DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Campers Comfort

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með kraga, vösum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 228-39
DROPS Design: Mynstur ab-122
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-400-400-450-500-550 g litur 5110, ljós grár
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
175-200-200-225-250-275 g litur 02, ljós grár

DROPS MÁLMTALA, Hringlaga (stál) NR 542: 5 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 8: lengd 60 cm.

DROPS HEKLUNÁL NR 8 – fyrir kraga.

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 17 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm (= peysa).
10 lykkjur á breidd og 13,5 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum í hvorri tegund = 10 x 10 cm (= kragi).
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 61 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 8,7.
Í þessu dæmi er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 8. og 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo að ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, prjónið í þessu dæmi til skiptis ca 7. og 8. hverja lykkju og 8. og 9. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING-1 (á við undir ermum):
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um kraga):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið við næsta prjónamerki.
Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið fjórðu og fimmtu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 16, 26, 36, 46 og 56 cm
M: 18, 28, 38, 48 og 58 cm
L: 20, 30, 40, 50 og 60 cm
XL: 20, 30, 41, 51 og 62 cm
XXL: 21, 32, 42, 52 og 63 cm
XXXL: 22, 33, 44, 54 og 65 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 69-75-78-87-96-102 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan kant þannig (fyrsta umferð = rétta):
Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1, þannig að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir í mynstri.
Prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 3 lykkjur, sléttar lykkjur yfir næstu 61-67-70-79-88-94 lykkjur jafnframt því sem fækkað er um 7-7-6-7-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.3, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni = 62-68-72-80-88-94 lykkjur.
Prjónið 1 umferð til baka frá röngu með mynstri eins og áður yfir 4 lykkju í hvorri hlið og brugðnar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram fram og til baka með mynstur yfir 4 lykkjur í hvorri hlið og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til stykkið mælist 21 cm, jafnframt í síðustu 2 umferðum er fitjuð upp 1 lykkja í lok hverrar umferðar (= kantlykkjur) = 64-70-74-82-90-96 lykkjur.
Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af 4-5-6-6-6-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 56-60-62-70-78-82 lykkjur.
Í stærð S, M og L, prjónið áfram frá ALLAR STÆRÐIR að neðan og í stærð XL, XXL og XXXL er prjónað þannig:
Prjónið mynstur eins og áður, jafnframt eru lykkjur felldar af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-2-2 sinnum = 66-70-74 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm, fellið af miðju 12-12-14-14-14-16 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 21-23-23-25-27-28 lykkjur eftir fyrir öxl.
Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm, fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 42-45-48-51-57-60 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan kant þannig (fyrsta umferð = rétta): Prjónið A.2 yfir fyrstu 7 lykkjurnar (= kantur að framan), A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir í mynstri. Nú er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið A.2 yfir fyrstu 7 lykkjur (= kantur að framan), sléttar lykkjur yfir næstu 31-34-37-40-46-49 lykkjur jafnframt er fækkað um 4-4-5-4-6-6 lykkjur jafnt yfir, prjónið síðustu 4 lykkjur eins og áður = 38-41-43-47-51-54 lykkjur.
Prjónið 1 umferð til baka frá röngu með mynstri eins og áður yfir ystu 4 lykkjur að hlið og 7 lykkjur fyrir kant að framan.
Haldið áfram fram og til baka með A.2 yfir fyrstu 7 lykkjur og mynstri eins og áður yfir síðustu 4 lykkjurnar og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð.
Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 21 cm, fitjið upp 1 lykkju í lok næstu umferðar frá réttu (= kantlykkja) = 39-42-44-48-52-55 lykkjur.
Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið og A.2 eins og áður yfir 7 lykkjur fyrir kant að framan.
Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af 4-5-6-6-6-7 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá röngu = 35-37-38-42-46-48 lykkjur.
Í stærð S, M og L, prjónið áfram frá ALLAR STÆRÐIR að neðan og í stærð XL, XXL og XXXL er prjónað þannig:
Prjónið mynstur eins og áður, jafnframt eru lykkjur felldar af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-2-2 sinnum = 40-42-44 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64-65-67 cm.
Prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Fellið af fyrstu 7 lykkjurnar fyrir hálsmáli, haldið síðan áfram fram og til baka jafnframt því sem lykkjur eru felldar af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi: Fellið af 2 lykkjur 3-3-4-4-4-4 sinnum og 1 lykkju 1-1-0-0-0-1 sinnum = 21-23-23-25-27-28 lykkjur eftir fyrir öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 42-45-48-51-57-60 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan kant þannig (fyrsta umferð = rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið, prjónið A.3 yfir síðustu 7 lykkjurnar (= kantur að framan). Haldið svona áfram fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir í mynstri. Nú er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 4 lykkjurnar, sléttar lykkjur yfir næstu 31-34-37-40-46-49 lykkjur jafnframt er fækkað um 4-4-5-4-6-6 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.3 yfir síðustu 7 lykkjurnar = 38-41-43-47-51-54 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið með mynstri eins og áður yfir fyrstu 4 lykkjur og síðustu 7 lykkjur og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð.
Þegar stykkið mælist 21 cm, fitjið upp 1 lykkju í lok næstu umferðar frá röngu (= kantlykkja) = 39-42-44-48-52-55 lykkjur.
Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið og A.3 eins og áður yfir 7 lykkjur fyrir kant að framan.
Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af 4-5-6-6-6-7 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá réttu = 35-37-38-42-46-48 lykkjur.
Í stærð S, M og L, prjónið áfram frá ALLAR STÆRÐIR að neðan og í stærð XL, XXL og XXXL er prjónað þannig:
Prjónið mynstur eins og áður, jafnframt eru lykkjur felldar af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-2-2 sinnum = 40-42-44 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64-65-67 cm.
Prjónið næstu umferð frá röngu þannig:
Fellið af fyrstu 7 lykkjurnar fyrir hálsmáli, haldið síðan áfram fram og til baka jafnframt því sem lykkjur eru felldar af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli: Fellið af 2 lykkjur 3-3-4-4-4-4 sinnum og 1 lykkju 1-1-0-0-0-1 sinnum = 21-23-23-25-27-28 lykkjur eftir fyrir öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm.

ERMI:
Fitjið upp 41-44-44-44-47-47 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur þannig (fyrsta umferð = rétta):
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til ermin mælist 14 cm. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 16-15-15-15-15-15 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með ca 9-9-6½-6½-6-4½ cm millibili alls 4-4-5-5-5-6 sinnum = 49-52-54-54-57-59 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 47-46-45-43-41-40 cm. Setjið nú prjónamerki í hvora hlið á ermi. Prjónamerkin eru notuð síðar við frágang á ermi við fram- og bakstykki. Prjónið mismunandi eftir stærðum þannig:

STÆRÐ S, M og L:
Prjónið þar til ermin mælist alls 50-50-50 cm. Fellið af.

STÆRÐ XL, XXL og XXXL:
Prjónið þar til ermin mælist 48-47-46 cm. Fellið nú af 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð alls 1-2-2 sinnum í hvorri hlið á ermi = 50-49-51 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 49-49-48 cm.

ALLAR STÆRÐIR:
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn.
Saumið ermakúpu við handveg innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið síðan efsta hlutann á ermi við botninn á handveg – sjá teikningu.
Saumið sauminn undir ermum og síðan niður yfir hliðarsauminn niður að klauf innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 21 cm klauf í hvorri hlið).

VASI:
Fitjið upp 21 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1, þannig að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til vasinn mælist 14 cm. Fellið af.
Prjónið annan vasa á sama hátt.
Leggið vasana á hvort framstykki. Vasinn á að vera staðsettur með efri kantinn á vasa í línu þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg og ca 8 til 12 cm frá ystu lykkju í kanti að framan – nælið niður vasana á stykkið og mátið e.t.v. peysuna áður en vasarnir eru festir. Saumið með smáu spori meðfram hliðum og neðri kanti á vösum.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu í kringum kant í hálsmáli:
Hoppið yfir 7 lykkjur í kanti að framan sem felldar voru af, prjónið upp 36-36-38-38-40-45 lykkjur í kringum kanti í hálsmáli á hringprjón 6 og 1 þræði DROPS Alpaca Bouclé og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir) fram að 7 lykkjum sem felldar voru af í kanti að framan.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu þar sem aukið er út um 12-12-13-13-13-15 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 48-48-51-51-53-60 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, 1 umferð brugðið frá röngu, 1 umferð brugðið frá réttu (= uppábrot), 1 umferð brugðið frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu.
Fellið af. Brjótið niður kantinn í hálsmáli tvöfaldan að röngu og saumið fallega niður.

KRAGI:
Byrjið frá réttu með hringprjón 6 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) og prjónið upp 1 lykkju í hverja brugðna lykkju þar sem brotið var uppá kant í hálsmáli = 48-48-51-51-53-60 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið síðan með 2 þráðum DROPS Alpaca Bouclé og 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk (= 4 þræðir).
Prjónið 1 umferð slétt og fækkið jafnframt um 8-8-9-9-9-10 lykkjur jafnt yfir = 40-40-42-42-44-50 lykkjur – þetta verður réttan á kraganum og það er þessi hlið sem kemur til með að snúa út þegar kraginn tilbúinn og brotinn saman niður.
Setjið 1 prjónamerki 10-10-11-11-11-13 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 20-20-20-20-22-24 á milli 2 prjónamerkja). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat).
Haldið svona áfram fram og til baka þar til aukið hefur verið út 4 sinnum í hvorri hlið.
Prjónið nú áfram alveg eins með útaukningu í hvorri hlið 3 sinnum til viðbótar (= alls 7 sinnum í hvorri hlið), JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 2 sinnum.
Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar eru 62-62-64-64-66-72 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til kraginn mælist alls 12 cm. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn dragist ekki saman.
Nú er heklaður kantur í lokin til að stífa kragann. Heklið meðfram affellingarkantinum á kraganum og frá réttu þannig – heklið með 1 þræði í hvorri tegund og heklunál 8:
Festið þráðinn í ystu lykkjuna á affellingarkantinum. Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju meðfram affellingarkantinum. Klippið þráðinn og festið.
Formun: Bleytið kragann og pressið vatnið varlega úr. Formið kragann þannig að affellingarkanturinn og fastalykkju umferðin liggi fallega og rúllist ekki inn. Látið þorna.
Þetta er endurtekið í hvert skipti við þvott.

Mynstur

symbols = Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = slétt lykkja frá röngu
symbols = Á við um stærð S, M og L: Ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
symbols = Á við um stærð XL, XXL og XXXL: Ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Bärbel Bogel wrote:

Wann wird bei den einzelnen Strickteilen (Vorder-, Rückenteil, Ärmel) die Nadel von 6 auf 8 gewechselt? Der Wechsel wird nur beim Kragen erwähnt.

08.10.2022 - 09:59

DROPS Design answered:

Liebe Frau Bogel, Nadel 8 wird für den Kragen benutzt - die ganze Jacke wird sonst mit Nadel 6 gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

10.10.2022 - 08:30

country flag Bärbel Bogel wrote:

Mit dem Stricken selbst habe ich keine Probleme, da ich schon viele Jahre dabei bin. Die Übersetzung der einzelne Schritte ist jedoch sehr irritierend. Sehr hilfreich wäre es, wenn die einzelnen Strickreihen in den Muster nummeriert wären und sich diese Nummerierung im Text wiederfinden würde.

07.10.2022 - 15:47

country flag Sadazur wrote:

Je ne comprends pas le point fantaisie avec le diagramme : Rang 1 : toutes les mailles à l'endroit Rang 2 : 1 maille endroit 2 mailles envers Rang 3 : toutes les mailles à l'endroit Rang 4 : rang 1 Est ce exact ? Merci pour votre aide

12.01.2022 - 19:54

DROPS Design answered:

Bonjour Sadazur, les lignes blanches sont des mailles tricotées en jersey (à l'endroit sur l'endroit, à l'envers sur l'envers), celles avec case blanche/une croix se tricotent au point mousse (à l'endroit sur l'endroit et sur l'envers); autrement dit, A.1 par ex se tricote ainsi sur l'endroit: 3 m end, sur l'envers (on lit de gauche à droite): 2 m end, 1 m env . Bon tricot!

13.01.2022 - 08:38

country flag Saba Hatem wrote:

Very beautiful, wowwww

24.08.2021 - 16:05

country flag Birgitta Persson wrote:

En populär modell som jag gillar bra höst och vårjacka

05.08.2021 - 16:55

country flag Jannicke Mathisen wrote:

Navn: Trondheimsjakke

04.08.2021 - 21:33