Astrid Hediger skrifaði:
Danke aber bei mir funktioniert es nicht, war früher ohne Probleme. Versuche einen Screen Shot vom Bild meines Natel zu erstellen, damit es ev. verständlicher wird. Danke
30.09.2022 - 12:20DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Hediger, versuchen Sie den Cache / die Cookies zu leeren - sagen Sie uns gerne welchen Browser Sie benutzen - und auch welche Wolle Sie am lieber haben, so kann man Ihnen weiter helfen. Viel Spaß beim stricken!
30.09.2022 - 13:21
Astrid Hediger skrifaði:
Sehr geehrte Damen und Herren, Frage: weshalb kann ich den Garnumrechner nicht mehr benutzen. Es scheint einen Fehler im Umrechner zu sein. Dies wäre ja sehr nützlich, aber es funktioniert nicht wie ich es kannte. Besonders die Frage welches Garn ich austauschen möchte. Könnten Sie mir weiterhelfen? Danke
30.09.2022 - 07:20DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Hediger, was für Problemen mit Garnumrechner haben Sie? Ich habe gerade versucht und könnte die Garnalternative der Garngruppe B mit der neuen Garnmenge sehen. Viel Spaß beim stricken!
30.09.2022 - 08:30
Sonia D Lopez M skrifaði:
Me encanta y lamento mucho que no tenga para inscribirse y así poder localizar rápidamente sus contenidos. \\r\\nGracias por compartir.
17.01.2022 - 07:07
Arianna Trapani skrifaði:
Continuo: dicevo non sarebbe più semplice scrivere " ... maglie prima della fine del ferro" nel mio caso sarebbero 28?
11.04.2021 - 18:17DROPS Design svaraði:
Buonasera Arianna, i segnapunti vanno inseriti a partire dal bordo davanti lasciando il n° di maglie indicato. Ad esempio per la taglia 6/9 mesi, contare 31 maglie, inserire il segnapunti, contare 56 maglie, inserire il segnapunti e rimangono 31 maglie. Buon lavoro!
11.04.2021 - 20:14
Arianna Trapani skrifaði:
Il modello è molto carino, ma ho speso molto tempo per cercare di capire come inserire i segnapunti per gli scalfi e alla fine mi ha aiutato andare a guardare la versione in inglese delle istruzioni. Quello che mi ha confuso le idee è il fatto che nel primo caso si indicano il numero di maglie a partire dal bordo davanti destro e nel secondo il numero di maglie complessive del dietro, sottintendendo la differenza causata dalla sovrapposizione del bordo destro sul sinistro.
11.04.2021 - 18:15DROPS Design svaraði:
Buonasera Arianna, i segnapunti vanno inseriti a partire dal bordo davanti lasciando il n° di maglie indicato. Ad esempio per la taglia 6/9 mesi, contare 31 maglie, inserire il segnapunti, contare 56 maglie, inserire il segnapunti e rimangono 31 maglie. Buon lavoro!
11.04.2021 - 20:14
Neighbourhood Round#neighbourhoodroundvest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað með v-hálsmáli og tvöföldu perluprjóni. Stærð 6 mánaða – 8 ára.
DROPS Baby & Children 38-6 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- TVÖFALT PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 3: brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 4: Eins og umferð 2. Endurtakið umferð 1 til 4. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2. og 3. lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: 6/9 MÁNAÐA: 3, 9 og 15 cm. 12/18 MÁNAÐA: 4, 11 og 18 cm. 2 ÁRA: 4, 11 og 18 cm. 3/4 ÁRA: 4, 12 og 20 cm. 5/6 ÁRA: 2, 10, 18 og 25 cm. 7/8 ÁRA: 3, 11, 19 og 27 cm. Fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Þegar fyrsta lykkjan á að vera slétt: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Þegar fyrsta lykkjan á að vera brugðið: Prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er fram- og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Vasarnir eru prjónaðir fram og til baka á hringprjóna og saumaðir á í lokin. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 118-126 (134-142-150-158) lykkjur á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, til loka máls. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 31-33 (35-37-39-41) lykkjur inn frá miðju að framan (bakstykki = 56-60 (64-68-72-76) lykkjur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18-20 (21-23-26-29) cm, fellið af miðju 8 lykkjur við hvort prjónamerki í hvorri hlið fyrir handveg (= 4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hlið). Prjónið síðan hvort stykki til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 48-52 (56-60-64-68) lykkjur. Haldið áfram í tvöföldu perluprjóni eins og áður og fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af 1 lykkju í byrjun á hverri umferð frá hlið alls 6-7 (5-5-5-5) sinnum = 36-38 (46-50-54-58) lykkjur. Þegar stykkið mælist 27-30 (32-35-39-43) cm, fellið af miðju 16-18 (18-18-22-22) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 10-10 (14-16-16-18) lykkjur á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28-31 (33-36-40-44) cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 27-29 (31-33-35-37) lykkjur. Haldið áfram í tvöföldu perluprjóni eins og áður og fellið lykkjur af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 21-24 (25-28-31-34) cm byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Fellið af 2 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá hálsmáli alls 2 sinnum, síðan 1 lykkju í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli alls 7-8 (8-8-10-10) sinnum. Eftir síðustu úrtöku eru 10-10 (14-16-16-18) lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28-31 (33-36-40-44) cm og fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. VASI: Fitjið upp 22 lykkjur á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið tvöfalt perluprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm, prjónið 4 umferðir stroffprjón með byrjun frá réttu (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið annan vasa á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 64 til 76 lykkjur innan við 1 lykkju frá réttu á hringprjón 4. Stillið af að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 4, fyrsta og síðasta lykkjan sé prjónuð upp þar sem fyrsta lykkjan var felld af fyrir hálsmáli á framstykki. Passið uppá að kanturinn verði ekki stífur/verði of laus miðað við hálsmál, prjónið e.t.v. upp fleiri/færri lykkjur. Prjónið stroffprjón með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 1 lykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og endið með 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju garðaprjón. Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir hnappagati þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umferðina eins og áður. Prjónið alls 4 umferðir stroff. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR HANDVEGUR: Prjónið upp ca 52 til 60 lykkjur innan við 1 lykkju frá réttu á sokkaprjóna 4 í kringum handveg, stillið af að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 4. Passið uppá að kanturinn verði ekki stífur/of laus miðað við handveg, prjónið e.t.v. upp fleiri/færri lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir stroff. Prjónið hinn kant í handvegi á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki og vasa á hvort framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #neighbourhoodroundvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.