DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Lima yarn
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 539.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3773.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Diamond Sky

Prjónað vesti / slipover úr DROPS Lima eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað með köðlum, áferðamynstri, tvöföldum kanti í hálsmáli og tvöföldum köntum í handvegi. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 228-8

#diamondskyslipover

DROPS Design: Mynstur li-140
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-350-400-450-500-500 g litur 9020, perlugrár

Eða notið:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-400-400-450-500 g litur 05, ljós grár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 539.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3773.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka í 2 stykkjum. Síðan eru stykkin sett saman með því að sauma saman axlasauma og hliðarsauma. Að lokum eru kantar í handvegi prjónaðir í hring á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 104-115-126-137-148-159 lykkjur (meðtaldar 2 kantlykkjur í hvorri hlið) á hringprjón 4 með DROPS Lima eða DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið síðan mynstur þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir næstu 99-110-121-132-143-154 lykkjur (= 9-10-11-12-13-14 mynstureiningar með 11 lykkjur), prjónið fyrstu lykkju í A.1, 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.1 hefur verið prjónað til loka 5 sinnum á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA.
Prjónið næstu umferð þannig:
Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið A.2 yfir hverja mynstureiningu A.1 (fækkað er um 1 lykkju í hverri mynstureiningu A.2 = 9-10-11-12-13-14 lykkjur færri), prjónið næstu 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri), fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar (= kantlykkja). Snúið og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar (= 1 kantlykkja garðaprjón) = 94-104-114-124-134-144 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 15 cm.
Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, A.3 yfir næstu 10 lykkjur, A.4 yfir næstu 80-90-100-110-120-130 lykkjur (= 8-9-10-11-12-13 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið 1 lykkju sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka. Í 9. umferð í A.4 er prjónuð 1 lykkja slétt þegar síðasta mynstureiningin hefur verið prjónuð til loka.
Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, fellið af 6-6-9-9-12-12 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum. Síðan eru lykkjur felldar af í hvorri hlið (lykkjur eru felldar af í byrjun á umferð) þannig:
Fellið af 2 lykkju í annarri hverri umferð 1-2-2-2-2-2 sinnum, fellið síðan af 1 lykkju í annarri hverri umferð 1-1-1-3-3-5 sinnum og að lokum 1 lykkju í 4. hverri umferð 4-5-5-6-5-5 sinnum = 68-72-76-80-86-92 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm.
Fellið nú af miðju 32-32-34-34-36-36 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 17-19-20-22-24-27 lykkjur eftir á hvorri öxl. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 43-45-46-48-49-51 cm. Setjið nú miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjur á þráð og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 17-19-20-22-24-27 lykkjur eftir fyrir öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður þar sem fitjuð var upp 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið (= ca 15 cm fyrir klauf).

TVÖFALDUR KANTUR Í HANDVEG:
Byrjið mitt undir ermi í hliðarsaumi og prjónið upp frá réttu ca 136 til 162 lykkjur í kringum handveg með hringprjón 3 og DROPS Lima eða DROPS Merino Extra Fine. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2.
Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af – sjá AFFELLING.
Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt.

Brjótið niður stroffið í kringum handveg að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í handvegi. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu ca 100 til 116 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) innan við 1 kantlykkju í kringum kant í hálsmáli á hringprjón 3 með DROPS Lima eða DROPS Merino Extra Fine. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10 cm. Aukið nú út um 1 lykkju brugðið í ca annarri hverri mynstureiningu með brugðnum lykkjum.
Prjónið áfram með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þar til kantur í hálsmáli mælist 14 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – mikilvægt er að kanturinn í hálsmáli verði ekki stífur – munið eftir AFFELLING.
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsi. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
hér er engin lykkja. Farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu = hér er engin lykkja. Farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
2 lykkjur brugðið saman = 2 lykkjur brugðið saman
Diagram for DROPS 228-8
Diagram for DROPS 228-8

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (88)

country flag Marleen Buckens skrifaði:

In het patroon staat meerder 1 steek in elk ander deel . Hoe doe je dat wand ik begrijp dat niet

05.08.2023 - 00:34

DROPS Design svaraði:

Dag Marleen,

Je bent boordsteek aan het breien in 1 recht, 1 averecht en als je meerdert, meerder je bij de ene averecht wel en de andere averecht niet. De boordsteek ziet er dan zo uit: 1 recht, 1 averecht, 1 recht, 2 averecht.

05.08.2023 - 07:30

country flag Brigitte Zweil skrifaði:

Wie genau kann ich eine Anleitung auf dem Handy abspeichern? Diamond Sky pullunder

01.07.2023 - 11:21

DROPS Design svaraði:

Siehe unten :)

03.07.2023 - 09:58

country flag Brigitte Zweil skrifaði:

Wie genau kann ich eine Anleitung auf dem Handy abspeichern?

01.07.2023 - 11:20

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Zweil, unsere Anleitungen können nur gedruckt werden, aber wenn Sie einen virtuellen Drucker benutzen, dann können Sie die Anleitung als .PDF speichern (schauen Sie mal je nach Ihrem Handy, wie es bei Ihnen geht). Viel Spaß beim stricken!

03.07.2023 - 09:58

country flag Abonyi Krisztina skrifaði:

Az A4-es minta mikor lép be?Nem derült ki a mintaleírásból!

03.05.2023 - 16:16

country flag Stine skrifaði:

Jeg er kommet til punket “videre lukkes der af i hver side ...” Jeg strikker en S og har virkelig svært ved at forstå hvordan jeg skal tage ind. Der står at jeg skal tage ind i begge sider men kun i starten af pinden og noget med hver anden/fjerde pind. Kan du forklare hvordan jeg skal tage ind i starten af hver anden pind i begge sider?

18.04.2023 - 15:47

DROPS Design svaraði:

Hei Stine. Jo, når arbeidet måler 24 cm skal du på neste pinne fra retten starte med å felle av 6 masker (= 1.ermhull), strikk pinnen ut som før, snu arbeidet og nå feller du 6 nye masker fra vrangen (= 2. ermhull). Strikk pinnen ut, du har nå felt 6 masker i hver side og du har nå strikket 2 pinner, snu. Gjenta dette 1 gang til, men da feller du bare 2 masker i hver side. Strikk deretter 2 pinner uten å felle. Så feller du 1 maske i hver side (= 2 pinner) og så strikker du 2 pinner uten å felle. Så feller du 1 maske i hver side (= 2 pinner), men nå feller du bare på hver 4. pinne og dette gjør du 4 ganger = 68 masker. mvh DROPS Design

24.04.2023 - 10:10

country flag Stine skrifaði:

Hej, hvordan skal "... strik A.2 over hver rapport A.1 (der tages 1 maske ind i hver rapport A.2 = 9-10-11-12-13-14 masker taget ind)" forståes? Og hvad er en rapport?

23.02.2023 - 14:58

DROPS Design svaraði:

Hej Stine, rapporten i A.1 består af de 11 masker du ser i diagrammet, denne rapport skal gentages. Sæt gerne et mærke imellem hver rapport så du er sikker på at du starter forfra ifølge diagrammet :)

28.02.2023 - 15:37

country flag Tina skrifaði:

Hei! Jeg er nå ved forstykket hvor det skal felles av 3m 1 gang osv fra halsen. Det jeg lurer på er hvordan det er ment at jeg skal felle av? Er det tre masker sammen rett/vrang eller er dette felle av ved å "strikke 1, strikk 1 til, dra den første over den andre"? For hvis det er det å dra en maske over en annen så lurer jeg på om det er meningen at jeg skal klippe tråden for hver rad, siden på den siste masken skal jo tråden ofte klippes?

22.02.2023 - 22:45

DROPS Design svaraði:

Hei Tina. Det felles av masker på hver pinne FRA halsen slik (ikke på hver pinne). Du feller av 3 masker, som vanlig avfelling (strikke 1, strikk 1 til, dra den første over den andre), strikk pinnen ut, snu og strikk tilbake mot halsen, snu og fell 2 masker som vanlig avfelling, strikk pinnen ut, snu, osv. På den ene skulderen felles det fra retten og på den andre skulderen fra vrangen. mvh DROPS Design

28.02.2023 - 20:02

country flag Jenny Cyr skrifaði:

Je voudrais voir une explication pour ceci: Quand l'ouvrage mesure 24 cm, rabattre 6 mailles pour les emmanchures au début des 2 rangs suivants. Rabattre ensuite de chaque côté (rabattre en début de rang), ainsi: Rabattre 1 fois 2 mailles tous les 2 rangs, puis 1 fois 1 maille tous les 2 rangs et enfin 4 fois 1 maille tous les 4 rangs = 68 mailles De 80 m. Pour passer à 68 c’est 12 mailles ??

19.02.2023 - 01:30

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Cyr, en taille S on doit avoir 94 mailles, pas 80 mailles, et on va rabattre de chaque côté: 1 x 6 m + 2 x 1 m + 1 mx 1 m + 4 x 1 m soit 13 m de chaque côté, 26 m au total, il restera ainsi 94-26=68 mailles. Bon tricot!

20.02.2023 - 09:54

country flag Stine skrifaði:

Hej! Hvordan ved man hvilken størrelse man skal strikke? Synes ikke jeg kan se nogle mål.

16.02.2023 - 17:56

DROPS Design svaraði:

Hej Stine, du finder måleskitsen nederst i opskriften, lige under diagrammerne :)

23.02.2023 - 14:54

country flag Any skrifaði:

Je ne saisi pas l'explication du col à partir de : "Augmenter maintenant 1 maille envers dans environ une section en mailles envers sur deux. Tricoter ensuite les mailles endroit à l'endroit et les mailles envers à l'envers jusqu'à ce que col mesure 14 cm." Merci pour votre retour

09.02.2023 - 22:20

DROPS Design svaraði:

Bonjour Amy, vous tricotez en côtes 1 m end/1 m env et allez augmentez ainsi: *1 m end, 1 m env, 1 m end, 1 m env, augmenter 1 m env*, répétez de *-* ; au tour suivant, vous tricoterez les côtes ainsi: *1 m end, 1 m env, 1 m end, 2 m env*. Bon tricot!

10.02.2023 - 09:28