DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Avalanche Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki, áferðamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 243-7
DROPS Design: Mynstur bm-112
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-450-500-550-600 g litur 02, natur

TÖLUR:
DROPS TALA NR 521: 6-6-6-7-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

UPPHÆKKUN:
Til að peysan verði aðeins hærri að aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þig langar ekki til að hafa upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju í umferð.
Byrjið frá réttu og prjónið 16-17-18-19-20-21 lykkjur slétt fram hjá lykkju með prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 33-35-37-39-41-43 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 49-52-55-58-61-64 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 65-69-73-77-81-85 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 81-86-91-96-101-106 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 97-103-109-115-121-127 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina, snúið og prjónið 1 umferð brugðið (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er í uppskrift.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2).

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að stroff í hálsmáli hefur verið prjónað til loka. Síðan er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 7½-8-8½-7½-7½-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 137-143-147-153-159-169 lykkjur með DROPS BabyMerino yfir hringprjón 2,5 og hringprjón 3 sem haldið er saman.
Dragið út stutta hringprjón 3 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 2,5. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur).
Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka.
Þegar kantur í hálsmáli mælist 4-4-4-5-5-5 cm, fitjið upp 6 nýjar lykkjur fyrir kant að framan í lok 2 næstu umferða = 149-155-159-165-171-181 lykkjur.
Prjónið stroff eins og áður (sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur), en nú eru ystu 7 lykkjurnar í hvorri hlið prjónaðar í garðaprjóni.
Þegar stroffið mælist 8-8-8-10-10-10 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, brjótið stroffið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroff eins og áður JAFNFRAMT sem ca 4. hver lykkja frá stroffi er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð og aukið jafnframt út um 34-36-36-38-40-42 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið ÚTAUKNING = 183-191-195-203-211-223 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki innan við kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan – prjónamerkið er notað til að mæla frá.
Nú er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lesið útskýringu að ofan.
Ef þú vilt ekki hafa upphækkun þá heldur þú áfram eins og útskýrt er að neðan.

Prjónið sléttprjón fram og til baka með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 3-4-6-2-3-4 cm frá prjónamerki, aukið út um 39-39-43-39-39-41 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 222-230-238-242-250-264 lykkjur. Útaukningu fyrir áferðamynstri er nú lokið í stærð S, M og L.

STÆRÐ XL, XXL og XXXL:
Þegar stykkið mælist 4-6-8 cm frá prjónamerki, aukið út um 36-36-38 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 278-286-302 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
= 222-230-238-278-286-302 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 4-5-7-5-7-9 cm frá prjónamerki.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 alls 26-27-28-33-34-36 sinnum, endið með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan (ekki er aukið út yfir kanta að framan):
Ör-1: Aukið út 40-48-56-40-48-56 lykkjur jafnt yfir = 262-278-294-318-334-358 lykkjur.
Ör-2: Aukið út 48-44-52-42-54-58 lykkjur jafnt yfir = 310-322-346-360-388-416 lykkjur.

Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 10-11-13-11-13-15 cm frá prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A alls 24-25-27-24-26-28 sinnum, A.2B, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu.
Þegar komið er að umferð merktri með ör-3 í mynsturteikningu, eru 410-426-458-510-550-590 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur og aukið jafnframt út 1-7-11-3-10-3 lykkjur jafnt yfir í umferð merktri með ör-3 = 411-433-469-513-560-593 lykkjur.

Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, mælist berustykki ca 21-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið fyrstu umferð í A.3 yfir næstu 59-64-69-74-82-90 lykkjur og aukið jafnframt út 6-7-7-8-8-9 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 72-78-83-89-97-106 lykkjur á framstykki), setjið næstu 80-80-89-100-109-109 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið fyrstu umferð í A.3 yfir næstu 119-131-139-151-164-181 lykkjur og aukið jafnframt út 11-11-13-13-16-17 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 130-142-152-164-180-198 lykkjur á bakstykki), setjið næstu 80-80-89-100-109-109 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið fyrstu umferð í A.3 yfir næstu 59-64-69-74-82-90 lykkjur og aukið jafnframt út 6-7-7-8-8-9 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= 72-78-83-89-97-106 lykkjur á framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 290-314-338-362-398-434 lykkjur.
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3 alls 23-25-27-29-32-35 sinnum, endið með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, eru 267-289-311-333-366-399 lykkjur í umferð.
Setjið 1 merkiþráð 70-75-81-86-95-103 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 127-139-149-161-176-193 lykkjur á milli merkiþráða á bakstykki). Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu. Það á að nota þá þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 16-17-17-17-17-17 cm frá skiptingu og næsta umferð er prjónuð frá réttu, skiptist stykkið við báða merkiþræðina og framstykkin og bakstykkið er síðan prjónað hvert fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Setjið 70-75-81-86-95-103 lykkjur frá vinstra framstykki á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 23-26-26-31-32-36 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 93-101-107-117-127-139 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 3 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Fellið af – notið e.t.v. ítalska affellingu. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið 70-75-81-86-95-103 lykkjur frá hægra framstykki á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 23-26-26-31-32-36 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 93-101-107-117-127-139 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 3 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Fellið af á sama hátt og á vinstra framstykki.

BAKSTYKKI:
Setjið síðustu 127-139-149-161-176-193 lykkjur á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 46-48-52-58-65-70 lykkjur jafnt yfir = 173-187-201-219-241-263 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 3 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 3 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af á sama hátt og á framstykkjum.

ERMI:
Byrjið mitt undir annarri erminni, notið stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 3, prjónið upp 1 lykkju í hverja af 4-4-5-5-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi, setjið 80-80-89-100-109-109 lykkjur af þræði á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið fyrstu umferð í A.3 yfir þessar lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 8-8-9-10-11-11 lykkjur jafnt yfir, prjónið að lokum upp 1 lykkju í hverja af síðustu 4-4-5-5-6-6 lykkjum mitt undir ermi = 96-96-108-120-132-132 lykkjur. Ermin er núna prjónuð í hring.
Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð (mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi) – látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið A.3 jafnframt því sem lykkjum er fækkað mitt undir ermi eins og útskýrt er að neðan.

Prjónið A.3 alls 8-8-9-10-11-11 sinnum í kringum ermi. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, hefur fækkað um 1 lykkju í hverri mynstureiningu (8-8-9-10-11-11 lykkjur færri). Prjónið áfram í sléttprjóni.

JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-0-3-7-10-10 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-8-8-8-8 sinnum = 72-76-77-80-85-85 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 36-35-34-32-31-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 26-26-29-30-31-31 lykkjur jafnt yfir = 98-102-106-110-116-116 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið af á sama hátt og á fram- og bakstykki.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op við miðju að framan á köntum að framan með smáu spori.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er í mynsturteikningu (það á að myndast gat)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (það á ekki að myndast gat)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið síðan fyrstu lykkju sem var prjónuð yfir hinar 2 þannig að þessi lykkja liggi utan um hinar 2 lykkjurnar
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols =
þetta er engin lykkja þar sem búið er að fækka um þessa lykkju eða hún er ekki til, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Hanne Jespersen wrote:

Hej Jeg kan slet ikke få A1 til at passe. Jeg har prøvet om og om igen. Den lille snoning kommer slet ikke til at ligne billedet, hvor det jo nærmest bare ligner retmasker, der danner V-er. Jeg håber meget, at I kan hjælpe mig. Venlig hilsen Hanne

26.03.2024 - 04:30

DROPS Design answered:

Hej Hanne, prøv at kun strikke de 8 masker i A.1, du flytter helt enkelt bare retmasken (ifølge symbolforklaringen). Du starter nederst i højre side og strikker mod venstre, de små snoninger strikkes fra retsiden og på pinden tilbage (næste pind i diagrammet) strikkes de modsat, så det bliver til vrang på retsiden :)

04.04.2024 - 15:31

country flag Helle Nielsen wrote:

Når jeg er klar til at dele bærestykket og skal tage masker af til forstykke. Skal jeg tage 8 masker ud fordelt over 74 masker. Det har jeg gjort og skal så ende med 89 masker, det regnestykke kan jeg ikke få til at passe. Jeg skal strikke første p. I a3 og det er en glat uden udt. Er der noget. Jeg overser?

24.03.2024 - 11:46

DROPS Design answered:

Hej Helle, jeg kan ikke finde de 89 masker du beskriver... Hvilken størrelse strikker du og hvor er du i opskriften?

03.04.2024 - 15:05

country flag Trine Haugen wrote:

Når jeg er ferdig med a1 skal jeg strikke a.2a skal jeg strikke det sammen med a.2b eller bare a.2a ut pinnen?

15.03.2024 - 12:55

DROPS Design answered:

Hej Trine, ja du gentager A.2A det antal gange som passer til din størrelse og så afslutter du omgangen med A.2B inden kantmaskerne :)

19.03.2024 - 12:19

country flag Edyta wrote:

7 oczek obszycia przodu ściegiem francuskim, powtórzyć 24-25-27-24-26-28 razy schemat A.2A, przerobić A.2B i zakończyć przerabiając 7 oczek obszycia przodu ściegiem francuskim. Dalej przerabiać tak samo zgodnie ze schematami. Gdy dojdziemy do rzędu oznaczonego strzałką-3 na drucie jest 410-426-458-510-550-590 oczek. Przepraszam, ale nie rozumiem kiedy przerabiać schemat A.2A i A.2B

09.03.2024 - 15:33

DROPS Design answered:

Witaj Edyto, na prawej stronie robótki przerabiasz 1 schemat A.2B przed 7 ostatnimi oczkami ściegiem francuskim jak w opisie (7 oczek obszycia przodu ściegiem francuskim, powtórzyć 24-25-27-24-26-28 razy schemat A.2A, przerobić A.2B i zakończyć przerabiając 7 oczek obszycia przodu ściegiem francuskim). Za to na lewej stronie przerabiasz: 7 oczek obszycia przodu ściegiem francuskim, 1 raz schemat A.2B, 24-25-27-24-26-28 razy schemat A.2A i 7 oczek obszycia przodu ściegiem francuskim. Jak czytać schematy w robótce na drutach znajdziesz TUTAJ. Pozdrawiamy!

11.03.2024 - 08:42

country flag Claudia wrote:

Ich stricke Grösse M. Ich habe A1 gestrickt und bei Pfeil 2 44M zugenommen=322. Dann folgt A2 und passt nicht. 25 × 12M =300+ 14 RM = 314 M und nicht 322. Wo ist mein Fehler?

05.03.2024 - 09:05

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, am Ende der Reihe wird man A.2B stricken, damit das Muster symmetrisch wird, dh so sollen Sie stricken: 7 Blenden-Maschen, die 12 Maschen A.2A 25 Mal wiederholen (= über die nächsten 300 Maschen), dann die 8 Maschen A.2B stricken und 7 Blenden-Maschen 7+300+8+7=322 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!

05.03.2024 - 15:28

country flag Amelie wrote:

Bonjour. Quand je passe du diagramme A1 à A2 je ne comprends pas. J'ai 322 mailles (taillesM). En suivant les diagrammes et le patron, quand j'additionne les 14 mailles des bords + (12×25) + 8 ça fait bien 322. Pourtant il y a des cases noires sur le diagrammes, et quand je ré aditionne ça fait moins que 322 mailles alors qu'il est spécifié qu'on doit faire 25 fois le A2A. Je ne comprends pas ce que que dois faire des mailles manquantes... Merci Amélie

17.02.2024 - 12:16

Amélie answered:

Autant pour moi j'ai compté directement les cases sur le diagramme et ça fait 12 + les 3 cases noires merci 🙂

17.02.2024 - 12:32

country flag Amel wrote:

Bonjour je peux tricoter les manches en allers retours ?

08.01.2024 - 14:51

DROPS Design answered:

Bonjour Amel, tout à fait, montez la moitié des mailles à relever sous la manche + 1, tricotez les mailles des manches et montez l'autre moitié des mailles à relever + 1 - les 2 m en plus sont pour les coutures. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

09.01.2024 - 07:09

country flag Kerstin Björklund wrote:

Enligt mönstret ska det var Baby Merinoull med stickfastighet 26 x 34. Enligt garnet så är det 24x 32 . Något måste vara fel för det stämmer inte. Vilket garn ska det vara som passar till mönstret.

27.12.2023 - 17:27

DROPS Design answered:

Hej Kerstin, jo det stemmer, design har valgt at strikke denne på 26 masker på 10 cm i DROPS Baby Merino :)

02.01.2024 - 12:11

country flag Catharina Joelsson wrote:

Stickar A:3 på ärmar. När A:3 är färdigstickat ska jag ha minskat 1 maska i varje rapport. Samtidigt ska jag efter 2 cm från delningen minska mitt under ärmen först på vartannat varv och sedan på vart fjärde. Detta går ju inte ihop med rapporterna för efter 2 cm har jag ju inte kommit fram till slätstickning. Hur ska jag göra? Vänl hälsn

17.12.2023 - 13:16

DROPS Design answered:

Hei Catharina. Mønstret vil ikke stemme 100% under ermet i A.3, men dette vil ikke vises ved brukt. mvh DROPS Design

18.12.2023 - 09:36

country flag Ingela Gotthardsson wrote:

Saknar diagram A3

10.12.2023 - 16:49

DROPS Design answered:

Hei Ingela. Du finner diagram A.3 under A.2A og til høyre fra diagram A.1. mvh DROPS Design

11.12.2023 - 12:55