DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Children 37-18
DROPS Design: Mynstur me-070-bn
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Ca 21 cm á lengd og ca 17 cm þar sem stykkið er breiðast.

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
GARNÅTGÅNG:
50 g litur 25, bleikur
50 g litur 17, kirsuber eða litur 34, ljung
50 g litur 30, sinnep

Og notið fyrir augu:
Afgang af dökk grár.

Og notið fyrir fax og tagl:
Afgang af blár (hér er litur 14, stálblár)

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 48 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm eða 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

FYLGIHLUTIR:
Vatt til fyllingar.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

EINHYRNINGUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Einhyrningurinn er prjónaður í einu stykki. Efra stykkið er prjónað frá höfði að baki og síðan er neðra stykkið prjónað frá baki að höfði.
Stykkið er saumað saman meðfram hvorri hlið og neðan á höfði.
Hornið er prjónað í lokin.

HÖFUÐ:
Fitjið upp 12 lykkjur á hringprjón 3 með litnum kirsuber.
Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð eru lykkjur auknar út þannig:
Prjónið * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkja slétt = 23 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt!
Stykkið er síðan prjónað fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Þegar prjónaðar hafa verið alls 6 umferðir garðaprjón, prjónið áfram með litnum bleikur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

FRAMFÆTUR (að ofan):
Þegar stykkið mælist 5 cm, fitjið upp 21 lykkju í lok 2 næstu umferða fyrir framfætur (þ.e.a.s. í hvorri hlið á stykki) = 65 lykkjur.
Prjónið 2 umferðir garðaprjón.
Í næstu umferð eru lykkjur auknar út þannig:
Prjónið 14 lykkjur slétt, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum, prjónið 27 lykkjur slétt, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum og endið með 14 lykkjur slétt = 75 lykkjur.
Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt!

EYRU OG HORN:
Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir framfætur, fitjið upp lykkjur fyrir eyru og prjónið 1 gat fyrir horn, í næstu umferð frá réttu þannig:

FYRRA EYRA:
Prjóni 35 lykkjur slétt, fitjið upp 8 lykkjur fyrir eyra, prjónið 2 lykkjur slétt, snúið stykkinu = 45 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur felldar af fyrir eyrum þannig: Prjónið 35 lykkjur slétt, fellið af 8 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt = 35 lykkjur.
Prjónið fram og til baka yfir þessar lykkjur þar til stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir fætur.
Í næstu umferð frá röngu eru felldar af fyrstu 13 lykkjurnar fyrir höfði og prjónaðar sléttar lykkjur út umferðina = 24 lykkjur.
Í næstu umferð frá réttu eru felldar af fyrstu 14 lykkjurnar fyrir fótum og prjónaðar sléttar lykkjur út umferðina = 10 lykkjur.

SEINNA EYRA:
Prjónið nú yfir lykkjurnar í hinni hliðinni frá réttu þannig: Fellið af fyrstu lykkju í toppi á höfði, prjónið 2 lykkjur slétt, fitjið upp 8 lykkjur fyrir eyra og prjónið síðustu 35 lykkjurnar slétt = 45 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur felldar af fyrir eyra þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, fellið af 8 lykkjur, prjónið 35 lykkjur slétt = 37 lykkjur.
Prjónið fram og til baka yfir þessar lykkjur þar til stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir fætur, stillið af með hinni hliðinni.
Í næstu umferð frá réttu, fellið af fyrstu 13 lykkjurnar fyrir höfði og prjónaðar sléttar lykkjur út umferðina = 24 lykkjur.
Í næstu umferð frá röngu eru felldar af fyrstu 14 lykkjurnar fyrir fótum og prjónaðar sléttar lykkjur út umferðina = 10 lykkjur.

BAK:
Prjónið nú yfir allar lykkjur þannig:
Prjónið áfram með þræði frá þar sem fyrra eyra endaði, frá réttu þannig:
Þ.e.a.s. fyrstu 10 lykkjurnar eru prjónaðar slétt (= lykkjur frá fyrra eyra), fitjið upp 1 nýja lykkju (mitt á baki) og prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur frá seinna eyra = 21 lykkjur.
Prjónið fram og til baka í garðaprjóni þar til stykkið mælist 8 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir framfótum.

AFTURFÆTUR:
Í lok 2 næstu umferða eru fitjaðar upp 14 nýjar lykkjur fyrir afturfætur (þ.e.a.s. í hvorri hlið á stykki) = 49 lykkjur.
Prjónið fram og til baka í garðaprjóni þar til stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir afturfætur.
Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað þannig:
Prjónið 14 lykkjur slétt, * prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 10 sinnum (= 10 lykkjur færri) og endið með 15 lykkjur slétt = 39 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni þar til stykkið mælist 7½ cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir afturfætur.
Í byrjun á 2 næstu umferðum eru felldar af 13 lykkjur fyrir afturfætur (þ.e.a.s. í hvorri hlið á stykki) = 13 lykkjur eftir fyrir maga.

MAGI:
Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni þar til stykkið mælist 8 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir afturfætur.

FRAMFÆTUR (að neðan):
Í lok næstu 2 umferða eru fitjaðar upp 13 lykkjur = 39 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni þar til stykkið mælist 3½ cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir framfætur (að neðan). Fellið af með sléttum lykkjum.

HORN:
Prjónið upp 8 lykkjur í kringum op fyrir horni með litnum sinnep, þar sem höfuðið skiptist áður en lykkjur voru fellda af fyrir höfði. Prjónið garðaprjón fram og til baka í ca 3 cm. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið að og festið vel. Saumið hornið saman í hlið í ystu lykkjubogana með litnum sinnep.

FRÁGANGUR:
Frágangurinn er gerður með litnum bleikur.
Brjótið uppá einhyrninginn þannig að hann verði tvöfaldur og saumið saman í hlið, í ystu lykkjubogana/umferðina. Fyllið einhyrninginn með vatti og saumið saman aftan í hnakka í ysta lið í ystu umferð.
Saumið út augu með litnum svartur.

FAX:
Faxið er fest mitt ofan á höfði í hnakka.
Festið lykkjur í röð meðfram saum aftan í hnakka þannig:
Klippið 1 þráð í litnum sinnep, 1 þráð í litnum blár, 1 þráð í litnum kirsuber og 1 þráð í litnum bleikur ca 28 cm (= 4 þræðir). Leggið alla 4 þræðina saman tvöfalda, þræðið inn lykkjuna í gegnum 2. lykkju á eftir horni. Dragið síðan þræðina í gegnum lykkjuna og herðið varlega að.
Festið 3 svona lykkjur niður yfir hnakka á einhyrningnum.
Ca 1 lykkja í 3. hverja lykkju.
Að lokum er hægt að klippa endana þannig að þeir verði jafn langir.

TAGL:
Klippið 2 þræði í litnum sinnep, 2 þræði í litnum blár, 2 þræði í litnum kirsuber og 1 þráð í litnum bleikur ca 30 cm, leggið þræðina saman tvöfalda, þræðið lykkjuna í gegnum 1 lykkju aftan á einhyrningnum. Dragið síðan þræðina í gegnum lykkjuna og herðið varlega að.
Að lokum er hægt að klippa endana þannig að þeir verði jafn langir.

Mynstur

symbols = lykkjur felldar af fyrir höfuð og horn
symbols = uppábrot
symbols = höfuð
symbols = framfætur (að ofan)
symbols = bak
symbols = afturfætur
symbols = magi
symbols = framfætur (að neðan)
symbols = prjónstefna
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 37-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Hanna wrote:

Jeg forstår ikke hvordan man går fra forben til horn og ører. Hvor er det hullet til hornet skal være og hvordan strikker jeg rundt om åbningen?

10.03.2024 - 09:44

DROPS Design answered:

Hei Hanna. Du har allerede strikket litt av forbeina før du starter med ørene og "hullet" til hornet. Når du har strikket etter forklaringen til 1. øre og 2. øre har du 20 masker igjen og et "hull" / åpning. Det er dette hullet det skal plukkes opp masker og strikkes et horn rundt, men dette gjøres helt til slutt, se under HORN. mvh DROPS Design

18.03.2024 - 11:11

country flag Inés wrote:

Hola, es posible que la explicación de las patas traseras esté mal dada? Pues de acuerdo al patrón esa pieza es doble, pues ahí justamente se realiza el doblez del trabajo... en cambio la indicación que se hace en la cantidad de centímetros pareciera no corresponder.. Si acaso fuera un problema de interpretación errada de mi parte, pido disculpas. De todas maneras el unicornio está muy lindo y seguro lograré terminarlo. Gracias

29.09.2023 - 23:19

DROPS Design answered:

Hola Inés, es correcto; si te fijas en las patas delanteras tienen un ancho de 3.5cm, mientras que las traseras son 7.5cm. Por lo tanto, doblas las patas traseras para obtener aprox. un ancho de 3.5cm en ambos lados de las patas traseras. Mientras que en las patas delanteras trabajas 2 partes de 3.5cm que luego se cosen juntas.

09.10.2023 - 00:52

country flag Gudrun Carlsson wrote:

När jag stickat högra örat på enhörningen ska ja ta av garnet då innan jag stickar vänster öra och sida? Jag har tre maskor i mitten och ska maska av den första. Ska jag bara fortsätta med samma tråd och de dras ihop?

06.04.2021 - 11:39

DROPS Design answered:

Hei Gudrun. Ikke klipp tråden fra 1. øre, men bruk f.eks den andre trådenden av nøstet til å strikke 2. øre. Når ryggen skal strikkes skal det strikkes videre med tråden fra der første øret avsluttet. mvh DROPS design

19.04.2021 - 11:51

country flag Teresa wrote:

Salve, dopo aver lavorato il primo orecchio il secondo viene lavorato separatamente? o il lavoro deve essere continuo senza tagliare il filo grazie!!

31.01.2021 - 12:40

DROPS Design answered:

Buongiorno Teresa, deve lavorare dall'altro lato. Buon lavoro!

31.01.2021 - 14:58