Ludmilla skrifaði:
Bonjour, Est-ce que le mannequin porte sa taille ou une taille plus grande, auterment dit est-ce que le pull a l'amplitude illustrée ou si je veux cet effet, je dois faire une taille plus grande que la mienne.? Merci
01.11.2024 - 01:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Ludmilla, pour trouver votre taille, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma en bas de page. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!
01.11.2024 - 09:51
Malgorzata skrifaði:
Wykonuje rozmiar M dodalam oczka przy drugiej strzalce i zaczelam robic dalej schemat ale wzor sie nie pokrywa
11.06.2024 - 15:44DROPS Design svaraði:
Witaj Małgosiu, patrzę na zdjęcie i te romby, które teraz wykonujesz faktycznie nie pokrywają się z kropeczkami, tzn. góra/czubek rombu jest w różnych miejscach (z powodu dodanych oczek) i nie jest to symetryczne w tym wzorze. Tak zostało to zaprojektowane. Jak patrzymy na sweter z oddali to ta asymetria jest prawie niewidoczna. Mam nadzieję, że to Cię nie zniechęci. Pozdrawiam!
11.06.2024 - 18:20
Malgorzata skrifaði:
Wiem ze jest wiecej powtorzen ale wzor sie wtedy nie zgadza i nie wychodzi tak jak w schemacie tylko oczka sa przesuniete
10.06.2024 - 15:06DROPS Design svaraði:
Witam ponownie, proszę napisać, który rozmiar Pani wykonuje i przy której strzałce teraz jest.
10.06.2024 - 15:30
Malgorzata skrifaði:
W schemacie jest strzalka ze trzeba dodac oczka dlaczego te nowe oczka nie sa uwzglednione w schemacie jest ich wiecej robiac po 6 oczek schemat sie nie zgadza
09.06.2024 - 19:01DROPS Design svaraði:
Witaj Małgosiu, gdy równomiernie dodajesz oczka w danym okrążeniu, w następnym okrążeniu przerabiasz więcej powtórzeń schematu, jest to zaznaczone w opisie w części KARCZEK. W razie dalszych pytań pisz. Pozdrawiamy!
10.06.2024 - 08:10
Marianna Brizzi skrifaði:
Inviati adesso due link, uno lavorato con nepal (ne-353) uno con brushed alpaca silk (as-129), ci tengo tantissimo, grazie.
06.04.2024 - 09:56
Marianna Brizzi skrifaði:
Il numero del modello l\'avevo messo sotto il link tra i commenti\r\nNumero: ne-353\r\nGrazie
02.04.2024 - 19:20DROPS Design svaraði:
Buongiorno Marianna, può riprovare a inserire le foto, buon lavoro!
06.04.2024 - 09:38
Marianna Brizzi skrifaði:
Riguardo alla domanda su dove sbaglio a inviarvi i link, quando li invio mi dice inviato correttamente quindi non saprei dove sbaglio
01.04.2024 - 14:16DROPS Design svaraði:
Buonasera Marianna, ci può indicare il modello per cui ha inviato le foto? Buon lavoro!
01.04.2024 - 20:11
Marianna Brizzi skrifaði:
Ho mandato diversi link della foto dwi miei lavori ma non li vedo tra i dropsfangallery, cosa sbaglio?
07.03.2024 - 20:09DROPS Design svaraði:
Buonasera Marianna, le esce qualche errore quando invia le foto? Buon lavoro!
16.03.2024 - 19:01
Elda Obando skrifaði:
Muchas gracias por compartir el instructivo, bien explicado. Me encantó como me quedo el suéter. \r\nDios les bendiga!
25.02.2024 - 19:42
Ulla skrifaði:
Jeg forstår ikke at der efter diagram A1 er færdig og der skal strikkes 5 cm fra mærket skal strikkes til arbejdet måler 20 cm fra mærket i str, s. Mit arbejde måler 22 cm da alene diagrammet måler ca 17 cm når alle pinde og udtagninger er færdige og plus de 5 cm er det ca 22 cm.
12.09.2023 - 19:09DROPS Design svaraði:
Hei Ulla. Er strikkefasthete overholdt? Du starter på diagrammet når arbeidet måler 5 cm fra merket, så strikker du diagram A.1. Er strikkefastheten overholdt skal arbeidet da måle 5 cm + A.1 (31 pinner = ca 14 cm) = 19 cm. Så skal det strikkes glattstrikk med fargen grå til arbeidet måler 20-22-24-26-28-30 cm fra merket ved halsen. mvh DROPS Design
18.09.2023 - 12:47
Atlanterhavsveien#atlanterhavsveiensweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki, norrænu mynstri á berustykki og kanti í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-10 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í lok hverrar brugðinnar einingar. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 140 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 34) = 4,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað á hringprjóna frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-87-90-93-96-102 lykkjur á hringprjón 5 með litnum grár í DROPS Nepal. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) í 13-13-13-15-15-15 cm. Kantur í hálsi er síðar brotinn saman tvöfaldur og við frágang verður hann ca 6-6-6-7-7-7 cm. Setjið 1 prjónamerki í berustykkið eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Haldið áfram með stroff eins og áður. Þegar stykkið mælist 1 cm frá prjónamerki, aukið út um 1 lykkju í hverri og einni af 28-29-30-31-32-34 brugðinni einingu – sjá ÚTAUKNING-1 = 112-116-120-124-128-136 lykkjur. Haldið svona áfram með stroff með 1 lykkja snúin brugðið, 3 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 3-4-5-6-7-8 cm frá prjónamerki, aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 140-145-150-155-160-170 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5-6-7-9-10-11 cm frá prjónamerki, aukið út um 34-35-42-43-50-58 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 174-180-192-198-210-228 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat). Í næstu umferð byrjar mynstur, þ.e.a.s. prjónið A.1 hringinn (= 29-30-32-33-35-38 mynstureiningar með 6 lykkjur). JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. Sjá LEIÐBEININGAR og munið eftir ÚTAUKNING-2! Ör-1: Aukið út 42-48-48-60-60-66 lykkjur jafnt yfir = 216-228-240-258-270-294 lykkjur (nú er pláss fyrir 36-38-40-43-45-49 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjur). Ör-2: Aukið út 24-24-36-36-42-48 lykkjur jafnt yfir = 240-252-276-294-312-342 lykkjur (nú er pláss fyrir 40-42-46-49-52-57 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjur). Ör-3: Aukið út 8-8-12-18-20-18 lykkjur jafnt yfir = 248-260-288-312-332-360 lykkjur. Prjónið sléttprjón án útaukninga með litnum grár þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki við háls. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 48-50-56-62-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir næstu 76-80-88-94-104-114 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-50-56-62-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið sléttprjón yfir síðustu 76-80-88-94-104-114 lykkjur (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-176-192-208-232-252 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 3-4-4-5-6-6 lykkjur í umferð, þ.e.a.s. mitt í 6-8-8-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru mitt undir ermi (= í hlið á fram- og bakstykki). Prjónið sléttprjón fram að prjónamerki. Umferðin byrjar nú við þetta prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 24 cm frá skiptingu í öllum stærðum. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru lykkjur auknar út eins og útskýrt er að neðan til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragi ekki stykkið saman. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 28-31-33-38-41-45 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-2 = 192-207-225-246-273-297 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-50-56-62-62-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-8-8-10-12-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum grár. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6-5-3½-2½-2-2 cm millibili alls 6-7-9-12-12-13 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 35-34-33-31-30-28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-10-11-12-10-11 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-2 = 51-54-57-60-60-63 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 45-44-43-41-40-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður efstu ca 6-6-6-7-7-7 cm af stroffi í hálsmáli að innanverðu á stykki (niður að prjónamerki sem var sett í stykkið). Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsi dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #atlanterhavsveiensweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.