Edith skrifaði:
Nirgendwo ist vom Stilllegen von Maschen die Rede, aber bei der Halskrause sollen stillgelegte Maschen inkludiert werden. Das verwirrt? Vom Muster her ein Pulli, der auch anfängertauglich ist, nicht aber von der Anleitung her:(
11.12.2021 - 14:11DROPS Design svaraði:
Liebe Edit, beim Vorderteil werden die mittleren Maschen für den Halsausschnitt stillgelegt (Zitat): In der nächsten Hin-Reihe die mittleren 18-18-18-18-20-20 Maschen für den Halsausschnitt stilllegen.. Viel Spaß beim stricken!
13.12.2021 - 09:11
Edith skrifaði:
Bonjour, Je suis en train de tricoter ce modèle en taille XL. J'ai une question : On me demande de monter 129m et le schéma indique 59 cm. Mais la règle de 3 dit 80 cm. J'ai maintenant des doutes sur la taille. J'ai bien fait un échantillon. Merci.
07.12.2021 - 09:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Edith, l'echantillon concerne le point jersey, il ne s'applique pas aux côtes (A.1). Bon tricot!
07.12.2021 - 11:00
Rfshep skrifaði:
Dear Garnstudio, Where it says 'Decrease 1 stitch on each side of the piece, every row from the right side a total of 2-3-3-4-5-8' Does this mean decreases should only be done on the right side of the knitting? and not on the wrong side? All the best :)
22.11.2021 - 13:42DROPS Design svaraði:
Dear Rfshep, these decreases are worked on every right side row as explained under DECREASE TIP-2 - ie *work 1 row from RS decreasing 2 sts, 1 row from WS without decreasing*, work these 2 rows a total of 2-3-3-4-5-8 times. Happy knitting!
22.11.2021 - 16:19
Ana Cecilia Ramirez Moreno skrifaði:
Veldig fin å strikke. Jeg er 1,76 og burde ja strikket lenger på bolen og ermene. Har di tips om dette kam gjøres?
03.11.2021 - 11:07
Maria Luisa Garofalo skrifaði:
Ho fatto tanti maglioni prendendo spunto dai vostri modelli. le spiegazioni sono esaurienti, gli schemi fatti molto bene e i modelli sono molto belli. grazie
13.10.2021 - 18:42
Christine Gros skrifaði:
Comment trouver le nombre de pelote par rapport à la taille du pull? Cordialement Mme Gros
01.10.2021 - 15:13DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Gros, la quantité requise pour chaque taille se trouve sous l'en-tête, et est toujours indiquée au poids, autrement dit, en S il faut par ex 600 g DROPS Nepal/50 g = 12 pelotes, ou 650 g DROPS Alaska/50 g la pelote = 13 pelotes. Bon tricot!
01.10.2021 - 16:17
Stone Fences#stonefencessweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Stykkið er prjónað með köntum í stroffprjóni og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-24 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 109 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 27) = 3,96. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna 3. og 4. hverja lykkju slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur. ÚRTAKA-2 (á við um handveg og hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN Á UMFERÐ ÞANNIG: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ÚTAUKNING (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og sett saman eins og útskýrt er í uppskrift. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 101-109-117-129-143-155 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4,5 með DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1, þannig að stroffið byrjar og endar alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 25-27-29-33-37-39 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 76-82-88-96-106-116 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 3-3-5-6-8-8 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 70-76-78-84-90-100 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum fyrir handveg þannig: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin á stykki í hverri umferð frá réttu alls 2-3-3-4-5-8 sinnum – sjá ÚRTAKA-2 = 66-70-72-76-80-84 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 30-30-32-32-34-34 lykkjur fyrir hálsmáli (= 18-20-20-22-23-25 lykkjur á hvorri öxl). Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er fækkað um 1 lykkju = 17-19-19-21-22-24 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm. Í næstu umferð frá réttu eru miðju 18-18-18-18-20-20 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. HÆGRI ÖXL: Haldið áfram fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá réttu alls 7-7-8-8-8-8 sinnum – munið eftir ÚRTAKA-2 = 17-19-19-21-22-24 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af. VINSTRI ÖXL: Haldið áfram fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá réttu alls 7-7-8-8-8-8 sinnum = 17-19-19-21-22-24 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af. ERMI: Fitjið upp 64-66-68-72-74-74 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4,5 með DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 12 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 18-18-18-20-20-20 lykkjur jafnt yfir = 46-48-50-52-54-54 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 14 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 10-7½-5½-5½-4-3 cm millibili alls 4-5-6-6-7-9 sinnum = 54-58-62-64-68-72 lykkjur. Þegar ermin mælist 46-46-44-44-42-40 cm, fellið af lykkjur fyrir ermakúpu í hvorri hlið þannig: Fellið af 3-3-5-6-8-8 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum, fellið síðan af 1 lykkju í hvorri hlið þar til ermin mælist 51 cm. Fellið síðan af 3 lykkjur í hvorri hlið 1 sinni. Fellið af – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 52 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermi. Saumið sauma undir ermi og síðan niður yfir fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu, efst á öxl og prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 4,5 með DROPS Nepal eða DROPS Alaska þannig: Prjónið upp ca 98 til 114 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) innan við 1 kantlykkju. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið A.1 hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 15 cm – munið eftir AFFELLING! Brjótið niður stroffið efst í hálsi að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það kanturinn í hálsmáli verði ca 7 cm. Saumið stroffið þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #stonefencessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.