DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8448.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Stone Fences Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Stykkið er prjónað með köntum í stroffprjóni og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 228-23
DROPS Design: Mynstur ne-355
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
600-700-750-800-900-1000 g litur 0500, ljós grár

Eða notið:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
650-750-800-850-950-1050 g litur 63, perlugrár

DROPS TALA, Marble NR 630: 5-5-6-6-6-6 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8448.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 109 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 27) = 3,96.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna 3. og 4. hverja lykkju slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur.

ÚRTAKA-2 (á við um handveg og hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN Á UMFERÐ ÞANNIG: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og sett saman eins og útskýrt er í uppskrift.
Í lokin er prjónaður kantur að framan og kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 101-109-117-129-143-155 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4,5 með DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1, þannig að stroffið byrjar og endar alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 25-27-29-33-37-39 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 76-82-88-96-106-116 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 3-3-5-6-8-8 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 70-76-78-84-90-100 lykkjur.
Fækkið síðan lykkjum fyrir handveg þannig:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin á stykki í hverri umferð frá réttu alls 2-3-3-4-5-8 sinnum – sjá ÚRTAKA-2 = 66-70-72-76-80-84 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 30-30-32-32-34-34 lykkjur fyrir hálsmáli (= 18-20-20-22-23-25 lykkjur á hvorri öxl).
Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er fækkað um 1 lykkju
= 17-19-19-21-22-24 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 50-54-58-64-72-78 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4,5 með DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
1 kantlykkja í garðaprjón, A.1 þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 11-12-13-15-18-19 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 39-42-45-49-54-59 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 3-3-5-6-8-8 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá röngu fyrir handveg = 36-39-40-43-46-51 lykkjur.
Fækkið síðan lykkjum fyrir handveg þannig:
Fækkið um 1 lykkju í lok hverrar umferðar frá réttu alls 2-3-3-4-5-8 sinnum = 34-36-37-39-41-43 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm, prjónið fyrstu 10-10-10-10-11-11 lykkjur frá réttu áður en þær eru settar á þráð fyrir hálsmáli, prjónið út umferðina.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur í byrjun hverrar umferðar frá réttu alls 7-7-8-8-8-8 sinnum = 17-19-19-21-22-24 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 50-54-58-64-72-78 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4,5 með DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
1 kantlykkja í garðaprjón, 1 lykkja brugðið, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 11-12-13-15-18-19 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 39-42-45-49-54-59 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 3-3-5-6-8-8 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá réttu fyrir handveg = 36-39-40-43-46-51 lykkjur.
Fækkið síðan lykkjum fyrir handveg þannig:
Fækkið um 1 lykkju í byrjun hverrar umferðar frá réttu alls 2-3-3-4-5-8 sinnum = 34-36-37-39-41-43 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm, prjónið fyrstu 10-10-10-10-11-11 lykkjur frá röngu áður en þær eru settar á þráð fyrir hálsmáli, prjónið út umferðina.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu alls 7-7-8-8-8-8 sinnum = 17-19-19-21-22-24 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af.

ERMI:
Fitjið upp 64-66-68-72-74-74 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4,5 með DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 12 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 18-18-18-20-20-20 lykkjur jafnt yfir = 46-48-50-52-54-54 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 14 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 10-7½-5½-5½-4-3 cm millibili alls 4-5-6-6-7-9 sinnum = 54-58-62-64-68-72 lykkjur.
Þegar ermin mælist 46-46-44-44-42-40 cm, fellið af lykkjur fyrir ermakúpu í hvorri hlið þannig:
Fellið af 3-3-5-6-8-8 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum, fellið síðan af 1 lykkju í hvorri hlið þar til ermin mælist 51 cm. Fellið síðan af 3 lykkjur í hvorri hlið 1 sinni.
Fellið af – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 52 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori.
Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermi.
Saumið sauma undir ermi og síðan niður yfir fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki og prjónið upp ca 91 til 107 lykkjur innan við 1 kantlykkju með hringprjón 4,5 og DROPS Nepal eða DROPS Alaska.
Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1.
Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Prjónið síðan A.1 með 1 kantlykkju garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stroffið mælist 2½ cm, fellið af fyrir 5-5-6-6-6-6 hnappagötum.
Neðsta hnappagatið á að vera ca 3 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið ½ cm frá þar sem kraginn var prjónaður upp. Þau 3-3-4-4-4-4 hnappagöt sem eftir er staðsett jafnt yfir með ca 8 till 10 cm millibili.
1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Haldið áfram fram og til baka í stroffprjóni þar til stykkið mælist 4½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið frá réttu efst á vinstra framstykki og prjónið upp jafn margar lykkjur og á hægri kanti að framan innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni niður yfir vinstra framstykki með hringprjón 4,5 og DROPS Nepal eða DROPS Alaska.
Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Prjónið síðan A.1 með 1 kantlykkju garðaprjóni í hvorri hlið. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 4½ cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu, yst í hægri kanti að framan og prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 4,5 með DROPS Nepal eða DROPS Alaska þannig: Prjónið upp ca 107 til 125 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1.
Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Prjónið síðan A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 15 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING!
Brjótið niður stroffið efst í hálsi að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það kanturinn í hálsmáli verði ca 7 cm. Saumið stroffið þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan á kanti að framan með smáu spori.

Mynstur

symbols = snúin lykkja slétt frá réttu, snúin lykkja brugðið frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Marianne S Rokke wrote:

Hei. Har strikket denne jakken i Nepal str.L, og den er en storfavoritt!! Har veldig lyst til å strikke den i et tynnere garn, strikkefasthet 26-27m x 10 cm. Hvordan skal jeg isåfall beregne garnmengde, og hvilken str. bør jeg endre til mtp.maskeantall? Mvh, Marianne S. Røkke

13.03.2024 - 22:49

DROPS Design answered:

Hej Marianne, Da kan du følge denne opskrift: Jakke - 24 m

19.03.2024 - 11:41

country flag Katelijne Lesieur wrote:

Zou het kunnen dat er bij patroon nr ne-355 een foutje staat in de beschrijving? Bij rechtervoorpand staat aan 37 cm hoogte kant 3 st af ah begin vd volgende naald ad verkeerde kant vr het armsgat en daarna minder 1 steek ah einde van elke nld ad VERKEERDE kant . Ik denk dat dit de goede kant moet zijn anders zit je langs de halskant . Vr linkervoorpand net andersom .

26.01.2024 - 09:58

country flag Virginie wrote:

Bonjour. J'aimerai avoir une petite précision. Lorsque les explications disent : monter 101 mailles (y compris une maille lisière de chaque côté), est ce que les mailles lisières sont comprises dans les 101 mailles ? Ou est ce que je dois les monter en plus et donc avoir 103 mailles ? Merci pour votre réponse.

14.01.2024 - 23:03

DROPS Design answered:

Bonjour Virginie, les mailles lisières sont comprises dans le nombre de mailles à monter, vous n'avez pas besoin de les ajouter, montez simplement 101 mailles. Bon tricot!

15.01.2024 - 10:02

country flag Elly wrote:

Sorry, gevonden.

12.10.2023 - 19:21

country flag Elly wrote:

Hallo, waar vind ik telpatroon A1?

12.10.2023 - 17:31

DROPS Design answered:

Dag Elly,

Deze staat (een beetje verstopt) naast de maattekening, onder de mouw van de maattekening.

15.10.2023 - 17:11

country flag Anna wrote:

Ich benötige die Anzahl der Maschen der Original-Anleitung der Größe XL, die am Schluss an der Schulter abgekettet werden. Ich hatte lediglich versucht mir es selbst zu errechnen, da diese Angabe fehlt.

05.10.2023 - 12:42

DROPS Design answered:

Liebe Anna, wie früher erklärt, diese Angaben geben wir eher nicht, da die Länge wichtiger als die Maschenanzahl ist, das sollen Sie selber mit Ihrer eigenen Maschenprobe kalkulieren. Viel Spaß beim stricken!

06.10.2023 - 08:46

country flag Anna wrote:

Liebes Drops-Team, Ich glaube Sie haben mich falsch verstanden. Ich benötige lediglich die Anzahl der Maschen, die ganz zuletzt abgenommen werden. Also ob beim letzten Abketten 24 Maschen angekettet werden. Sonst nichts.

05.10.2023 - 12:34

DROPS Design answered:

Liebe Anna, diese Maschenanzahl hängt an Ihrer Maschenprobe an, je nach der Reihenanzahl, die man braucht bis die Ärmel 51 cm misst, so sollen Sie das zuerst in diese Richtung (mit Ihrer eigenen Maschenprobe) kalkulieren, so können Sie die Ärmel verkehrs stricken. Gerne kann Ihnen damit Ihr DROPS Laden weiterhelfen (auch per Telefon oder per E-Mail). Viel Spaß beim stricken!

06.10.2023 - 08:45

country flag Anna wrote:

Liebes Drops-Team, könnten Sie mir denn verraten, wie ich an die Angaben der restlichen Maschen kommen kann? Oder muss ich weiterhin mühsam rechnen und hoffen, dass es richtig ist? Ich bin dann immer ziemlich unsicher. Wenn ich wenigstens 1x wüßte, dass meine Rechnung richtig ist, könnte ich sie auch auf andere Modelle beruhigt anwenden.\r\nGibt es keine Angabe in Ihrer Original-Anleitung? Vielen Dank für Ihre Mühe.

04.10.2023 - 08:05

DROPS Design answered:

Liebe Anna, die Angaben in der Originalanleitung werden von unten nach oben gestrickt und mit den Maßnahmen in cm nicht in Maschen/Reihen, da die Höhe wichtiger als die Maschenanzahl ist. Aber gerne fragen Sie Ihr Wollladen, wo Sie die Wolle gekauft haben, dort wird man Ihnen gerne weiterhelfen, auch per Telefon oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!

04.10.2023 - 08:25

country flag Anna wrote:

Hallo, ich wollte ja auch nicht, dass man mir etwas umrechnet, denn es ist ja eine angegebene Größe. Mir fehlte ja nur die Angabe der restlich abzukettenden Maschen. Viele Grüße

03.10.2023 - 16:49

country flag Anna wrote:

Also müsste ich mit 24M oben an der Schulter beginnen. Habe ich richtig gerechnet? Kommt das mit Ihrem Modell hin?

29.09.2023 - 13:16

DROPS Design answered:

Liebe Anna, es kann ja so sein, wie Sie es umgerechnet haben, leider können wir nicht jede Anleitung nach jedem Wunsch umrechnen, aber Ihr Math sehen richtig aus. Viel Spar beim stricken!

02.10.2023 - 08:49