Lavender Breeze |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni með laskalínu og v-hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 213-7 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KLUKKUPRJÓNS LYKKJA (á við um kanta að framan): Frá réttu: Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir næstu lykkju. Frá röngu: Prjónið lykkjuna brugðið. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING FYRIR LASKALÍNU: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við brugðnu lykkju með prjónamerki í (= laskalínu lykkjurnar), þ.e.a.s. aukið út í sléttri lykkju og uppslátt sem liggur næst laskalínu lykkju. Aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við laskalínu lykkjur (= 16 lykkjur fleiri í útauknings umferð). Allar útaukningar eru gerðar frá réttu! Aukið út um 2 lykkjur í slétta lykkju og uppslátt með því að prjóna 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn þannig: Prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni yfir og uppsláttinn á hægri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sömu lykkju og uppslátt slétt saman einu sinni til viðbótar (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið síðan nýjar lykkjur í klukkuprjóni (A.1/A.2), en gætið að í fyrstu umferð á eftir útaukningu þá kemur þessi eina útaukna lykkja að vera prjónuð slétt án þess að vera prjónuð saman við uppslátt, þar sem ekki er uppsláttur fyrir þessa lykkju. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: Aukið út fyrir v-hálsmál í sléttu lykkjuna og uppsláttinn sem liggur næst kanti að framan í hvorri hlið við miðju að framan. Allar útaukningar eru gerðar frá réttu! Aukið út 2 lykkjur í sléttu lykkjuna og uppsláttinn alveg eins og útskýrt er í útaukningu fyrir laskalínu. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Fækkið lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki og undir ermar í lykkjurnar sem liggja næst brugðinni lykkju með prjónamerki í mitt undir ermi/í hliðum á fram- og bakstykki. Öll úrtaka er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónuð slétt saman! FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR TIL VINSTRI ÞANNIG (þ.e.a.s. byrjið strax eftir brugðinni lykkju með prjónamerki í): Lyftið yfir fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum á hægri prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðið + 1 lykkja slétt og uppsláttur), steypið síðan lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR TIL HÆGRI ÞANNIG (þ.e.a.s. byrjið 3 lykkjum + 2 uppsláttum á undan brugðinni lykkju með prjónamerki í): Lyftið yfir fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slett saman, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir brugðnu lykkjuna, lyftið til baka lykkjunni yfir á vinstri prjón, lyftið lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjuna sem sett voru til baka á vinstri prjón, lyftið að lokum yfir þá lykkju sem eftir eru á hægri prjóni (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í vinstri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu í byrjun á umferð þannig: Prjónið 3 fyrstu lykkjurnar í kanti að framan eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjurnar slétt saman og prjónið síðan áfram eins og áður. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu ca 2 cm eftir síðustu útaukningu fyrir v-hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 3-3-4-4-4-4 hnappagötum með ca 9½-10-8½-9-8-8 cm millibili. ATH: Ef prjónfestan passar ekki á hæðina, kemur það til með að hafa áhrif á staðsetningu á hnappagötum. Mælið flíkina þegar v-hálsmálið er tilbúið og stillið af e.t.v. staðsetningu með 4-4-5-5-5-5 hnappagötum eftir því máli sem eftir er á framstykki. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru prjónaðir 2 lausir kantar í hálsmáli (einn fyrir hvort framstykki). Þeir eru síðan settir inn á hringprjóninn þar sem fitjarðar eru upplykkjur fyrir hálsmáli eins og útskýrt er í uppskrift (kantar í hási eru síðar saumaðir saman mitt að aftan og síðan saumaðir vi hálsmál aftan í hnakka). Síðan er berustykkið prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. JAFNFRAMT er aukið út fyrir v-hálsmáli og laskalínu. Ermar eru síðan prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón ofan frá og niður. ATH: Allur lykkjufjöldinn sem er gefinn upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar þar sem uppslátturinn er talinn með sem 1 lykkja saman með sléttu lykkjunni. HÆGRI KANTUR Í HÁLSMÁLI (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 7 lykkjur á prjón 4 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, 1 KLUKKUPRJÓNS LYKKJA – sjá útskýringu að ofan, 2 lykkjur slétt, 1 klukkuprjóns lykkja, 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt. Endurtakið umferð 2 og 3 þar til kantur í hálsmáli mælist ca 13-13-13-16-16-16 cm (endið eftir umferð frá röngu). Klippið frá og geymið stykkið. VINSTRI KANTUR Í HÁLSMÁLI (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 7 lykkjur á prjón 4 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, 1 klukkuprjóns lykkja, 2 lykkjur slétt, 1 klukkuprjóns lykkja, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt. Endurtakið umferð 2 og 3 þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 13-13-13-16-16-16 cm (endið eftir umferð frá réttu). Setjið þessar 7 lykkjur á hringprjón 5, ekki klippa þráðinn frá, en fitjið upp 51-53-59-59-59-59 nýjar lykkjur á prjóninn (= lykkjur yfir ermar og bakstykki) og prjónið síðan 7 lykkjur frá hægri kanti í hálsmáli eins og áður = 65-67-73-73-73-73 lykkjur í umferð. Þær ystu 7 lykkjur í hvorri hlið kallast nú kantlykkjur að framan. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið og endið með 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð síðar þegar auka á út í laskalínu. Teljið 8 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalína), teljið 11-11-13-13-13-11 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalína), teljið 23-25-27-27-27-31 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalína), teljið 11-11-13-13-13-11 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalína). Nú eru 8 lykkjur eftir á framstykki á eftir síðasta prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð (= 25-26-29-29-29-29 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með 7 kantlykkjum að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA og V-HÁLSMÁL eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LASKALÍNA: Þegar prjónaðar hafa verið alls 6-6-6-6-4-4 umferðir fram og til baka með A.1/A.2 (og næsta umferð er prjónuð frá réttu), aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýring að ofan (=16 lykkjur fleiri í útauknings umferð). Aukið svona út í 8.-8.-8.-8.-6.-6. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4.-4.-4.-4.-3.-3. hverri umferð með sýnilegum klukkuprjóns lykkjum á hæðina) alls 8-9-10-11-13-14 sinnum á hæðina. V-HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar auka á út fyrir laskalínu í 3.-3.-2.-2.-5.-5. skipti á hæðina, aukið einnig út fyrir V-HÁLSMÁL í hvorri hlið við miðju að framan – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir v-hálsmáli í 8.-8.-8.-8.-6.-6. hverri umferð alls 5-5-6-6-6-7 sinnum á hæðina (þegar útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið, eru eftir 1-2-3-4-3-3 útaukningar fyrir laskalínu). Þegar öll útaukning fyrir laskalínu og v-hálsmáli er lokið, eru 213-231-257-273-305-325 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.1/A.2 fram og til baka með 7 kantlykkjum að framan í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður - Munið eftir HNAPPAGAT í vinstri kanti að framan - sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki sem sett var í háls (stykkið mælist ca 22-24-26-28-30-32 cm frá öxl), skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 34-36-40-42-46-50 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 45-49-55-59-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 55-61-67-71-79-87 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 45-49-55-59-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 34-36-40-42-46-50 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 133-143-157-165-181-197 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðu 5 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki. Haldið áfram fram og til baka með klukkuprjóni og 7 kantlykkjum að framan í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður. ÚRTAKA Í HLIÐUM: Þegar stykkið mælist 8 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur í hvoru framstykki með því að fækka um 2 lykkjur í klukkuprjóns lykkjur sem liggja næst brugðinni lykkju með prjónamerki í hliðum – sjá ÚRTAKA. Þ.e.a.s. á vinstra framstykki (þegar flíkin er mátuð) fækkið um 2 lykkjur til hægri og á hægra framstykki er fækkað um 2 lykkjur til vinstri = 129-139-153-161-177-193 lykkjur. Þegar stykkið mælist 18 cm frá skiptingu, fækkið lykkjum alveg eins og á bakstykki (þ.e.a.s. fækkið um 2 lykkjur til vinstri í byrjun á bakstykki og 2 lykkjur til hægri í lok bakstykkis) = 125-135-149-157-173-189 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 30 cm frá skiptingu í öllum stærðum (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff fram og til baka (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður – í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt saman við sléttu lykkjurnar. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 45-49-55-59-67-69 lykkjurnar frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-54-60-64-72-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 5 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið A.3 hringinn. JAFNFRAMT í 8. umferð (þ.e.a.s. í 4. sýnilegu umferðinni með klukkuprjóns lykkjum), fækkið um 4 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA (fækkið um 2 lykkjur til vinstri eftir lykkjuna með prjónamerki í og fækkið um 2 lykkjur til hægri á undan lykkjunni með prjónamerki í). Fækkið lykkjum svona í 8.-8.-8.-8.6.-6. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4.-4.-4.-4.-3.-3. Sýnilegu umferðinni með klukkuprjóns lykkjum) alls 3-3-4-5-5-5 sinnum á hæðina = 38-42-44-44-52-54 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 41-40-38-37-36-35 cm frá skiptingu (nú eru eftir 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt saman með sléttum lykkjum. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 45-44-42-41-40-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman kant í hálsmáli mitt að aftan þannig að saumurinn snúi inn. Strekkið aðeins á kantinum og saumið við hálsmál aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (98)
Kettel Susanne wrote:
Hallo, ist die Maschenprobe vor dem messen gewaschen worden? Patent wird nach dem waschen ja deutlich größer? VG
20.03.2024 - 09:51DROPS Design answered:
Liebe Frau Kettel, Maschenprobe wird nicht gewaschen; die fertige Jacke sollte nach Waschen nicht grösser werden - bei der Farbkarte lesen Sie Pflegehinweise - Viel Spaß beim Stricken!
20.03.2024 - 15:17Susanne wrote:
Vorrei sapere se esiste un video per le diminuzioni sotto la manica di un cardigan topdown lavorato a maglia inglese. Grazie
29.02.2024 - 19:58DROPS Design answered:
Buonasera Susanne, al momento non abbiamo un video specifico per l'argomento. Buon lavoro!
11.03.2024 - 23:53Hermine wrote:
Dus knoopsgaten links en de knopen ook links? Dat gaat moeilijk zijn om te sluiten vrees ik….. Leuke trui overigens !👌
01.02.2024 - 22:21Lena wrote:
Ich glaube sie haben mich falsch verstanden ich meinte die Raglanmasche zwischen den Raglanzunahmen. Wird sie einfach links gestrickt oder so wie vorher im Muster mit Umschlag und links abgehoben?
27.11.2023 - 17:04DROPS Design answered:
Liebe Lena, sorry fürs Misverständnis, die Maschen mit den Markierungen / die Raglanmasdchen werden wie die 2. Masche in A.1 gestrickt, dh bei den Rückreihen wird diese Masche rechts zusammen mit dem Umschlag gestrickt (sieht bei der Vorderseite wie eine linke Masche aus). Viel Spaß beim stricken!
28.11.2023 - 08:30Lena wrote:
Hallo ich versuche diese schöne Strickjacke zu stricken und frage mich gerade ob die Raglanmasche einfach links gestrickt wird oder muss sie wie im Muster mit Umschlg und links abgehoben werden ? Liebe Grüße Lena
27.11.2023 - 12:42DROPS Design answered:
Liebe Lena, bei den Blenden gibt es keine extra Randmaschen, stricken Sie die 7 Maschen einfach wie beschrieben, dann bei der Passe stricken Sie die 7 BlendenMaschen wie zuvor (die 1. und die letzte von diesen 7 Maschen wird krausrechts gestrickt: rechts bei den Hin- sowie bein den Rückreihen). Viel Spaß beim stricken!
27.11.2023 - 15:59Lenka wrote:
Dobrý den, chtěla bych se zeptat, jak mam dosáhnout počtu 257 ok (vel. M)? Když přidávám podle návodu, tak nahodim sice 16 nových ok v řadě, ale ve skutečnosti jich mam 8, protože je spletám podle vzoru A1, takže 2 oka stejně spletu. Asi jsem nepochopila ten návod přidávání u raglanu :( stejně tak moc nechápu, kde mam ty oka přidávat, protože když se snažím je přidat v hladkém oku s nahozenim u všech značek, tak mi potom nevychází vzor A1. Moc děkuju za radu.
14.10.2023 - 18:32ALLEMAND GISELE wrote:
Bonjour, je suis désespérée! sur le point de laisser tomber mon ouvrage! j'ai fais toutes mes augmentations raglan et encolure 5 x 2 avec (40 augmentations) pour l'encolure et 8 x 2 pour les raglans (64 augmentations) et je me retrouve avec 169 mailles! taille xs . j'ai bien monté 51 mailles au début entre les deux bordures d'encolure de 7 mailles.
04.10.2022 - 15:39DROPS Design answered:
Bonjour Mme Allemand, vous démarrez l'empiècement avec 65 mailles, vous devez augmenter pour le raglan 8 fois 16 mailles (= 2 m avant chaque marqueur + 2 m après chaque marqueur x 4 marqueurs = 16 m x 8 = 128 mailles au total = ) et vous augmentez 5 fois 2 mailles pour l'encolure V (= 10 m x 2 devants = 20 m), vous devez ainsi avoir: 65+128+20= 213 mailles. En espérant que ceci puisse vous aider. Bon tricot!
04.10.2022 - 16:28Catalina wrote:
Thank you!
25.09.2022 - 20:34Catalina Nicoleta Mocanu wrote:
HELLO! I don't understand how to knit the sleeve once the 45 stitches have been taken up and pick up the 5 new ones. Would I have to start with row 2 of A3? When I start with the first row I get the stitches backwards. Thanks.
25.09.2022 - 18:59DROPS Design answered:
Dear Catalina, you have divided in the yoke for the body and sleeves on the wrong side. So you should work the first row of A.3 on the right side to start the sleeves. Since the sleeves are worked in the round, you always work on the right side of the garment. Happy knitting!
25.09.2022 - 20:07Anoulack wrote:
Bonjour, est-il possible de me répondre car je suis coincée sur cette étape, je tricote la taille M et j ai un doute sur le début de l’augmentation de l’encolure. Se fait elle pas a partir de là 4ème augmentation du Raglan au lieu de 2? Merci Anoulack
18.04.2022 - 22:20DROPS Design answered:
Bonjout Anoulack, vous trouverez la réponse à votre question ci-dessous. Bon tricot!
19.04.2022 - 11:50