Galerand skrifaði:
Je pense qu'il y a une petite erreur concernant les augmentations 2 Après le marqueur il faut prendre dans le brin arrière et non dans le brin avant,maille inclinée à gauche, Ceci est pour aider Sinon jusqu'à présent pas de difficulté c'est bien expliqué, j'en suis aux augmentations manches
29.05.2021 - 19:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Galerand et merci pour votre retour, la correction a été faite. Bonne continuation!
31.05.2021 - 08:30
France skrifaði:
Je suis entrain de faire ce modèle les augmentations pour le dos et le devant font des gros trous refait 4 fois toujours la même chose. Le patron ou je fais pas la bonne chose?
06.05.2021 - 05:29DROPS Design svaraði:
Bonjour France, cette vidéo montre comment faire les augmentations des épaules et pourra probablement vous aider à visualiser comment faire. Bon tricot!
06.05.2021 - 07:42
Natalia skrifaði:
Nie mogę się doczekać
08.04.2021 - 16:49
Seguin skrifaði:
Hâte de voir ce modèle
06.04.2021 - 15:04
Maria Luz skrifaði:
Me encanta, lo veo muy ponible, un basico en el armario.
02.04.2021 - 14:34
Maria skrifaði:
Super Modell
03.03.2021 - 19:39
Maria skrifaði:
Wo finde ich die Anleitung, damit ich sie kommentieren kann?
03.03.2021 - 19:38
Florie skrifaði:
Green field
04.02.2021 - 23:56
Marina Gr skrifaði:
Gentle Green of Spring
15.01.2021 - 17:09
Inkku skrifaði:
Fresh grass
12.01.2021 - 16:46
Fern Feast#fernfeasttop |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Belle eða DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-26 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 7,7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 : Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um í hliðum á fram- og bakstykki og miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Á berustykki eru lykkjur auknar út fyrir öxl, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermi. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-96-100-108-112-116 lykkjur á hringprjón 3,5 með Belle eða Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm. Prjónið 1 umferð slétt á meðan aukið er út um 12-12-20-20-24-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 104-108-120-128-136-144 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og verður að hafa annan lit en prjónamerki við hálsmál til að aðskilja þau. Fyrsta prjónamerki: Byrjið mitt að aftan, teljið 18-19-20-22-22-24 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið 16-16-20-20-24-24 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 36-38-40-44-44-48 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 16-16-20-20-24-24 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 18-19-20-22-24-24 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Haldið svona áfram hringinn og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 21-21-24-24-26-26 sinnum = 188-192-216-224-240-248 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 8-8-9-9-10-10 cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami (útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í sléttprjón). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 17-18-18-17-17-17 sinnum = 256-264-288-292-308-316 lykkjur. Stykkið mælist ca 21-22-23-22-23-23 cm frá prjónamerki við háls. Prjónið jafnvel áfram í sléttprjóni án útaukningar þar til stykkið mælist 21-22-23-22-23-23 cm. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING: Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjunum sitja í ystu lykkjunni í hvorri hlið á hvorri ermi. Nú eru 50-52-56-54-58-58 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi. Í næstu umferð aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverjum af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-2. Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 4-5-6-10-11-14 sinnum = 288-304-336-372-396-428 lykkjur. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka, mælist stykkið ca 24-26-28-30-31-34 cm frá prjónamerki við hálsmál. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram eins og áður án útaukninga að réttu máli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 42-45-49-54-59-65 lykkjurnar (= ½ bakstykki), setjið næstu 60-62-70-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 84-90-98-108-118-130 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-62-70-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 42-45-49-54-59-65 lykkjur (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðar prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-200-216-236-260-284 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-10-10-10-12-12 lykkjur undir ermi í báðum hliðum. Það á að fækka lykkjum síðar hvoru megin við hvort prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Haldið áfram þar til stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 3-3-2½-2½-2½-2½ cm millibili alls 4 sinnum = 168-184-200-220-244-268 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-16-15-15-14-14 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt á meðan aukið er út um 32-36-40-44-48-56 lykkjur jafnt yfir = 200-220-240-264-292-324 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-62-70-78-80-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-10-12-12 nýjum lykkjum undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist alls ca 7 cm frá skiptingu í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fernfeasttop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.