Giuliana D’Agnelli skrifaði:
I conti non tornano ! Sto lavorando una taglia M finiti i 6 aumenti mi trovo 200 maglie ma poi ho aumentato anche ai segni 3 e 6 ancora 2 volte e nella divisione delle maniche non mi trovo
21.11.2020 - 13:57DROPS Design svaraði:
Buongiorno Giuliana, si, il numero delle maglie sarà diverso da quello indicato. Buon lavoro!
27.11.2020 - 11:37
Lotte skrifaði:
Jeg forstår ikke instruksjonen etter vrangborden, når man skal minske fra 78-78-84-90-90-96 til 52-52-56-60-60-64: "Neste omgang strikkes slik: * Lag 1 kast, ta 1 maske løs av pinnen som om den skulle strikkes vrang, 2 vrang sammen *, strikk fra *-* omgangen rundt " Jeg sitter igjen med like mange masker til slutt.
28.10.2020 - 07:31DROPS Design svaraði:
Hej Lotte. Du ska kun telle maskerna, ikke kasten så får du 52-52-56-60-60-64 m. Mvh DROPS Design
28.10.2020 - 11:51
Karina Kamp skrifaði:
Betreft patroon Dublin Winter Sweater Op blz 4 van de beschrijving wordt het plaatsen van de markeerdraden beschreven. Klopt het, dat het achterpand (2 x 13 steken) breder is dan het voorpand (2 x 9 steken)? Er moeten tussen de 6e en de 1e markeerdraad, dan 13 steken overblijven, en géén 3, zoals vermeld. Dan kom ik, met de zes steken van de markeerdraden precies uit op 64 steken voor de grootste maat.
21.10.2020 - 11:35DROPS Design svaraði:
Dag Karina,
Het totaal aantal steken zou precies moeten kloppen als je ook de steken meerekent waar je een markeerdraad in plaatst: 10 steken + 1 markeerdraadsteek + 7 steken + 1 markeerdraadsteek + 9 steken + 1 markeerdraadsteek + 9 steken + 1 markeerdraadsteek + 7 steken + 1 markeerdraadsteek + 13 steken + 1 markeerdraadsteek + 3 steken = 64.
21.11.2020 - 17:54
Gemma Wanrooy skrifaði:
Kun je deze trui ook op gewone naalden breien? Ik ben niet zo goed op rondbreinaalden en vindt dit patroon zo vreselijk leuk.
18.10.2020 - 20:13DROPS Design svaraði:
Dag Gemma,
Helaas is dit patroon daar niet geschikt voor omdat hij vanaf de hals van boven naar beneden wordt gebreid en er zitten diverse meerderingen in de raglanlijnenn en midden voor en achter. Met rondbreinaalden is in het begin inderdaad ontzettend wennen.
21.10.2020 - 11:49
Nath skrifaði:
Bonjour, sur la taille S je ne comprend pas comment on arrive à 52m à la fin du col. On part de 78m. Au tour 1 des côtes on a 104m . Au tour 2 on revient à 78m. Sur le dernier tour avant de passer à l'aiguille 6 on reste sur 78m. Où est mon erreur ? A quel moment y a t il une diminution ? Merci de votre réponse et merci pour tous ces modèles gratuit.
15.10.2020 - 21:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Nath, (attention, les jetés des côtes ne comptent pas comme des mailles car ils appartiennent à la maille glissée) en taille S vous tricotez en CÔTES (= 1 m anglaise avec jeté, 2 m envers) sur 78 m soit 26 fois de (à). Après les 12 cm de côtes, vous allez tricoter un tour de diminutions en tricotant toutes les mailles envers ensemble à l'envers ainsi: (1 m en côtes anglaise avec jeté (= tour 1), 2 m ens à l'env) x 26 = il vous restera (1 m en côtes anglaise avec jeté, 1 m env)x 26 autrement dit 52 m. Bon tricot!
16.10.2020 - 09:22
Irene Calcagno skrifaði:
Buongiorno, non mi torna la divisione delle maglie , nelle quali mettere i 6 segni. Se faccio come dicono le istruzioni: 8-7-7-7-7-11 per la taglia M, restano fuori 9 maglie. Dove vanno distribuite queste maglie? Grazie
08.10.2020 - 11:50DROPS Design svaraði:
Buongiorno Irene. I segni vanna inseriti in una maglia. Quindi, per la taglia M: 8 m, maglia con il segno, 5 m, m con il segno, 7 m, m con il segno, 7 m, m con il segno, 5 m, m con il segno, 11 m, m con il segno, ultime 3 m. In tutto 52 m. Buon lavoro!
08.10.2020 - 12:12
Elena skrifaði:
Is there a similar pattern for crochet?
20.09.2020 - 15:03DROPS Design svaraði:
Dear Elena, at th emoment we do not have a crochet version of this exact sweater,but I would suggest you do a search in out database, as there are modells, that have elements of this one, either teh V shaping at the front, or the big trumpet sleeves. And then you could combine them. Happy Crafting!
21.09.2020 - 00:31
Monica Pradines skrifaði:
Me encanta este sweter espero que lo liberen proto
19.08.2020 - 16:34
Anne Dehn skrifaði:
Lovely 70-ties sleeves. Must knit 🧶
12.08.2020 - 20:39
Shelly Hendley skrifaði:
Definitely on my list for fall sweater
12.08.2020 - 13:26
Dublin Winter Sweater#dublinwintersweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni og A-formi. Stærð XS - XXL.
DROPS 215-12 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- STROFF (prjónað í hring): UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Endurtakið umferð 1 og 2. KLUKKUPRJÓN (prjónað í hring): UMFERÐ 1: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-*. Endurtakið umferð 1 og 2. ÚTAUKNING (á við um útaukningu í klukkuprjónslykkju): Öll útaukning er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónað slétt saman (þ.e.a.s. 1. umferð í klukkuprjóni). Aukið út um 4 lykkjur í klukkuprjónslykkju þannig: Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman 1 sinni, færið prjónamerkið að þessari lykkju (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna saman 1 sinni til viðbótar (= 3 lykkjur og 2 uppslættir), sleppið lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni. Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar þannig: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið (= 3 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið). Prjónamerkið situr nú í miðju á útauknu lykkjum, þ.e.a.s. í sléttri lykkju. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Öll úrtaka er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónað slétt saman (þ.e.a.s. í 1. umferð í klukkuprjóni). Byrjið mitt undir ermi (þ.e.a.s. á undan lykkju með prjónamerki) og fækkið um 4 lykkjur í umferð þannig: Prjónið fyrstu 2 lykkjurnar í klukkuprjóni eins og áður, lyftið næstu lykkju + tilheyrandi uppslætti af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 lykkjur + tilheyrandi uppslátt slétt saman og steypið lyftu lykkjunni + tilheyrandi uppslátt yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman. Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki (= miðjulykkja undir ermi), prjónið næstu 3 lykkjur + tilheyrandi uppslátt slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið síðustu lykkju í umferð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Á berustykki er aukið í 6 lykkjur sem eru merktar með prjónamerki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 78-78-84-90-90-96 lykkjur á hringprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan STROFF – sjá útskýringu að ofan í 12 cm, stillið af þannig að síðasta umferð sé 2. Umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 52-52-56-60-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð. Berustykkið er nú mælt frá þessum merkiþræði. Prjónið síðan berustykkið eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið 6 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna). Öll prjónamerkin eru sett í slétta lykkju. Þessi prjónamerki eru notuð þegar auka á út í berustykki. Teljið 8-8-8-10-10-10 lykkjur, setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju í umferð (= aftan á hægri ermi), teljið 5-5-7-5-5-7 lykkjur, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju (= laskalína að framan), teljið 7-7-7-9-9-9 lykkjur, setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju (= mitt að framan), teljið 7-7-7-9-9-9 lykkjur, setjið 4. Prjónamerki í næstu lykkju (= laskalína að framan), teljið 5-5-7-5-5-7 lykkjur, setjið 5. prjónamerki í næstu lykkju (= aftan á vinstri ermi), teljið 11-11-11-13-13-13 lykkjur, setjið 6. prjónamerki í næstu lykkju (= mitt að aftan), nú eru 3 lykkjur eftir í umferð. Prjónið KLUKKUPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar prjónaðar hafa verið 2-2-6-2-6-2 umferðir í klukkuprjóni, aukið út lykkjur í næstu umferð þannig: Aukið út um 4 lykkjur í allar 6 lykkjurnar með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING (= 24 lykkjur fleiri í hverri umferð). Aukið svona út í 12.-10.-10.-10.-8.-10. hverri umferð (þ.e.a.s. í 6.-5.-5.-5.-4.-5. sýnilegar umferðir með klukkuprjónslykkjum) alls 5-6-6-7-8-8 sinnum við 1., 2., 4. og 5. lykkju í umferð og alls 4-5-6-6-7-8 sinnum við 3. og 6. prjónamerki = 164-188-200-220-244-256 lykkjur í umferð. Ef prjónfestan passar á hæðina, mælist stykkið ca 20-20-22-24-24-28 cm frá prjónamerki við háls. Lengra í stykkinu á útaukning við 3. og 6. prjónamerki að halda áfram eins og áður 2 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. aukið er út alls 6-7-8-8-9-10 sinnum mitt að framan og mitt að aftan), ef stykkið mælist styttra en 20-20-22-24-24-28 cm, getur gerst að þessar útaukningar komi á berustykki. Þá kemur lykkjufjöldinn við skiptingu fyrir fram- og bakstykki og ermar ekki til með að verða sá sami og í útskýringu að neðan. Auka lykkjurnar koma til með að koma á framstykki og bakstykki. (1. og 5. prjónamerki hefur einnig fleiri útaukningar eftir skiptingu fyrir fram- og bakstykki og ermar – þetta er útskýrt undir ERMI). Prjónið áfram þar til stykkið mælist 22-22-24-25-27-29 cm frá prjónamerki við háls. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 14-16-16-18-20-20 lykkjurnar, setjið næstu 31-35-37-43-47-49 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7 lykkjur undir ermi, prjónið eins og áður yfir næstu 51-59-63-67-75-79 lykkjur, setjið næstu 31-35-37-43-47-49 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7 lykkjur undir ermi og prjónið þær 37-43-47-49-55-59 lykkjur sem eftir eru eins og áður. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 116-132-140-148-164-172 lykkjur – þessi lykkjufjöldi á við um ef aukið var út 4-5-6-6-7-8 sinnum við 3. og 6. prjónamerki á berustykki. Ef aukið hefur verið út oftar á berustykki, koma til með að vera fleiri lykkjur núna á fram- og bakstykki). Prjónið síðan þannig: Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni eins og áður og prjónið e.t.v. síðustu 2 útaukningar við 3. og 6. prjónamerki. Lykkjurnar sem fitjaðar voru upp undir ermi eru prjónaðar í fyrstu umferð án þess að prjóna saman með uppslætti. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru = 132-148-156-164-180-188 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Prjónið þar til stykkið mælist 26-28-28-29-30-29 cm frá skiptingu (stillið af að næsta umferð sé 1 umferð þar sem uppslátturinn er prjónaður slétt saman með sléttu lykkjunni). Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú stroff þannig: * Prjónið sléttu lykkjuna og uppsláttinn slétt saman eins og áður, 1 uppsláttur (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 198-222-234-246-270-282 lykkjur. Prjónið síðan stroff hringinn eins og í hálsi í 5 cm (uppslátturinn er prjónaður snúinn í fyrstu umferð með stroffi). Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 31-35-37-43-47-49 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 6 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-42-44-50-54-56 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi (þ.e.a.s. 1 lykkja slétt í klukkuprjónsmynstri). Þessi lykkja merkir mitt undir ermi og það á síðar að fækka lykkjum hvoru megin við hana. Byrjið umferð á undan miðjulykkju og prjónið þannig: Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni eins og áður, lykkjur sem prjónaðar voru upp undir ermi eru prjónaðar í fyrstu umferð án þess að prjóna saman með uppslætti. Jafnframt er aukið út í 1./5. prjónamerki frá berustykki og lykkjum er fækkað mitt undir ermi eins og útskýrt er að neðan: ÚTAUKNING: Haldið áfram með útaukningu eins og áður í 1./5. Prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri í hverri umferð með útaukningu). Aukið svona út í 12.-10.-10.-10.-8.-10. hverri umferð alls 4 sinnum. Á eftir fyrstu útaukningu er lykkjufjöldinn 42-46-48-54-58-60 lykkjur (síðan kemur lykkjufjöldinn til með að vera sá sami þar sem lykkjum er fækkað jafnframt því sem aukið er út). ÚRTAKA: Þegar 2. útaukning er gerð á ermi, fækkið jafnframt um lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri í hverri umferð með úrtöku). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð þar sem aukið er út (alls 3 sinnum). Þ.e.a.s. í 1. útaukningu á ermi eru lykkjur auknar út í umferð = 42-46-48-54-58-60 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum og aukið út jafnmargar lykkjur á þeim 3 útaukningum sem eftir eru þannig að lykkjufjöldinn verður sá sami. Prjónið í klukkuprjóni þar til ermin mælist 34-35-34-33-32-30 cm (nú eru 3 cm að loka máli). Prjónið nú stroff á sama hátt og á fram- og bakstykki, þ.e.a.s. í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt saman með sléttu lykkjunni, að auki er aukið út um 1 lykkju á eftir hverja slétta lykkju og brugðna lykkjan er prjónuð brugðið = 63-69-72-81-87-90 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff hringinn eins og á hálsi og fram- og bakstykki (þ.e.a.s. 1 slétt klukkuprjónslykkja og 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 37-38-37-36-35-33 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dublinwintersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.