DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Rainbow Unicorn Set

Prjónuð húfa og kragi fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað í garðaprjóni og stroffprjóni.

DROPS Children 37-16
DROPS Design: Mynstur me-068-bn
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:
12/18 mánaða (2 - 3/4 – 5/8 - 9/12) ára
Höfuðmál: ca 44/46 (48/50 – 50/52 – 52/54 – 54/56) cm

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100 (100-100-100-150) g litur 25, bleikur
100 (100-100-150-150) g litur 17, kirsuber eða litur 34, ljung
Og afgang af blár og gulur fyrir dúsk (hér er notaður litur 19, ljós blágrár og litur 30, sinnep)

HÚFA:

STÆRÐ:
12/18 mánaða (2 - 3/4 – 5/8 - 9/12) ára
Höfuðmál: ca 44/46 (48/50 – 50/52 – 52/54 – 54/56) cm

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100 (100-100-100-150) g litur 25, bleikur
Og afgang af blár, gulur og kirsuber fyrir dúsk (hér er notaður litur 19, ljós blágrár, litur 30, sinnep og litur 17, kirsuber)

PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: Lengd 40 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

KRAGI:

STÆRÐ:
12/18 mánaða (2 - 3/4 – 5/8 - 9/12) ára
Breidd á öxlum ca 18 (20-24-26-28) cm

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100 (100-100-150-150) g litur 17, kirsuber eða litur 34, ljung

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um kraga):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka – á við um kraga):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (á við um kraga):
Aukið út hvoru megin við axlalykkjur með því að taka upp lykkjur þannig:
Aukið út á eftir 1. og 3. prjónamerki þannig:
Prjónið fram að prjónamerki, færið lykkjur yfir á hægri prjón, notið hægri prjón til að lyfta upp hlekknum á undan næstu lykkju á vinstri prjón þannig að hægri hlið á hlekknum komi á réttu á stykkinu, prjónið 1 lykkju slétt í aftari lið á hlekknum (hlekkurinn verður nú snúinn þannig að ekki myndist gat og lykkjan hallast til vinstri).
Aukið út á undan 2. og 4. prjónamerki þannig:
Prjónið fram að prjónamerki á undan axlalykkjum, notið hægri prjón til að lyfta upp hlekknum á undan næstu lykkju á vinstri prjón þannig að vinstri hlið á hlekknum komi á réttu á stykki, prjónið 1 lykkju slétt í hlekkinn (hlekkurinn verður nú snúinn þannig að ekki myndist gat og lykkjan hallast til hægri), færið prjónamerkið yfir á hægri prjón.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá uppá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 96 (104-108-112-116) lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stroffið mælist 23 (23-24-25-27) cm (meðtalinn 8 cm uppábrot, nú eru eftir ca 4 cm), snúið stykkinu og prjónið áfram frá röngu og fækkið lykkjum þannig (þetta er gert til að kanturinn að neðan snúi að réttu þegar hann er brotinn upp):
UMFERÐ 1: Fækkið allar 2 lykkjur brugðið til 1 lykkja brugðið (prjónið 2 lykkjur brugðið saman) = 72 (78-81-84-87) lykkjur.
UMFERÐ 2-3: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
UMFERÐ 4: Fækkið öllum 2 lykkjum slétt til 1 lykkja slétt (prjónið 2 lykkjur slétt saman) = 48 (52-54-56-58) lykkjur.
UMFERÐ 5-6: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
UMFERÐ 7: Prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 24 (26-27-28-29) lykkjur.
UMFERÐ 8-9: Prjónið slétt.
UMFERÐ 10: Prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 þar til eftir eru 0 (0-1-0-1) lykkja, prjónið 0 (0-1-0-1) lykkju slétt = 12 (13-14-14-15) lykkjur.
UMFERÐ 11: Prjónið slétt.
UMFERÐ 12: Prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 þar til eftir eru 0 (1-0-0-1) lykkja, prjónið 0 (1-0-0-1) lykkja slétt = 6 (7-7-7-8) lykkjur.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.
Húfan mælist ca 27 (27-28-29-31) cm frá uppfitjunarkanti. Brjótið uppá neðstu 8 cm.

FRÁGANGUR:
Gerið einn dúsk með bleikur, kirsuber, sinnep og ljós gráblár ca 12 cm að þvermáli og festið efst á húfuna.

-------------------------------------------------------

KRAGI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kraginn er prjónaður ofan frá og niður. Fyrst er prjónað í hring á sokkaprjóna, síðan er skipt yfir á hringprjóna og lykkjur auknar út fyrir öxl. Axlalykkjurnar eru felldar af og hvort stykki er prjónað til loka fram og til baka á hringprjóna.

KRAGI:
Fitjið upp 88 (96-104-112-120) lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 7 (7-8-9-9) cm, skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið áfram þannig (frá miðju ofan á öxl):
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (látið prjónamerkið sitja í stykkinu, það á að nota það síðar til að mæla frá).
Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, setjið 1. prjónamerki, prjónið 34 (38-42-46-50) lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir, setjið 2. prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, setjið 3. prjónamerki, prjónið 34 (38-42-46-50) lykkjur garðaprjón og fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir, setjið 4. prjónamerki og endið með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið = 72 (80-88-96-104) lykkjur.
Axlalykkjurnar eru lykkjurnar á milli 1. og 4. prjónamerkis og 2. og 3. prjónamerkis.
Haldið áfram með stroff yfir axlalykkjurnar og garðaprjón yfir lykkjur á framstykki/bakstykki, á meðan aukið er út um 1 lykkju við hvert prjónamerki í hverri umferð – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri í hverri umferð).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 3 (3-4-4-4) cm frá prjónamerki = ca 104 (112-132-140-148) lykkjur.
Í næstu umferð eru axlalykkjurnar felldar af þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjurnar, prjónið garðaprjón eins og áður yfir næstu ca 42 (46-56-60-64) lykkjur fram að 2. prjónamerki, fellið af næstu 10 lykkjur, prjónið garðaprjón eins og áður yfir næstu ca 42 (46-56-60-64) lykkjur fram að 4. prjónamerki, fellið af síðustu 4 lykkjurnar.
Prjónið nú hvort stykki til loka fyrir sig.
Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, yfir ca 42 (46-56-60-64) lykkjur á framstykki/bakstykki, þar til stykkið mælist ca 9 (10-12-13-14) cm, mælt frá þar sem síðasta axlalykkjan á hvorri öxl var felld af.
Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING.
Prjónið hitt framstykki/bakstykki alveg eins.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 37-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Beatrice Mikha wrote:

How do I adapt this neck warmer to straight needles.Also,will you be producing multi coloured wool yarn in the future?

13.03.2023 - 10:06

DROPS Design answered:

Dear Mrs Mikha, you will find how to adapt a pattern onto straight needles here - we have nothing planned yet - but stay tuned. Happy knitting!

13.03.2023 - 10:38

country flag Sanna wrote:

Miksi kaulurissa kavennetaan silmukoita? Kun ensimmäisen merkin jälkeen kudotaan 50 ainaoikeaa, niin onko 8 silmukan kavennus tarkoitus tehdä noiden 50 silmukan välillä? Ensimmäinen kauluri tekeillä, joten kaikki on vähän uutta.

29.01.2022 - 08:35

DROPS Design answered:

Kaulurissa tehdään kavennuksia, jotta ainaoikeinneulotusta osuudesta ei tulisi liian leveä. Kavennukset tehdään tasavälein ainaoikeinneuleen 50 silmukan kohdalla.

14.02.2022 - 17:59

country flag Martina wrote:

Ich habe die Mütze jeweils einmal in 52/54 und 54/56 gestrickt. Dabei ist mir aufgefallen, dass die Mengenangabe in 52/54 sehr knapp ist, wenn man den Pompon in der gleichen Farbe haben möchte. Ein Knäuel mehr wäre besser gewesen. Aber ansonsten tolle Mütze, einfach nachzuarbeiten!

19.01.2022 - 17:42

country flag Галина wrote:

где русский перевод?

03.08.2021 - 13:49

DROPS Design answered:

Dear Галина, there are currently no translation available in Russian on our website - for any further assistance, please contact our DROPS Stores in Russia - see list here. Happy knitting!

03.08.2021 - 14:20

country flag Bk wrote:

Noen som har adaptert lue mønsteret til voksen str? Skulle så gjerne hatt maske antall og hvor langt man strikker før felling

26.06.2021 - 01:42

DROPS Design answered:

Hei BK, Hvis du finne en voksen lue oppskrift som bruke garn fra samme gruppa vill du kunne justere dette mønsteret. Husk å strikke en prøvelapp for du begynner for å sjekke strikkefastheten din. God fornøyelse!

28.06.2021 - 09:15

country flag Angela Grothaus wrote:

Nach 24 cm soll die Mütze gewendet werden und auf der linken Seite weitergestrickt werden. Aber dann geht es ja in die andere Richtung. Oder verstehe ich das falsch? Ich stricke mit einer 40 cm Rundstricknadel.

05.02.2021 - 13:01

DROPS Design answered:

Liebe Frau Grohaus, ja genau, Sie können bei der 1. Runde wie beim verkürzten Reihen stricken, und dann von der Innenseite (Rückseite) bis zur Ende stricken - mit dem Nadelspiel sollen Sie dann weiter stricken, da es nach und nach immer weniger Maschen bleiben. Viel Spaß beim stricken!

05.02.2021 - 13:47

country flag Kristina wrote:

Wenn ich 8 Maschen au beiden Seiten der Krausrippen abnehme komme ich aber nicht mehr auf die gewünschte Maschenanzahl von 88 Maschen. Ich habe 104 am Anfang bedeuted 38+10+38+10= 96 Maschen oder denke ich falsch? Ich hoffe Ihr könnt mir helfen. :)

30.01.2021 - 09:57

DROPS Design answered:

Liebe Kristina, in die 3. Größe haben Sie 42 Maschen kraus rechts und 8 Maschen werden abgenommen = es bleiben 34 Maschen krausrechts. So haben Sie: 6 + 34 + 10 + 34 + 4= 88 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

01.02.2021 - 08:29

country flag France Langlois wrote:

Bonjour, Est-ce que le bonnet est tricoté avec deux fils de laine?

25.01.2021 - 20:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Langlois, le bonnet est tricote avec un seul fil de DROPS MERINO EXTRA FINE, coloris 25, rose. Bon tricot!

25.01.2021 - 20:36

country flag Huma wrote:

Hi, I want to know about neck warmer, does the increase in the stitches should be made on right side only or both right n wrong side? And stitch makers are counted as you knit or they are named 1, 2, 3 and 4.? Thanks

25.01.2021 - 16:23

DROPS Design answered:

Hi Huma, if you work in the round on circular needle, you always work on the right side. You should increase 1 stitch at every marker on every round - read INCREASE TIP (= 4 stitches increased on every round). Stitch makers are named 1,2,3 and 4. Happy knitting!

25.01.2021 - 18:00

country flag Tanja Müller wrote:

Ich habe da eine Frage ich meiner Enkelin eine Mütze stricke sie hat Kopfumfang von 51 cm wieviel Maschen nehme ich auf maschenprobe war mit der Wolle 9,5 cm sie ist 3 Jahre alt

01.12.2020 - 13:11

DROPS Design answered:

Liebe Frau Müller, ihr Kopfumfang passt die Größe 3/4 Jahre = 50/52 cm Kopfumfang - für die Mütze soll Ihre Maschenprobe 22 Maschen = 10 cm breit sein - bei Merino Extra Fine strickt man lieber etwas fester (siehe Farbkarte) - so kann es sicher passen - Ihre Maschenprobe können Sie zuerst waschen und nochmal messen, und dann Nadelgrösse anpassen wenn es nötig ist. Viel Spaß beim stricken!

02.12.2020 - 08:11