DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Strawberry Mousse

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með gatamynstri og blöðruermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 220-16
DROPS Design: Mynstur ai-320
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-400-450-500 g litur 24, bleikur

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón/mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum..

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 32 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 1,1.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca aðra hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um ermar í XL, XXL og XXXL):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin.
Bakstykkið er 4 cm lengra en framstykkið.
Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að handveg, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 86-93-103-113-123-133 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð S:
1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, A.1 yfir næstu 60 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 30 lykkjum), prjónið fyrstu 21 lykkjurnar í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón.
Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR.

Stærð M, L, XL, XXL og XXXL:
1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir næstu 90-90-90-120-120 lykkjur (= 3-3-3-4-4 mynstureiningar með 30 lykkjum), prjónið fyrstu 0-11-21-0-11 lykkjur í A.1, 1-0-0-1-0 lykkja slétt, 1 kantlykkja garðaprjón.
Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
Endurtakið 4 fyrstu umferðirnar í mynsturteikningu þar til stroffið mælist 9 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið nú áfram eins og útskýrt er í mynsturteikningu (= 8-9-10-11-12-13 lykkjur færri í næstu umferð) = 78-84-93-102-111-120 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar mynstrið hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, fellið lykkjur af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið fyrir handveg þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-6 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-1-2-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 1-1-1-2-3-3 sinnum = 70-72-75-78-83-86 lykkjur.
Prjónið í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar handvegur mælist 17-18-19-20-21-22 cm (stykkið mælist ca 55-57-59-61-63-65 cm frá uppfitjunarkanti), fellið af miðju 32-34-35-36-37-38 lykkjurnar fyrir hálsmáli. Prjónið síðan hverja öxl til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 18-18-19-20-22-23 lykkjur. Þegar handvegur mælist 20-21-22-23-24-25 cm (stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm frá uppfitjunarkanti), fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 86-93-103-113-123-133 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Air.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur í mismunandi stærðum þannig:

Stærð S:
1 kantlykkja garðaprjón, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, A.1 yfir næstu 60 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 30 lykkjur), prjónið fyrstu 21 lykkjur í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón.
Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR.

Stærð M, L, XL, XXL og XXXL:
1 kantlykkja garðaprjón, A.1 yfir næstu 90-90-90-120-120 lykkjur (= 3-3-3-4-4 mynstureiningar með 30 lykkjum), prjónið fyrstu 0-11-21-0-11 lykkjur í A.1, 1-0-0-1-0 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón.
Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
Endurtakið 4 fyrstu umferðirnar í mynsturteikningu þar til stroffið mælist 5 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið nú áfram eins og útskýrt er í mynsturteikningu (= 8-9-10-11-12-13 lykkjur færri í næstu umferð) = 78-84-93-102-111-120 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og áður.
Þegar mynstrið hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af lykkjur í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið fyrir handveg þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-6 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-1-2-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 1-1-1-2-3-3 sinnum = 70-72-75-78-83-86 lykkjur. Prjónið í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar handvegurinn mælist 11-12-13-13-14-15 cm (stykkið mælist ca 45-47-49-50-52-54 cm frá uppfitjunarkanti), setjið miðju 18-20-21-22-23-24 lykkjurnar á þráð fyrir hálsmáli. Prjónið síðan hvora öxl til loka fyrir sig. Í hverri umferð frá hálsmáli eru lykkjur felldar af þannig: Fellið af 3 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 18-18-19-20-22-23 lykkjur. Þegar handvegurinn mælist 20-21-22-23-24-25 cm (stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti), fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 36-36-39-39-42-42 lykkjur á sokkaprjóna 4 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 16-16-16-16-19-19 lykkjur, prjónið A.2 yfir næstu 4 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 16-16-19-19-19-19 lykkjur. Prjónið 1 umferð til viðbótar með mynstri og aukið jafnframt út 28-32-31-33-30-32 lykkjur jafnt yfir lykkjur með sléttum lykkjum – sjá ÚTAUKNING-1 = 64-68-70-72-72-74 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Setjið eitt prjónamerki mitt í lykkjur í sléttprjóni (= mitt undir ermi) þannig að það verða 30-32-33-34-34-35 lykkjur í sléttprjóni hvoru megin við prjónamerki. A.2 kemur mitt á ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Það er notað síðar. Haldið áfram hringinn með A.2 og sléttprjóni.
Í stærð S, M og L, prjónið áfram frá ALLAR STÆRÐIR.
Í stærð XL, XXL og XXXL, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í öðrum hverjum cm alls 1-2-3 sinnum = 74-76-80 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
Prjónið áfram þar til ermin mælist 53-52-50-48-47-46 cm.
Fellið nú af 6-6-8-8-10-12 lykkjur mitt undir ermi (= 3-3-4-4-5-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Prjónið síðan fram og til baka í sléttprjóni með byrjun frá miðju undir ermi, jafnframt eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð þannig:
Fellið af 2-2-1-1-1-1 lykkjur 1-2-4-6-7-9 sinnum, eftir það 5-5-5-5-4-4 lykkjur 2-2-2-2-2-1 sinnum = 34-34-34-34-36-42 lykkjur. Fellið af. Ermin mælist alls 56 cm í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana með lykkjuspori. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni – bakstykkið er 4 cm lengra en framstykkið. Skiljið e.t.v. eftir smá klauf / op neðst á fram- og bakstykki í hvorri hlið þar sem stroffið er (= 9 cm á bakstykki og 5 cm á framstykki). Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón – sjá teikningu fyrir frágang á ermum.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp 87-90-90-93-93-96 lykkjur innan við 1 lykkju í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 4 og Air. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.10.2022
Leiðrétting í mynsturteikningu A.1.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman

symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem búið er að fækka um þessa lykkju, farðu beint áfram að næsta tákni í mynsturteikningu
symbols = bakstykkið er 4 cm lengra en framstykkið
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Natalie Ghys wrote:

Beste, Bij het vormen van de mouwkop zijn er een aatal minderingen voorzien. Is het de bedoeling dat je die enkel aan de goede kant van het werk afkant ( dus om de andere naald) of moet er ook in de averechte naald afgekant worden? Dank bij voorbaat, Natalie

19.03.2023 - 16:47

DROPS Design answered:

Dag Natalie,

Je kant steken af aan het begin van elke, dus zowel aan de goede als de verkeerde kant.

21.03.2023 - 21:20

country flag Annika wrote:

Hej, stämmer verkligen diagrammet A1, rad 17, maska 4-6? Om man stickar så blir det ju tre hål i rad, och det ser inte ut att överensstämma med bilden. Jag provade att sticka så, och det såg konstigt ut.

24.10.2022 - 15:46

DROPS Design answered:

Hej Annika, tak for info! Det stemmer rad 15 skal se ud som rad 11. Vi skal få opdateret diagrammet :)

25.10.2022 - 14:00

country flag Lillian wrote:

Er maskeantall som strikkes opp til halskant ved slutten i tillegg til eller inkludert de som man satt av på en tråd i halsfellingen?

19.06.2022 - 18:20

DROPS Design answered:

Hei Lillian. De 87-90-90-93-93-96 maskene er nok alle halsmaskene (de som strikkes og de som er satt på en tråd). mvh DROPS Design

20.06.2022 - 14:39

country flag Surmann wrote:

Hallo, ich verstehe beim Ärmel nicht nach dem man die untere Ärmelmitte =6 Maschen weiterstrickt. Da ist ja dann eine "lücke". Ich müsste dann ja getrennt weiter stricken oder wie? Und wie vernäht man das dann?

02.02.2022 - 08:28

DROPS Design answered:

Liebe Frau Surmann, diese 6 Maschen unter der Ärmel werden zusammen mit den abgekettene 6 Maschen beim Rumpfteil (3 beim Rückenteil + 3 beim Vorderteil). Vielleicht kann Ihnen dieses Video helfen?

02.02.2022 - 09:07

country flag Raili wrote:

Kuinka on mahdollista, että luodaan 113 silmukkaa ja neulotaan ensimmäinen kierros nurin. Miten seuraavalla kierroksella onkin jo 120 silmukkaa?!?!

17.08.2021 - 19:07

country flag Inge wrote:

Ik zie het antwoord al: maat S wordt niet genoemd dus staat de telling van XL nu op de derde plaats ipv op de vierde. Poeh, je moet wel heel goed opletten:)

21.02.2021 - 10:00

DROPS Design answered:

Dag Inge,

Mooi dat je het gevonden hebt en bedankt voor de terugkoppeling. Veel breiplezier!

23.02.2021 - 13:13

country flag Inge wrote:

Zet 113 steken op (maat XL). En dan bij alle maten: A.1 over de volgende 120 steken? Dat begrijp ik niet, waar moet er dan worden gemeerderd?

21.02.2021 - 09:51

country flag Annika wrote:

Sweet Rosie

16.01.2021 - 10:20

country flag Terri wrote:

Heather

09.01.2021 - 18:01

country flag RoffaDame wrote:

V-Hal’s of polo-nek zou ook wel eens leuk zijn. (zoveel hoge ronde nekken)

09.01.2021 - 09:44