Avely skrifaði:
Rustle in leaves
04.08.2021 - 10:00
MARCHAND skrifaði:
J'aime le motif juste à l'encolure et la couleur
04.08.2021 - 09:50
Anita Fjærestrand skrifaði:
Falling leaves
04.08.2021 - 01:17
DOYEN Marie-Line skrifaði:
J'adore ces motifs feuilles ajourées ! le ton est trop beau !
03.08.2021 - 22:58
Sirkka Vuoksenranta skrifaði:
Winds
03.08.2021 - 20:40
Tina W skrifaði:
Herbst Touch - Falla i beröring
03.08.2021 - 19:36
Diamonds skrifaði:
Lovely design, I shall make this one
03.08.2021 - 19:09
HERENS skrifaði:
Couronne
03.08.2021 - 18:03
Crystal Messick skrifaði:
Pineapple Isle Pullover
03.08.2021 - 17:31
Lily Thijssen skrifaði:
I am sorry, it must be, “Autumn Leafs” I forgot the n. 🤷♀️
03.08.2021 - 15:41
Autumn Wreath#autumnwreathsweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og blaðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-1 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 64 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 3,2. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 64-68-72-76-80-84 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Nepal. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið stroff svona í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-28-24-32-28-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 84-96-96-108-108-120 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Prjónið A.1A yfir allar lykkjur (= 7-8-8-9-9-10 mynstureiningar með 12 lykkjum). Haldið áfram með A.1A svona í 4 cm, prjónið síðan A.1B (= 2 umferðir). Nú eru 70-80-80-90-90-100 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú þannig: A.2 yfir lykkjur í A.1 (= 7-8-8-9-9-10 mynstureiningar með 10 lykkjum). Haldið svona áfram hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 196-224-224-252-252-280 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 20 cm frá prjónamerki. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-11-27-27-47-42 lykkjur jafnt yfir = 214-235-251-279-299-322 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 22-22-23-25-27-29 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 30-33-35-39-43-48 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 46-50-54-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 62-69-73-81-89-98 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 46-50-54-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 30-33-35-39-43-48 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 138-151-163-179-199-218 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Prjónið þar til stykkið mælist 20-22-23-23-23-23 cm. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú á að auka út lykkjur til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi ekki stykkið saman. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-26-29-31-35-37 lykkjur jafnt yfir = 162-177-192-210-234-255 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 46-50-54-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 54-58-64-70-74-76 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3½-3-2-1½-1½-1 cm millibili alls 8-9-11-13-15-15 sinnum = 38-40-42-44-44-46 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til ermin mælist 31-30-30-28-26-24 cm. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Nú eru auknar út 4-5-6-7-7-8 lykkjur jafnt yfir = 42-45-48-51-51-54 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist alls 41-40-40-38-36-34 cm frá skiptingu og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnwreathsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.