DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sparkling Sunrise Cardigan

Prjónuð basic peysa úr 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk og 2 þráðum DROPS Fabel. Stykkið er prjónað í sléttprjóni neðan frá og upp. Stærð XS - XXL.

DROPS 235-35
DROPS Design: Mynstur fa-518
Garnflokkur C + A + A eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
125-125-125-150-150-175 g litur 02, ljós grár
Og notið:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-200-200-200-250-250 g litur 901, candy
150-200-200-200-250-250 g litur 923, country fair

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 8: lengd 80 cm.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 3 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (1 lykkja færri), prjónið síðustu 5 lykkjur slétt.
Fækkið um 1 lykkju í byrjun á umferð þannig: Prjónið 5 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir á hægri prjón, yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð fram og til baka, neðan frá og upp, í stykkjum og saumuð saman í lokin.
Öll peysan er prjónuð í 3 þráðum.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 52-56-60-66-70-78 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk, 1 þræði DROPS Fabel í litnum candy og 1 þræði DROPS Fabel í litnum country fair (3 þræðir). Prjónið sléttprjón, fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af 1-1-2-4-5-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 50-54-56-58-60-64 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 8-8-8-10-10-10 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (21-23-24-24-25-27 lykkjur eftir á hvorri öxl). Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum = 19-21-22-22-23-25 lykkjur eftir á öxl. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 31-33-35-38-40-44 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk, 1 þræði DROPS Fabel í litnum candy og 1 þræði DROPS Fabel í litnum country fair (3 þræðir).
Prjónið sléttprjón, fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu. Þegar stykkið mælist 28-28-28-29-30-31 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í lok næstu umferðar frá réttu – munið eftir ÚRTAKA!
Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2-2-2-3-3-3 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 6 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrstu 1-1-2-4-5-7 lykkjur fyrir handvegi í næstu umferð frá réttu. Þegar úrtaka fyrir hálsmáli hefur verið gerð til loka eru 22-24-25-25-26-28 lykkjur eftir á öxl.
Þegar stykkið mælist ca 51-53-55-57-59-61 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 3 lykkjur jafnt yfir = 19-21-22-22-23-25 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 31-33-35-38-40-44 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk, 1 þræði DROPS Fabel í litnum candy og 1 þræði DROPS Fabel í litnum country fair.
Prjónið sléttprjón, fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu. Þegar stykkið mælist 28-28-28-29-30-31 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í byrjun næstu umferðar frá réttu.
Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2-2-2-3-3-3 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 6 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrstu 1-1-2-4-5-7 lykkjur fyrir handvegi í næstu umferð frá röngu. Þegar úrtaka fyrir hálsmáli hefur verið gerð til loka eru 22-24-25-25-26-28 lykkjur eftir á öxl.
Þegar stykkið mælist ca 51-53-55-57-59-61 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 3 lykkjur jafnt yfir = 19-21-22-22-23-25 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

ERMI:
Fitjið upp 40-42-44-46-48-48 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk, 1 þræði DROPS Fabel í litnum candy og 1 þræði DROPS Fabel í litnum country fair (3 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 15 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 lykkju í byrjun á næstu umferð frá réttu = 41-43-45-47-49-49 lykkjur. Aukið svona út með 18-18-18-18-18-6 cm millibili, en aukið út innan við 1 lykkju til skiptis í byrjun og í lok umferðar frá réttu alls 2-2-2-2-2-6 sinnum = 42-44-46-48-50-54 lykkjur.
Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stykkið mælist 49 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Allur frágangur er gerður með 1 þræði DROPS Fabel.
Saumið axlasauma.
Saumið saman ermar, en skiljið eftir klauf 1-1-2-4-5-6 cm efst á ermi. Saumið klaufina efst á ermi við botn á handvegi – sjá teikningu. Saumið síðan ermina við handveg.
Saumið hliðarsaum – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur.

Mynstur

symbols = Ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Pia Bengtsson wrote:

Ærmet: jeg forstår ikke udtagningen af ærmet? Der står man skal tage en maske ud ved 15 cm og så forstår jeg ikke om næste udtagning er ved 18 cm eller om man skal strikke 18 cm og om der så skal tages en maske ud i hver side på det tidspunkt men det bliver jo tre masker og det ser ud som om der kun skal tages to masker ud i alt?

13.02.2024 - 13:16

DROPS Design answered:

Hej Pia, ja du tager 1 m ud i den ene side og så 1 til ud efter 18 cm i den anden side :)

23.02.2024 - 09:45

country flag Lise Modum wrote:

Forstår ikke at ermene skal legges opp med 44 masker. Det må da være altfor mye!

20.08.2023 - 18:27

country flag Miriam Olsen wrote:

Hei! Jeg strikker jakka i str. S. Jeg lurer på hva som menes med dette under bakstykket: "Når arbeidet måler 33-34-35-36-37-38 cm, felles det av 1-1-2-4-5-7 masker til ermehull på starten av de 2 neste pinnene = 50-54-56-58-60-64 masker." Siden det står øverst at fellingene bare gjøres på rettsiden skjønner jeg ikke hvordan fellingene gjøres over to pinner? Kan jeg ikke felle 1 maske i hver side på én og samme omgang på rettsiden.

19.07.2023 - 06:21

DROPS Design answered:

Hei Miriam Når du skal felle 1 maske til ermehull på starten av de 2 neste pinnene, må du også felle fra vrangen. Felletipset øverst i oppskriften gjelder for teksten lengre ned, der det henvises til FELLETIPS. Ettersom du strikker str S og bare skal felle 1 maske, kan du gjøre som du skriver, men hadde man strikket str. XXL og skal felle 7 masker ville det ikke fungert like bra. mvh DROPS Design

26.07.2023 - 13:39

country flag Galewski Ginette wrote:

Bonjour Je ne comprend pas l'augmentation de la manche . Combien de mailles dois je augmenter pour la taille large au total . Merci Cordialement Ginette

15.06.2023 - 16:09

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Galewski, en taille L on augmente 2 fois:la 1ère fois quand la manche mesure 15 cm (1 m au début du rang) et la 2ème fois 18 cm plus tard (soit 15+18=33cm- on augmente 1 m à la fin du rang). Bon tricot!

16.06.2023 - 07:13

country flag Danielle wrote:

Ik vraag me af waarom dit vest met een rondbreinaald wordt gemaakt. Het bestaat toch uit losse panden als ik het goed lees

10.04.2023 - 13:54

DROPS Design answered:

Dag Danielle,

Dit is vanwege het grote aantal steken dat je op de naald hebt, met name bij de grotere maten. Maar er is inderdaad veder geen reden om het patroon met de rondbreinaald te breien. Je kunt dus ook rechte naalden gebruiken.

11.04.2023 - 20:49

country flag Ariane wrote:

Guten Tag, ich möchte die Jacke in Rot-/Orangetönen stricken. Kann man Sunset (310) und Texmex (153) zusammen verarbeiten, oder passen die Farbtöne nicht zusammen? Wenn sie zusammen passen, welcher Farbton von Brushed Alpaka Silk wäre besser: Mandarine (29), Rot (07) oder gelb (30). Danke.

29.12.2022 - 11:12

DROPS Design answered:

Liebe Ariane, um Hilfen mit den besten passenden Farben zu bekommen, wenden Sie sich bitte direkt an Ihrem DROPS Händler, dort wird man Ihnen gerne auch per Telefon oder per E-Mail weiterempfehlen. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2023 - 11:42

country flag Hanne Lejre Pedersen wrote:

Jeg bliver simpelthen nødt til at strikke denne Så flot

26.09.2022 - 21:12

country flag Margaretha wrote:

Färgglad höst

07.08.2022 - 11:43

country flag Deborah wrote:

Rainbow Haze

07.08.2022 - 02:44