Helena Kozlovská skrifaði:
Dobrý den, prosím, Vy máte svetr velmi pěkný, zvětšila jsem si obrázek, já mám pleteninu hodně chlupatou, huňatou. Sice to vypadá také hezky, ale asi to bude nepraktické, více se mi líbí Vaše pletenina, jak toho docílit? \r\nDěkuji za odpověď a přeji Vám hezký den
24.09.2024 - 12:58DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Heleno, v tomto případě na dálku těžko radit... Vzhled pleteniny se často urovná po vyprání. Velký vliv má také správná velikost jehlic a hustota pleteniny (tj. zda je hodně utažená a tedy pevná hustá, nebo je pletená volněji a řidčeji). Proto vždy doporučujeme uplést nejprve zkušební vzorek a vyprat ho. Zkuste to aspoň dodatečně! Hodně zdaru!
25.09.2024 - 06:58
CHANTAL LAGOUTTE skrifaði:
Bonjour, je souhaiterai réaliser ce modèle avec des aiguilles droites car je ne suis pas à l'aise avec des aiguilles circulaires. Pourriez vous m'indiquer le changement à effectuer ou si je dois garder le même nombre de mailles après échantillon. Merci pour vos sublimes modèles, la qualité de la laine et votre aide si précieuse. Bonne journée Bien cordialement C. LAGOUTTE
01.12.2022 - 09:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lagoutte, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande; toutefois, cette leçon vous donnera quelques pistes pour adapter les explications. Bon tricot!
01.12.2022 - 11:40
Maine skrifaði:
How much yarn would i need to do this pattern in a single color? I love the sweater design but i don't want the berry pattern as it is now winter and it is more summery so a nice solid color will do?
07.11.2022 - 11:36DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Maine, since this pattern has been worked with multiple colours we don't have the total amount of yarn with just one colour (and we don't have this jumper anymore) - you can add all colours together, but you might require less - don't hesitate to contact your DROPS store for any further individual assistance - even per mail or telephone. Happy knitting!
07.11.2022 - 16:02
Susanna skrifaði:
Il maglione è lavorato a 2 capi? Grazie
25.10.2022 - 21:40DROPS Design svaraði:
Buonasera Susanna, il maglione è lavorato ad 1 capo. Buon lavoro!
26.10.2022 - 19:17
Conny Hoogendoorn skrifaði:
Ben de trui aan het breien op een rondbreinaald nu word er aangegeven dat ik moet minderen voor de armsgaten, en daarna verder breien in apparte delen. Maar er staat niets over de hals. Wat moet ik nu doen?
28.09.2022 - 17:10DROPS Design svaraði:
Dag Conny,
Zowel bij de paragraaf over het achterpand als bij de paragraaf over het voorpand staat beschreven hoe je de hals breit. Dus nadat je hebt afgekant voor de armsgaten brei je het voorpand en het achterpand apart verder zoals beschreven staat bij de betreffende paragrafen.
28.09.2022 - 19:34
Hanna skrifaði:
Hello, Started to knit the sweater and find it highly misleading that in the written pattern it always says ”kun työn pituus on/når arbeidet måler” even though the first 7 cm of ribbing are NOT included in the measurement (if you compare the numbers in the written pattern with numbers in the schematic drawing). Now I need to start all over again since I’m getting a significantly shorter sweater and looking not like the one in the picture… :(
17.09.2022 - 20:58
Angela Casamassima skrifaði:
Drops Melidy unicolor manca col.21 blu chiaro per eseguire il modello ml-89, è in produzione? Grazie
13.08.2022 - 15:23DROPS Design svaraði:
Buongiorno Angela, il colore 21 è nuovo colore ed è presente nella cartella colori di DROPS Melody. Buon lavoro!
13.08.2022 - 16:32
Katherine skrifaði:
Ik wil dit model maken maar de lichtblauwe kleur(nr 21)staat er niet bij?
06.05.2022 - 08:33
Berries and Cream Sweater#berriesandcreamsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með marglitu mynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 231-60 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Stykkið skiptist við handveg og hvort stykki er prjónað til loka fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stutta hringprjóna, ofan frá og niður. Þegar stykkið hefur verið saumað saman, prjónið tvöfaldan kant í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 160-176-188-204-216-232-260 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum púðurbleikur í DROPS Melody. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 7 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 28-32-32-36-36-40-44 lykkjur jafnt yfir = 132-144-156-168-180-192-216 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með litnum púðurbleikur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9-11-12-12-13-13-15 cm, prjónið A.1 alls 11-12-13-14-15-16-18 sinnum hringinn á fram- og bakstykki. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 17-19-20-20-21-21-23 cm. Prjónið sléttprjón með litnum púðurbleikur þar til stykkið mælist 18-20-21-22-23-24-25 cm. Prjónið nú A.2 alls 11-12-13-14-15-16-18 sinnum hringinn á fram- og bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af fyrstu 2-2-2-3-3-4-4 lykkjur, prjónið 63-69-75-79-85-89-101 lykkjur mynstur, fellið af næstu 3-3-3-5-5-7-7 lykkjur, prjónið 63-69-75-79-85-89-101 lykkjur mynstur, fellið af síðustu 1-1-1-2-2-3-3 lykkjur. Klippið þráðinn. Hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 63-69-75-79-85-89-101 lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum natur að loka máli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 21-23-23-25-25-27-27 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 20-22-25-26-29-30-36 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 63-69-75-79-85-89-101 lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum natur að loka máli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 42-44-46-47-49-50-52 cm, setjið miðju 11-13-13-13-13-15-15 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2-2-2-3-3-3-3 sinnum = 20-22-25-26-29-30-36 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermin er prjónuð ofan frá og niður. Fitjið upp aðeins laust 51-53-55-59-61-65-67 lykkjur á hringprjón 6 með litnum púðurbleikur. Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju í umferð. Teljið út frá miðjulykkju hvar A.3 á að byrja og prjónið A.3 fram og til baka (prjónamerkið á ermi á að passa við miðjulykkju í mynsturteikningu – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi). Þegar ermin mælist 1-1-1-2-2-3-3 cm, er stykkið sett saman og afgangur af ermi er prjónaður í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, þ.e.a.s. það verður klauf 1-1-1-2-2-3-3 cm efst á ermi. Setjið 1 prjónamerki þar sem stykkið var sett saman (mitt undir ermi) og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Haldið áfram með mynstur. Þegar ermin mælist 4-4-4-5-5-5-5 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-3-2½-2½-2-2 cm millibili alls 5-5-5-6-6-8-8 sinnum = 41-43-45-47-49-49-51 lykkjur. JAFNFRAMT þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, mælist ermin ca 18 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið sléttprjón með litnum púðurbleikur þar til ermin mælist 19-19-19-20-20-21-21 cm. Prjónið síðan A.4 hringinn – teljið út frá miðjulykkju hvar mynstrið á að byrja. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið áfram með litnum púðurbleikur. Prjónið þar til ermin mælist 42-41-39-39-38-37-34 cm, nú eru eftir ca 7 cm að loka máli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-9-7-9-11-11-13 lykkjur jafnt yfir = 48-52-52-56-60-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 7 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 49-48-46-46-45-44-41 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI. Notið stuttan hringprjón 4,5 og litinn natur, byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 64-72-72-76-76-84-84 lykkjur í kringum hálsmálið (meðtaldar lykkjur af þræði). Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10-10-11-11-12-12 cm. Fellið aðeins laust af. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #berriesandcreamsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-60
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.