DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10010.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

White Water

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti, gatamynstri og puffermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 222-25
DROPS Design: Mynstur ks-172
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
175-200-225-250-275-300 g litur 38, krít

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.
20 lykkjur á breidd með mynstri A.3 = 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og gatamynstri.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10010.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 17 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 3,4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca önnur hver og 3. hver lykkja og 3. hver og 4. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja eða 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður.
Axlirnar eru prjónaðar fram og til baka hvor fyrir sig. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram öxlum og síðan er prjónað í hring yfir allar lykkjur, jafnframt því sem aukið er út fyrir ermar og berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 90-90-94-106-110-110 lykkjur á hringprjón 3 með 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: A.1 yfir fyrstu 15-15-15-18-18-18 lykkjur, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1 (= ca hálft bakstykki), setjið eitt prjónamerki hér, A.2 yfir næstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur (= axlalykkjur), setjið eitt prjónamerki hér, A.1 yfir næstu 30-30-30-36-36-36 lykkjur, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1 (= framstykki), setjið eitt prjónamerki hér, A.2 yfir næstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur (= axlalykkjur), setjið eitt prjónamerki hér, A.1 yfir síðustu 15-15-15-18-18-18 lykkjur (= ca hálft bakstykki). Haldið svona áfram hringinn í 3 cm. Klippið þráðinn.
Nú skiptist stykkið fyrir bakstykki, framstykki og axlarsæti.
Setjið fyrstu 17-17-17-20-20-20 lykkjur á þráð (= ca hálft bakstykki), hoppið yfir næstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur (= axlarsæti), setjið næstu 32-32-32-38-38-38 lykkjur á þráð (= framstykki), hoppið yfir næstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur (= axlarsæti), setjið síðustu 15-15-15-18-18-18 lykkjur á þráð (= ca hálft bakstykki).
Nú eru axlarsætin prjónuð í hvorri hlið, hvort fyrir sig.

AXLARSÆTI:
= 13-13-15-15-17-17 lykkjur. Prjónið fram og til baka yfir axlalykkjur í annarri hlið á hringprjón 3 þannig: Fitjið upp 1 lykkju á prjóninn (= kantlykkja), prjónið 13-13-15-15-17-17 lykkjur í mynstri eins og áður, jafnframt þar sem allar 1 lykkja brugðið er aukið út til 2 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 (= 6-6-7-7-8-8 lykkjur fleiri), fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 21-21-24-24-27-27 lykkjur. Nú er prjónað mynstur (1 klukkuprjónslykkja, 2 lykkjur brugðið) fram og til baka þar til stykkið mælist 7-7-7-8-8-8 cm frá þar sem allar 1 lykkja brugðið var aukið út til 2 lykkjur brugðið – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá röngu. Setjið lykkjurnar á þráð. Prjónið hitt axlarsætið á sama hátt.

Prjónið nú framstykki, bakstykki og axlalykkjur inn á sama hringprjón 5, jafnframt því sem lykkjur eru prjónaðar upp meðfram hliðum á axlarsæti. Prjónið frá réttu þannig:
Byrjið ca mitt að aftan og prjónið sléttar lykkjur yfir 17-17-17-20-20-20 lykkjur á hálfu bakstykki og aukið jafnframt út 5-5-5-5-5-5 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA (= 22-22-22-25-25-25 lykkjur), prjónið upp 16-16-16-20-20-20 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hlið á axlarsæti, prjónið 1 lykkju slétt * 1 lykkja slétt í fremri og aftari lykkjubogann á næstu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 18-18-21-21-24-24 sinnum, prjónið 1 lykkju slétt í fremri og aftari lykkjubogann, prjónið 1 lykkju slétt (= 37-37-43-43-49-49 lykkjur fleiri = 58-58-67-67-76-76 lykkjur á axlarsæti), prjónið upp 16-16-16-20-20-20 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hinni hliðinni á axlarsæti, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 32-32-32-38-38-38 lykkjur á framstykki og aukið jafnframt út 9-9-9-9-9-9 lykkjur jafnt yfir (= 41-41-41-47-47-47 lykkjur), prjónið upp 16-16-16-20-20-20 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hlið á hinu axlarsætinu, prjónið 1 lykkju slétt, * 1 lykkja slétt í fremri og aftari lykkjubogann á næstu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 18-18-21-21-24-24 sinnum, prjónið 1 lykkju slétt í fremri og aftari lykkjubogann á lykkju, prjónið 1 lykkju slétt (= 37-37-43-43-49-49 lykkjur fleiri = 58-58-67-67-76-76 lykkjur á axlarsæti), prjónið upp 16-16-16-20-20-20 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hinni hliðinni á axlarsæti, prjónið sléttar lykkjur yfir 15-15-15-18-18-18 lykkjur á ca hálfu bakstykki og aukið jafnframt út 4-4-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir (= 19-19-19-22-22-22 lykkjur).
Nú eru 262-262-280-308-326-326 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt.

BERUSTYKKI:
Setjið eitt prjónamerki ca mitt að aftan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið nú mynstur og setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig:
Fyrsta prjónamerki: Prjónið A.3 yfir fyrstu 35-35-35-42-42-42 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjurnar í A.3, setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju (= hálft bakstykki).
Annað prjónamerki: Prjónið sléttprjón yfir næstu 56-56-65-65-74-74 lykkjur, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju (= hægri ermi).
Þriðja prjónamerki: Prjónið A.3 yfir næstu 70-70-70-84-84-84 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.3, setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju (= framstykki).
Fjórða prjónamerki: Prjónið sléttprjón yfir næstu 56-56-65-65-74-74 lykkjur, setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju (= vinstri ermi).
Prjónið A.3 yfir síðustu 35-35-35-42-42-42 lykkjur (= hálft bakstykki).
Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum.
Haldið áfram hringinn með mynstri svona (lykkjur með prjónamerki eru prjónaðar í sléttprjóni), JAFNFRAMT í næstu umferð byrjar ÚTAUKNING FYRIR ERMAR og ÚTAUKNING FYRIR BERUSTYKKI, aukið út eins og útskýrt er að neðan:

ÚTAUKNING FYRIR ERMAR:
Prjónið sléttprjón á ermum.
JAFNFRAMT í næstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir ermar þannig:
Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri).
Aukið út á ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 7-10-7-9-6-8 sinnum.

ÚTAUKNING FYRIR BERUSTYKKI (á við um framstykki og bakstykki):
Prjónið mynstur eins og áður á framstykki og bakstykki.
JAFNFRAMT í næstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir berustykki þannig:
Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri).
Aukið út á framstykki og bakstykki og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 0-7-7-7-14-21 sinnum.

Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 290-330-336-372-406-442 lykkjur í umferð.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki eftir kant í hálsi.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 42-45-47-52-59-66 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 64-78-77-85-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 81-87-91-101-115-129 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 64-78-77-85-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 39-42-44-49-56-63 lykkjur eins og áður (= bakstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 174-186-198-222-250-278 lykkjur. Haldið áfram hringinn með mynstri eins og áður, en yfir 14-6-12-10-10-10 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp + 4-0-2-0-0-0 lykkjur hvoru megin við þessar lykkjur) prjónið sléttprjón.
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 19-19-18-18-17-17 cm frá skiptingu. Stillið af að síðasta umferð sem er prjónuð sé 2., 4., 6. eða 8. umferð í mynsturteikningu A.3 og prjónið næstu umferð þannig:
Prjónið mynstur eins og áður, en hoppið yfir uppsláttinn í hverri mynstureiningu A.3 (= það er fækkað um 1 lykkju í hverri mynstureiningu A.3), jafnframt er aukið út um 4-3-6-5-5-5 lykkjur jafnt yfir 14-6-12-10-10-10 lykkjur slétt í hvorri hlið (= 20-24-24-28-32-36 lykkjur færri og 8-6-12-10-10-10 lykkjur fleiri í umferð) = 162-168-186-204-228-252 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið nú stroff þannig:
Prjónið 2 síðustu lykkjurnar í A.1, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 – klukkuprjónslykkjan í A.1 á að passa yfir sléttar lykkjur í A.3.
Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir klukkuprjónslykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Peysan mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 64-78-77-85-88-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-10-10-10 nýjum lykkjum undir ermi = 70-84-85-95-98-102 lykkjur.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 21-20-19-15-14-13 cm frá skiptingu – mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú er eftir ca 9 cm stroff að loka máli), fækkið um 28-42-40-47-47-51 lykkjur jafnt yfir = 42-42-45-48-51-51 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið A.1 hringinn í 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir klukkuprjónslykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Ermin mælist ca 30-29-28-24-23-22 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 17.03.2021
AXLARSÆTI:.. Nú er prjónað mynstur (1 klukkuprjónslykkja, 2 lykkjur brugðið) fram og til baka þar til stykkið mælist 7-7-7-8-8-8 cm... BERUSTYKKI:.. Haldið áfram hringinn með mynstur þannig (lykkjur með prjónamerki eru prjónaðar í sléttprjóni)...
Yfirfarið á vefsvæði: 28.06.2021
Nýr texti undir AXLARSÆTI.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = stingið hægri prjóni í gegnum lykkjuna frá fyrri umferð, prjónið 1 lykkju slétt og sleppið lykkjunum af vinstri prjóni (= klukkuprjónslykkja)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

White Water

Charlotta, Sweden

White Water

Charlotta, Sweden

White Water

Beatrice Mauri, Italy

White Water

Inês, Portugal

White Water

Skonsa, Iceland

White Water

Amy Diep, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (66)

country flag Willemien wrote:

Ben nu het vierde exemplaar aan het breien. Elke keer struikel ik overhet begin van het te breien lijf, Het aantal steken voor het lijf klopt in eerste instantie, Maar in de tweede regel wordt dan weer gesproken over +4-0-2-0-0-0 steken aan elke kant van de steken. Ik heb deze er steeds weer bij opgezet, anders nap ik het niet. Klopt dit wel? Alvast dank voor de reactie.

28.08.2022 - 23:05

DROPS Design answered:

Dag Willemien,

Als het goed is heb je 6-6-8-10-10-10 nieuwe steken opgezet onder de mouw. Als je bezig bent met het lijf is het de bedoeling dat je deze 6-6-8-10-10-10 steken in tricotsteek breit plus 4-0-2-0-0-0 steken die aan elke kant naast deze steken liggen. De rest brei je in patroon. Je hoeft dus geen extra steken op te zetten.

31.08.2022 - 14:07

country flag Clarine wrote:

Hoi Ik heb een vraag over het aantal garen. Er staat bv voor maat L dat je 225 gr drops silk dat zijn 9 bollen per 25 gr nodig hebt. Is dit genoeg omdat het met 2 draden gebreid wordt? Het aantal halveert door dat je met 2 draden gaat breien, dan zou ik voor de hele trui 4 en een halve bol garen hebben waaruit ik de panden en de mouwen zou moeten breien.

25.08.2022 - 10:06

DROPS Design answered:

Dag Clarine,

Ja hoor, de hoeveelheid garen klopt. Het is heel licht garen, met een lange looplengte, dus je hebt minder bollen nodig, ook al brei je met 2 draden.

25.08.2022 - 11:42

country flag Caro wrote:

Hallo, Leider verstehe ich die Zunahme nach den 78 stillgelegten Maschen für die Ärmel nicht. Da steht „= an der Seite unter dem Arm“ 6 Maschen zu nehmen. Was genau heißt das? Danke für die Hilfe

19.08.2022 - 20:06

DROPS Design answered:

Liebe Caro, diese 6 Maschen werden Sie in jede der 6 Maschen auffassen, die Sie bei der Verteilung angeschlagen haben - dieses Video zeigt ab Bild 18, B wie man diese Maschen auffasst und strickt. Viel Spaß beim stricken!

22.08.2022 - 09:17

country flag Sandra Billard wrote:

Further to my original question. There is no front band on the sweater it is a pull over. Pattern Drops 222-25. I have 280 size large stitch according to the pattern. Perhaps you are looking at a cardigan pattern? PS. Thanks for the quick response.

18.08.2022 - 16:07

DROPS Design answered:

Dear Mrs Billard, oops my bad sure, then you wil work; A.3 over 35 sts + first 3 sts (= 38 sts for 1/2 back piece), then knit 1 with a marker, knit 65 (sleeve), knit 1 with a marker, 73 sts A.3 (= 10 repeats of 7 sts + first 3 sts for front piece);, hen knit 1 with a marker, knit 65 (sleeve), knit 1 with a marker, 35 sts A.3 (= 5 repeats of 7 sts for 1/2 back piece = 38+1+65+1+73+1+65+1+35=280 sts. Can this help further?

19.08.2022 - 08:33

country flag Sandra Billard wrote:

Yoke: after 4th marker. Reads work A3 over the next 35 stitches, is this correct? Size large reads total of 280 stitches. If you add each section (38, 65, 73, 65 and finally 35 this totals 276. Please tell me what I’m missing.

18.08.2022 - 14:58

DROPS Design answered:

Dear Mrs Billard, in size L you should have 293 sts: 5 front band sts + 35 sts A.3 + first 3 sts A.3 (= 43 sts for front piece), K1 with a marker + knit 65 sts (sleeve) + K1 with a marker + 70 sts A.3 + first 3 sts A.3 (= 73 sts for back piece), K1 with a marker + knit 65 sts (sleeve) + K1 with a marker, 35 sts A.3 + first 3 sts A.3 + 5 front band sts (= 43 sts front piece) = 43+1+65+1+73+1+65+1+43=293 sts. Happy knitting!

18.08.2022 - 15:26

country flag Sandra Billard wrote:

Previous comment should have gone to questions. Regarding Drops 222-25 pattern. Please let me know if I should repeat it to questions.

17.08.2022 - 21:33

DROPS Design answered:

Dear Mrs Billard, the 21 stitches worked and repeat from *-* are the 21 sts you get at the end of the shoulder, you will work kfb each of these stitches + make a yarn over after this increase = there were 21 sts, you kfb = increase 21 sts and make a yarn over = 21sts increased + kfb in the next stitch = 1 st increased = 21+21+1=43 sts increased = there are now 67 sts for the shoulder. Happy knitting!

18.08.2022 - 09:08

country flag Sandra Billard wrote:

Drops 222-25. Second paragraph of Saddle Shoulders. I have picked up and increased half the back plus 16 stitches along the saddle should edge, etc but I don’t understand how to repeat between the ** 21 times. There are no more stitches to knit. Do I by chance knit ** back and forth 21 times? Also, is the back of the sweater plain stockinette stitch? No photos show the back.

17.08.2022 - 20:52

DROPS Design answered:

Hi Sandra, in each of next 21 stitches you should work this section between stars * knit 1 in front and back loop of next stitch, make 1 yarn over *. It will be pouffe sleeve. Please see the video HERE. Happy knitting!

14.09.2022 - 08:54

country flag Alzbeta wrote:

Hi, I like the pattern and I'd love to make a sweater out of it. However I am not sure about the size. Could you, please, be so kind and give me the bust mesurements of sizes S, M and L ? And how much of the positive easy is the pattern ment to have ? Thank you

18.05.2022 - 14:21

DROPS Design answered:

Dear Mrs Alzbeta, measure a similar garment you have and like the shape and compare these measurements to the chart at the bottom of the page, this is the best way to find the matching size and your own and desire ease. Read more here. Happy knitting!

18.05.2022 - 16:46

country flag Sara wrote:

Salve ho difficoltà a capire come devo intrecciare le maglie del corpo, cosa si intende con "Intrecciare a diritto sulla maglia legaccio e a sulle maglie a coste inglesi e con rovescio su rovescio "? Grazie

16.05.2022 - 22:59

DROPS Design answered:

Buonasera Sara, grazie per la segnalazione, abbiamo corretto il testo per renderlo più chiaro. Buon lavoro!

17.05.2022 - 19:06

country flag Christiane Bruguier wrote:

Merci beaucoup tout va bien !j'ai trouvé la solution :j'intervertis tous les les 2 rangs les 2 mailles envers avant le point ajouré donc une fois avant le point ajouré comme sur le diagramme et 2 rangs après je place les 2 mailles envers après le point ajouré et celui-ci reste bien centré ...

19.04.2022 - 20:23