Patricia skrifaði:
Ich würde den Pullover gerne mit Drops Merino extra fine stricken. Laut Umrechnungstabelle ergeben 2 Fäden der Gruppe B einen Faden von Gruppe D. Muss ich dann alle Fäden doppelt nehmen oder ist es auch möglich, anders umzurechnen?
26.12.2022 - 15:32DROPS Design svaraði:
Liebe Patricia, dann sollen Sie mit 2 Fäden Merino Extra Fine stricken - hier wird es erklärt, wie es umrechnen wird - siehe 1 Faden durch 2 Fäden desselben Garns (= doppelter Faden) ersetzen. Viel Spaß beim stricken!
02.01.2023 - 09:18
Elisa skrifaði:
Come faccio a capire i gettati di che colore farli? Grazie
23.12.2022 - 06:33DROPS Design svaraði:
Buonasera Elisa, deve seguire i colori indicati nel diagramma. Buon lavoro!
28.12.2022 - 19:08
Liz skrifaði:
Goedemiddag, een mooi patroon en ik heb inmiddels de wol gekocht om deze trui te breien. Maar er viel mij iets op aan de maten. Tussen maten L en XL zit slechts 1 centimeter verschil (maar 2 centimeter op de hele trui). Dit terwijl er tussen maten M en L wel 9 centimeter verschil zit (zelfs 18 centimeter op de hele trui). Kloppen deze maten en afmetingen? Alvast bedankt voor het nakijken!
13.12.2022 - 12:14DROPS Design svaraði:
Dag Liz,
Ja, ik zie het ook! Slechts 2 steken bij het lijf en in de maattekening is het verschil ook heel klein. Ik heb het doorgegeven aan de ontwerpafdeling om te controleren en eventueel aan te passen.
14.12.2022 - 12:02
Barbara skrifaði:
Per una taglia M non bastano 150 gr di beige
30.11.2022 - 06:21DROPS Design svaraði:
Buonasera Barbara, il suo campione corrisponde a quello indicato? Al momento non ci sono correzione nelle quantità di filato per questo modello. Buon lavoro!
08.03.2023 - 19:57
Yvonne skrifaði:
Ik brei de trui in L, maar kom niet op de 234 steken bij de laatste meerdering. Ik heb het nu 3 x opnieuw gedaan, maar ik heb er 196. Ik zie in het patroon in de eerste toeren in zwart ook een meerdering, maar ik lees dat ik begin aan de pas met 90 steken. Ik kom er eventjes niet meer uit.
28.11.2022 - 10:38
Zohreh skrifaði:
Hej När man har stickat till underarmen och sedan armarna följer inte mönstret runt, utan armes undersidan stickas bara med beige medan mönster följer bara på över armen. Det gör att svarta tråden ska följa den beigea på under sidan. Det blir stram och obekvämt. Hur gör man då?
25.11.2022 - 19:33DROPS Design svaraði:
Hej Zohreh, da sørger du for at den sorte tråd bliver løsere og du kan evt sno den om den beige et par gange :)
30.11.2022 - 14:09
Iwona Harris skrifaði:
I just finished making this jumper, it came out ok although a bit tight under the arms-I think 6 stitches insted of 4 would be a good idea. Unfortunately it is almost unwearable because of the yarn - it sheds like crazy, even after the first wash. Everything was covered when I was knitting it, the whole house had to be deep cleaned when I finished! Do you have any suggestions as to how remedy this? It is supposed to be a Christmas present for my daughter -in-law, not sure I can give it to her.
06.11.2022 - 10:54
Kerstin skrifaði:
Hej! Så fin tröja! Jag ser fram emot att sticka den. I beskrivningen, under OK, står det "Sticka varv 1 rätt där det ökas 8-8-18-14-26-26 maskor..." Är "18" en felskrivning?
27.10.2022 - 13:11
Laila Gamadia skrifaði:
Moet ik de meerderingen in A1 met wit oc zwart maken?
26.10.2022 - 21:26DROPS Design svaraði:
Dag Laila,
Met beige ;)
27.10.2022 - 20:48
Emma skrifaði:
Garnmängden stämmer inte, det ljusa garnet är nästan slut så jag måste improvisera med svarta muddar på ärmarna. Dessutom tycker jag att den är liten i storlek, stickar i M som jag brukar göra men den här blir på gränsen till liten.
06.10.2022 - 10:38
Inverted Peaks Sweater#invertedpeakssweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og marglitu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 235-4 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-72-72-76-84-84 lykkjur með litnum svartur í DROPS Melody yfir stuttan hringprjón 5 og stuttan hringprjón 6 sem er haldið saman. Dragið út hringprjón 6 og haldið lykkjunum eftir á stuttum hringprjón 5 (uppfitjunarkanturinn er gerður svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 10 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni jafnframt sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppiftjunarkanti. Nú er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (mitt að framan) – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-18-14-26-26 lykkjur jafnt yfir = 80-80-90-90-110-110 lykkjur. Prjónið 0-1-3-3-3-4 umferðir sléttprjón með litnum svartur. Prjónið síðan A.1 umferðina hringinn – sjá LEIÐBEININGAR! Aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 23-24-26-28-30-32 cm frá prjónamerki í hálsmáli. Síðasta útaukningin hefur nú verið gerð til loka og það eru 208-208-234-234-286-286 lykkjur í umferð. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan – ATH: A.1 er ekki lokið, heldur er mynstrið prjónað áfram á fram- og bakstykki og ermum. Prjónið A.1 yfir fyrstu 39-39-39-39-52-52 lykkjur (ca hálft bakstykki), setjið næstu 39-39-39-39-52-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-10-10-12-8-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), haldið áfram með A.1 yfir næstu 65-65-78-78-91-91 lykkjur (framstykki), setjið næstu 39-39-39-39-52-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-10-10-12-8-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið A.1 yfir þær 26-26-39-39-39-39 lykkjur á bakstykki. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 138-150-176-178-198-206 lykkjur. Haldið áfram með A.1 hringinn, nýjar lykkjur undir ermi eru prjónaðar í litnum beige. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn með litnum beige. Prjónið þar til stykkið mælist 18-19-19-19-19-19 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir = 144-156-188-190-212-220 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 39-39-39-39-52-52 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 6 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-10-10-12-8-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 43-49-49-51-60-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-10-10-12-8-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með A.1 hringinn, nýjar lykkjur undir ermi eru prjónaðar í litnum beige. Þegar A.1 er lokið, prjónið sléttprjón hringinn með litnum beige yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-3-4-4-4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 12-6-6-7-4-3 cm millibili alls 3-5-5-4-6-7 sinnum = 37-39-39-43-48-50 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 33-32-31-29-27-26 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-5-9-9-8-10 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-52-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-42-41-39-37-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #invertedpeakssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.