Astrid Brandau wrote:
Hallo, danke für die schnelle Rückmeldung. Meine Frage bezog sich eher auf das Zopfmuster. Ist das ab der 11. Reihe im Schulterbereich weiter zu stricken oder stricke ich die nächsten 3 cm A 1 nur noch glatt rechts ?
15.01.2024 - 11:29DROPS Design answered:
Liebe Frau Brandau, die 5 Maschen nach 53 cm in S sind für den Halsausschnitt, die anderen Maschen/Zöpfe stricken Sie wie zuvor bis die Arbeit 56 cm misst. Viel Spaß beim stricken!
15.01.2024 - 16:15Astrid Brandau wrote:
Ich bin am Rückenteil und habe bei 53 cm die 5 Maschen im mittleren Rapport abgenommen. Nun wäre in der nächsten 11. Reihe wieder das Zopfmuster einzuarbeiten. Oder entfällt das jetzt, wenn ich die Schultern separat weiterstricke? Vermutlich ja. Sieht aber dann komisch aus.
14.01.2024 - 20:45DROPS Design answered:
Liebe Frau Brandau, wenn die 5 Maschen abegnommen werden, werden die mittleren Maschen für den Halsausschnitt abgekettet, und jede Schulter separat gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
15.01.2024 - 09:46Marie Auffret wrote:
Bonjour, Pour la taille S, quand je tricote le dos, j'arrive à 53 cm pour diminuer juste avant la deuxième torsade de A1. Que me conseillez-vous ? Finir la torsade et diminuer après ou diminuer juste avant ? Merci d'avance pour vos explications qui me sont précieuses.
21.11.2023 - 10:14DROPS Design answered:
Bonjour Mme Auffret, vous pouvez faire les deux au choix, vous pouvez aussi diminuer en faisant la torsade et ainsi rabattre les mailles centrales de l'encolure au rang suivant. Bon tricot!
21.11.2023 - 15:58AUFFRET Marie wrote:
Bonjour, Je ne comprends pas pourquoi vous conseillez la laine DROPS BRUSHED ALPACA SILK qui se tricote avec des aiguilles numéro 5 de préférence alors que les aiguilles conseillées sont les aiguilles 8 ? Merci d'avance pour vos explications.
05.11.2023 - 11:07DROPS Design answered:
Bonjour Mme Auffret, c'est ainsi que ce modèle a été tricoté, mais avec 2 fils Brushed Alpaca Silk, pas 1 seul. Pensez à bien vérifier votre tension au préalable et ajustez la taille des aiguilles si besoin, vous devez avoir 11 mailles x 15 rangs jersey = 10 x 10 cm. Bon tricot!
06.11.2023 - 08:29Trudi Heffley wrote:
I'm going to be making this from my own hand spun Leicester Longwool. Mine is a DK weight, but I'm not sure how many yards this pattern would take.
28.08.2023 - 22:33DROPS Design answered:
Dear Mrs Helffley, this pattern is worked with either 2 strands yarn group C (aran/worsted) or 1 strand yarn group E (super bulky), so that a dk yarn might not be suitable - it might be wiser to check similar pattern matching your tension. Happy knitting!
29.08.2023 - 09:13Denise Fontaine wrote:
Que veut dire dans : Assemblage : mais arrêter quand il reste environ 10cm = fentes ? Merci beaucoup.
26.11.2022 - 11:53DROPS Design answered:
Bonjour Mme Fontaine, vous commencez la couture des côtés à partir de sous les emmanchures et la terminez quand il reste environ 10 cm pour former les fentes des côtés, autrement dit, les 10 cm du bas du gilet ne sont pas cousus. Bon tricot!
28.11.2022 - 09:08Denise Fontaine wrote:
Drops modèle as - 155 (228-38) voir mes questions sur le message précédent. Merci beaucoup!
09.10.2022 - 19:06DROPS Design answered:
Bonjour Mme Fontaine, aucun commentaire ni aucune autre question n'apparaît sur cette page, mais vous pouvez volontiers reposer vos questions ici.
10.10.2022 - 09:26Laura wrote:
Hola! Me encanta este modelo, hay una versión con mangas, tipo chaqueta?
24.06.2022 - 00:17DROPS Design answered:
Hola Laura, este modelo es complementario al 228-38 y tiene mangas; 226-39: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=10494&cid=19
26.06.2022 - 13:26Jen wrote:
Hallo. Ich stricke zur Zeit diese Weste in Größe L und bin inzwischen am rechten Vorderteil angekommen. Gerade stolpere ich darüber, dass ich die Maschen am Halsausschnitt diesmal bei 50cm stilllegen soll, während ich sie am linken Vorderteil bei 54cm stilllegen sollte. Ist das korrekt? Vielen Dank und viele Grüße
08.03.2022 - 00:03DROPS Design answered:
Liebe Jen, es war ja falsch, eine Korrektur erfolgt, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stricken!
13.05.2022 - 10:28Laura Defelippe wrote:
Hola! Me encanta vuestra lana y los patrones que ponéis, tengo una pregunta respecto a éste en concreto, no tengo agujas circulares, sólo dos agujas, puedo hacerlo siguiendo estas mismas instrucciones o debo hacer algún cambio? Muchas gracias
23.12.2021 - 11:16DROPS Design answered:
Hola Laura, puedes trabajar la labor con agujas rectas, trabajando cada parte por separado y añadiendo puntos de orillo extra para las costuras. Sin embargo, las cenefas de las sisas y el escote se trabajan en redondo, por lo que hay que hacerlas por separado y después coserlas a la labor.
24.12.2021 - 19:29
Evening Fires Vest |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónað vesti úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish. Stykkið er prjónað með köðlum og stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-38 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 13) = 6,3. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 17, 25, 33, 41 og 49 cm M: 17, 25, 33, 42 og 51 cm L: 17, 26, 34, 44 og 53 cm XL: 18, 27, 35, 45 og 55 cm XXL: 18, 27, 34, 47 og 57 cm XXXL: 19, 29, 39, 49 og 59 cm AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum og frágangur er gerður eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður upp kantur í hálsmáli og kantur í kringum handveg. BAKSTYKKI: Fitjið upp 82-90-94-98-102-106 lykkjur á hringprjón 6 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 13-17-17-17-17-17 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 69-73-77-81-85-89 lykkjur. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 5-7-9-11-13-15 lykkjur brugðið, A.1 (= 15 lykkjur), 6 lykkjur brugðið, A.1, 6 lykkjur brugðið, A.1, 5-7-9-11-13-15 lykkjur brugðið, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur (lykkjur sem prjónaðar eru brugðið frá réttu, prjónast slétt frá röngu). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af 2 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 65-69-73-77-81-85 lykkjur. Þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm, fækkið um 5 lykkjur jafnt yfir miðju mynstureiningu af A.1, í næstu umferð eru felldar af miðju 14-16-18-20-22-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 22-23-24-25-26-27 lykkjur. Lykkjur fyrir A.1 eru nú prjónaðar í sléttprjóni, fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 17-18-19-20-21-22 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (= 22-23-24-25-26-27 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg). Prjónið hina öxlina á sama hátt. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 45-45-49-49-53-53 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan) á hringprjón 6 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig og frá hlið: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 9-7-9-7-9-7 lykkjur jafnt yfir = 36-38-40-42-44-46 lykkjur. Prjónið síðan frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 7-9-11-13-15-17 lykkjur brugðið, A.1, 8 lykkjur brugðið, 5 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af 2 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferð frá réttu = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Prjónið frá réttu þannig: 6-8-10-12-14-16 lykkjur brugðið, A.1, 8 lykkjur brugðið, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, setjið ystu 8-9-10-11-12-13 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 22-23-24-25-26-27 lykkjur eftir á öxl. Lykkjur í A.1 eru nú prjónaðar í sléttprjóni, fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 17-18-19-20-21-22 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (= 22-23-24-25-26-27 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg). HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 45-45-49-49-53-53 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan) á hringprjón 6 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig og frá miðju að framan: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 9-7-9-7-9-7 lykkjur jafnt yfir = 36-38-40-42-44-46 lykkjur. Prjónið síðan frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 8 lykkjur brugðið, A.1, 7-9-11-13-15-17 lykkjur brugðið, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 17-17-17-18-18-19 cm byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af 2 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá röngu = 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af 2 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá röngu = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 8 lykkjur brugðið, A.1, 6-8-10-12-14-16 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, setjið ystu 8-9-10-11-12-13 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 22-23-24-25-26-27 lykkjur eftir á öxl. Lykkjur í A.1 eru nú prjónaðar í sléttprjóni, fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 17-18-19-20-21-22 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (= 22-23-24-25-26-27 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg). FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana, þanig að saumurinn verði flatur, en skiljið eftir neðstu 10 cm = klauf. Saumið tölur í vinstra framstykki. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá miðju að framan frá réttu og prjónið upp ca 48-68 lykkjur, meðtaldar lykkjur af þræði (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4) í kringum hálsmál á hringprjón 6 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish. Prjónið stroff þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff í 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. KANTUR Í KRINGUM HANDVEG: Prjónið upp ca 52 til 72 lykkjur (deilanlegt með 4) í kringum handveg með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish á stuttan hringprjón 6. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Endurtakið í kringum hinn handveginn. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |