DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12078.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Chasing Moonlight

Prjónuð peysa úr DROPS Nord og DROPS Kid-Silk eða DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 228-30
DROPS Design: Mynstur no-049
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
400-450-450-500-550-600 g litur 03, perlugrár
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
175-175-200-225-250-300 g litur 44, mánaskin

Eða notið:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-400-450-500-550 g litur 03, ljós grár
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
175-175-200-225-250-300 g litur 44, mánaskin

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

DROPS TALA NR 535: 6-6-6-7-7-7 st.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni / mynsturprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12078.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 122 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 46) = 2,7. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna til skiptis ca hverja og aðra hverja lykkju og aðra hverja lykkju og 3. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2:
Lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur við miðju að framan:
Fækkið lykkjum í lok umferðar frá réttu þannig:
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju sléttprjón og 2 lykkjur garðaprjón.
Fækkið lykkjum í byrjun á umferð frá réttu þannig:
Prjónið 1 lykkju garðaprjón, 1 lykkja slétt, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið út umferðina eins og áður.
1 lykkja garðaprjón og 2 lykkjur sléttprjón halda áfram við miðju að framan þar til öxlin hefur verið prjónuð til loka. Þær lykkjur sem eftir eru halda áfram í mynstri eins og áður.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 21, 28, 35, 42, 49 og 57 cm
M: 21, 28, 35, 43, 51 og 59 cm
L: 21, 29, 37, 45, 53 og 61 cm
XL: 21, 28, 35, 42, 49, 56 og 63 cm
XXL: 21, 28, 35, 42, 49, 57 og 65 cm
XXXL: 21, 28, 35, 43, 51, 59 og 67 cm

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkin er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 122-134-142-154-174-186 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir), eða 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 20 cm í öllum stærðum.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 46-50-54-58-66-70 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 76-84-88-96-108-116 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 fyrstu lykkjur í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af fyrir handvegi í hvorri hlið. Fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni og 1 lykkja 0-1-1-1-2-2 sinnum = 66-72-76-84-94-102 lykkjur.
Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið nú af miðju 26-26-26-34-34-34 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 19-22-24-24-29-33 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 81-89-93-97-105-113 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan) á hringprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 20 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 37-41-43-43-45-49 lykkjur jafnt yfir = 44-48-50-54-60-64 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan A.1 með 5 kantlykkjum að framan við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið.
Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af fyrir handvegi í hlið. Fellið af í byrjun á umferð frá hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni og 1 lykkja 0-1-1-1-2-2 sinnum = 39-42-44-48-53-57 lykkjur.
Haldið áfram með A.1 og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni þar til stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm. Setjið nú ystu 16-16-16-20-20-20 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fækkið nú lykkjum í hverri umferð frá hálsi – sjá ÚRTAKA-2 – Fækkið um 1 lykkju 4 sinnum = 19-22-24-24-29-33 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm og fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 81-89-93-97-105-113 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan) á hringprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað þannig – frá réttu: 2 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 20 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 37-41-43-43-45-49 lykkjur jafnt yfir = 44-48-50-54-60-64 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan A.1 með 5 kantlykkjum að framan við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið.
Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af fyrir handvegi í hlið. Fellið af í byrjun á umferð frá hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni og 1 lykkja 0-1-1-1-2-2 sinnum = 39-42-44-48-53-57 lykkjur.
Haldið áfram með A.1 og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni þar til stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm. Setjið nú ystu 16-16-16-20-20-20 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fækkið nú lykkjum í hverri umferð að hálsmáli: Fækkið um 1 lykkju 4 sinnum = 19-22-24-24-29-33 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm og fellið af.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Stykkið skiptist þegar fellt er af fyrir ermakúpu og síðan er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 48-48-52-52-56-56 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 14 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2-0-2-0-0-0 lykkjur jafnt yfir = 46-48-50-52-56-56 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið út með 5-4½-4-3½-3½- 3 cm millibili alls 7-8-9-9-9-10 sinnum = 60-64-68-70-74-76 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-49-49-48-45-44 cm, fellið af með 3 lykkjum hvoru megin við prjónamerki (= 6 lykkjur færri mitt undir ermi), prjónið síðan ermina fram og til baka. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1 sinni, síðan eru felldar af þær lykkjur sem eftir eru = 44-48-52-54-58-60 lykkjur. Ermin mælist alls 53-52-52-51-48-47 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju þar til 20 cm eru eftir neðst niðri = klauf. Saumið tölur í vinstra framstykki.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið fyrir miðju að framan og frá réttu og prjónið upp ca 104-124 lykkjur með hringprjón 4,5 í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þráðum og stykkið af að fjöldi lykkja sé deilanlegur með 4). Byrjið mitt að framan og frá röngu og prjónið upp stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff í 8 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Brjótið niður stroffið efst í hálsi að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsi. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Anna wrote:

Hej igen! :) Om jag använder "DROPS Air" och storlek M. Hur mycket går det åt då? Tack för hjälpen! MVH Anna

10.01.2024 - 19:45

DROPS Design answered:

Hej Anna, du behöver 600 g DROPS Air till storlek M. Du måste hålla stickfastheten i mönstret för att få måtten, som du hittar i måttskissen nederst i mönstret - lycka till :)

11.01.2024 - 14:04

country flag Anna wrote:

Hej igen! :) Om jag använder "DROPS Air" och storlek M. Hur mycket går det åt då? Tack för hjälpen! MVH Anna

08.01.2024 - 18:21

country flag Anna wrote:

Hej! Om jag vill bara använda ett garn istället för två, vad kan jag ta istället?

07.01.2024 - 19:16

DROPS Design answered:

Hej Anna, så kan du bruge en af kvaliteterne fra garngruppe C. Skriv hvilken kvalitet du vil bruge og hvilken størrelse, så kan vi hjælpe dig med at regne garnforbruget om :)

08.01.2024 - 14:04

country flag Elke wrote:

Die angegebenen Maße in der Skizze stimmen nicht mit der Maschenanzahl überein. Bei der größten Größe würde ich für Vorder/Rückenteil jeweils 116cm (sehr viel) anschlagen. Ist das wirklich korrekt?

06.01.2024 - 17:50

DROPS Design answered:

LIebe Elke, nach dem Bündchen sind es 116 Maschen zu stricken, minus 2 Randmaschen = 114 Maschen, mit 16 Maschen = 10 cm, sind diese 114 Maschen ca 71 Maschen. Beachten Sie, daß man viel mehr Maschen für das Bündchen mit den kleineren Nadeln als für das Muster mit den grösseren Nadeln braucht. Viel Spaß beim stricken!

08.01.2024 - 10:20

country flag Fabienne Cluts wrote:

Est ce normal qu'il y a plus de maille sur les 2 côtés avant que la dos car le dos 186 mailles et les 2 côtés avant ensemble 226 mailles ? Merci

05.10.2023 - 15:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cluts, le nombre de mailles est juste ainsi, tricotez les côtes du devant puis, diminuez à 64 mailles (soit approximativement la moitié de 116 (après les diminutions des côtes en bas du dos)+ la bordure du devant). Bon tricot!

06.10.2023 - 08:50

country flag Marika Hardt wrote:

Hallo Zusammen, kann es sein, dass bei dieser Anleitung 228/30 die Beschreinung zum Stricken der Armkugel fehlt????? Komme so wie das beschrieben ist nicht zurecht Lg. Marika

29.09.2023 - 16:59

country flag Lise wrote:

Hvordan er det mulig at strikkefasthet stemmer og man legger opp og strikker størrelse L men ender opp med en størrelse S? Garnet er Flora og Kid silk.

07.09.2023 - 12:41

DROPS Design answered:

Hej Lise, Hvis du har 16 masker på 10 cm, så vil bredden på rygstykket blive 88/16= 55 cm

08.09.2023 - 15:32

country flag Marlies wrote:

Worden de minderingen in de panden in één naald gedaan of verdeeld over meerdere naalden?

03.07.2023 - 21:00

DROPS Design answered:

Dag Marlies,

Nadat je de boord hebt gebreid minder je verdeeld over de naald het aangegeven aantal steken. Dus dit doe je in één naald.

06.07.2023 - 21:11

country flag Marlies wrote:

Er moet bij het achterpand, rechtervoorpand en linkervoorpand geminderd worden. Na het breien van het boord moet er een naald recht gebreid worden en in de volgende naald geminderd. Is het de bedoeling dat hoeveelheid steken in één naald worden geminderd of verdeeld over meerdere naalden?

03.07.2023 - 20:58

country flag Nancy Somerled wrote:

Can I use 1 thread Safran instead of 1 Flora and 1 Silk Mohair without making trouble??

24.06.2023 - 09:42

DROPS Design answered:

Dear Nancy, no, you can't. Because Safran is also a Group A yarn, so you would need to combine it with another group A yarn to have the same gauge . (Flora and Silk Mohair = A+A; Safran is only A) You can substitute them for a single thread of a Group C yarn (C= A+A), such as Paris. You can read more about this in the following lesson: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=14&cid=19. Happy knitting!

25.06.2023 - 13:49