DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13464.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Icy Waves

Prjónað vesti / slipover úr DROPS Puna og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með köðlum, V-hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 227-37
DROPS Design: Mynstur pu-057
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M - L/XL - XXL/XXXL

EFNI:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500 g litur 01, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125 g litur 01, natur

DROPS TALA, Marble NR 630: 4 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60 og 80 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina í kanti í hálsmáli – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13464.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 129 lykkjur), mínus kantlykkjur í garðaprjóni (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 39,7.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 39. og 40. hverja lykkju slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur í garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman á öxlum. Vestið er sett saman með tölum í hliðum. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur fyrir kant í hálsmáli. Bakstykkið er 5 cm lengra en framstykkið.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 129-139-157 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið síðan stroff þannig: 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 5 lykkjur garðaprjón. Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 126-136-154 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið nú mynstur þannig: 5 lykkjur garðaprjón, 9-14-23 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu 28 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 14 lykkjum), A.2 yfir næstu 42 lykkjur, prjónið síðustu 12 lykkjur í A.1, prjónið A.1 yfir næstu 14 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 9-14-23 lykkjur sléttprjón, 5 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 31-33-35 cm, prjónið garðaprjón yfir ystu 9-11-17 lykkjur í hvorri hlið. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 9-11-17 lykkjur í hvorri hlið, fellið af 4-6-12 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 118-124-130 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður yfir miðju 98 lykkjur og prjónið 5-8-11 lykkjur sléttprjón innan við 5 lykkjur garðaprjón að hvorri hlið. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 56-60-64 cm. Setjið nú miðju 26 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með eins margar lykkjur í mynstri og pláss er fyrir við háls og prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir lykkjur í kaðli í A.2. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 45-48-51 lykkjur. Þegar stykkið mælist 60-64-68 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 29-32-35 lykkjur. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 129-139-157 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið síðan stroff þannig: 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 5 lykkjur garðaprjón. Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 126-136-154 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið nú mynstur þannig: 5 lykkjur garðaprjón, 9-14-23 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu 28 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 14 lykkjum), A.2 yfir næstu 42 lykkjur, prjónið síðustu 12 lykkjur í A.1, prjónið A.1 yfir næstu 14 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 9-14-23 lykkjur sléttprjón, 5 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 26-28-30 cm, prjónið garðaprjón yfir ystu 9-11-17 lykkjur í hvorri hlið. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 9-11-17 lykkjur í hvorri hlið, fellið af 4-6-12 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 118-124-130 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður yfir miðju 98 lykkjur og prjónið 5-8-11 lykkjur sléttprjón innan við 5 lykkjur garðaprjón að hvorri hlið. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 33-35-37 cm – stillið af að prjónaðar séu minnst 2 umferðir í sléttprjóni á eftir síðasta kaðli í A.2, þannig að kaðallinn komi ekki of nálægt hálsmáli.
Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 58-61-64 lykkjur inn í mynstur eins og áður og setjið þær á þráð fyrir hægra framstykki, prjónið næstu 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri og þessi lykkja er miðjulykkja), setjið miðjulykkjuna á eigin þráð, prjónið síðustu 58-61-64 lykkjur (= vinstra framstykki).

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið fram og til baka í mynstri eins og áður. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli þannig: Prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 kantlykkja garðaprjón. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 12 sinnum og í 4. hverri umferð 1 sinni (= alls 13 lykkjur færri fyrir V-hálsmáli) = 45-48-51 lykkjur eftir á öxl. Eftir því sem lykkjum fækkar fyrir V-hálsmáli eru ekki nægilega margar lykkjur til að prjóna kaðla í A.2 við hálsmál og því er prjónað sléttprjón yfir þessar lykkjur – ef þú vilt hafa einn kaðal til viðbótar á meðan lykkjum er fækkað, þá getur þú prjónað einn auka kaðal yfir fyrstu 10 lykkjur af sléttprjónuðu lykkjum í A.2 eins og gert er á flíkinni á myndinni.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 55-59-63 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 29-32-35 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og garðaprjóni yfir garðaprjón og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið fram og til baka í mynstri eins og áður. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 12 sinnum og í 4. hverri umferð 1 sinni (= alls 13 lykkjur færri fyrir V-hálsmáli) = 45-48-51 lykkjur eftir á öxl. Eftir því sem lykkjum fækkar fyrir V-hálsmáli eru ekki nægilega margar lykkjur til að prjóna kaðla í A.2 við hálsmál og því er prjónað sléttprjón yfir þessar lykkjur – ef þú vilt hafa einn kaðal til viðbótar á meðan lykkjum er fækkað, þá getur þú prjónað einn auka kaðal yfir síðustu 10 lykkjur af sléttprjónuðu lykkjum í A.2 eins og gert er á flíkinni á myndinni.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 55-59-63 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 29-32-35 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og garðaprjóni yfir garðaprjón og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Passið uppá að saumurinn dragist ekki saman. Saumið vestið saman undir ermum í hvorri hlið með því að sauma skrauttölur í gegnum kanta í garðaprjóni þannig:
Leggið kantinn í garðaprjóni á framstykki yfir kant í garðaprjóni á bakstykki.
Saumið eina tölu í gegnum bæði stykkin ca 3 cm niður frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Saumið aðra tölu til viðbótar ca 7 cm neðar við fyrri tölu. Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við aðra öxlina og prjónið upp frá réttu ca 126-142 lykkjur (meðtalin miðjulykkja af þræði mitt að framan og lykkjur af þræði frá bakstykki) innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í kringum hálsmál með hringprjón 4 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).
Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), en stillið af að stroffið gangi jafnt upp þannig að miðjulykkjan að framan sé prjónuð slétt. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju að framan. JAFNFRAMT í 2. umferð með stroffi byrjar úrtaka mitt að framan – fækkið lykkjum þannig:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, lyftið 3 næstu lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið 3 lyftu lykkjunum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 4 lykkjur færri).
Þegar lykkjum er fækkað svona þá kemur miðjulykkjan að framan að liggja yfir og fylgja með upp eins og bein lína.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan þessa lykkju (= klukkuprjónslykkja)
symbols = bakstykkið er 5 cm lengra en framstykkið, þ.e.a.s. bakstykkið er är 60-64-68 cm og framstykkið er 55-59-63 cm
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Catherine Mackay wrote:

Not sure how to decrease for armhole

05.03.2024 - 15:08

DROPS Design answered:

Dear Mrs Mackay, when piece measures 31-33-35 cm work the 9-11-17 sts in each side in garter stitch for 4 rows (= 2 ridges over these stitches), then cast off 4-6-12 sts on each side (= at the beg of next 2 rows), then continue wokring as before with 5 sts in garter stitch in each side. Happy knitting!

05.03.2024 - 15:36

country flag Ilona wrote:

Sono in difficoltà nelle spiegazioni . Nel Dietro dice mettere in sospeso le 26 maglie successive per il collo. Successive a cosa?

30.12.2023 - 21:54

DROPS Design answered:

Buongiorno Ilona, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo, deve mettere in sospeso le 16 maglie centrali per il collo. Buon lavoro!

31.12.2023 - 13:29

country flag Karen wrote:

Goedemiddag. Er wordt bij de kabel-telpatronen aangegeven dat alleen de naalden aan de goede kant weergegeven worden. Betekent dit dan dat het 1 repetitie van bv A1 uit 24 rijen bestaat ipv de getekende 12 rijen? En dat de teruggaande rij dan tegengesteld is van wat er in de heengaande rij gebreid is?

17.11.2023 - 14:07

DROPS Design answered:

Dag Karen,

Nee, alle rijen zijn wel weergegeven, dus de oneven rijen zijn de goede kant en de even rijen zijn de verkeerde kant.

18.11.2023 - 14:26

country flag KJ wrote:

Hi. What can I use in place of the A+B yarn recommend? Can I just use a B thread?

20.09.2023 - 21:21

DROPS Design answered:

Hi Kj, If you just use just a B yarn, the knitting tension will change and you will need more stitches and rows than cited in the pattern. This can be done but takes a bit of maths, after you have found out how many rows and stitches you need for 10 x 10 cm. Good luck and happy knitting!

21.09.2023 - 06:17

country flag Monica-Yvonne Lund wrote:

Hei DROPS, Når jeg bruker strikkefasthet som er oppgitt her til å være 16 masker i bredden, på den minste størrelsen står det 126 masker (etter 3 felte masker). På denne utregningen så blir bredden da 126/16x10= 78.75 cm På målskissen står bredden som 55cm. Vil flettene ha så stor betydning eller er det jeg som regner feil her? Med vennlig hilsen Monica

02.05.2023 - 15:59

DROPS Design answered:

Hej Monica, strikkefastheden er i glatstrik. Når du strikker snoninger skal du bruge flere masker, da snoningerne trækker arbejdet sammen :)

04.05.2023 - 12:01

country flag Andrea wrote:

Hello! Can you, please, upload a photo of its back? Or just send me one via email?

27.01.2023 - 09:56

DROPS Design answered:

Dear Andrea, we don't have a photo of the back piece, but it just looks the same as the front piece - just neck will be different (no V-neck on back piece) but cables will be the same, back piece is then just longer than front piece. Happy knitting!

27.01.2023 - 14:13

country flag Dominique Cariou wrote:

Puis je trouver ce modèle au crochet ? Merci

13.11.2022 - 13:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cariou, ce modèle existe uniquement en version tricot, mais vous pourrez retrouver ici tous nos modèles de pulls sans manches au crochet. Bon tricot!

14.11.2022 - 10:01

country flag Ann Granlöf wrote:

Är det inga flätor på bakstycket? Mvh Ann

20.02.2022 - 18:49

DROPS Design answered:

Hei Ann. Jo, det er fletter på baksiden også. Følg forklaringen til Bakstycket, så får du fletter. mvh DROPS Design

21.02.2022 - 14:17

country flag Jessicka Pettersson wrote:

Hej! Är det inte mer garnåtgång på kid-silk? Mvh Jessicka

30.01.2022 - 19:08

DROPS Design answered:

Hej Jessicka. Garnåtgången stämmer. Kidsilk är ett väldigt lätt garn (210 m per 25 gram) så antalet meter garn blir detsamma i de båda garnen. Mvh DROPS Design

01.02.2022 - 09:05

country flag Elmouetamid Zakia wrote:

J ai aime ce modele merci beaucoup merci

16.12.2021 - 07:45