Lise Leduc skrifaði:
How much for taxes and services?
14.01.2025 - 15:53
Solveig skrifaði:
Jeg kan ikke se brystmål i opskriften
02.01.2025 - 18:37DROPS Design svaraði:
Hei Solveig, Du finner en målskisse på bunnen av oppskriften, med alle mål til de forskjellige størrelsene. Godt nyttår!
03.01.2025 - 08:29
Lillian skrifaði:
Hvorfor strikkes bakstykket og forstykket hver for seg? Kunne man ikke like gjerne strikke bolen på rundpinne fra vrangborden opp til ermehullet?
17.11.2022 - 18:21DROPS Design svaraði:
Hei Lillian. Noen oppskrifter skrives at de strikkes rundt og noen oppskrifter skrives at de kan strikkes frem og tilbake. Selv om denne strikkes frem og tilbake, kan du strikkes den rundt. Bare husk at du legger opp riktig maskeantall om du skal ha splitt i siden eller ikke, og at du får riktig maskeantall når vrangborden er ferdig (ikke kantmaske om det strikkes rundt). mvh DROPS Design
21.11.2022 - 08:12
Sandra May skrifaði:
Hello I like this pattern very much but would like to knit it with a v neck. Do you have suggestions as to how I could do this? I look forward to hearing from you Sandra
02.11.2022 - 09:19DROPS Design svaraði:
Dear Mrs May, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every request, but you can take inspiration from our similar patterns for Vest - same kind of tension and V-neck. Happy knitting!
02.11.2022 - 11:48
Ola Elsesy skrifaði:
Love it
14.01.2022 - 02:22
Mariarosaria skrifaði:
Buongiorno le trecce sul ferro a rovescio come si lavorano? grazie
23.10.2021 - 07:43DROPS Design svaraði:
Buonasera Mariarosaria, il diagramma mostra tutti i ferri del motivo, anche quelli sul rovescio del lavoro, per cui può continuare a seguire il diagramma. Buon lavoro!
24.10.2021 - 20:08
Tatjana skrifaði:
This is exactly what you want in your wardrobe for chilly times - flattering, cosy and light
04.08.2021 - 21:38
Anna Meier skrifaði:
Mit langen Ärmeln und Rollkragen ein absoluter Traum
04.08.2021 - 12:34
Chantal Lamborelle skrifaði:
Cocooning
04.08.2021 - 07:54
HERENS skrifaði:
Perle
03.08.2021 - 18:05
Evening Fires#eveningfiresslipover |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónað vesti / slipover úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish. Stykkið er prjónað með köðlum og stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-37 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 13) = 6,3. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum og frágangur er gerður eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður upp kantur í hálsmáli og í kringum handveg. BAKSTYKKI: Fitjið upp 82-90-94-98-102-106 lykkjur á hringprjón 6 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 13-17-17-17-17-17 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 69-73-77-81-85-89 lykkjur. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 5-7-9-11-13-15 lykkjur brugðið, A.1 (= 15 lykkjur), 6 lykkjur brugðið, A.1, 6 lykkjur brugðið, A.1, 5-7-9-11-13-15 lykkjur brugðið, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur (lykkjur sem prjónaðar eru brugðið frá réttu, prjónast slétt frá röngu). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af 2 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 65-69-73-77-81-85 lykkjur. Þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm, fækkið um 5 lykkjur jafnt yfir miðju mynstureiningu af A.1, í næstu umferð eru felldar af miðju 14-16-18-20-22-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 22-23-24-25-26-27 lykkjur. Lykkjur í A.1 eru nú prjónaðar í sléttprjóni, fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 17-18-19-20-21-22 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (= 22-23-24-25-26-27 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg). Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 82-90-94-98-102-106 lykkjur á hringprjón 6 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 13-17-17-17-17-17 lykkjur jafnt yfir = 69-73-77-81-85-89 lykkjur. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 5-7-9-11-13-15 lykkjur brugðið, A.1, 6 lykkjur brugðið, A.1, 6 lykkjur brugðið, A.1, 5-7-9-11-13-15 lykkjur brugðið, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af 2 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 65-69-73-77-81-85 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fækkið um 5 lykkjur jafnt yfir miðju mynstureiningu af A.1, í næstu umferð eru miðju 8-10-12-14-16-18 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 22-23-24-25-26-27 lykkjur. Lykkjur í A.1 eru nú prjónaðar í sléttprjóni, fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 17-18-19-20-21-22 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (= 22-23-24-25-26-27 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg). Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana, þanig að saumurinn verði flatur, en skiljið eftir neðstu 10 cm = klauf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við annan axlasauminn og prjónið upp ca 44-68 lykkjur í kringum hálsmál, meðtaldar lykkjur af þræði (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4) á stuttan hringprjón 6 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Prjónið stroff þannig (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsi. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. KANTUR Í HANDVEGI: Prjónið upp ca 52 til 72 lykkjur (deilanlegt með 4) í kringum handveg með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish á stuttan hringprjón 6. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #eveningfiresslipover eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.