Emma skrifaði:
Hej! Pannbandet står att det ska stickas som en tub (tänker så att det ska bli som en orm) men sedan ska det läggas omlott enligt diagram A4 vilket sett ut som att det är stickat som en rektangel. Kan jag få hjälp med hur jag ska göra så vore jag tacksam 😊
25.01.2025 - 20:09DROPS Design svaraði:
Hei Emma. Pannebånde strikkes som en tube og for å forklare hvordan den skal sys sammen legges tuben flatt og da ser det ut som et langt rektangel. Ta en titt på hjelpevideoen: Hur man monterar ett pannband så att det blir en fläta längst fram , så får du kanskje en bedre forståelse. mvh DROPS Design
27.01.2025 - 11:21
Heidi skrifaði:
Onko kaulurin pääntien reunuksen pituus oikeasti 4 cm? Kuvassa näyttää siltä että se on paljon enemmän (noin 20 senttiä ehkä=)
15.09.2022 - 08:55DROPS Design svaraði:
Hei, tämä malli neulotaan alhaalta ylös, eli alareunan reunuksen pituus on 4 cm. Pääntien reunuksen pituus on n- 16-22 cm (koosta riippuen).
20.09.2022 - 18:47
Patrycja skrifaði:
Prawe ramię-czy zamykanie oczek na dekolt wykonuje się na pewno na początku rzędu na prawej stronie?
30.11.2021 - 22:13DROPS Design svaraði:
Witaj Patrycjo, zaczynasz prawe ramię na lewej stronie robótki, przerabiasz rząd na lewej stronie i obracasz robótkę. Teraz będziesz zamykać oczka na dekolt i powtarzać to na początku każdego rzędu na prawej stronie robótki. Pozdrawiamy!
01.12.2021 - 08:43
Signe Britt Halvorsen skrifaði:
Får ikke fram diagrammet i denne oppskriften sånn at jeg kan skrive den ut.
06.10.2021 - 00:21DROPS Design svaraði:
Hei Signe Britt, Det er bare 1 diagram med mønster, helt i bunnen av oppskriften. God fornøyelse!
06.10.2021 - 07:02
Signe Britt Halvorsen skrifaði:
Får ikke fram diagrammet til denne oppskriften.Dermed får jeg ikke skrevet det ut.Det kommer ikke ut med annet en den vanlige oppskriften som er skriftlig.
06.10.2021 - 00:20
Tween Twinkle#tweentwinkleset |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónað eyrnaband með kaðli og hálsskjól fyrir börn úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkin eru prjónuð í stroffprjóni og sléttprjóni. Stærð 2– 12 ára.
DROPS Children 40-33 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning A.1 til A.5 er notuð við frágang á eyrnabandinu. Mynsturteikning A.6 á einungis við eyrnabandið. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna eins og hólkur. Endarnir eru saumaðir saman þannig að þeir mynda kaðal mitt framan á eyrnabandinu. EYRNABAND: Fitjið upp 33-35-37-39 lykkjur á sokkaprjóna 5 með 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið í hring þannig: Prjónið 11-12-13-14 lykkjur sléttprjón, prjónið mynsturteikningu A.6 (= 11 lykkjur) og prjónið 11-12-13-14 lykkjur sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 45-47-48-49 cm, eða að óskaðri lengd – eyrnabandið á að sitja svolítið þétt að höfðinu. Fellið af með sléttum lykkjum. FRÁGANGUR: Stykkið er nú eins og hólkur með op í hvorum enda, leggðu hólkinn saman flatan – passið uppá að hann sé ekki snúinn og að mynstur A.6 sé fyrir miðju á hólknum (þetta á að vera réttan þegar stykkinu er snúið). Nú á að loka opinu í endunum með saum í hvorri hlið, saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki þykkur – sjá strikaða línu í mynsturteikningu A.1. Stykkið er nú eins og flatur rétthyrningur, brjótið rétthyrninginn á lengdina þannig að hann liggi tvöfaldur með mynstrið sem er prjónað frá réttu á eyrnabandinu sé inni í brotinu – sjá mynsturteikningu A.2. Nú eiga löngu hliðarnar á eyrnabandinu að leggast inn í hvora aðra í lögum án þess að snúa stykkinu – sjá mynsturteikningu A.3. Endarnir á eyrnabandinu liggja nú til skiptis innan í og utan á hvorum öðrum og endarnir liggja kant í kant – sjá mynsturteikningu A.4. Nú á að sauma í gegnum öll lögin þannig: Saumið meðfram strikuðu línunni í mynsturteikningu A.5 (þ.e.a.s. yfir endana á stykkinu), saumið með þéttum saum með 1 lykkju í hverja lykkju – það er mikilvægt að sauma í gegnum öll lögin þannig að saumurinn sýnist ekki þegar stykkinu er snúið við. Klippið þráðinn frá og festið. Snúið stykkinu þannig að saumurinn sé að innanverðu á eyrnabandinu. ------------------------------------------------------- HÁLSSKÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka neðan frá og upp. Stykkið byrjar neðst á framstykki. Fellt er af fyrir hálsmáli og hvor öxl er síðan prjónuð hvor fyrir sig yfir axlirnar. Síðan eru lykkjur auknar út við hálsmál aftan í hnakka, áður en axlalykkjurnar eru settar saman og bakstykkið er prjónað áfram. Að lokum eru saumaðar upp lykkjur í kringum hálsmál og prjónað er í stroffprjóni. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 32-36-44-48 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 3 kantlykkjur garðaprjón. Prjónið síðan með 3 kantlykkjum garðaprjón í hvorri hlið og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist ca 4 cm og næsta umferð er frá réttu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 14-18-26-30 lykkjur, prjónið eins og áður yfir síðustu 9 lykkjur. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út í hvorir hlið frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 10 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður út umferðina. Í næstu umferð er prjónað eins og áður, en uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið. Endurtakið útaukningu með ca 2½-2½-3-2½ cm millibili þar til aukið hefur verið út alls 3-3-3-4 sinnum í hvorir hlið = 38-42-50-56 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 14-15-16-17 cm, nú á að taka lykkjur frá fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið yfir fyrstu 16-17-20-22 lykkjur eins og áður og setjið þær síðan á þráð fyrir vinstri öxl, fellið af næstu 6-8-10-12 lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið út umferðina. Axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. HÆGRI ÖXL: = 16-17-20-22 lykkjur. Byrjið frá röngu og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-2-2 sinnum og fellið af 1 lykkju 1-2-2-2 sinnum = 11-11-14-16 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 18-20-22-24 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið eitt prjónamerki í stykkið til að mæla frá síðar (= mitt ofan á öxl). Prjónið þar til stykkið mælist 1-1½-2½-2½ cm frá prjónamerki á öxl og næsta umferð er frá röngu, nú eru fitjaðar upp lykkjur við hálsmál í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 1-2-2-2 sinnum og fitjið upp 2 lykkjur 2-2-2-2 sinnum = 16-17-20-22 lykkjur. Stykkið mælist ca 4-5-6-7 cm frá prjónamerki á öxl. Klippið þráðinn frá og setjið lykkjur á nýjan þráð, prjónið nú vinstri öxl. VINSTRI ÖXL: Setjið til baka fyrstu 16-17-20-22 lykkjur af þræði á prjóninn. Byrjið frá röngu og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-2-2 sinnum og fellið af 1 lykkju 1-2-2-2 sinnum = 11-11-14-16 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 18-20-22-24 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið eitt prjónamerki í stykkið til að mæla frá síðar (= mitt ofan á öxl). Prjónið þar til stykkið mælist 1-1½-2½-2½ cm frá prjónamerki á öxl og næsta umferð er frá réttu, nú eru fitjaðar upp lykkjur við hálsmál í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 1-2-2-2 sinnum og fitjið upp 2 lykkjur 2-2-2-2 sinnum = 16-17-20-22 lykkjur. Fitjið upp 6-8-10-12 lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 22-25-27-34 lykkjur. Stykkið mælist ca 4-5-6-7 cm frá prjónamerki á öxl. Nú er vinstri og hægri öxl sett saman og bakstykkið er prjónað áfram héðan. Setjið til baka lykkjur af hægri öxl á prjóninn og prjónið yfir þessar lykkjur frá réttu = 38-42-50-56 lykkjur. BAKSTYKKI: Prjónið sléttprjón fram og til baka með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið og 6 lykkjur stroffprjóni í hvorri hlið eins og áður. JANFRAMT þegar stykkið mælist 7-9-10-10½ cm frá prjónamerki á öxl er lykkjum fækkað innan við ystu 10 lykkjur í hvorri hlið frá réttu þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir ystu 10 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið þar til 12 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir. Prjónið eins og áður yfir síðustu 10 lykkjur. Endurtakið úrtöku innan við 10 ystu lykkjur í hvorri hlið með ca 2½-2½-3-2½ cm millibili þar til fækkað hefur verið alls 3-3-3-4 sinnum í hvorri hlið = 32-36-44-48 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 14-16-18-20 cm frá prjónamerki á öxl – stillið af að bakstykkið sé jafn langt og framstykkið (án stroffs). Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið síðan með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist ca 4 cm og næsta umferð sé frá réttu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4 og 1 þráð DROPS Flora og 1 þráð DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Byrjið við prjónamerki á öxl og prjónið upp ca 72-80-84-88 lykkjur í kringum hálsmál. Prjónið 1 umferð brugðið og aukið út til 88-92-96-104 lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið þar til stroffið mælist ca 16-18-22-22 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tweentwinkleset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.