DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10010.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

White Water Jacket

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti, gatamynstri og puffermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 222-26
DROPS Design: Mynstur ks-173
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
175-200-225-250-275-300 g litur 38, krít

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.
20 lykkjur á breidd með mynstri A.3 = 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og gatamynstri.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 5-5-6-6-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10010.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja sem fækka/auka á út í umferð (t.d. 17 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 3,4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca önnur hver og 3. hver lykkja og 3. hver og 4. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING-1:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 FRÁ RÉTTU:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 3 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 9½-10-8-8½-9-9 cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja eða 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður.
Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan.
Axlir eru prjónaðar fram og til baka hvor fyrir sig. Síðan eru allar lykkjur settar á sama hringprjón jafnframt því sem lykkjur eru prjónaðar upp meðfram axlarsætum. Síðan er berustykkið prjónað fram og til baka frá miðju að framan, jafnframt því sem lykkjur eru auknar út fyrir ermum og berustykki.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 96-102-106-106-110-122 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 yfir næstu 12-15-15-15-15-18 lykkjum, prjónið fyrstu 2 lykkjurnar í A.1, setjið 1 prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstra axlarsæti), prjónið A.2 yfir næstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur, setjið 1 prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli axlarsæti og bakstykkis), prjónið A.1 yfir næstu 30-30-30-30-30-36 lykkjur, prjónið fyrstu 2 lykkjurnar í A.1, setjið 1 prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægra axlarsæti), prjónið A.2 yfir næstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur, setjið 1 prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægra axlarsæti og hægra framstykki), prjónið A.1 yfir næstu 12-15-15-15-15-18 lykkjur, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 3 cm, klippið þráðinn frá.
Nú skiptist stykkið fyrir framstykki, bakstykki og axlarsæti. Setjið fyrstu og síðustu 19-22-22-22-22-25 lykkjurnar á sitt hvorn þráðinn (= framstykki), hoppið yfir næstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur í hvorri hlið (= axlalykkjur), setjið miðju 32-32-32-32-32-38 lykkjurnar á þráð (= bakstykki). Prjónið nú axlarsætin hvort fyrir sig.

AXLARSÆTI:
= 13-13-15-15-17-17 lykkjur. Prjónið fram og til baka yfir axlalykkjur í annarri hlið á hringprjón 3 þannig: Fitjið upp 1 lykkju á prjóninn (= kantlykkja), prjónið 13-13-15-15-17-17 lykkjur í mynstri eins og áður, jafnframt þar sem allar 1 lykkja brugðið er aukið út til 2 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 (= 6-6-7-7-8-8 lykkjur fleiri), fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 21-21-24-24-27-27 lykkjur. Nú er prjónað mynstur (1 klukkuprjónslykkja, 1 lykkja brugðið) fram og til baka þar til stykkið mælist 7-7-7-8-8-8 cm frá þar sem allar 1 lykkja brugðið var aukið út til 2 lykkjur brugðið – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá röngu. Setjið lykkjur á þráð.
Prjónið hitt axlarsætið á sama hátt.

Prjónið nú framstykki, bakstykki og axlalykkjur inn á sama hringprjón 5, jafnframt því sem lykkjur eru prjónaðar upp meðfram hliðum á axlarsæti. Prjónið frá réttu þannig:
5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttar lykkjur yfir 14-17-17-17-17-20 lykkjur og aukið jafnframt út 1-5-5-8-8-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA (= 15-22-22-25-25-32 lykkjur), prjónið upp 16-16-16-20-20-20 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hlið á axlarsæti, prjónið 1 lykkju slétt * 1 lykkja slétt í fremri og aftari lykkjubogann á næstu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 18-18-21-21-24-24 sinnum, prjónið 1 lykkju slétt í fremri og aftari lykkjubogann, 1 lykkja slétt (= 37-37-43-43-49-49 lykkjur fleiri og það eru nú 58-58-67-67-76-76 lykkjur á axlarsæti), prjónið upp 16-16-16-20-20-20 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hinni hliðinni á axlarsæti, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 32-32-32-32-32-38 lykkjur á bakstykki og aukið jafnframt út 9-9-9-15-15-9 lykkjur jafnt yfir (= 41-41-41-47-47-47 lykkjur), prjónið upp 16-16-16-20-20-20 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hlið á axlarsætinu, prjónið 1 lykkju slétt, * 1 lykkja slétt í fremri og aftari lykkjubogann á næstu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 18-18-21-21-24-24 sinnum, prjónið 1 lykkju slétt í fremri og aftari lykkjubogann á lykkju, 1 lykkja slétt (= 37-37-43-43-49-49 lykkjur fleiri og nú eru 58-58-67-67-76-76 lykkjur á axlarsæti), prjónið upp 16-16-16-20-20-20 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hinni hliðinni á axlarsæti, prjónið sléttar lykkjur yfir 14-17-17-17-17-20 lykkjur og aukið jafnframt út 1-5-5-8-8-12 lykkjur jafnt yfir (= 15-22-22-25-25-32 lykkjur), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Nú eru 261-275-293-321-339-353 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður).

BERUSTYKKI:
Setjið eitt prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan - HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið nú mynstur og setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig:
Fyrsta prjónamerki: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.3 yfir næstu 28-35-35-42-42-49 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.3, setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju (= hægra framstykki).
Annað prjónamerki: Prjónið sléttprjón yfir næstu 56-56-65-65-74-74 lykkjur, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju (= hægri ermi).
Þriðja prjónamerki: Prjónið A.3 yfir næstu 70-70-70-84-84-84 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.3, setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju (= bakstykki).
Fjórða prjónamerki: Prjónið sléttprjón yfir næstu 56-56-65-65-74-74 lykkjur, setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju (= vinstri ermi).
Prjónið A.3 yfir næstu 28-35-35-42-42-49 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.3, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= vinstra framstykki).
Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum.
Haldið áfram fram og til baka með mynstri svona (lykkjur með prjónamerki eru prjónaðar í sléttprjóni) JAFNFRAMT í næstu umferð byrjar ÚTAUKNING FYRIR ERMAR og ÚTAUKNING FYRIR BERUSTYKKI, aukið út eins og útskýrt er að neðan:

ÚTAUKNING FYRIR ERMAR:
Prjónið sléttprjón á ermum.
JAFNFRAMT í næstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir ermar þannig:
Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri).
Aukið út á ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 7-10-7-9-6-8 sinnum.

ÚTAUKNING FYRIR BERUSTYKKI:
Prjónið mynstur eins og áður á framstykki og bakstykki.
JAFNFRAMT í næstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir berustykki þannig:
Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri).
Aukið út á framstykki og bakstykki og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 0-7-7-7-14-21 sinnum.

Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 289-343-349-385-419-469 lykkjur í umferð.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki eftir kant í hálsmáli.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 40-50-52-57-64-78 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 64-78-77-85-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 81-87-91-101-115-129 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 64-78-77-85-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 40-50-52-57-64-78 lykkjur eins og áður (= framstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 173-199-211-235-263-305 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og áður, en yfir 14-6-12-10-10-10 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp + 4-0-2-0-0-0 lykkjur hvoru megin við þessar lykkjur) prjónið sléttprjón.
Þegar stykkið mælist 19-19-18-18-17-17 cm frá skiptingu, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3 eins og áður yfir næstu 31-45-45-52-59-73 lykkjur, en hoppið yfir uppsláttinn í hverri mynstureiningu A.3 (fækkað er um 1 lykkju í hverri mynstureiningu A.3 = 4-6-6-7-8-10 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 14-6-12-10-10-10 lykkjur og aukið jafnframt út 4-3-6-5-5-5 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 73-87-87-101-115-129 lykkjur en hoppið yfir uppsláttinn í hverri mynstureiningu A.3 (fækkað er um 1 lykkju í hverri mynstureiningu A.3 = 10-12-12-14-16-18 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 14-6-12-10-10-10 lykkjur og aukið jafnframt út 4-3-6-5-5-5 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 31-45-45-52-59-73 lykkjur, en hoppið yfir uppsláttinn í hverri mynstureiningu A.3 (fækkað er um 1 lykkju í hverri mynstureiningu A.3 = 4-6-6-7-8-10 lykkjur færri), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 163-181-199-217-241-277 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið nú stroff þannig:
5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 2 síðustu lykkjurnar í A.1, síðan er prjónað A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – klukkuprjónslykkjan í A.1 á að passa yfir sléttar lykkjur í A.3.
Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir garðaprjóns lykkjur og klukkuprjónslykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Peysan mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 64-78-77-85-88-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-10-10-10 nýjum lykkjum undir ermi = 70-84-85-95-98-102 lykkjur.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 22-20-18-16-15-12 cm frá skiptingu – mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú er eftir ca 9 cm stroff að loka máli), fækkið um 28-42-40-47-47-51 lykkjur jafnt yfir = 42-42-45-48-51-51 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið A.1 hringinn í 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir klukkuprjónslykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Ermin mælist ca 31-29-27-25-24-21 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 17.03.2021
AXLARSÆTI:.. Prjónið nú mynstur (1 klukkuprjónslykkja, 2 lykkjur brugðið) fram og til baka þar til stykkið mælist 7-7-7-8-8-8 cm... BERUSTYKKI:.. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka (lykkjur með prjónamerki eru prjónaðar í sléttprjóni)
Yfirfarið á vefsvæði: 28.06.2021
Nýr texti undir AXLARSÆTI.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = stingið hægri prjón í gegnum lykkjuna frá fyrri umferð, prjónið 1 lykkju slétt og sleppið lykkjunum af vinstri prjóni (= klukkuprjónslykkja)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið – það eiga að myndast göt

symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

White Water Jacket

Elise, France

White Water Jacket

Aidas, Denmark

White Water Jacket

Ivy, United Kingdom

White Water Jacket

Bethany, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Annie Puigrenier wrote:

Merci pour votre réponse rapide .

13.02.2024 - 08:35

country flag Annie Puigrenier wrote:

Bonjour, je suis au début de mon ouvrage pour faire le montage des cotes du col et je ne comprends pas la répartition des mailles avec les diagrammes A1 et A2 . J’ai toujours les mailles en trop …Pouvez-vous me donner plus de détails. Je vous remercie. Cordialement.

12.02.2024 - 09:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Puigrenier, tricotez ainsi: 5 m point mousse, 12 à 18 m de A.1 (cf taille) + les 2 premières mailles de A.1 (= 14 à 20 mailles de A.1), marqueur, 13 à 17 m de A.2, marqueur, 30-36 m de A.1 + les 2 premières m de A.1 (32-38 m de A.1), marqueur, 12 à 17 m de A.2, marqueur, 12 à 18 m de A.1 + les 2 premières m de A.1 (= 14 à 20 m de A.1), 5 m point mousse. Bon, tricot!

13.02.2024 - 08:04

country flag Kirsi Kaikkonen wrote:

Hej! Får inte maskantalet att gå i hop i stl S ! Är vid sadelaxlen där framstycke, bakstycke och axelmaskorna ska stickas på samma sticka och här får jag inte det att gå ihop så jag får 58 maskor! Vad gör jag för fel?

31.01.2024 - 16:00

DROPS Design answered:

Hei Kirsi. Vanskelig å vite hva du har gjort feil. Hvor mange masker har du? Har du økt i alle vrangmaskene på begynnelsen av sadelskuldren? Har du økt til kantmasker når sadelskuldren ble strikket? Har du sett på hjelpevideoen lengre ned på siden? Kanskje den kan hjelpe deg. mvh DROPS Design

09.02.2024 - 10:55

country flag Lidwina wrote:

I would like to knit this cardigan in stocking stitch only and I wonder wether I do need all the increased stitches when starting the body? Does it affect the amount of yarn needed as well? Thanks for your advise Lidwina

30.10.2023 - 23:45

DROPS Design answered:

Dear Lidwina, you can get help from our basic patterns worked top down with saddle shoulders here, it might be easier than to adapt another pattern. Happy knitting!

31.10.2023 - 15:56

country flag Elise wrote:

Bonjour, Au moment de l'empiècement, pour augmenter je suis perdue, j'ai l'habitude d'augmenter d'un côté ou de l'autre d'un marqueur entre deux mailles. Ici le marqueur etant sur UNE maille, dois je augmenter avant la maille marqueur/ tricoter la maille marqueur/ augmenter après la maille marqueur ? Merci

15.10.2023 - 09:53

DROPS Design answered:

Bonjour Elise, effectivement, vous allez simplement devoir augmenter avant et/ou après la maille avec le marqueur, tricotez les mailles avec le marqueur à l'endroit et augmentez soit avant, soit après soit avant et après end onction des augmentations à faire. Bon tricot!

16.10.2023 - 09:34

country flag Wibeke Brunvær Nilsen wrote:

Hvor finner jeg målene som gjør at jeg kan velge riktig størrelse? Ser en kommentar ovenfor om at 96 cm tilsvarer str M.

02.10.2023 - 21:15

DROPS Design answered:

Hei Wibeke, Du finner målskissen på bunnen av oppskriften. God fornøyelse!

03.10.2023 - 06:49

country flag Sharon Lubasch wrote:

Hello: it seems to be an error in the measurements: Chest measurements: 90-106-104-114-128-142 cm = 35 1/2"-41 3/4"-41"-45"-50 3/8"-55 3/4" which is the real measure of the M size? with Thanks, Sharon

31.07.2023 - 14:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs Lubasch, the chest circumference of the finished jacket in size M should be approx. 96 cm, this means approx. =3 ft 1.80 inch (37.80 in). Happy knititng!

31.07.2023 - 15:38

country flag Leonie wrote:

Am Ende des Teils für die Sattelschulter sollten in Größe M 271 Maschen auf der Nadel sein, nicht 275 wie angegeben. Als nächstes strickt man für die Passe 5+35+3+56+70+3+56+35+3+5=271 Maschen. Wäre toll, wenn Ihr das korrigieren könntet :)

26.05.2023 - 23:08

DROPS Design answered:

Liebe Leonie, 275 Maschen sind richtig: 5 Blenden-Maschen, 17 Maschen stricken +5 Maschen zunehmen (22); 16 Maschen auffassen, dann 21 Maschen stricken + 37 Maschen zunehmen (= 58 Maschen), 16 Maschen auffassen, 32 Maschen stricken + 9 Maschen zunehmen (41 Maschen), 16 Maschen auffassen, dann 21 Maschen stricken + 37 Maschen zunehmen (= 58 Maschen), 16 Maschen auffassen, 17 Maschen stricken + 5 Maschen zunehmen (22 Maschen) + 5 Blenden-Maschen=5+22+16+58+16+41+16+58+16+22+5=275 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

30.05.2023 - 12:00

country flag Hélène Demonet wrote:

Bonjour, je tricote la plus petite taille. Je suis bloquée pour les augmentations. Comment arrive-t-on à augmenter les manches en 7 fois alors que le nombre final résulte de seulement 4 fois ? Pour l'empiècement, les explications prévoient 0 augmentation après une seule augmentation qui impliquerait la création en une seule fois de 4 mailles pour les devants et 8 mailles pour le dos. Merci pour vos éclaircissements.

19.12.2022 - 11:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Demonet, en S on augmente 7 fois pour les manches (et pas pour l'empiècement), vous aurez ainsi 70 m entre les marqueurs pour les manches, mais lors de la division, les 3 premières mailles de la manche + les 3 dernières mailles de la manche seront attribuées au devant gauche/dos et au dos/devant droit. Bon tricot!

19.12.2022 - 13:06

country flag Solveig wrote:

Hei, nydelig jakke som jeg skal strikke til min datter, men jeg ser ikke noen diagrammer eller symboler. Hvor finner jeg dem? Hilsen Solveig

19.11.2022 - 16:07

DROPS Design answered:

Hei Solveig, Diagammene finnes på bunnen av oppskriften. God fornøyelse!

21.11.2022 - 06:51