Fine font 1365 mètres, et les 175 g Kid-Silk 1470 m, donc vous devriez avoir suffisamment des 2 laines vu qu'elles ont approximativement le même métrage. Votre proposition a été transmise à nos stylises. Bonne continuation!

25.01.2024 - 10:21

country flag Michelle wrote:

J'ai tricoté le modèle en taille xl avec merino extra fine et kid silk, et il me reste plus de 300 gr de merino extra fine ! Ça fait beaucoup ! près de la moitié de ce qui est indiqué sur le patron...

24.01.2024 - 20:20

DROPS Design answered:

Bonjour Michelle, merci pour votre retour, avez-vous bien la bonne tension à la fois en hauteur et en largeur? Je transmets votre commentaire à nos stylistes. Bonne continuation!

25.01.2024 - 09:11