DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lavender Breeze

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni með laskalínu og v-hálsmáli. Stærð XS - XXL.

DROPS 213-7
DROPS Design: Mynstur z-883
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-300-300-350 g litur 4010, ljós lavender
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-100-100-125-125-125 g litur 09, ljós lavender

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 36 umferðir á hæð með klukkuprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir klukkuprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TRÉTALA NR 511: 4-4-5-5-5-5 stykki.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

KLUKKUPRJÓNS LYKKJA (á við um kanta að framan):
Frá réttu: Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir næstu lykkju.
Frá röngu: Prjónið lykkjuna brugðið.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING FYRIR LASKALÍNU:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við brugðnu lykkju með prjónamerki í (= laskalínu lykkjurnar), þ.e.a.s. aukið út í sléttri lykkju og uppslátt sem liggur næst laskalínu lykkju. Aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við laskalínu lykkjur (= 16 lykkjur fleiri í útauknings umferð). Allar útaukningar eru gerðar frá réttu!
Aukið út um 2 lykkjur í slétta lykkju og uppslátt með því að prjóna 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn þannig: Prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni yfir og uppsláttinn á hægri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sömu lykkju og uppslátt slétt saman einu sinni til viðbótar (= 2 lykkjur fleiri).
Prjónið síðan nýjar lykkjur í klukkuprjóni (A.1/A.2), en gætið að í fyrstu umferð á eftir útaukningu þá kemur þessi eina útaukna lykkja að vera prjónuð slétt án þess að vera prjónuð saman við uppslátt, þar sem ekki er uppsláttur fyrir þessa lykkju.

ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI:
Aukið út fyrir v-hálsmál í sléttu lykkjuna og uppsláttinn sem liggur næst kanti að framan í hvorri hlið við miðju að framan. Allar útaukningar eru gerðar frá réttu!
Aukið út 2 lykkjur í sléttu lykkjuna og uppsláttinn alveg eins og útskýrt er í útaukningu fyrir laskalínu.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum):
Fækkið lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki og undir ermar í lykkjurnar sem liggja næst brugðinni lykkju með prjónamerki í mitt undir ermi/í hliðum á fram- og bakstykki.
Öll úrtaka er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónuð slétt saman!
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR TIL VINSTRI ÞANNIG (þ.e.a.s. byrjið strax eftir brugðinni lykkju með prjónamerki í): Lyftið yfir fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum á hægri prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðið + 1 lykkja slétt og uppsláttur), steypið síðan lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri).
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR TIL HÆGRI ÞANNIG (þ.e.a.s. byrjið 3 lykkjum + 2 uppsláttum á undan brugðinni lykkju með prjónamerki í): Lyftið yfir fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slett saman, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir brugðnu lykkjuna, lyftið til baka lykkjunni yfir á vinstri prjón, lyftið lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjuna sem sett voru til baka á vinstri prjón, lyftið að lokum yfir þá lykkju sem eftir eru á hægri prjóni (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í vinstri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu í byrjun á umferð þannig: Prjónið 3 fyrstu lykkjurnar í kanti að framan eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjurnar slétt saman og prjónið síðan áfram eins og áður. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu ca 2 cm eftir síðustu útaukningu fyrir v-hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 3-3-4-4-4-4 hnappagötum með ca 9½-10-8½-9-8-8 cm millibili.
ATH: Ef prjónfestan passar ekki á hæðina, kemur það til með að hafa áhrif á staðsetningu á hnappagötum. Mælið flíkina þegar v-hálsmálið er tilbúið og stillið af e.t.v. staðsetningu með 4-4-5-5-5-5 hnappagötum eftir því máli sem eftir er á framstykki.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru prjónaðir 2 lausir kantar í hálsmáli (einn fyrir hvort framstykki). Þeir eru síðan settir inn á hringprjóninn þar sem fitjarðar eru upplykkjur fyrir hálsmáli eins og útskýrt er í uppskrift (kantar í hási eru síðar saumaðir saman mitt að aftan og síðan saumaðir vi hálsmál aftan í hnakka).
Síðan er berustykkið prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. JAFNFRAMT er aukið út fyrir v-hálsmáli og laskalínu. Ermar eru síðan prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón ofan frá og niður.
ATH: Allur lykkjufjöldinn sem er gefinn upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar þar sem uppslátturinn er talinn með sem 1 lykkja saman með sléttu lykkjunni.

HÆGRI KANTUR Í HÁLSMÁLI (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 7 lykkjur á prjón 4 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, 1 KLUKKUPRJÓNS LYKKJA – sjá útskýringu að ofan, 2 lykkjur slétt, 1 klukkuprjóns lykkja, 2 lykkjur slétt.
UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt.
Endurtakið umferð 2 og 3 þar til kantur í hálsmáli mælist ca 13-13-13-16-16-16 cm (endið eftir umferð frá röngu). Klippið frá og geymið stykkið.

VINSTRI KANTUR Í HÁLSMÁLI (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 7 lykkjur á prjón 4 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, 1 klukkuprjóns lykkja, 2 lykkjur slétt, 1 klukkuprjóns lykkja, 1 lykkja slétt.
UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt.
Endurtakið umferð 2 og 3 þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 13-13-13-16-16-16 cm (endið eftir umferð frá réttu).
Setjið þessar 7 lykkjur á hringprjón 5, ekki klippa þráðinn frá, en fitjið upp 51-53-59-59-59-59 nýjar lykkjur á prjóninn (= lykkjur yfir ermar og bakstykki) og prjónið síðan 7 lykkjur frá hægri kanti í hálsmáli eins og áður = 65-67-73-73-73-73 lykkjur í umferð. Þær ystu 7 lykkjur í hvorri hlið kallast nú kantlykkjur að framan. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig:
Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið og endið með 7 kantlykkjur að framan eins og áður.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð síðar þegar auka á út í laskalínu.
Teljið 8 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalína), teljið 11-11-13-13-13-11 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalína), teljið 23-25-27-27-27-31 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalína), teljið 11-11-13-13-13-11 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalína). Nú eru 8 lykkjur eftir á framstykki á eftir síðasta prjónamerki.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð (= 25-26-29-29-29-29 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með 7 kantlykkjum að framan eins og áður.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA og V-HÁLSMÁL eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

LASKALÍNA:
Þegar prjónaðar hafa verið alls 6-6-6-6-4-4 umferðir fram og til baka með A.1/A.2 (og næsta umferð er prjónuð frá réttu), aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýring að ofan (=16 lykkjur fleiri í útauknings umferð).
Aukið svona út í 8.-8.-8.-8.-6.-6. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4.-4.-4.-4.-3.-3. hverri umferð með sýnilegum klukkuprjóns lykkjum á hæðina) alls 8-9-10-11-13-14 sinnum á hæðina.

V-HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar auka á út fyrir laskalínu í 3.-3.-2.-2.-5.-5. skipti á hæðina, aukið einnig út fyrir V-HÁLSMÁL í hvorri hlið við miðju að framan – sjá útskýringu að ofan.
Aukið út fyrir v-hálsmáli í 8.-8.-8.-8.-6.-6. hverri umferð alls 5-5-6-6-6-7 sinnum á hæðina (þegar útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið, eru eftir 1-2-3-4-3-3 útaukningar fyrir laskalínu).

Þegar öll útaukning fyrir laskalínu og v-hálsmáli er lokið, eru 213-231-257-273-305-325 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með A.1/A.2 fram og til baka með 7 kantlykkjum að framan í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður - Munið eftir HNAPPAGAT í vinstri kanti að framan - sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki sem sett var í háls (stykkið mælist ca 22-24-26-28-30-32 cm frá öxl), skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig:
Prjónið 34-36-40-42-46-50 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 45-49-55-59-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 55-61-67-71-79-87 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 45-49-55-59-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 34-36-40-42-46-50 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 133-143-157-165-181-197 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðu 5 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki.
Haldið áfram fram og til baka með klukkuprjóni og 7 kantlykkjum að framan í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður.

ÚRTAKA Í HLIÐUM:
Þegar stykkið mælist 8 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur í hvoru framstykki með því að fækka um 2 lykkjur í klukkuprjóns lykkjur sem liggja næst brugðinni lykkju með prjónamerki í hliðum – sjá ÚRTAKA. Þ.e.a.s. á vinstra framstykki (þegar flíkin er mátuð) fækkið um 2 lykkjur til hægri og á hægra framstykki er fækkað um 2 lykkjur til vinstri = 129-139-153-161-177-193 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 18 cm frá skiptingu, fækkið lykkjum alveg eins og á bakstykki (þ.e.a.s. fækkið um 2 lykkjur til vinstri í byrjun á bakstykki og 2 lykkjur til hægri í lok bakstykkis) = 125-135-149-157-173-189 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 30 cm frá skiptingu í öllum stærðum (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff fram og til baka (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður – í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt saman við sléttu lykkjurnar. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 45-49-55-59-67-69 lykkjurnar frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-54-60-64-72-74 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í miðju af 5 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Prjónið A.3 hringinn. JAFNFRAMT í 8. umferð (þ.e.a.s. í 4. sýnilegu umferðinni með klukkuprjóns lykkjum), fækkið um 4 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA (fækkið um 2 lykkjur til vinstri eftir lykkjuna með prjónamerki í og fækkið um 2 lykkjur til hægri á undan lykkjunni með prjónamerki í).
Fækkið lykkjum svona í 8.-8.-8.-8.6.-6. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4.-4.-4.-4.-3.-3. Sýnilegu umferðinni með klukkuprjóns lykkjum) alls 3-3-4-5-5-5 sinnum á hæðina = 38-42-44-44-52-54 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 41-40-38-37-36-35 cm frá skiptingu (nú eru eftir 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt saman með sléttum lykkjum. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 45-44-42-41-40-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman kant í hálsmáli mitt að aftan þannig að saumurinn snúi inn. Strekkið aðeins á kantinum og saumið við hálsmál aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.11.2020
Leiðrétting: Mynsturteikning A.3 hefur verið bætt við til að útskýra klukkuprjón prjónað í hring á ermum.
Yfirfarið á vefsvæði: 03.05.2021
Leiðrétting: Fjöldi talna og staðsetning á hnappagötum
Yfirfarið á vefsvæði: 29.03.2022
V-HÁLSMÁL:..Aukið út fyrir v-hálsmáli í 8.-8.-8.-8.-6.-6. hverri umferð alls 5-5-6-6-6-7 sinnum á hæðina...

Mynstur

symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið
symbols = prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman
symbols = prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Lavender Breeze

Joe5, France

Lavender Breeze

Angela, Philippines

Lavender Breeze

Maren, Germany

Lavender Breeze

JoeJ5, France

Ocean Breeze

LaWollFever, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (98)

country flag Benedicte wrote:

Hei. Har et spørsmål rundt raglan i størrelse M. Står at første økning er etter 6 pinner frem og tilbake. Er det da 12 pinnelenger (6 fulle runder)? Videre står det at økning gjentas på hver 8 pinne (4 pinne med synlige patentmasker). Er det da 8 pinnelengder (4 fulle runder) eller 16 pinnelengder?

03.10.2021 - 19:58

DROPS Design answered:

Hej Benedicte, nej det er efter 6 pinde udtagningen starter og så øger du på hver 8. strikket pind (tæller du i patentmasken vil du kun se 4 patentmasker i højden). God fornøjele!

06.10.2021 - 15:10

country flag Josi wrote:

Merci beaucoup pour votre aide très agréable. J'ai bloqué dessus et maintenant grâce à vous ça me parait faisable je croise les doigts

06.08.2021 - 09:37

country flag Josi wrote:

Merci, qu'est ce que vous appelez le rang préparatoire des cotes anglaises ? Est ce le jeté, glisser 1m à l'envers et 1 m tricotée ? Si oui je l'ai fait et défait car le compte n'y est pas pour les marqueurs... Que faut il compter cet ensemble pour 3 mailles ? Merci

05.08.2021 - 15:42

DROPS Design answered:

Bonjour Josi, tout à fait, c'est bien ce que j'appelais le rang préparatoire, mais les jetés ne comptent pas comme des mailles car ils "appartiennent" à la maille glissée, autrement dit comptez 1 maille glissée + 1 jeté comme 1 seule maille (= vous avez donc toujours 65 m). Bon tricot!

06.08.2021 - 08:09

country flag Josi wrote:

Bonjour Je n'arrive pas à débuter ce tricot ! Tout mis sur circulaire et après ça ne correspond pas j'ai 51 m +2x7 m de bordures=65. La suite c'est comment ? tricoter 1 rang complet en cote anglaise ou comme indiqué dans l'empiècement ? J'ai tout essayé et les marqueurs ne sont pas aux bons endroits. Comment compter pour y arriver le jeté, la m glissée et la m tricotée ? RIEN ne correspond j'ai besoin d'aide avant de tout jeter svp

05.08.2021 - 14:02

DROPS Design answered:

Bonjour Josi, après avoir mis toutes les mailles sur l'aiguille = 65 m en taille S, vous mettez un marqueur et tricotez maintenant l'empiècement, en commençant sur l'envers comme indiqué (= les bordures des devants comme avant + le rang préparatoire des côtes anglaises). Vous placez ensuite vos marqueurs sans tricoter et alors seulement tricotes les diagrammes avec les bordures des devants comme avant en augmentant pour les raglans et l'encolure. Bon tricot!

05.08.2021 - 14:23

country flag FJ wrote:

Hei. Jeg ser av kommentarene her at mange har gjort samme feil som jeg, men jeg har fulgt instruksjoner og video, så forstår ikke hvordan det kunne bli feil. Men, det gjelder halskantene. Det blir et bytte på høyre og venstre det som gjør at det blir to rillemasker ytterst og ikke om mot bolen som det skal være. Kan dere lage en video som viser hva man må gjøre etter å ha lagt opp masker mellom halskantene? Og hvor gjorde jeg feil /misforsto oppskrift?

29.07.2021 - 12:12

DROPS Design answered:

Hei FJ Takk for ditt innspill. Video ønsket er oversendt videoteamet. Usikker på hvor du gjorde feil/misforstod oppskriften, men avsluttet du høyre halskant etter en pinne fra vrangen, og venstre halskant fra en pinne fra retten? mvh DROPS design

12.08.2021 - 06:46

country flag Marie Hélène ROBIN wrote:

Bonjour, Comment peut-on repérer lorsque l'on tricote des côtes anglaises en rond (manches A3) que l'on est sur le rang endroit/envers ? Merci pour votre réponse, Marie Hélène

21.07.2021 - 16:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Robin, la video ci-dessous montre comment tricoter des côtes anglaises en rond (= comme dans A.3) - autrement dit, si vous avez 1 m endroit glissée + 1 jeté, tricotez le tour comme les rangs impairs de A.3; et si vous avez 1 m envers glissée + 1 jeté, tricotez le tour comme les rangs pairs de A.3. Bon tricot!

21.07.2021 - 16:47

country flag Marie Hélène ROBIN wrote:

Bonjour, je ne comprends pas au niveau des manches, comment doit on Tricoter A.3 en rond ? Comment doit-on faire le jeté pour pouvoir ensuite tricoter ensemble à l'envers le jeté et la maille glissée ? c'est différent du jeté précédent où l'on tricote à l'endroit les 2 mailles ensemble . Et comment sait-on si on est sur le rang où l'on tricote endroit/envers ? Merci pour votre réponse, Marie Hélène

16.07.2021 - 08:46

DROPS Design answered:

Bonjour Marie-Hélène, cette vidéo montre comment tricoter des côtes anglaises en rond et devrait vous permettre de pouvoir ainsi tricoter A.3 en alignant le diagramme au-dessus des mailles de l'empiècement. Bon tricot!

16.07.2021 - 11:42

country flag Anne Dahl Bertelsen wrote:

Hej Drops Jeg er blevet færdig med alle udtagninger til raglan og v-hals, men har nu 259 masker på pinden, ikke 257, som opskriften på medium siger. Jeg har talt antal udtagninger til både raglan og v-hals efter, og det burde være rigtigt, ligesom jeg også havde 73 masker på pinden, som jeg skulle, inden jeg gik i gang med bærestykket. Mon I kan komme med et kvalificeret bud på, hvor det er gået galt? På forhånd tak. Vh. Anne

27.06.2021 - 19:40

DROPS Design answered:

Hej Anne, I størrelse M starter du med 73 masker, tager 16 masker ud 10 gange, tager 4 masker ud til V-hals 6 gange. 73+160+24= 257 masker. God fornøjelse!

30.06.2021 - 13:23

country flag Ewa wrote:

Hello, I was wondering if the bands in the pattern are the same as on the picture of the cardigan? Following the explanation in the pattern (and the video) 2 garter stitches are towards the edge of the band and one garter stitch is connecting the band with the body of the cardigan. On the picture it looks like it's the other way around.

11.06.2021 - 21:52

DROPS Design answered:

Dear Ewa, you're reading it the other way around. The 2 stitches connect with the body. The first round is on the wrong side, so the second row begins from the edge towards the center of the front piece.

07.08.2021 - 11:22

country flag Iris wrote:

Hallo! Ich hänge gerade bei den Raglan-Zunahmen: Ihr schreibt, alle 6 Reihen (Größe L) wird jeweils zugenommen und erwähnt auch, daß das 3 rechten Patentmaschen entspricht. Mein Maschenbild sieht aber anders aus als auf dem Foto. Auf dem Foto sieht es so aus, als ob alle 12 Reihen = 6 Patentmaschen zugenommen wird. Wie ist es nun richtig? Danke!

11.05.2021 - 21:08

DROPS Design answered:

Liebe Iris, in L (= 4. Größe) nehmen Sie für den Raglan in jeder 8. Reihe, dh in jeder 4. Reihe mit sichtbaren Patentmaschen in der Höhe, so bekommen Sie die richtigen Maßen wie bei der Skizze. Viel Spaß beim stricken!

12.05.2021 - 07:50