Aila Harjuoja skrifaði:
Kun kutoo yldinkertsisella langalla ,mikä on silmukka määrä. Ohjeesta jäi puuttumaan.
29.01.2025 - 13:40DROPS Design svaraði:
Hei, silmukkamäärä on sama. Voit valita neulotko 2-kertaisella DROPS Air-langalla vai 1-kertaisella DROPS Wish-langalla.
29.01.2025 - 18:54
Charlotta skrifaði:
Går det att sticka denna i en tråd Alpacka boucle och en tråd Brushed Alpacka Silk? Såg att det fanns en annan oversize tröja i den garnkombinationen, men den skulle stickas på stickor 9 vilket jag tycker är för löst, gillar det här mönstret bättre.
18.11.2023 - 11:25DROPS Design svaraði:
Hei Charlotta. Det kan du fint gjøre, så lenge du overholder den oppgitte strikkefastheten (11 masker i bredden og 15 pinner i høyden med glattstrikk med 1 tråd Alpaca boucle + 1 tråd Brushed Alpacka Silk). Begge kvaliteten tilhører garngruppe C. mvh DROPS Design
20.11.2023 - 09:55
Janet White skrifaði:
Why are the majority of your patterns you have which are all great but are now nearly all knitted in the round there are still a lot of traditional knitters out there who would like to knit these modern sweaters in the flat way Can you not publish both methods?J White
07.01.2023 - 10:29DROPS Design svaraði:
Dear Janet, you can read the following lesson on how to adapt these patterns for straight needles: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=13&cid=19. Happy knitting!
07.01.2023 - 18:08
Celia skrifaði:
¿ Cómo sé que talla es la mía para este patrón?
22.09.2022 - 08:07
Anne Mazzella skrifaði:
Bonjour, je viens de terminer le col et pour la répartition des marqueurs il y a une erreur en taille L, je me retrouve avec 62 m réparties pour 66 mailles annoncées après les augmentations. Donc 4 m à repartir..... Il serait bon de revoir le tuto.
25.07.2022 - 12:25DROPS Design svaraði:
Bonjour Anne, le modele est correct. Chaque marqueur doit être inséré dans une maille, et non entre les mailles. Bon tricot!
26.07.2022 - 08:47
Marchand Nathalie skrifaði:
Re bonjour, Je viens de commencer ce modèle, j en suis au premier rang avec les augmentations raglan et je ne comprends pas, si j augmente 4 mailles avant et 4 mailles après mon premier marqueur je me retrouve avec 2 jetés au milieu côte à côte, est ce normal?
16.02.2022 - 15:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Marchand, avant de commencer les augmentations du raglan, vous avez mis un marqueur dans 4 mailles (celles du raglan) et vous augmentez ensuite 1 maille de chaque côté de chacune des mailles avec un marqueur ainsi: 1 jeté, la maille avec 1 jeté, 1 jeté. Bon tricot!
16.02.2022 - 17:03
Marchand Nathalie skrifaði:
Est ce que 4 pelotes de chaque couleur suffisent pour une taille L?
11.02.2022 - 17:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Marchand, en taille L, il vous faut 4 pelotes de chaque couleur en DROPS Air; si vous choisissez une autre laine, pensez à utiliser le convertisseur pour recalculer la quantité nécessaire correspondante. Bon tricot!
11.02.2022 - 17:09
Henriette skrifaði:
Kan jeg strikke opskriften M. Enkel tråd Air på pind 6? Hvad skal jeg være opmærksom på
10.11.2021 - 13:57DROPS Design svaraði:
Hej Henriette. Om du får den stickfasthet som uppges i oppskriften med 1 tråd Air och pind 6 kan du det (jag skulle tro att du har svårt att få riktig stickfastheten med kun 1 tråd). Får du fel stickfasthet så kommer du få fel mått. Mvh DROPS Design
10.11.2021 - 14:08
Marianne Sandström skrifaði:
När jag väljer en annan färg skall man sticka med dubbelt garn dvs blått o vitt. Mönstret visar rosa och vitt.
17.05.2021 - 23:21DROPS Design svaraði:
Hej Marianne. Om du väljer ett garn ur garngrupp C så ska den stickas med 2 trådar. Vill du sticka den i blått kan du antingen välja att sticka den med 2 blå trådar eller med en blå tråd och en tråd natur. (Du kan även sticka den med en tråd, men då får du välja ett garn ur garngrupp E.) Mvh DROPS Design
18.05.2021 - 07:56
Marianne Sandström skrifaði:
Mönstret cosy rosi stickas m dubbelt 1 rosa och 1 vit. Hur blur det med annan färg, ljusblptt?
14.05.2021 - 22:48DROPS Design svaraði:
Hej Marianne, helt sikkert superfint. Se model 199-32 eller det blå parti i 191-2... der findes masser af inspiration :)
17.05.2021 - 11:07
Cosy Rosy#cosyrosysweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Air eða 1 þræði DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og ¾ -löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-11 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 52 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 8,7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki - í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í útaukningsumferð) þannig. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 52-54-58-60-62-64 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með 1 þræði í hvorum lit (= 2 þræðir) í DROPS Air eða 1 þræði DROPS Wish. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-8-8-10-16-18 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 58-62-66-70-78-82 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan). Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Setjið 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert prjónamerki er sett í lykkju. Þessi 4 prjónamerki eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu og prjónamerkin verða að hafa annan lit en prjónamerki við háls til að aðskilja þau. Teljið 11-12-12-13-14-15 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 6-6-8-8-10-10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 21-23-23-25-27-29 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 6-6-8-8-10-10 lykkjur (= ermi) og setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 10-11-11-12-13-14 lykkjur eftir á ½ bakstykki eftir síðasta prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 12-13-15-16-17-19 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 154-166-186-198-214-234 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 19-21-22-24-25-27 cm frá prjónamerki við hálsmál. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 25-27-29-31-34-38 lykkjur (= ½ bakstykki), setji næstu 28-30-36-38-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 49-53-57-61-67-75 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 28-30-36-38-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi (= ermi), fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 24-26-28-30-33-37 lykkjur (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað áfram hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 110-118-126-138-150-166 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 28-30-36-38-40-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 34-36-42-46-48-50 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 24-22-23-21-21-19 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 7. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist 28-26-27-25-25-23 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cosyrosysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.