Astrid Brokate skrifaði:
Hallo, eine tolle Anleitung. Werde ich nachstricken. Was für eine Hunderasse ist das? Der Hund gefällt mir sehr. Liebe Grüße von Astrid
01.12.2024 - 10:02
Lotte Østergaard skrifaði:
Hej, hvis jeg skal lave denne i ensfarvet air , hvor meget garn skal jeg da ca. bruge? På forhånd tak - Lotte Ø
22.11.2024 - 10:06DROPS Design svaraði:
Hej Lotte, du skal nok bruge 1 nøgle mere :)
22.11.2024 - 15:18
Charlotte skrifaði:
Hvis jeg vil strikke denne model i én farve, hvor meget garn skal da jeg bruge (str. M)?
20.11.2024 - 21:06DROPS Design svaraði:
Hej Charlotte, så skal du nok bruge 1 nøgle mere :)
22.11.2024 - 13:53
Patricia Ramos skrifaði:
Er det muligt at fremskaffe denne opskrift i en størrelse Large? Jeg takker på forhånd :)
19.09.2024 - 06:24DROPS Design svaraði:
Hei Patricia. Det har vi dessverre ikke muligheten til. mvh DROPS Design
19.09.2024 - 09:48
Anni Jetten skrifaði:
Ich würde gerne diesen Hundepullover stricken. Allerdins hat mein Hund eine Brustweite von 71 cm und eine Länge von 65 cm. Wie sind dann die Maschenzahlen und Zu- und Abnahmen?
22.07.2024 - 10:24DROPS Design svaraði:
Liebe Anni, es tut mir leid, aber können wir Ihnen keine weiteren Größen oder angepasste Maschenzahlen zur Verfügung stellen. Die Hundepullover-Anleitungen sind bei uns meistens nur bis 52 cm Brustweite berechnet.
26.07.2024 - 14:07
Irene skrifaði:
Buonasera, nel paragrafo dedicato al bordo delle zampe si dice di riprendere 56 maglie per la taglia M, ma dopo aver proseguito per 13 cm dalla divisione ho solo 38 maglie (incluse le 4 avviate per il sottomanica). Dovrei fare degli aumenti oppure proseguire con la lavorazione in piano per più di 13 cm? Grazie mille!
15.10.2023 - 19:42DROPS Design svaraði:
Buonasera Irene, in quel punto deve riprendere dalle 40 alle 56 maglie: abbiamo modificato leggermente il testo. Buon lavoro!
19.10.2023 - 23:42
Stefanie Hellbach skrifaði:
Meine Tochter wünscht sich den Pullover im Partnerlook mit ihrem Hund. Der Pullover für meine Tochter ist fertig, aber der Hund passt nicht in die angegebenen Maße. Könnten Sie mir bitte Anleitung geben, wie ich bei Brustumfang des Hundes von 58 cm verfahren sollte? Wieviel Maschen sollte ich anschlagen, und kann ich dann einfach nach der Anleitung in der größten Größe M angegebenen Anleitung verfahren, oder wie muss ich Zu- und Abnehm-Angaben abwandeln?
24.03.2023 - 15:49DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Hellbach, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Maschenprobe anpsassen, wir haben aber einige Modellen für Größe L, eins davon könnte schon passen, schauen Sie mal hier und lassen Sie sich inspirieren. Viel Spaß beim stricken!
24.03.2023 - 16:04
Jacqueline Ziemer skrifaði:
Hallo, Frage ist, was bedeutet z.B. Rundstricknadel Nr 5 oder 4? Sind das 5mm/4 mm Nadeln? Vielen Dank Jacqueline
13.10.2022 - 07:02DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Ziemer, ja genau. Viel Spaß beim stricken!
13.10.2022 - 09:25
Anna Johanne Toset skrifaði:
Hei.Har dere strikkeoppskrift på villmarksgenser / potegenser til hund ?
11.10.2022 - 15:41
María skrifaði:
Lindo traje para madcota, lo hice. Muchas gracias
11.09.2022 - 07:10
Merry Santas#merrysantasdogsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð hundapeysa / jólapeysa / peysa fyrir hund úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað með norrænu jólasveinamynstri. Stærð XS - M. Þema: Jól.
DROPS 228-54 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 6. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á sokkaprjóna eða stutta hringprjóna. Síðan er peysan prjónuð í hring á hringprjóna að opi fyrir framfætur. Síðan er prjónað fram og til baka á magastykki og fram og til baka á bakstykki. Þegar op fyrir framfætur hafa verið gerð til loka er stykkið sett saman og prjónað er í hring áður en lykkjur eru felldar af mitt undir magastykki. Þaðan er prjónað fram og til baka. Prjónaður er kantur í kringum op fyrir framfætur og prjónaður er kantur í kringum op á peysu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 48-60-80 lykkjur á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4 með litnum grár DROPS Alaska. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn þar til kantur í hálsmáli mælist alls 7-8-9 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 2-10-10 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 50-70-90 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, stykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið hringinn í sléttprjón með litnum ljós grár þar til stykkið mælist ca 3-3-5 cm frá prjónamerki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið A.1 (byrjun á umferð verður beint yfir öðrum framfætinum). Prjónið í hring eftir mynsturteikningu (= 5-7-9 mynstureiningar í umferð) þar til stykkið mælist 4-4-7 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið við framfætur, stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum áður en það er sett aftur saman. BAKSTYKKI: Prjónið fyrstu 20-20-30 lykkjur í umferð og setjið þær síðan á þráð = 30-50-60 lykkjur í umferð. Nú er prjónað fram og til baka yfir þessar 30-50-60 lykkjur, í lok 2 fyrstu umferða er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið = 32-52-62 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.1 fram og til baka eins og áður og með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar mynstrið hefur verið prjónað til loka, prjónið með litnum grár að loka máli. Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 9-11-13 cm frá skiptingu, í síðustu umferð (= frá röngu) er felld af 1 kantlykkja í hvorri hlið = 30-50-60 lykkjur. Klippið þráðinn frá. MAGASTYKKI: Setjið 20-20-30 af þræði á hringprjón 5, í lok fyrstu tveggja umferða er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið = 22-22-32 lykkjur. Prjónið A.1 fram og til baka eins og áður og með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar mynstur hefur verið prjónað til loka, prjónið með litnum grár að loka máli. Prjónið svona þar til stykkið mælist 9-11-13 cm frá skiptingu – stillið af að síðasta umferðin sé frá röngu og fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið. Haldið eftir lykkjum á prjóni. Nú er stykkið sett saman þannig: Byrjið frá réttu og prjónið yfir 20-20-30 lykkjur á prjóni, fitjið upp 4 nýjar lykkjur, prjónið síðan yfir 30-50-60 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 4 lykkjur = 58-78-98 lykkjur. Prjónið í hring þar til stykkið mælist 16-21-29 cm frá prjónamerki. Það eru eftir ca 3 cm á lengdina undir peysu (meðfram maga) og ca 8-11-11 cm efst á peysu (meðfram baki). Mátið e.t.v. peysuna á hundinn og prjónið að óskaðri lengd. Setjið fyrstu 20-20-30 lykkjur í umferð á þráð (= mitt undir maga) = 38-58-68 lykkjur. Prjónið síðan fram og til baka í sléttprjóni og fellið af lykkju í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-2 sinnum, 1 lykkja 1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-2 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni = 16-26-36 lykkjur. Setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð. Stykkið mælist ca 21-29-37 cm frá prjónamerki. KANTUR Í KRINGUM OP FYRIR FRAMFÓT: Notið sokkaprjóna 4, prjónið upp ca 40 til 56 lykkjur með litnum grár innan við 1 kantlykkju í kringum annað opið sem var gert fyrir framfætur. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn þar til kanturinn mælist ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Prjónið kant í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt. KANTUR Í KRINGUM MAGA- OG BAKSTYKKI: Nú er prjónaður kantur í kringum opið á peysu, frá miðju að neðan og í kringum allan kantinn. Byrjið frá réttu og notið hringprjón 4, prjónið upp ca 80 til 104 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) með litnum grár. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til kanturinn mælist ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 24-32-40 cm frá prjónamerki (mælt meðfram baki) og ca 19-24-32 cm frá eftir stroff (mælt undir maga) og mitt að neðan meðfram stykki mitt á milli framfóta. HNÚTUR: Það á að gera hnút efst á hverri jólasveinahúfu. Hnúturinn er hnýttur í kringum lykkju. Klippið 2 þræði af litnum natur, ca 10 cm. Leggið þræðina saman, notið nál og þræðið þræðina í gegnum efstu lykkjuna með litnum natur í toppinn á jólasveinahúfu, þannig að báðir þráðarendarnir liggi frá réttu á stykki, hvoru megin við lykkjuna. Hnýtið hnút, hnýtið síðan annan hnút, í gagnstæða átt – sjá teikningu. Klippið þræðina ca ½ cm langa. Endurtakið efst á öllum jólasveinahúfum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #merrysantasdogsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-54
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.