Patricia wrote:
Cuántas hileras o vueltas son para las patas delanteras? o cuántos cm deben medir !
07.04.2021 - 22:03DROPS Design answered:
Hola Patricia, las patas delanteras miden 3 1/2 cm.
07.04.2021 - 23:49Christine Rötzsch wrote:
Ich möchte ganz lieb danke sagen. Was für eine tolle Anleitung. Ein Löwe ziert schon mein Zuhause. Weiter so. Liebe Grüße und bleibt gesund.
04.09.2020 - 13:49
Kimba the Lion |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónað ljón í garðaprjóni úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS Children 37-20 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- LJÓN - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ljónið er prjónað í einu stykki. Efra stykkið er prjónað frá höfði að baki og síðan er neðra stykkið prjónað frá baki að höfði. Stykkið er saumað saman meðfram hvorri hlið og neðan á höfði. HÖFUÐ: Fitjið upp 12 lykkjur á hringprjón 3 með litnum sinnep. Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð eru lykkjur auknar út þannig: Prjónið * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkja slétt = 23 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt! Stykkið er síðan prjónað fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar prjónaðar hafa verið alls 6 umferðir garðaprjón, skiptið yfir í litinn ólífa. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! FRAMFÆTUR (að ofan): Fitjið upp 21 lykkju í lok 2 næstu umferða fyrir framfætur (þ.e.a.s. í hvorri hlið á stykki) = 65 lykkjur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Í næstu umferð eru lykkjur auknar út þannig: Prjónið 14 lykkjur slétt, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum, prjónið 27 lykkjur slétt, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum og endið með 14 lykkjur slétt = 75 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt! EYRU: Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir framfætur, fitjið upp lykkjur fyrir eyru í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 35 lykkjur slétt, fitjið upp 8 nýjar lykkjur fyrir eyra, prjónið 5 lykkjur slétt, fitjið upp 8 nýjar lykkjur fyrir eyra og prjónið síðustu 35 lykkjur slétt = 91 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur felldar af fyrir eyrum þannig: Prjónið 35 lykkjur slétt, fellið af 8 lykkjur, prjónið 5 lykkjur slétt, fellið af 8 lykkjur og prjónið síðustu 35 lykkjur slétt = 75 lykkjur. Prjónið fram og til baka yfir þessar lykkjur þar til stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir fætur. Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur felldar af fyrir höfði og framfætur þannig: Fellið af fyrstu 14 lykkjur fyrir framfætur, prjónið 10 lykkjur slétt, fellið af næstu 27 lykkjur fyrir höfði, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 24 lykkjur = 34 lykkjur. Í næstu umferð frá röngu eru felldar af fyrstu 14 lykkjurnar fyrir framfótum, prjónið 10 lykkjur slétt, fitjið upp 1 nýja lykkju (mitt á baki), prjónið síðustu 10 lykkjur slétt = 21 lykkja. BAK: Prjónið fram og til baka í garðaprjóni og röndum þar til stykki mælist 8 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir framfótum. AFTURFÆTUR: Í lok 2 næstu umferða eru fitjaðar upp 14 nýjar lykkjur fyrir afturfætur = 49 lykkjur. Prjónið 10 umferðir garðaprjón. Í næstu umferð frá réttu eru fitjaðar upp lykkjur og felldar lykkjur felldar af fyrir rófu þannig: Prjónið 24 lykkjur slétt, fitjið upp 16 lykkjur, snúið stykkinu og fellið af 16 lykkjurnar og prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 25 lykkjurnar = 49 lykkjur. Prjónið fram og til baka í garðaprjóni þar til stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp af fyrir afturfætur. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað þannig: Prjónið 14 lykkjur slétt, * prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 10 sinnum (= 10 lykkjur færri) og endið með 15 lykkjur slétt = 39 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni þar til stykkið mælist 7½ cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir afturfætur. Í byrjun á 2 næstu umferðum eru felldar af 13 lykkjur fyrir afturfætur (þ.e.a.s. í hvorri hlið á stykki) = 13 lykkjur eftir fyrir maga. MAGI: Skiptið yfir í litinn sinnep. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni þar til stykkið mælist 8 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir afturfætur. Skiptið yfir í litinn ólífa. FRAMFÆTUR (að neðan): Í lok næstu 2 umferða eru fitjaðar upp 13 lykkjur (þ.e.a.s. í hvorri hlið á stykki) = 39 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni þar til stykkið mælist 3½ cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir framfætur (að neðan). Fellið af með sléttum lykkjum. FRÁGANGUR: Frágangurinn er gerður með litnum ólífa. Brjótið uppá ljónið þannig að það verði tvöfalt og saumið saman í hlið, í ystu lykkjubogana/umferðina. Fyllið ljónið með vatti og saumið saman aftan í hnakka í ysta lið í ystu umferð. Saumið út augu og nef með afgangs garni í litnum svartur. MAKKI: Makkinn er festur mitt ofan á höfði í hnakka. Festið lykkjur í röð meðfram saum efst í hnakka í annarri hliðinni þannig: Klippið lengjur með litnum ryð ca 14 cm. Leggið 1 þráð tvöfaldan saman, þræðið inn lykkjuna í gegnum 1 lykkju. Dragið síðan þræðina í gegnum lykkjuna og herðið varlega að. Festið ca 13 lykkjur upp yfir sömu umferð, með ca 1 lykkju í hverja lykkju. Festið síðan næstu röð í hinni hliðinni á saum í hnakka. Festið alls 3 raðir niður yfir með ca 3 umferð millibili á milli hverra hvoru megin við saum í hnakka, þ.e.a.s. alls 6 raðir með ca 13 lykkjur í hverri. Að lokum er Að lokum er hægt að klippa endana þannig að þeir verði jafn langir. RÓFA: Festið lykkjur með sama hætti og á makka. Festið 4 lykkjur með litnum ryð neðst á rófu. Klippið endana þannig að þeir verði jafn langir. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Debbie wrote:
I loved this pattern, I make a lot of toys for grandkids and this shape is fast a few fun to make so I know I’ll use it again and again. Thanks
09.03.2022 - 16:22