DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Lavender Puff

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni með laskalínu. Stærð XS - XXL.

DROPS 213-33
DROPS Design: Mynstur z-886
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350 g litur 4010, ljós lavender
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-125-150 g litur 09, ljós lavender

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 36 umferðir á hæð með klukkuprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir klukkuprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------<br />
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING FYRIR LASKALÍNU:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við brugðnu lykkjuna með prjónamerki í (= laskalínu lykkjurnar), þ.e.a.s. aukið út í sléttri lykkju og uppslátt sem liggur næst laskalínu lykkju. Aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við laskalínu lykkjurnar (= 16 lykkjur fleiri í útauknings umferð).
Aukið út um 2 lykkjur í slétta lykkju og uppslátt með því að prjóna 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn þannig: Prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni yfir og uppsláttinn á hægri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sömu lykkju og uppslátt slétt saman einu sinni til viðbótar (= 2 lykkjur fleiri).
Prjónið síðan nýjar lykkjur í klukkuprjóni (A.1), en gætið að í fyrstu umferð á eftir útaukningu þá kemur þessi eina útaukna lykkja að vera prjónuð slétt án þess að vera prjónuð saman við uppslátt, þar sem ekki er uppsláttur fyrir þessa lykkju.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum):
Fækkið lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki og undir ermar í lykkjurnar sem liggja næst brugðinni lykkju með prjónamerki í mitt undir ermi/í hliðum á fram- og bakstykki.
Öll úrtaka er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónuð slétt saman!
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR TIL VINSTRI ÞANNIG (þ.e.a.s. byrjið strax eftir brugðinni lykkju með prjónamerki í): Lyftið yfir fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum á hægri prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjurnar slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðin + 1 lykkja slétt og uppsláttur), steypið síðan lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri).
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR TIL HÆGRI ÞANNIG (þ.e.a.s. byrjið 3 lykkjum + 2 uppsláttum á undan brugðinni lykkju með prjónamerki í): Lyftið yfir fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slett saman, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir brugðnu lykkjuna, lyftið til baka lykkjunni yfir á vinstri prjón, lyftið lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjuna sem sett voru til baka á vinstri prjón, lyftið að lokum yfir þá lykkju sem eftir eru á hægri prjóni (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.
ATH: Allur Lykkjufjöldi sem gefinn er upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar þar sem uppslátturinn er talinn sem 1 lykkja með sléttri lykkju.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 78-82-86-88-96-100 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Byrjun á umferð = mitt að aftan. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2-2-6-4-0-0 lykkjur jafnt yfir = 76-80-80-84-96-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu.
Teljið 13-15-15-15-17-17 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalína), teljið 9-9-9-9-13-13 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalína), teljið 27-29-29-31-33-35 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalína), teljið 9-9-9-9-13-13 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju). Nú eru 14-14-14-16-16-18 lykkjur eftir á bakstykki eftir síðasta prjónamerki.
Prjónið síðan A.1 hringinn. JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

LASKALÍNA:
Þegar prjónaðar hafa verið alls 7 umferðir með A.1 (og næsta umferð byrjar með «prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman»), aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 16 lykkjur fleiri í útauknings umferð).
Aukið svona út í 8. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4. hverri umferð með sýnilegum klukkuprjóns lykkjum á hæðina) alls 7-8-9-10-11-12 sinnum á hæðina = 188-208-224-244-272-292 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með A.1 hringinn án útaukninga þar til stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki við háls (stykkið mælist ca 22-24-26-28-30-32 cm frá öxl).
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig:
Prjónið 27-31-33-35-39-43 lykkjur eins og áður (= ½ bakstykki), setjið næstu 39-43-45-51-57-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 55-61-67-71-79-87 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 39-43-45-51-57-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 28-30-34-36-40-44 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 120-132-144-152-168-184 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðu af 5 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki. Byrjið umferð við lykkju með prjónamerki og prjónið A.1 hringinn eins og áður.

ÚRTAKA Í HLIÐUM:
Þegar stykkið mælist 8 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur í hvoru framstykki með því að fækka um 2 lykkjur í klukkuprjóns lykkjur sem liggja næst brugðinni lykkju með prjónamerki í hliðum – sjá ÚRTAKA. Þ.e.a.s. fækkið um 2 lykkjur til vinstri í byrjun á bakstykki og 2 lykkjur til hægri í lok á bakstykki = 116-128-140-148-164-180 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 18 cm frá skiptingu, fækkið lykkjum alveg eins og á framstykki (þ.e.a.s. fækkið um 2 lykkjur til vinstri í byrjun á bakstykki og 2 lykkjur til hægri í lok bakstykkis) = 112-124-136-144-160-176 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu í öllum stærðum (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt saman við sléttu lykkjurnar. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 39-43-45-51-57-59 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 5 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 44-48-50-56-62-64 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í miðju af 5 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Prjónið A.1 hringinn. JAFNFRAMT í 8. umferð (þ.e.a.s. í 4. sýnilegu umferðinni með klukkuprjóns lykkjum), fækkið um 4 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA (fækkið um 2 lykkjur til vinstri eftir lykkju með prjónamerki í og fækkið um 2 lykkjur til hægri á undan lykkju með prjónamerki í).
Fækkið lykkjum svona í 8.-8.-8.-8.6.-6. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4.-4.-4.-4.-3.-3. sýnilegu umferðinni með klukkuprjóns lykkjum) alls 2-2-2-3-3-3 sinnum á hæð = 36-40-42-44-50-52 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 40-39-37-36-34-33 cm frá skiptingu (nú eru eftir 4 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt saman með sléttum lykkjum. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 44-43-41-40-38-37 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.10.2023
FRAM- OG BAKSTYKKI: FRAM- OG BAKSTYKKI:.. Byrjið umferð við lykkju með prjónamerki og prjónið A.1 hringinn eins og áður.

Mynstur

symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið
symbols = prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman
symbols = prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Lavender Puff

ASY, France

Lavender Puff

Laurageknits, Germany

Lavender Puff

Anna, Finland

Lavender Puff

@mirjam_makes, Netherlands

Lavender Puff

@machteldsill, Belgium

Lavender Puff

@machteldsill, Belgium

Lavender Puff

Amanda, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (36)

country flag Irene wrote:

Dag. Ik ben klaar met de raglan en nu moet ik de draad afknippen. Ik snap niet zo goed waarom. Kan het lijf niet vanaf daar verder gebreid? Wat doe ik met de steken op de naald? Met welke steek begin ik onder de arm? Ik hoop dat u kan helpen.

01.02.2024 - 12:00

DROPS Design answered:

Dag Irene,

Je eindigt in het midden van het achterpand nadat je de raglan hebt gebreid en met het lijf begin je in het midden van de 5 opgezette steken onder de mouw. Vandaar dat je de draad af moet knippen. Je kunt na het afknippen de steken doorschuiven tot naar het midden onder de mouw. Je gaat verder met A.1 in de rondte.

07.02.2024 - 19:42

country flag Inge Nielsen wrote:

Opskriften er med garngruppe C eller A+A. Hvordan påvirker det strikfastheden og garnforbrug, hvis jeg kun vil strikke med en tråd fra garngruppe A?

02.01.2024 - 13:01

DROPS Design answered:

Hej Inge, for at få målene i måleskitsen er det vigtigt at du overholder strikkefastheden som står i opskriften. Hvis du kun bruger en tråd som er halv så tynd, så vil blusen jo blive meget løs. Lav en strikkeprøve først så du ser hvordan det ser ud med 14 masker i bredden i helpatent med 1 tråd :)

02.01.2024 - 15:01

country flag Claudia wrote:

Hallo. Ich weiß nicht! Wo ich den Faden wieder anschlagen soll,nachdem ich ihn abschneiden sollte,nach der Reihe der Trennung der Ärmel. Nun wird die Passe für das Rumpfteil und die Ärmel aufgeteilt. Danach den Faden abschneiden. Und dann? LG Claudia

07.10.2023 - 00:22

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, dann stricken Sie Rumpfteil und beginnen Sie die Runden in der Mitte einer Seite. Viel Spaß beim stricken!

09.10.2023 - 08:25

country flag Françoise Lelarge wrote:

Au moment de partager mes mailles pour la taille XXL je me retrouve avec 4 mailles en trop. EN attente merci pour votre réponse.

02.10.2023 - 16:24

country flag FRANÇOISE LELARGE wrote:

Bonjour, J'ais un problème pour la répartition des mailles pour la taille XXL, j'ais mes 100 m et au moment de répartir mes mailles pour partagé dos manches et devant je me retrouve avec 4m en trop.. Merci pour votre réponse.

02.10.2023 - 16:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lelarge, notez que les marqueurs doivent être mis dans une maille (et pas entre 2 mailles), c'est probablement les 4 mailles qui vous manquent. Bon tricot!

03.10.2023 - 07:46

country flag Mathilde wrote:

Jeg er i gang med økning på raglan lavender puff,. Jeg har fulgt oppskriften nøye, men det må være noe jeg gjør galt for etter å ha økt på hver 8. omgang i fire økeomganger har jeg kommet opp i det antallet jeg skulle vært oppi etter åtte økeomganger. Jeg har økt på hver side av vrangmasken med merke i og fulgt oppskriften deres for neste omgang, men likevel blir det feil. Kan dere hjelpe meg å forstå hva jeg gjør feil😅

14.05.2023 - 00:05

DROPS Design answered:

Hei Mathilde. Usikker på hvor det blir feil hos deg, har du strikket et patentkast som en egen maske kanskje? For å hjelpe deg best mulig er det fint om du skrive hvilken str. du strikker? Om du strikker f.eks str. XS starter du med 76 masker, deretter skal du øke 7 ganger på hver 8. omgang med 16 masker = 76+16+16+16+16+16+16+16 = 188 masker. mvh DROPS Design

15.05.2023 - 12:44

country flag Mieke Baras wrote:

Minderingen aan de zijkanten en onder de mouw: “begin na de av st met markeerdraad”. De middelste st van de 5 nieuw opgezette steken ziet eruit als een rechte st ( die als een averecht afgehaalde st en een omslag recht is samengebreid) Klopt dat? Bij mij zien die 5 st er op een even nld zo uit: (1 afgehaalde av st en om samengebreid, 1om, 1 st av afhalen ) x2, eindigen met 1 afgehaalde av st en omslag samengebreid. Is de 2de re samengebreide av afgehaalde st met de omsl de markeersteek?

16.03.2023 - 08:02

country flag Ang wrote:

Kann es sein, dass sich hier ein Fehler bei der Maschenzahl Größe XS eingeschlichen hat? es sollten nach dem Bund, und der Abnahme 76 Maschen sein, zählt man jedoch die einzelnen Abschnitte der Markierer zusammen kommt man auf 72... was stimmt den nun? Liebe Grüße

30.11.2022 - 09:08

DROPS Design answered:

Liebe Ang, beachten Sie, daß die Markierer jeweils in einer Masche eingesetzt werden, so haben Sie: 13+1+9+1+27+1+9+1+14 = 76 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

30.11.2022 - 11:48

country flag Hannah wrote:

For the last second row in the yoke portion, when setting up for the English rib, my round ends with a k1, yo, sl1p, but then the first row of the chart says to yo, sl1p, but that feels awkward and incorrect to have a yo, a slipped stitch, and another yarnover as it’s not following the ribbing pattern. Should I start on the second row of the chart? Please advise

09.11.2022 - 00:54

DROPS Design answered:

Dear Hannah, after having worked the round (K1, YO + slip 1p), you have to work the first row in A.1, ie start with (YO + slip 1 p), the transition at the beg of the round might look weird but on the next round it will worked perfectly since the last stitch of the round will be worked tog. with its yarn over - see this video at approx. 02:48 you can see the end of 2nd round and the beg of 3rd round. Happy knitting!

09.11.2022 - 08:32

country flag FRANCINE wrote:

Bonjour, j'ai déjà posé cette question mais ne trouve pas ma réponse. Dois-je faire l'échantillon avec des aiguilles No5, 14 m sur 36 rangs ou 17 m sur 32 rang? Moi je l'ai fait avec des aiguilles No 4, 23 m sur 30 rangs. suis-je dans l'erreur? merci

13.05.2022 - 20:26

DROPS Design answered:

Bonjour Francine, l'échantillon se réalise avec les aiguilles 5, vous devez avoir 17 mailles x 22 rangs en jersey et 14 mailles x 36 rangs en côtes anglaises avec 1 fil Alpaga + 1 fil Kid-Silk, ce qui compte avant tout c'est le bon échantillon, essayez avec des aiguilles plus grosses, pour augmenter vos chances d'avoir l'échantillon. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

16.05.2022 - 08:10