DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Silver Touch

Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, háum kraga, köntum í stroffprjóni og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.

DROPS 228-44
DROPS Design: Mynstur sk-143
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-350-400-450-500 g litur 02, perlugrár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚTAUKNING:
Allar útaukningar eru gerðar frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir annarri hverri brugðinni einingu. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 168 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 2) = 84.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 84. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 83. og 84. hver lykkja slétt saman.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Hái kraginn og berustykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður, að klauf. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

HÁR KRAGI:
Fitjið upp 108-112-120-124-132-136 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Sky.
Prjónið 1 umferð brugðið. Skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 18 cm, snúið stykkinu þannig að það sem var nú réttan á stykkinu verður rangan á stykkinu. Þetta er gert til að stroffið líti alveg eins út frá réttu þegar það er brotið síðar niður.
Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 24 cm frá uppfitjunarkanti er kraginn tilbúinn.

BERUSTYKKI:
Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT.
Aukið nú aðra hverja 1 lykkju brugðið til 2 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING = 135-140-150-155-165-170 lykkjur. Þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki, aukið út þær 1 lykkja brugðið sem eftir er til 2 lykkjur brugðið = 162-168-180-186-198-204 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 8 cm frá prjónamerki, prjónið mismunandi eftir stærðum þannig:

STÆRÐ XS:
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 158 lykkjur.

STÆRÐ S, M, L, XL og XXL:
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-10-12-18-30 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 170-190-198-216-234 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
Færið prjónamerkin hingað. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT.
Skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm er mynstrið prjónað þannig:
Prjónið 2-0-3-2-3-2 lykkjur slétt, prjónið A.1 þar til eftir eru 1-0-2-1-3-2 lykkjur (= 31-34-37-39-42-46 mynstureiningar með 5 lykkjum), prjónið 1-0-2-1-3-2 lykkjur slétt. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 220-238-264-276-300-326 lykkjur í umferð. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 9-9-10-11-12-13 cm, prjónið mynstur þannig: Prjónið 2-0-3-2-3-2 lykkjur slétt, prjónið A.2 þar til eftir eru 1-0-2-1-3-2 lykkjur (= 31-34-37-39-42-46 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið 1-0-2-1-3-2 lykkjur slétt. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 282-306-338-354-384-418 lykkjur í umferð.
Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 13-13-15-16-18-20 cm.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 40-43-47-50-56-62 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-66-74-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 81-87-95-101-112-125 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-66-74-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 41-44-48-51-56-63 lykkjur (= hálft bakstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 178-194-210-226-248-274 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist ca 19-22-22-23-23-23 cm frá skiptingu. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru eftir ca 7 cm að loka máli.
Nú skiptist stykkið í hvorri hlið þannig að það verða 89-97-105-113-124-137 lykkjur fyrir framstykki og bakstykki. Prjónið síðan hvort stykki til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12-14-16-16-17-20 lykkjur jafnt yfir, en ekki yfir ystu 2 lykkjurnar í hvorri hlið = 101-111-121-129-141-157 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið nú stroff fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin brugðið, 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= rétta): 2 kantlykkjur í garðaprjóni *, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin slétt, 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir snúnar sléttar lykkjur, sléttum lykkjum yfir garðaprjón og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 51-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og bakstykki – munið eftir AFFELLING.

ERMI:
Setjið til baka 60-66-74-76-80-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-12-12-12 nýjum lykkjum undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 4-5-5-6-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið lykkjum undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 3½-2½-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 7-10-13-14-15-16 sinnum = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 30-32-30-30-28-26 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru eftir ca 9 cm að loka máli.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir = 62-64-68-70-72-74 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist alls 39-41-39-39-37-35 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = prjónið 1 lykkju slétt án þess að sleppa lykkjunni af prjóninum, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, en í aftari lykkjubogann. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri)
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Silver Touch

Joe5, France

Silver Touch

Ivana, Czech Republic

Silver Touch

Anna, Italy

Silver Touch

Tihana, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-44

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Lisbeth Rasmussen wrote:

Hvor finder jeg diagrammerne til opskriften?

30.12.2023 - 22:36

DROPS Design answered:

Hej Lisbeth, dem finder du nederst i opskriften, til højre for måleskitsen :)

02.01.2024 - 14:54

country flag Lara wrote:

Buonasera, scusate ma non so come si lavorano le 2 maglie di vivagno a maglia legaccio nel ferro 1 e 2 del dietro /davanti, potete spiegarmelo? Grazie molte!

25.01.2023 - 21:44

DROPS Design answered:

Buonasera Lara, la spiegazione della maglia legaccio è sotto il paragrafo "Tecniche impiegate" e in ogni caso quelle maglie si lavorano sempre a diritto. Buon lavoro!

25.01.2023 - 22:10

country flag Barbara wrote:

Hallo nochmals, das Diagramm ist zu sehen (zum Glück) wenn man die Anleitung ausdruckt, das hilft mir sehr. :-) Grüße aus Wien.

20.10.2022 - 18:34

country flag Barbara wrote:

Hallo, ich habe keine Schnittzeichnung gefunden, würde mir sehr helfen weil ich ein anderes Garn als in der Beschreibung nehme. Danke schön.

20.10.2022 - 18:31

DROPS Design answered:

Liebe Barbara, eine Maßskizze finden Sie nach der schriftlichen Anleitung, zusammen mit den beiden Diagrammen A.1 und A.2 - Hier lesen Sie mehr über Maßskizze. Viel Spaß beim stricken!

21.10.2022 - 08:25

country flag Sonia Gómez wrote:

Donde está el diagrama A. 1 y A. 2?

06.10.2022 - 11:18

DROPS Design answered:

Hola Sonia, los diagramas están bajo la manga en el esquema del jersey.

06.10.2022 - 13:52

country flag Lara wrote:

Buonasera, dopo i 18 cm. del collo dite che bisogna risvoltare il lavoro ma poi si continua così fino alla fine del maglione? non vedo che scrivete di risvoltare nuovamente. Grazie!

07.09.2022 - 16:57

DROPS Design answered:

Buonasera Lara, esatto, deve risvoltare dopo il collo e poi procedere come indicato. Buon lavoro!

08.09.2022 - 21:05

country flag Apple wrote:

Hello! The instructions for the neck says that once you reach 7.5", you should turn your work so that the right side becomes the wrong side. Does this mean that at 7.5" I should swap and begin purling the twisted knit stitches, and using twisted knit on the purl stitches? Or is this referring to something else? Thank you for the help

03.09.2022 - 00:49

DROPS Design answered:

Dear Apple, yes, you need to purl over the twisted knit stitches in the previous row and work twisted knit over the purl stitches. Happy knitting!

04.09.2022 - 22:48

country flag Jean wrote:

Hi, I am knitting the large size and on the yoke it says to increase 12 stitches to total 198 but 12 stitches on top of 180 would be 192. So, how many stitches should I increase at the end of the ribbed yoke please?

16.02.2022 - 13:17

DROPS Design answered:

Dear Jean, size L is the 4th size in this pattern, this measn you cast on 124 sts, increase 31 sts = 155 sts, then increase again 31 sts = 186 sts and now increase 12 sts = 198 sts. Hope it can help. Happy knitting!

16.02.2022 - 13:48

country flag Ping Xu Misfeldt wrote:

Kan det passe at halsdelen måles til 24cm lang. Er det ikke alt for lang? Den længste rullekrave jeg har måles kun 18cm.

09.02.2022 - 22:10

DROPS Design answered:

Hej, Jo men det er de første 18 cm som bukkes ned :)

11.02.2022 - 07:57

country flag Isabella Ottaviani wrote:

Buongiorno. Sono arrivata al punto in cui inizio lo sprone.C,è scritto di aumentare in modo uniforme ogni sezione con 1 maglia a rovescio a 2 maglie a rovescio. Taglia L percio avviate 124 maglie. Significa che ad ogni rovescio devo aumentare una maglia per arrivare a 2 maglie? perchè sono 62 maglie a rovescio e alla fine degli aumnti sarebbero piu di 155 maglie . Avete gia risposto ma anche la risposta non è chiara. grazie

12.01.2022 - 09:14

DROPS Design answered:

Buonasera Isabella, deve aumentare a sezioni alterne (ogni seconda sezione a rovescio), non in tutte le sezioni a rovescio. Buon lavoro!

12.01.2022 - 22:47