DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2728.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Soft Snuggles

Prjónuð hipsterhúfa og hálsskjól með axlarsæti fyrir börn úr DROPS Melody. Húfan er prjónuð í stroffprjóni og hálsskjólið er prjónað í stroffprjóni og sléttprjóni. Stærð 2-12 ára.

DROPS Children 40-35
DROPS Design: Mynstur ml-002-bn
Garnflokkur D
-----------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
2 - 3/5 - 6/9 - 10/12 ára

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
100-100-100-150 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 17 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HÚFA:

STÆRÐ:
Stærð: 2 - 3/5 - 6/9 - 10/12 ára
Höfuðmál: 48/50 – 50/52 – 52/54 – 54/56 cm

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
50-50-50-50 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.

HÁLSSKJÓL:

STÆRÐ:
Stærð: 2 - 3/5 - 6/9 - 10/12 ára

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
50-50-50-100 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2728.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (á við um axlarsæti á hálsskjóli):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 60-64-68-72 lykkjur á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroffprjón (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið þar til stykkið mælist ca 24-25-26-27 cm frá uppfitjunarkanti (nú eru eftir ca 4 cm til loka máls). Fækkið nú lykkjum þannig:

UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið er prjónað brugðið saman, prjónið 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 45-48-51-54 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
UMFERÐ 3: * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 30-32-34-36 lykkjur.
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
UMFERÐ 5: Prjónið 2 lykkjur slétt saman umferðina hringinn = 15-16-17-18 lykkjur.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt.
UMFERÐ 7: Prjónið 2 lykkjur slétt saman umferðina hringinn (í stærð 2 og 6/9 ára endar umferð með 1 sléttri lykkju) = 8-8-9-9 lykkjur.
Klippið þráðinn, notið nál og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjurnar. Herðið að og festið enda. Húfan mælist alls 28-29-30-31 cm. Brjótið upp neðri kantinn á húfunni ca 8 cm að réttu.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Þegar útaukning fyrir axlarsæti er lokið, fellið lykkjur af á hvorri öxl. Síðan eru framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig til loka máls.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 52-56-60-64 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroffprjón hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – byrjun á umferð er á hægri öxl að aftan þegar hálsskjólið er mátað.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið þar til stykkið mælist 12 cm frá uppfitjunarkanti. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið, hvert prjónamerki er sett í slétta lykkju og prjónamerkin eru sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar:
Setjið 1. prjónamerki í fyrstu sléttu lykkju í umferð, hoppið yfir 9-11-13-15 lykkjur (= öxl), setjið 2. prjónamerki í næstu sléttu lykkju, hoppið yfir 15-15-15-15 lykkjur (= framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu sléttu lykkju, hoppið yfir 9-11-13-15 lykkjur (= öxl) og setjið 4. prjónamerki í næstu sléttu lykkju. Nú eru 15 lykkjur eftir á bakstykki eftir 4. prjónamerki.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Í næstu umferð er aukið út fyrir axlarsæti JAFNFRAMT er prjónað stroffprjón eins og áður á milli 1. og 2. prjónamerkis og á milli 3. og 4. prjónamerkis, aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri – útauknar lykkjur tilheyra framstykki og bakstykki og eru prjónaðar í sléttprjóni, fjöldi axlalykkja verður sá sami).
Aukið svona út í hverri umferð alls 7-9-11-12 sinnum = 80-92-104-112 lykkjur.
Í næstu umferð eru lykkjur felldar af fyrir öxl og stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki, byrjið við 1. prjónamerki og prjónið þannig:
Prjónið lykkjum með 1. prjónamerki slétt, setjið 1 auka þráði DROPS Melody og fellið af næstu 9-11-13-15 lykkjur (þetta er gert til að kanturinn verði teygjanlegur, þessi auka þráður er einungis notaður við affellingu). Takið frá auka þráðinn og prjónið sléttar lykkjur til og með lykkju með 3. prjónamerki, setjið aftur 1 auka þráð DROPS Melody og fellið af næstu 9-11-13-15 lykkjur. Takið frá auka þráðinn og prjónið sléttar lykkjur til og með lykkju með 1. prjónamerki í. Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað áfram hvort fyrir sig með 1 þræði DROPS Melody.

BAKSTYKKI/FRAMSTYKKI:
Framstykkið og bakstykkið eru alveg eins, setjið annað stykkið á þráð eða á hjálparprjón og prjónið hitt stykkið eins og útskýrt er að neðan:
Nú eru 31-35-39-41 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjum í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist ca 1½-1½-1½-2 cm (mælt þar sem stykkið skiptist) nú á að fækka lykkjum innan við 3 kantlykkjur í hvorri hlið frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir og prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni.
Endurtakið úrtöku frá réttu með ca 1½-1½-1½-2 cm millibili þar til lykkjum hefur fækkað alls 4-4-4-4 sinnum í hvorri hlið = 23-27-31-33 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 8-9-10-11 cm (mælt frá skiptingu). Prjónið 1 umferð frá röngu og aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir lykkjur í sléttprjóni = 27-31-35-37 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið og prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir afgang af lykkjum. Prjónið þar til stroffið mælist ca 4 cm. Sjá AFFELLING og fellið af í næstu umferð frá réttu. Klippið þráðinn og festið enda.
Prjónið hinn hlutann alveg eins.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Veroni wrote:

Habe bei nochmaligem Durchlesen verstanden wie es geht. Mütze ist fertig und sieht toll aus. Viele Grüße und gutes Gelingen Veroni

27.01.2024 - 17:43

country flag Veroni wrote:

Hallo, Ich verstehe es nicht, wenn ich bei 72 Maschen jeweils zwei zusammenstricke komme ich auf die Hälfte und zwar 36 Maschen. Wie kommt man denn auf 54 Maschen in der ersten Runde, wie angegeben? Danke und viele Grüsse

26.01.2024 - 10:05

DROPS Design answered:

Liebe Veroni, bei der 1. Abnahmenrunde stricken Sie insgesamt 18 Mal * 1 Rechtsmasche und 1 Linksmasche links zusammenstricken, 1 Masche rechts, 1 Masche links *, (diese 4 Maschen x 18 = 78), so wird man nur 18 Maschen abnahmen und es sind 54 Maschen übrig. Vie Spaß beim stricken!

29.01.2024 - 11:10

country flag Marianne Rafen wrote:

Kan kun give Gill Rosendahl, ret i, at der må være en fejl i række 3 på huen. 3.OMGANG: * 1 vrang, 2 ret sammen *, strik fra *-* Det må da give: 1 ret og 2 vrang sammen?

25.08.2023 - 09:58

DROPS Design answered:

Hei Marianne. Når du har strikket ferdig 1. omgang har du 1 vrang (1 rett maske og 1 vrangmaske som blir strikket vrang) + 1 rett + 1 vrang, så gjentas dette. Da blir det slik omgang rundt: 1 vrang + 1 rett + 1 vrang + 1 vrang + 1 rett + 1 vrang + 1 vrang + 1 rett + 1 vrang osv. Så strikker man 1 omgang rett over rett og vrang over vrang. Når man da skal strikke 3. omgang strikkes første maske vrang og de 2 neste maskene rett sammen, (selv om det er 1 rett og 1 vrang maske). Når 3. omgang er ferdigstrikket er det 1 vrang + 1 rett + 1 vrang + 1 rett omgangen rundt. mvh DROPS Design

04.09.2023 - 13:46

country flag Elżbieta wrote:

Dodawać oczka co dwa okrążenia tzn.: między rzędami , w których dodajemy oczka są dwa rzędy bez dodawania czy jeden?

05.01.2023 - 13:27

DROPS Design answered:

Witaj Elu, gdy dodajemy co na okrążenia, to znaczy że dodajemy w jednym okrążeniu, a nie dodajemy w następnym, itd. Czyli jest 1 okrążenie bez dodawania oczek między okrążeniami z dodawaniem oczek. Pozdrawiamy!

05.01.2023 - 21:20

country flag Roberta Stewart wrote:

I feel that much is lost in the translation of this pattern. As an experienced English knitter the instructions make no sense to me. I think you need the help of an English speaking knitter to help you describe the steps needed to knit this pattern. I believe am able to make up my own pattern to complete something similar .

06.02.2022 - 05:41

DROPS Design answered:

Dear Mrs Stewart, should you need any assistance with this pattern, please feel free to ask your question here, so that we will be able to help you. Happy knitting!

07.02.2022 - 11:25

country flag Debbie wrote:

Kan u die patroon vertaal na Afrikaans

07.12.2021 - 20:58

country flag Gill Rosendahl wrote:

Hej, Här tänker jag att var 3 på mössan är fel. Det är, efter varv 1, övervikt av aviga maskor, så jag tänker att varv 3 bör stickas två aviga samman och en rät.

17.09.2021 - 10:24

DROPS Design answered:

Hej Gill. Det är lite otydligt skrivet, men du stickar 2 maskor tillsammans räta (det är en maska avig och en rät som stickas tillsammans). Mvh DROPS Design

22.09.2021 - 09:10