Susan skrifaði:
Do you think short rows at the back are necessary for this pattern?
18.07.2022 - 15:39DROPS Design svaraði:
Dear Susan, no, this kind of pattern does not necessarily need the back piece to be shaped using short rows. But of course, if you want, feel free to use them! Happy knitting!
18.07.2022 - 16:36
Karen Lütge skrifaði:
Hallo, ich habe den oberen Teil fertig und teile gerade die Maschen für Rumpf und Ärmel auf. Ich habe zuvor nach der letzten Zunahme noch eine Reihe gestrickt. Jetzt teile ich bei 39 Maschen mitten im Muster. Kann das richtig sein? Wo soll ich die 4 Maschen anschlagen? Liebe Grüße, Karen
29.06.2022 - 19:36DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Lütge, diese Lektion zeigt ab Bild 9 wie man die Maschen für die Ärmel stilllegt und wie man die neuen Maschen unter den Ärmeln anschlägt - nach der Verteilung wird das Muster nicht mehr in der Runde anpassen, nun stricken Sie dann soviele Maschen wie möglich bis an beiden Seiten (A.1 stricken Sie wie zuvor weiter über Rücken- und Vorderteile). Viel Spaß beim stricken!
30.06.2022 - 09:16
Gerda skrifaði:
In het patroon staat dat naalddikte 6 wordt gebruikt. De informatie bij de wol gaat uit van naalddikte 8. Vanwege het grote verschil, vraag ik mij af of dit wel klopt.
13.05.2022 - 11:48DROPS Design svaraði:
Dag Gerda,
De aangegeven naalddikte in het patroon klopt. Het breiwerk van dit model heeft een andere, dichtere stekenverhouding dan de standaard stekenverhouding van DROPS Melody.
14.05.2022 - 09:54
Chantal skrifaði:
Bonjour, je ne sais pas tricoter avec des aiguilles circulaires, ce modèle peut il être réalisé avec des aiguilles droites ? les explications restent elles les mêmes ? Merci pour votre aide. Une accro du tricot et la laine Mélody un régal.. Bien cordialement chantal
06.05.2022 - 16:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Chantal et merci, vous pouvez effectivement adapter ce modèle sur aiguilles droites (voici quelques pistes), mais dans ce type de cas, il peut être plus simple de tricoter en rond, n'hésitez pas à consulter nos différentes vidéos qui montrent comment utiliser les circulaires. Nombreuses sont celles qui ont réussi à les dompter après les avoir essayé. Bon tricot!
09.05.2022 - 07:51
Line skrifaði:
Hei! Dere har supre oppskrifter, men jeg klarer ikke begripe hvorfor dere legger ut 5 nærmest identiske bilder av genseren? Slik er det på alt dere lager. De fleste vil vel heller se hvordan plagget er fra siden, under ermet, bakfra, om det er splitt, og andre detaljer, heller enn at samtlige bilder er fra nøyaktig samme vinkel, med en modell som har så å si samme positur?
04.05.2022 - 13:25
Pink Lemonade Sweater#pinklemonadesweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og marglitu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-56 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-72-72-78-84-84 lykkjur með litnum perlugrár í DROPS Melody yfir stuttan hringprjón 4,5 og stuttan hringprjón 6 sem liggja saman. Dragið út hringprjón 6 og haldið lykkjunum eftir á stutta hringprjóninum 4,5 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) hringinn í 14 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð í stroffi prjónuð eins og áður jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Setjið 1 prjónamerki í umferð (mitt að framan) - berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-18-12-26-26 lykkjur jafnt yfir = 80-80-90-90-110-110 lykkjur. Prjónið 0-1-3-3-3-4 umferðir sléttprjón með litnum perlugrár. Prjónið síðan A.1 umferiðna hringinn – sjá LEIÐBEININGAR! Aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá prjónamerki í hálsmáli. Síðasta útaukning er nú lokið og það eru 208-208-234-234-286-286 lykkjur í umferð. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan – ATH: A.1 er ekki lokið, mynstrið er prjónað áfram á fram- og bakstykki og ermum. Prjónið A.1 yfir fyrstu 39-39-39-39-52-52 lykkjur (ca hálft bakstykki), setjið næstu 39-39-39-39-52-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-10-10-10-8-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), haldið áfram með A.1 yfir næstu 65-65-78-78-91-91 lykkjur (framstykki), setjið næstu 39-39-39-39-52-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-10-10-10-8-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið A.1 yfir næstu 26-26-39-39-39-39 lykkjur á bakstykki. Klippið þræðina. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 138-150-176-176-198-206 lykkjur. Byrjið mitt í 4-10-10-10-8-12 lykkjur undir ermi í annarri hlið á stykki. Haldið áfram með A.1 hringinn, nýjar lykkjur undir ermi koma ekki til með að ganga jafnt upp í A.1, en haldið áfram með A.1 eins lengi út að hlið og mögulegt er yfir þessar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn með litnum natur yfir allar lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 17 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-10-10-6-10 lykkjur jafnt yfir = 144-156-186-186-204-216 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) hringinn í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 39-39-39-39-52-52 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 6 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-10-10-10-8-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 43-49-49-49-60-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-10-10-10-8-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með A.1 hringinn, nýjar lykkjur undir ermi koma ekki til með að ganga jafnt upp í A.1, en haldið áfram með A.1 eins langt og hægt er út að prjónamerki eins og mögulegt er yfir þessar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn með litnum natur yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-4-4-4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 12-6-6-7-4-3 cm millibili alls 3-5-5-4-6-7 sinnum = 37-39-39-41-48-50 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 33-32-31-29-27-26 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 36-36-42-42-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) hringinn í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-42-41-39-37-26 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pinklemonadesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-56
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.