Corradini Nicoletta skrifaði:
Buona sera sto esegundo il modello Drop design Diamont Fire non riesco a capire dove metto i segna puntiper gli aumenti della manica: spostare ogni segnapunti in modo che sia tra tre maglie indicate dalle frecce in A1 grazie , integrazione alla precedente saluti
28.02.2025 - 18:57DROPS Design svaraði:
Buongiorno Nicoletta, abbiamo modificato la spiegazione: deve inserire i 2 segnapunti tra le 2 maglie indicate dalle frecce in A.1. Buon lavoro!
08.03.2025 - 11:27
Corradini Nicoletta skrifaði:
Buona sera sto esegundo il modello Drop design Diamont Fire non riesco a capire dove metto i segna puntiper gli aumenti della manica: spostare ogni segnapunti in modo che sia tra tre maglie
28.02.2025 - 18:55DROPS Design svaraði:
Buongiorno Nicoletta, abbiamo modificato la spiegazione: deve inserire i 2 segnapunti tra le 2 maglie indicate dalle frecce in A.1. Buon lavoro!
08.03.2025 - 11:27
Marie-Christine BARBE-LEZE skrifaði:
Bonjour, pour le modèle diamond fire, j'en suis aux augmentations empiècement. vous dites de décaler les marqueurs au milieu de A 2 et A 3, estce que je continue le motif et est ce que les marqueurs ne gênent pas pour effectuer le motif. Merci d'avance Marie-christine Barbe
18.02.2025 - 10:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Barbe-Leze, tout à fait, vous continuez les torsades A.2 et A.3 comme avant, mais maintenant vous augmentez de chaque côté de chaque A.2/A.3 ainsi: tricotez jusqu'à ce qu'il reste 4 mailles avant le marqueur, augmentez 1 maille, tricotez A.2/A.3 (le marqueur est au milieu de ces 8 mailles) et augmentez 1 maille. Bon tricot!
18.02.2025 - 17:10
Snjezana skrifaði:
Hej! Jag undrar om ni har bra tips eller video om hur man stickar kantmaskor på framstycke och bakstycke efter fördelning så att det blir fint? Tack på förhand.
09.02.2025 - 22:27DROPS Design svaraði:
Hej, vi strikker kantmaskerne i retstrik (ret både fra retsiden og fra vrangen) :)
12.02.2025 - 14:52
Deni skrifaði:
Hi,I'm knitting size L and stopped at increasing to yoke.I've moved markers as said but don't understand this section"increase 1 stitch when 4 stitches remain before each marker and increase 1 stitch 4 stitches after each marker". Thank you.
16.12.2024 - 09:08DROPS Design svaraði:
Hi Deni, This means you work until there are 4 stitches left before the marker, increase 1 stitch according to Increase tip-2 in explanations, then work to 4 stitches after the marker and again increase 1 stitch according to Increase tip-2. Repeat this process at all 4 markers. Hope this helps and Happy Christmas!
19.12.2024 - 07:12
Deni skrifaði:
Hi,can you explain the part in sleeves increase where it says(A4B) place 2 sts on cable needle,knit one,knit the left stitch on the cable needle(the stitch needs to be worked at the back of the piece).how do I do that?
09.12.2024 - 10:18DROPS Design svaraði:
Dear Deni, you can see how to work this symbol, to cross the cables, in the following video: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1741&lang=en. Happy knitting!
15.12.2024 - 13:53
Inger F Edvardsen skrifaði:
Strikker denne nå og har et spørsmål om kapittel Ermeøkning. Der står det ved to anledninger : strikk 1-4-1-4-1-4 masker glattstrikk, A.4A Hva betyr dette? Leser og leser men forstår dette ikke skal begynne på ermøkningen nå så da kommer jeg ikke lengre.
03.12.2024 - 17:22DROPS Design svaraði:
Hej Inger, hvis du strikker den mindste størrelse, så strikker du 1 maske glatstrik og så A.4. Hvis du vælger størrelse øverst i opskriften, så vil den være markeret igennem hele opskriften :)
06.12.2024 - 14:13
Britt skrifaði:
Tak, det hjalp at skifte til bambuspinde
02.12.2024 - 14:15
Britt Green skrifaði:
Jeg kan ikke få strikkefastheden i højden til at passe. Hverken på pind 3, 3,25 eller 3,5. Jeg får kun 8 cm i højden på pind 3, og kan lige komme op på 9 cm med pind 3,5. Jeg strikker i drops baby merino
29.11.2024 - 22:42DROPS Design svaraði:
Hei Britt. Prøv å bytte kvaliteten på pinner (f.eks tre eller bambus). Noen opplever å få en annen strikkefasthet med ulike typer materialer, kanskje det kan hjelpe deg. mvh DROPS Design
02.12.2024 - 09:20
Solveig skrifaði:
Hej! Fin tröja, funderar på att sticka denna. Tycker dock att passformen framtill under halskanten ser konstig ut, det bylsar och ligger inte slätt. Kan det kanske hjälpa att sticka en förhöjning bak? Är tröjan på bilden stickad i alpaca eller baby merino?
23.11.2024 - 18:24DROPS Design svaraði:
Hej Solveig, den er strikket i DROPS Alpaca. Denne model er med sadelskulder som giver den form du ser på billedet, forhøjning bagpå gør ingen forskel.
27.11.2024 - 12:04
Diamond Fire#diamondfiresweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca eða DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, axlarsæti, klauf í hliðum og köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-6 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 26) = 4,6. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður að klauf. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig að loka máli. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið laust upp 120-124-130-134-138-146 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Alpaca eða DROPS Baby Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 2,5. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 9 cm. Síðar á að brjóta kantinn saman tvöfaldan og við frágang þá verður kanturinn ca 4 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 26-26-24-24-24-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 146-150-154-158-162-166 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti. Fyrsta prjónamerki: Setjið fyrsta prjónamerki á undan fyrstu lykkju í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi). Síðan er byrjun á umferð alltaf við fyrsta prjónamerki. Annað prjónamerki: Teljið 30-30-30-34-34-34 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 43-45-47-45-47-49 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 30-30-30-34-34-34 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 43-45-47-45-47-49 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Prjónið nú mynstur jafnframt því sem lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti eins og útskýrt er að neðan. Lestu allan kaflann áður en þú byrjar að prjóna! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! FYRSTA UMFERÐIN ER PRJÓNUÐ ÞANNIG: Prjónið A.1 yfir axlalykkjurnar fram að 2. prjónamerki (= 30-30-30-34-34-34 lykkjur), aukið út á EFTIR 2. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2, prjónið sléttprjón yfir framstykki fram að 3. prjónamerki, aukið út á UNDAN 3. prjónamerki, prjónið A.1 yfir axlalykkjur fram að 4. prjónamerki (= 30-30-30-34-34-34 lykkjur), aukið út á EFTIR 4. prjónamerki, prjónið sléttprjón yfir bakstykki fram að fyrsta prjónamerki, aukið út á UNDAN 1. prjónamerki. Nú hafa verið auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti – lykkjur hafa verið auknar út á framstykki og á bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 24-26-28-32-34-36 sinnum = 242-254-266-286-298-310 lykkjur. Nú eru 91-97-103-109-115-121 lykkjur á framstykki / bakstykki og 30-30-30-34-34-34 lykkjur á hvorri öxl. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 8-8-9-10-11-11 cm eftir kant í hálsmáli. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Færið hvert prjónamerki þannig að þessi 4 prjónamerki sitji nú á milli 2 lykkja þar sem ör í A.1 sýnir (= 2 prjónamerki á hvorri öxl). Að auki er sett 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Þetta prjónamerki er ný merking fyrir byrjun á umferð, þar sem fyrsta prjónamerkið hefur verið fært til. FYRSTA UMFERÐ ER PRJÓNUÐ ÞANNIG: Prjónið A.2 (= 8 lykkjur – A.2 heldur áfram beint yfir kaðal í A.1), aukið út á EFTIR 1. prjónamerki, prjónið sléttprjón fram að 2. prjónamerki, aukið út á UNDAN 2. prjónamerki, prjónið A.3 (= 8 lykkjur – A.3 heldur áfram beint yfir kaðal í A.1), prjónið 1-4-1-4-1-4 lykkjur sléttprjón, A.4A (= 9 lykkjur), prjónið A.4B yfir næstu 72-72-84-84-96-96 lykkjur (= 6-6-7-7-8-8 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið A.4C (= 8 lykkjur), 1-4-1-4-1-4 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 8 lykkjur – A.2 heldur áfram beint fyrir kaðal í A.1), aukið út á EFTIR 3. prjónamerki, prjónið sléttprjón fram að 4. prjónamerki, aukið út á UNDAN 4. prjónamerki, prjónið A.3 (= 8 lykkjur – A.3 heldur áfram beint yfir kaðal í A.1), 1-4-1-4-1-4 lykkjur sléttprjón, A.4A (= 9 lykkjur), A.4B yfir næstu 72-72-84-84-96-96 lykkjur (= 6-6-7-7-8-8 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.4C (= 8 lykkjur) og endið með 1-4-1-4-1-4 lykkjur sléttprjón. Nú hafa verið auknar út 4 lykkjur fyrir ermar. Þ.e.a.s. einungis er aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður áfram eins. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 9-8-9-6-11-6 sinnum = 278-286-302-310-342-334 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 10-11-12-12-14-13 cm frá eftir kant í hálsmáli. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjunum sitja mitt í A.2 og A.3 Í næstu umferð aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út alveg eins og áður, en nú er aukið út nákvæmlega á undan og á eftir A.2 og A.3 (þ.e.a.s. það er aukið út þegar 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki og þegar prjónaðar hafa verið 4 lykkjur á eftir prjónamerki). Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 9-12-14-18-18-23 sinnum = 350-382-414-454-486-518 lykkjur. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar, mælist stykkið ca 16-18-20-23-25-28 cm frá kanti í hálsmáli. Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 20-22-24-25-27-29 cm frá eftir kanti í hálsi – JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 8 lykkjur í umferð með því að fækka um 2 lykkjur í hverju A.2/A.3 (prjónið 4 lykkjur í sjálfum kaðlinum slétt saman 2 og 2) = 342-374-406-446-478-510 lykkjur í umferð. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 3-4-5-6-3-5 lykkjur á undan A.2 í byrjun á umferð, setjið næstu 68-74-82-90-94-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu 103-113-121-133-145-157 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 68-74-82-90-94-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og haldið áfram með mynstur eins og áður yfir síðustu 103-113-121-133-145-157 lykkjurnar (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 222-242-262-286-314-338 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum = 111-121-131-143-157-169 lykkjur á milli prjónamerkja. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkin eru notuð þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: 11-16-15-21-22-28 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.4 eins og áður yfir næstu 89-89-101-101-113-113 lykkjur, 22-32-30-42-44-56 lykkjur sléttprjón (prjónamerkin sitja mitt í þessum lykkjum), haldið áfram með A.4 eins og áður yfir næstu 89-89-101-101-113-113 lykkjur, 11-16-15-21-22-28 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með þetta mynstur hringinn þar til A.4 hefur verið prjónað alls 4-4-4-4-4-5 sinnum á hæðina frá þar sem A.4 byrjaði, síðan er fyrsta umferð prjónuð í A.4, þannig að mynstureiningin endar. Stykkið mælist nú ca 33-33-34-35-36-42 cm frá eftir kanti í hálsmáli. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 19 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú skiptist stykkið við prjónamerkin fyrir klauf í hvorri hlið. Haldið eftir fyrstu 111-121-131-143-157-169 lykkjum á prjóni (= framstykki). Setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið framstykki til loka eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: = 111-121-131-143-157-169 lykkjur. Til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman, aukið út lykkjur eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 34-36-40-42-48-50 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 145-157-171-185-205-219 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjón. UMFERÐ 2 (rétta): 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 10 cm. Fellið af frá réttu með garðaprjóni yfir garðaprjón, snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Setjið 111-121-131-143-157-169 lykkjur af þræði / hjálparprjóni á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 34-36-40-42-48-50 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 145-157-171-185-205-219 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 3 kantlykkjur í garðaprjón, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjón. UMFERÐ 2 (rétta): 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 10 cm. Fellið af frá réttu með garðaprjóni yfir garðaprjón, snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! ERMI: Setjið 68-74-82-90-94-98 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-82-92-100-106-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjum undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 1½ cm millibili alls 3-5-8-12-15-18 sinnum og síðan með 4 cm millibili alls 4-4-4-3-2-0 sinnum = 62-64-68-70-72-74 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 36-34-33-33-32-30 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið af með snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 44-42-41-41-40-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #diamondfiresweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.